Morgunblaðið - 12.10.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.10.1979, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR 224. tbl. 66. árg. FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Reynt ad bjarga Saltsamningnum Washington. 11. október. Reuter. AP. FORMAÐUR utanríkisnefndar öldungadeildarinnar. Frank Church, bar í dag fram tilloKU sem talið er að geti bjargað bandarisku stjórninni i erfiðleikum hennar í deilunni um sovézku hermennina á Kúbu og SaltsamninKnum um leið. Church vill að samninKurinn taki ekki KÍldi fyrr en forsetinn fái vissu fyrir því að sovézku hermennirnir á Kúbu Kegni ekki bardana- og árásarhlutverki. Ráðstefna í tvísýnu London. 11. október. Reuter. HLÉ VAR gert á Rhódesíu-ráð- stefnunni í dag og brezki utanrikis- ráðherrann Carrington lávarður hyggst ekki kalla hana aftur saman fyrr en skæruliðaleiðtogarnir Ro- bert Mugabe og Joshua Nkomo gefa „viðhlítandi svör“ við stjórnar- skrártillögum Breta. Talsmaður skæruliða sagði að- spurður, að þeir mundu ekki end- urskoða afstöðu sína. Carrington lávarður vill ákveðið svar áður en viðræður hefjast um bráðabirgða- fyrirkomulag mála áður en fram fara kosningar og Zimbawe-Rhó- desía fær sjálfstæði. Skæruliðar höfnuðu í raun og veru kröfu Carrington lávarðar um að þeir samþykktu stjórnarskrána í heild í tvíræðri yfirlýsingu í dag og settu fyrirvara um afstöðu sína til hers hins nýja ríkis, embættis- mannakerfis, lögreglu og dómskerfis og í öðrum málum. Kúbulid í írak? Ncw York, 11. október. AP. Reuter. BANDARÍSKI öldungadeildar- maðurinn Richard Stone sagði i viðtali við fréttastofuna ABC í dag að kúbanskar hersveitir hefðu verið fluttar með leynd til traks. Ekki kvaðst þingmaðurinn vita hve margir hermennirnir væru, né hve lengi þeir hefðu verið í landinu. Ekki vildi hann tjá sig um hvort tilvist sveitanna ögraði öryggi ísraels. Bandarísk yfirvöld hafa ekkert viljað um málið segja enn sem komið er, en haft var eftir embættismanni að kúbanskir flugmenn kynnu að vera íIrak. Fálldin kjörinn Stokkhólmi. 11. okt. Reuter. AP. THORBJÖRN Fálldin. leiðtogi Mið- flokksins, er tapaði mestu fylgi í þingkosningunum í siðasta mánuði, var með naumindum kosinn forsæt- isráðherra Svíþjóðar á þingi í dag. Fálldin fékk 170 atkvæði borgara- flokkanna gegn 174 atkvæðum sósía- listísku flokkanna sem þurftu 175 atkvæði eða meirihluta 349 fulltrúa þingsins til þess að fella hann. Einn af þingmönnum stjórnar- andstöðunnar var kallaður heim frá Ástralíu til að ver^ við atkvæða- greiðsluna og aðrir frá Allsherjar- þinginu í New York. Fjórir þing- menn borgaraflokkanna voru fjar- staddir og Fálldin sat hjá. Úrslitin eru talin vísbending um þá erfiðleika sem Fálldin og sam- starfsflokkarnir kunna að eiga í vændurm___ _ _____ Uppreisn í Bólivíu La l’az. 11. október. Reuter. HERSVEITIR í norðaustanverðri Bólivíu gerðu uppreisn í dag og kröfðust þess að þing yrði leyst upp og að hermaður yrði skipaður forseti í stað Walters Guevara Arze. Uppreisnarmennirnir tóku ráð- húsið í fylkishöfuðborginni Trinidad þar sem þeir hafa mikinn viðbúnað. Foringjar uppreisnarinnar eru hátt- settir yfirmenn í sjötta herfylkinu sem hefur bækistöð í bænum og þeir hafa fengið stuðning hersveita í nágrannabæjunum Riberalta og Guayaramerin. Castro í New York New York, 11. okt. Reuter. VERÐIR gráir fyrir járnum umkringdu í dag skrifstofu sendinefndar Kúbu hjá Samein- uðu þjóðunum á fyrsta degi fyrstu heimsóknar Fidel Castros forseta til New York í 19 ár. Lögregla lokaði öllum götum umhverfis skrifstofuna og sér- þjálfaðar sveitir. sumar búnar vélbyssum. voru til taks ef til vandræða kæmi af hálfu kúb- anskra útlaga. Dr. Castro kom til Kennedy- flugvallar árdegis og mun ávarpa Allsherjarþingið á morgun og hitta að máli Kurt Waldheim framkvæmdastjóra S.Þ. Castro sagði fréttamönnum að hann væri ánægður með að vera kominn til Bandaríkjanna. Hundruð lögreglumanna og leyni þjónustustarfsmanna voru á verði alls staðar meðfram leið- inni sem 42 bifreiða bílalest Castros ók um inn í borgina. Þyrlur búnar sérstökum ljós- um voru liður í gífurlegum ör- yggisráðstöfunum og beitt var lögregluhundum sem þefa upp sprengiefni. Þótt tillagan geri ekki ráð fyrir brottflutningi virðist hún eiga að grafa undan líklegum tilraunum andstæðinga samningsins til að nota Kúbumálið til að fella hann. Samningurinn mun ekki fást samþykktur nema með stuðningi þingmanna, sem hafa áhyggjur af sovézku hermönnunum og ýmist vilja aukin herútgjöld eða meiri niðurskurð hergagna en Salt II kveður á um og öruggara eftirlit með því að Rússar haldi samning- ínn. Stuðningsmenn samningsins eru taldir rúmlega 50, en hann þarf tvo þriðju atkvæða til að fá samþykki. Atkvæðagreiðsla átti að fara fram um samninginn seinna í dag og honum var spáð falli. Þrjú bandarísk herskip með land- gönguliða innanborðs fóru til æf- inga á Karíbahafi í dag í samræmi við boðaða stefnu Carters forseta vegna þess að Rússar neita að viðurkenna nærveru bardagasveita. 550 manna skriðdrekasveit fékk jafnframt skipun í dag um að vera við því búin að vera send til Vestur-Þýzkalands til æfinga fljót- lega. Það er í samræmi við boðaða stefnu Carters um aukinn viðbúnað bandaríska heraflans í heiminum. Brezk herskip send gegn dönskum bátum London, 11. október. AP. ÞRJÍJ vopnuð herskip og eitt óvopnað eru nú ýmist komin á mið danskra spærlingsveiði- manna við Bretlandseyjar eða eru á leið þangað, tilbúin til að hrekja flota danskra togara af miðunum. Talsmaður landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytisins sagði í dag að þeir bátar. sem reyndu veiðar, yrðu teknir og færðir til hafnar. Alis eru dönsku bátarnir um 70 talsins. en veiðisvæðið umdeilda. „Spærlingshólf' er um 150 sjómílur undan austurströnd Skotlands. Bretar lokuðu svæðinu frá og með 1. október af ótta við ofveiði, en þeirri ákvörðun hafa danskir sjómenn mótmælt, og dönsk stjórnvöld hafa skotið málinu til Evrópudómstólsins. Hafa Bretar á síðustu misserum gripið til ýmissa aðgerða til verndunar fiskstofnum í fiskveiðilögsögunni umhverfis Bretlandseyjar. Telja þeir sig í fullum rétti, þar sem sjávarútvegs- ráðherrar Efnahagsbandalags ríkja (EBE) hafa ekki getað komið sér saman um sameiginlega fisk- veiðistefnu. Einstök ríki EBE hafa harðlega mótmælt ýmsum verndunarað- gerðum Breta og jafnvel skotið þeim til Evrópudómstólsins. Talið er að ef brezku gæzluskipin taki einhverja dönsku spærlingsbát- anna muni fyrst sjóða upp úr í fiskveiðimálum bandalagsins. Brezkir embættismenn hafa lýst ákvörðun dönsku sjómannanna um að sigla á miðin grófa ögrun þar sem samningar um sameiginlega fiskveiðistefnu EBE séu á mjög viðkvæmu stigi. Um það bil 200 danskir togbátar byKRja afkomu sína svo til ein- göngu á spærlingsveiðum, en afl- inn er svo til eingöngu verkaður í mjöl og lýsi. Brezku herskipin, sem beitt verður gegn dönsku bátunum, eru HMS Orkney, Shetland og Jersey, en óvopnaða skipið er Westra, sem er í eigu skozka sjávarútvegsráðu- neytisins. Nimrod þotur brezka flughersins verða skipunum til aðstoðar. ÓLAFUR Jóhannesson forsætisráðhcrra gekk á fund forseta íslands í Stjórnarráðshúsinu laust eftir klukkan 10 í gærmorgun og skýrði honum frá þeirri ákvörðun sinni að biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Fundur þeirra stóð i um hálfa klukkustund og klukkan 11 hófst ríkisstjórnarfundur. þar sem ólafur tilkynnti ráðherrunum ákvörðunina. Rikisráðsfundur verður haldinn klukkan 10 árdegis í dag og þar mun ólafur formlega biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Myndina hér að ofan tók Rax í gærmorgun. er forseti íslands, hcrra Kristján Eldjárn, og ólafur Jóhannesson forsætisráðherra ræddust við. Ríkisstjórninni veitt lausn í dag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.