Tíminn - 26.06.1965, Blaðsíða 12

Tíminn - 26.06.1965, Blaðsíða 12
LAUGARDAGUR 26. Júní 1965 12 TÍMINN UM HÍÐ ÍSLENZKA BÓK- MENNTAFÉLAG Á næsta ári verður Rókmennta- félagið — Hið íslenzka Bók menntafélag — 150 ára. Mun þessa merka félags og starfsemi þess þá verða myndarlega minnzt og að verðleikum, svo sem gert var á 50 og 100 ára afmælum þess. Skírnir, 138. árangur, sem telst til ársins 1964, hefir borizt félags mönnum í hendur fyrir skömmu og er það seinna en vera ætti, og er naumast við 'hæfi þessa elzta tímarits landsins og allra Norður landanna að vera svo síðla ferðbú- ixm. Með sama hætti kemur 139. árgangur hans út einhvemtíma á næsta ári í stað þess að þá ætti það að vera 140. árgangnr og færí betur á því. Sá einkennilegi og undarlegi hátt ur hefir verið upptekinn hjá iþessu merka félagi síðustu árin, að birta ekki í Skími skýrslur sínar og reikninga, sem var þó jafnan áður gert um áratugí. Ekki er heldur kunnugt um að þetta hafi verið foirt annars staðar. Síðustu reikn- ingar, sem prentaðir hafa verið, eru fyrir árið 1960 og komu í Skími 1961. Síðasta aðalfundar gerð, sem sézt hefur, er frá 24. nóv. 1961 og kom í Skími undir Iþví ártali en barst félagsmönnum á árinu 1962. Félagatal, tið síðasta, sem sézt ihefir, er frá árslokum 1959 en með aðalfundargerð 1961 er Þess þó getið, að sökum lasleika for seta félagsins sé ekki unnt að birta félagatal að |>essu sinni. Félagatal hefir þannig ekki birzt síðustu fimm áriri; Með félagatalínu. sem áður var gert og birt árlega, var ætíð skýrt frá hverjir skipuðu stjórn félagsins, þ. e. hver væri forseti, varaforseti og hverjir væra í fulltrúaráði, allt samkv. kosningum er fram höfðu farið eftir félagssamþykktum. Sú félagsstjórn, sem síðast er sagt frá í Skírní, var í árslok 1959, en hún var þannig skipuð: Matthís Þórðarson, próf., forseti. Einar Ól. Sveinsson, próf. vara- forseti., en í fulltrúaráðinu vora: Alexander Johannesson, prófess or, Ólafur Lárusson, prófessor, Ein ar Ól. Sveinsson, prófessor. Einar Bjarnason, aðalendurskoðandi, Steingrímur J. Þorsteinsson, pró- fessor. í aðalfundargerð 28. des. 1960 er þess getíð að stjórnin hefði kosið Halldór Halldórsson prófess or í sæti Þorkels Jóhannessonar, próf., er var látinn. Um skipun félagsstjórnar eftir þetta era eng- ar skýrslur birtar. Kosningar eng ar nefndar né neitt um úrslit þeirra. Á kápu Skímis var jafnan birt bókaskrá þ. e. hverjar forlagsbæk ur félagsins voru til sölu, og verð þeirra tilgreint. Slík bókaskrá kom síðast í Skími, sem talinn er til ársins 1960 en síðan ekki. Hvað því veldur, eru engar skýring gerð’ ar um. Heyrzt hefir að óseldar bækur félagsins hafi verið afhentar Al- menna bókafélaginu til hirðingar og eínhverrar forsjár, en hvergi sést á þær minnst. Það sem drepið hefir verið á hér á undan er þannig vædð og skýtur svo skökku við það, sem tíðkazt hefur áður hjá Bókmenpta- félaginu að full ástæða þykir til þess að vekja athygli á því og beina þeirrí fyrirspum til stjómar félagsins, hvað valdi þeim breyt ingum sem orðið hafa á starfsemi félagsins. Þessi seinustu fjögur, fimm árin og er þess vænzt að hún geri þess greín. Ef almenningsfélag, sem Bók- menntafélagið verður að teljast, fellir niður að birta reikninga sína. aðalfundargerðir, félagatal og hverjir eigi sætí í stjóm, gagn stætt því sem það hefir gert um áratugi og án sérstaks tilefnis, virðist Það stefna í þá átt, að það smám saman nálgist það, að vera ekki félag, og tapi þeirri samúð og virðíngu, sem það hefur rrotið. Félagsmaður. Skólaslit í Kópavogi Gagnfræðaskólinn í Kópavogi | lauk störfum og var slitið 31. maí í Félagsheimili Kópavogs. Við skólaslit rakti skólastjóri í fáum orðum hið helzta, sem gerzt hafði á skólaárinu. Félags- líf hefir verið með blóma og nem endur átt kost á félagsstörfum í ýmsum klúbbum auk dansleikja og málfunda. Skáksveit .skólans' bar sigur af hólmi í skákkeppnij Gagnfræðaskólanna og er nú hand hafi að fögrum bikar, sem Morgun blaðið gaf í tilefni keppninnar. Farnar voru skíðaferðir og nokkr ar bekkjarferðir, auk hinna venju legu vorferða. , Þvínæst vék skólastjóri að næstu framtíð nokkrum orðum. Benti hann á að ef skólanum bætt ist ekki aukinn húsakostur á þessu sumri, yrði ógerlegt að koma fyrir á næsta hausti þeim nemenda- fjölda er skólann sækti. Lét hannj í ljósi nokkrar áhyggjur vegnaj seinagangs um úrbætur. Þá fluttij hann nokkur kveðjuorð til hinnaj nýju gagnfræðinga og bað þeim ásamt öllum nemendum og starfs liði velfarnaðar. Þá lýsti hann úrslitum prófa: Gagnfræðingar voru útskrifað ir 35 og hlaut Hildur Sæmunds- dóttir hæsta einkunn, 8,81. Ung- lingaprófi luku 17 nemendur og hlaut hæsta einkunn þar Selma Guðmundsdóttir 9,51. Er hún jafnframt dux scholae. 190 nemendur luku ársprófi 1. bekkjar. Þar hlaut hæsta einkunn Þorgerður Árnadóttir, 9.34. Þá var úthlutað verðlaunum: Bókaverðlaun frá skólanum hlutu: Hildur Sæmundsdóttir, IV. bekk og Gail Rimert, sem er skiptinem- andi frá Bandaríkjunum, sem hef- ur nutnið við skólann í vetur. Hefur hún reynzt hinn ágætasti liðsmaður í félagslífi. Selma Guðmundsdóttir, fyrir afburða námsafrek á unglinga- prófi og Þorgerður Árnadóttir fyr- ir námsafrek í I. bekk. Verðlaun fyrir hæsta einkunn í samanlagðri íslenzku á gagnfræðaprófi hlaut Karl Jónsson frá íslenzkukennara gagnfræðinga, Einari Braga Sig- urðssyni. Lionsklúbbur Kópavogs veitti bókaverðlaun fyrir hæstu einkunn ir í samanlagðri íslenzku á ungl- ingaprófi. Hlutu þau Selma Guð- mundsdóttir, er hafði meðaleink- unn 9,80 og Eiríkur Tómasson er hafði meðaleinkunnina 9,55. Rotary klúbbur Kópavogs veitti tvo fagra bikara, sem úthluta skyldi gagnfræðingum, dreng og stúlku fyrir sérstaka háttprýði og þegnskap. Hlutu þau að þessu sinni Elsa Tryggvadóttir og Sig- þór Hermannsson. Bikararnir eru farandgripir og verða í vörzlu þeirra, er þá hljóta árlangt, og verða nöfn þeirra letruð á þá. Síðar eiga þeir að verða eign skólans eftir nánari ákvörðun klúbbsins og skólans. Skólastjóri flutti klúbbunum þakkir fyrir auðsýndan vinarhug og sleit síðan skóla. Landsprófi miðskóla höfðu þá lokið 29 nemendur, og eru úrslit þeirra nú kunn. Allir nemendur bekkjarins náðu framhaldseink- unn, sem veitir rétt til inngöngu í menntaskólana og Kennaraskól- ann. Voru skírteini afhent sunnudag- inn 13. júní Hæstu einkunnir hlutu: Kristján Erlendsson, 9,34 Framhald á l4. síðu. ÍÞRÓTTIR — Hvað get ég sagt, sagði Fred Schaus, þjálfari Lakers eftir leikinn, — þetba er lang- bezta körfuknattleikslið, sem nokkum tímann hefur verið upp. Red Auerbaoh, þjálfari Celtic sagði: — Eg vildi, að Walter Brown væri hér nú, við höf- um hugsað mikið til hans alian tímann. En Walter Brown var einn eigenda og framkv. stjóri Bost- on Celtics. Hann lézt s.l. haust. Það má með sanni segja, að Boston Celtics hafi heiðrað minningu hans með því að setj ast enn einu siniji í liúsæti^it- vinnumanna í bandarískiim körfukhattleik með því að verða „The World Ohampions 1965“. —GG. SEXTUG Framhald af 8. síðu. pó að heilsa hennar hafi oft verið erfið. Hún hefur verið sjúklingur nú hin síðari árin og oft sárþjáð, en starfslöngun henn ar og lífsgleði hefur fleytt henni yfir margan þann veikindaboða sem marga aðra mundí hafa fært í kaf. Þrátt fyrir allt finnst mér Arn fríður í Sólbakka vera hin sama og ég man hana fyrst um tvítugs aldur, jafnan glöð og hress, and- legt þrek hennar virðist ekki hafa bugazt í erfiðleikum veikindanna. Efnahagur þeirra Arnfríðar og Þóris hefur oft verið þröngur vegna veikínda hennar og fleiri í fjölskyldunni, þó hefur þeim tek ist að kosta dætur sínar í skóla. Tvær Þær elztu, Anna María og Kristbjörg Hildur hafa báðar lok ið stúdentsprófi og kennaraprófi með ágætum árangri. Þau Sólbakkahjónin hafa eign azt 6 böm. Fyrsta bam sitt misstu þau í fæðíngu, en dreng á öðru ári. Uppkomnar eru fjórar dætur: Anna María gift Sigurði Sigfús- syni verkfræðingi, Kristbjörg Hild ur gift Inga Kristinssyni, skóla stjóra Melaskólans í Reykjavík, Ragnheíður Gríma gift Sigurði Friðrikssyni, starfsmanni hjá Loft leiðum og Ingiríður gift Aðalsteini Skarphéðinssyni húsasmíðanema. Ingiríður dvelst ásamt manni sín- um að Sólbakka. Eg hef verið tíður gestur á heímili Amfríðar og Þóris allt frá því að þau stofnuðu það. Arnfríð ur stendur mér jafnan fyrir sjón um sem forníslenzk hefðarkona, sem engir örðugleikar geta sigrað. Heimili þeirra Þóris og Amfríðar að Sólbakka í Húsavík stendur á rammíslenzkum þjóðlegum menn- ingarrótum. Meðan við eigum i mörg slík í kaupstöðum landsins þurfum við ekkí að óttast að véla öldin geri þorra þjóðarinnar að dauðum hjólum, sem hreyfast fyr ir blindum krafti. — Amfríður ’dvelst í dag hjá dóttur sinni að Tjamargötu 40. J6n Sigurðsson, Yztafelli. Þegar ég heyri, að Amfríður á Sólbakka sé sextug, grípur míg Iöngun til þess að senda henni hug heila kveðju. Eg átti því láni að fagna fyrir svo sem aldarfjórð ungi að kynnast þeim Sólbakka- hjónum og búa nokkur missiri á heimili þeírra. Eg naiit Þá og jafn an síðan vináttu þeirra og alúðar, sem mér hefur æ síðan verið sem gull í handraða. Heimilið var fagurt og friðsamt og uppeldi bam anna með sérstökum ágætum. Heimilislífíð allt 'og sambúð hjón anna svo góð, að yndi var að vera í návist þeirra. Eg átti hjá þeim góðar stundir og minnist þeirra jafnan. Síðan kemur mér Amfríð ur á Sólbakka ærið oft í hug, þegar getið er góðra, míkilhæfra og göfugra kvenna. Þá sögu munu fleiri segja en ég. Hún er greind kona og skapstyrk en þó hógvær og gætin. Hún er fríð sýnum og glæsileg og ber mildan höfðings brag, nærgætin og vinföst öllum þeim, sem hjálpar þurfa. Sjálf hefur hún orðið að stríða við erf iðan sjúkleika á síðari árum en iþó jafnan átt styrk og góðvild til þess að miðla öðram. Nafnið Am- fríður á Sólbakka hefur í mínum huga alveg sérstakan hljóm og ljóma, sem lýsir henni einmitt eins og hún er. Eg sendi henni, manni hennar og börnum innilegar ósk- ir á Þessum afmælisdegi og þakka kynni og vináttu, sem hefur verið mér óbrotgjarn feginsfengur. A.K. Á V|ÐAVANGI Framhald af i. sfðu byggingarkostnaðurinn hefur sízt lækkað, svo sem við til- komu skriðmótanna. Og sjálf- sagðar nýjungar, eins og notk- un málningarrúlla, hækkar kostnaðinn í stað þess að lækka hann. Húsnæðismála- stjóm hefur ekki rækt þetta hlutverk af höndum, þótt lóg mæli fyrir um slíka starfsemi til lækkunar byggingarkostn- aðar og hagræðimgar á vegum hennar, enda er meginhlutverk hcnnar á öðiru sviði. En hér má úrbót ekki lengur dragast. Uppbygging slíkrar rannsóknar stofnunar er brýnt hagsmuna- mál þúsunda og stórfellt fjár- hagslegt spamaðarmál." STYRKVEITINGAR Framhald af 9 siðu ur, til yfirlitsrannsóknar á sál- rænum þroska, geðherlsu og uppeldisháttum baraa í Reykja vík. Aætlað er, að rannsóknin nái til um það bil 1100 barna á aldrinum 5—15 ára, og verð ur hún fólgin í sálfræðilegum prófum á börnunum og viðtöl- um við foreldrana. 80 þúsund króna styrk hlaut: 5. Þjóðminjasafn íslands, til tveggja verkefna: 1) til að rann saka sögualdarbústað í Hvítár holti í Hrunamannahreppi. — Styrkfjárhæð 30 þús. kr. — 2) til að senda mann um byggð ir landsins til þess að taka upp á segulband gömul þjóðlög, rímnastemmur, sálmalög o. fl„ einnig þulur, kvæði og sögur eftir því sem til fellur og við verður komið. Söfnunarstarf þetta mun annast Hallfreður Örn Eiríksson, cand. mag. — Styrkfjárhæð kr. 50 þús. 75 þúsund króna styrk hlutu: 6. Björn Stefánsson, sivilagronom, til að skrifa hagfræðilega rit- gerð um samvinnu í búskap á íslandi með tilliti til afkomu og þjóðfélagslegrar aðstöðu bænda og þjóðfélags gildis landbúnað arins. 7. Jónas Pálsson, sálfræðingur, til að kanna stöðugleika greind armælinga með einstaklings- prófi á 7—13 ára börnum, rann sakasamsvörun greindarmælinga við niámsárangur á bamastigi, unglingastigi og síðan við lands próf miðskóla og gera tilraun til stöðlunar á hópprófi til nota á unglingastigi. — Jónas hlaut styrk úr Vísindasjóði til sama verkefnis vorið 1964. 8. Ólafur Pálmason, mag art. til að rannsaka bókmenntastarf- semi Magnúsar dómsstjóra Stephensens. Ólafur hlaut styrk til sama verkefnis vorið 1964. 50 þúsund króna styrk hiutu: 9. Gylfi Ásmundsson, sálfræðing ur, til að rannsaka um 1100 böm á aldrinum 5—15 ára (hin sömu og Sigurjón Bjömsson hyggst rannsaka) með persónu leikaprófi Rorschachs (Rorsc- hach Projecitive Technique) í því skyni að 1) staðla Rorsc- hach-prófið, svo að hægt sé að miða við ákveðin meðalgildi, þegar metinn er persónuleiki eða andlegt jafnvægi afbrigði- legra, sjúkra eða annarra þeirra baraa, sem gera þarf rannsóknir á, 2) rannsaka persónuleika- þroska íslenzkra baraa, taka á þeim greindarpróf, afla vitn- eskju um uppeldi þeirra, fé- lagslegar aðstæður ol f„ 10. Sr. Jón Hnefill Aðalsteinsson, sóknarprestur, til að ljúka licentiatritgerð við Uppsalahá- skóla um kristnitökuna á fs- landi frá trúarbragðasögulegu sjónarmiði. 11. Landsbókasafn íslands, til kaupa á ljósmyndavél, secn tal- in er sérstaklega hentug til að taka mynd af skinnhandritum, ásamt viðeigandi fylgihlutum. 12. Listasafn íslands, til að halda áfram ljósmyndun iýsinga (illuminationa) í íslertókum handritum í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi og ganga frá mynd unum í varanlegri og hentugri geymslu í Listasafni íslands. — Listasafnið hlaut styrk til sama verkefnis vorið 1964. 13. Lúðvík Kristjánsson, sagnfræð ingur, til að standa straum af kostnaði við teikningar vegna fyrirhugaðs rits síns um ís- lenzka sjávarhætti fyrr og síð- ar. Lúðvík hlaut styrk í sama skyni árið 1964 og vegna undir búnings sama rits árið 1963 og 1961. 14. Sigurður Líndal, hæstaréttar- ritari, vegna undirbúningsvinnu við rit um fsland og íslenzkt þjóðfélag, en þetta rit verður bindi í ritverkinu The Politics of the Smaller European Demo- cracies, er Chr. Michelsens-stofn unin í Björgvin gefur út. 15. Dr. Símon Jóh. Ágústsson, til að kanna lestrarvenjur ís- lenzkra barna, á aldrinum 10— 15 ára. Dr. Símon hlaut styrk til þess sama verkefnis árið 1964. 30 þúsund króna styrk hlutu: 16. Ámi Bjömsson, cand. mag. lektor í V-Berlín, til að rann- saka íslenzka brúðkaups- og trúlofunarsiði fyrr á öldum. 17. Bjarni Einarsson, cand. mag., til að ljúka við rit um Egils sögu Skallagrímssonar. Bjarni hlaut styrk til sama verkefnis árið 1961. 18. Magnús Gíslason, fil. lic., náms stjóri, til að standa straum af kostnaði við að ljúka doktors- ritgerð um kvöldvökuna á ís- lenzkum sveitaheimilum fyrr á tímum og menningarlegt gildi hennar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.