Morgunblaðið - 12.10.1979, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 12.10.1979, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1979 7 Eölilegur gangur mála — eða bolabrögð Meginstoð lýðræöis og þingræðis er sú, aö þegn- arnir annars vegar (viö kjörborðið) og þjóðkjörn- ir fulltrúar hins vegar (á Alþingi) hafi jöfn áhrif á ákvarðanir og framvindu mála — og að meirihluti ráði ferö. Það blasir við að meirihluti Alþingis vili þingrof og kosningar þegar á þessu ári, enda hrópa allar aðstæður í þjóöfélaginu á nýja stefnumörkun almenn- ings við kjörborðið. Spurningin er einfaldlega þessi, hvort meirihluta- vilji á Alþingi verði virtur af forsætisráðherra, sem fer með þingrofsvald, eöa bolabrögðum beitt til að sporna gegn kosningum. Eðlilegur gangur mála, við núverandi aðstæður, væri sá, að forsætisráö- herra, Ólafur Jóhannes- son, ryfi þing og efndi til kosninga, til samræmis við meirihlutavilja á Al- þingi, enda sætu þá ráð- herrar Alþýðuflokksins áfram í stjórninni fram yfir þær kosningar. Bene- dikt Gröndal, formaður Alþýðuflokksins, sagði í blaðaviðtali í gær, „að ráðherrar Alþýðuflokks- ins væru til viðtals um fyrirkomulag um stjórn landsins, ef Framsóknar- flokkur og Alþýðubanda- lag, féllust á kosningar á þessu ári“. Þetta gæti og gerzt þann veg, að for- sætisráðherra bæðist lausnar fyrir sig og ráð- uneyti sitt, en forsæti fæli stjórninni að sitja áfram, til bráðabirgöa, m.a. til að framkvæma þingrof og kosningar. Það er lýð- Ólafui Jóhannesson ræðisleg skylda forsætis- ráðherra að virða þing- meirihluta á þann hátt, sem hér hefur veriö gerð grein fyrir. Ef hins vegar verður gripið til bolabragða, á málamyndaforsendum, til að hindra framgang þingrofs og kosninga, verður það að teljast í meira lagi gróft og and- lýðræðislegt. Það kemur að VÍ8U heim og saman við þróun mála í þeim ríkjum, sem skoðana- bræður Alþýðubanda- lagsins ráða, að fólki sé meinað aö ganga aö kjör- borði, en Framsóknar- flokkurinn er lýðræðis- flokkur, sem ekki á heima í slíkum leik. En verði leiö bolabragðanna valin verður utanþings- stjórn eða minnihluta- stjórn að brúa þaö stjórn- unarbil, sem veröur frá afsögn núverandi ríkis- stjórnar fram yfir kosn- ingar. ÓlafurThors Fordæmi frá 1956 í fréttaskýringu í Morg- unblaðinu í gær er bent á fordæmi þess, að ríkis- stjórn biðjist lausnar, sé falið að gegna áfram störfum til bráðabirgða og framkvæmi þingrof og kosningar til samræmis við meirihlutavilja á Al- þingi. Þá er vitnað til þess að Ólafur Thors baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt 27. marz 1956, en rauf síðan þing og efndi til nýrra kosn- inga. í fréttaskýringunni er og bent á, aö þegar Ólafur Jóhannesson stóð frammi fyrir svipuðum vanda 1974 hafði hann valiö þann kost aö rjúfa þing og boða til nýrra kosninga. Þegar þessar línur veröa lesnar kann Ólafur Jóhannesson að hafa kunngjört hug sinn í þessu máli. Vonandi veröur hann í samræmi við þingvilja en ekki þá gjörræðistilburði, sem talsmenn Alþýðubanda- lagsins hafa sýnt. Al- þýðubandalagið hefur ótvírætt verið sá stjórn- arflokkurinn, sem mestur var dragbíturinn á nauð- synlegar og heilbrigðar aðgerðir í efnahagsmál- um og veröbólguhöml- um. Þaö færi illa á því að hann kortlegði með hverjum hætti Ólafur Jó- hannesson, endaði feril sinn í íslenzkri pólitík. ^rzlmcŒbctnkim í Umíeröarmiðstööinni Útibúí cdíaraL 12. október breyttíst hin almenna afgreiðsla Verzlunarbankans í Umferðarmiðstöðinni í úti- bú með öll innlend bankaviðskipti og sjálfstæða reikninga. Verið velkomin til viðskipta við útibú okkar mið- svæðis í alfaraleið þar sem bQastæði eru þó ætíð til staðar. UTIBUIÐ UAIFERÐARMIÐSTÖÐINNl Völundar- innihurðir eru spónlagöar hurðir meö eik, gullálmi, furu, oregonpine, frönskum álmi, hnotu, teak, wenge, silkiviö o.fl. viöartegundum, eöa óspónlagöar tilbúnar undir málningu. 75 ára reynsla tryggir gæöin. Mjög hagstætt verö. sSX&' Timburverzlunin Volundur hf. KLAPPARSTIG 1. SÍMI 18430 — SKEIFAN 19. SIMI 85244 Fáksfélagar Geldinganesiö veröur smalaö, laugardaginn 13. október n.k. og veröa hestar í rétt kl. 13—14. Þaö er áríðandi aö hestaeigendur komi og taki þá úr Nesinu. Bílar veröa til hestaflutninga á staönum. Þeir, sem ætla aö hafa hesta sína á vetrarfóðri á Ragnheiðarstööum. geta þá fengiö hesta sína flutta þangað austur. Hestamannafélagið Fákur. Innilegar þakkir til allra þeirra, ættingja og vina sem minntust mín meö ýmsu móti á nítíu ára afmælisdaginn. Guö blessi ykkur öll. Sigríður Jónsdóttir, frá Fagurhól, Sandgeröi. Eitt fislétt handtak Lyng blöndunartæki — Nýjasta tízka — nýjasta tækni. Það tilheyrir fortíðinni að skrúfa og skrúfa til að fá vatn. Með Lyng blöndunartækjunum barf aðeins fislétt handtak, annarar handar til að blanda vatnið og stjórna magni. LYNG blöndunartæki. í fjölbreyttu úrvali. Jón Loftsson. Byggingarvörudeild.: Hringbraut 121.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.