Morgunblaðið - 12.10.1979, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1979
3
Samræming á vægi atkvæða til Alþingis:
Afnám reglna um
uppbótarþingsæti?
MORGUNBLAÐIÐ innti Gunn-
ar G. Schram próíessor að því í
gær hverjir væru helztu mögu-
leikar í sambandi við breytingu
á vægi atkvæða í þingkosning-
um t.d. miðað við þéttbýlustu
svæðin og þau strjálbýlu. Gunn-
ar nefndi tvo möguleika sem
hann taldi einfaldasta.
í fyrsta lagi að fjölga þing-
mönnum á þéttbýlustu svæð-
unum þannig að þingmenn yrðu
alls t.d 68 eða 70, en til þess þarf
stjórnarskrárbreytingu.
í öðru lagi kvað hann unnt að
breyta reglunum um uppbótar-
sæti þannig að hlutfallsreglan
yrði afnumin og það yrði einnig
fellt niður að einn flokkur mætti
ekki hafa meira en einn uppbót-
arþingmann í hverju kjördæmi.
Þessa breytingu er unnt að gera
með breytingu á lögum og þarf
ekki stjórnarskrárbreytingu til.
Nefndi prófessorinn sem dæmi
að ef hlutfallsreglan hefði verið
afnumin í síðustu kosningum og
uppbótarþingsætum úthlutað
eftir kjósendafjölda þá hefðu 7
af 11 uppbótarþingmönnum far-
ið til Reykjavíkur í stað þriggja
og 4 af 11 uppbótarþingmönnum
til Reykjaness í stað þriggja.
jf ^ j Sovétnjósn-
ari hjá
Waldheim
WaMhebn
U Thant
New York, 11. október. AP.
EINN helzti ráðgjafi Kurt Wald-
heims, framkvæmdastjóra Sam-
einuðu þjóðanna, er sovézkur
njósnari, en nær ógerlegt er hægt
að koma í veg fyrir aðgang hans að
leynilegum upplýsingum, að sögn
Daily News í dag, samkvæmt
heimildum í bandarísku leyniþjón-
ustunni.
Blaðið segir að njósnarinn sé
Victor Lessiovsky, sem hafi aflað
leynilegra upplýsinga fyrir Sov-
étríkin i tvö ár. Blaðið segir að eitt
af störfum Lessiovskys sé að ráða
diplómata hjá SÞ til starfa í þágu
sovézku leyniþjónustunnar, KGB.
Lessiovsky hlaut stöðu hjá Sþ
árið 1961 fyrir tilstuðlan U Thants,
þáverandi framkvæmdastjóra
samtakanna. Hann sagði upp
störfum árið 1973, en sneri aftur
nokkrum árum síðar.
Sovézki flóttamaðurinn Arkady
Shevchenko, er starfaði hjá Sþ
fyrir flóttann, sagði nýlega í við-
tali við BBC að Lessiovsky væri
einn af um 150 sovézkum njósnur-
um í höfuðstöðvum Sameinuðu
þjóðanna.
Sigurður
RE með
yfir tíu
þús. tonn
— ÉG VAR nú að enda við að
færa inn i bækurnar litlar 1400
lestir, það munar um það, sagði
Andrés Finnbogason hjá loðnu-
nefnd þegar haft var samband
við hann i gær. Góður afli hefur
verið síðustu daga og „veiðarnar
gengið eins og i lygasögu siðustu
vikurnar“ eins og Andrés orðaði
það i gær.
Samtals er loðnuaflinn á vertíð-
inni orðinn um 270 þúsund tonn og
aflahæsta skipið er Sigurður RE
með liðlega 10 þúsund tonn.
Eftirtalin skip tilkynntu um
afla frá því síðdegis á miðvikudag
þar til síðdegis í gær:
Miðvikudagur: Þórshamar 590,
Jón Kjartansson 1100, Skarðsvík
630, Hrafn 650, Sigurfari 850. Alls
10 skip með 7540 lestir.
Fimmtudagur:Gísli Árni 650,
Náttfari 520, Hákon 820, Seley
440, Hilmir 540, Dagfari 530,
Helga Guðmundsdóttir, 730, Svan-
ur 650, Þórður Jónasson 480,
Bergur 510, Sigurður 1400. Alls 11
skip með 7250 lestir.
JanMayen-
viðrœðum
frestað
SAMKVÆMT upplýsingum Bene-
dikts Gröndals utanríkisráðherra
var á ríkisstjórnarfundi í gær
ákveðið að óska eftir frestun
viðræðna við Norðmenn vegna Jan
Mayen um óákveðinn tíma, vegna
stjórnmálaástandsins hér. Þessari
beiðni var komið á framfæri um
sendiráð íslands í Ósló og sendi-
ráð Norðmanna í Reykjavík. Svar
hafði ekki borizt í gærkveldi, en
samkvæmt ummælum Eivinds
Bolle sjávarútvegsráðherra Norð-
manna í fjölmiðlum nýlega mun
þessi málaleitan verða auðsótt.
Ágætt verð
í Fleetwood
SKUTTOGARI Grundfirðinga,
Runólfur, landaði í Fleetwood í
gær og fékk ágætt verð fyrir
aflann, sem þótti góður. Alls
landaði Runólfur 93,6 lestum og
fékk 55,7 milljónir kr. fyrir, með-
alverð 595 krónur. í næstu viku er
allmikið um landanir erlendis, 5
skip landa í Bretlandi og 2 í
V-Þýzkalandi.
Dagleg notkun Palmolive með olivuolíu
heldurhúðinni mjúkri og ferskri.
Olivuolían gengur inn í húðina og
kemur í veg fyrir að hún þorni.
Palmolive með ljúfri angan er
svo mild, að hún hæfir jafnvel
viðkvæmustu barnshúð.
Láttu Palmolive verða hluta
af daglegri snyrtingu þinni.
Palmolive er annað og meira
en venjuleg sápa.
Ný óþekkt tilfinning.