Morgunblaðið - 12.10.1979, Síða 11

Morgunblaðið - 12.10.1979, Síða 11
11 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1979 Eítir að Brezhnev haíði flutt „friðarboðskapinn'* á afmaeiinu í Austur-Berlin var hann heiðraður með hersýningu, sem austur-þýskir fréttaskýrendur telja þá tilkomumestu í sögu alþýðuveldisins. Hér sést eldflaugum á skotpöllum ekið fram hjá stúku heiðursgesta. Áróðursstríð haf- Eldfiaugin er ekki síst hættuleg fyrir þá sök, að henni er unnt að miða mjög nákvæmlega á skotmörk. Sam- kvæmt kenningum um beitingu kjarnorkuvopna eykur það líkurnar á því, að flauginni verði beitt. Unnt ætti að vera að senda hana aðeins á hernaðarmannvirki og komast hjá eyðingu borga og þéttbyggðra svæða. Sagt hefur verið, að eftir 3 til 4 ár geti Sovétmenn með SS-20 eldflaug- inni og Backfire-sprengjuþotunni gert varnarkerfi Atlantshafsbanda- lagsins í Vestur-Evrópu óvirkt í einu höggi. Það er engin furða, að Brezhnev sé annt um, að ekki sé gripið til gagnráðstafana af hálfu Atlants- hafsbandalagsins gegn þessu ógnar- vopni. En staðreynd er, að um þessar mundir eru engin þau vopn í Vestur- Evrópu, sem geta staðist SS-20 eldflauginni snúning. í Austur- Berlín íýsti Brezhnev því hátíðlega yfir, að síðustu 10 ár hefði meðal- drægum eldflaugum Sovétríkjanna ekki fjölgað um eitt stykki. Hann sagði einnig, að Sovétmenn væru tilbúnir til að fækka meðaldrægum kjarnorkueldflaugum í vesturhiuta Sovétríkjanna frá því sem nú er, en með því skilyrði, að meðaldrægum kjarnorkueldflaugum verði ekki fjölgað í Vestur-Evrópu. Og síðan sagðist hann vilja staðfesta friðar- viijann enn frekar með þeirri fækkun í Rauða hernum i Austur-Þýska- landi, sem áður er getið. Þetta er kjarni þess áróðursstríðs, sem Sovétmenn og talsmenn þeirra hvarvetna í Evrópu munu hefja nú, þegar það liggur fyrir, að á fundi ráðherra Atlantshafsbandalagsríkj- anna í desember næstkomandi mun verða tekin ákvörðun um gagnráð- stafanir gegn SS-20 eldflauginni. Til umræðu hefur verið að koma fyrir 572 gagneidflaugum í Hollandi, Belgíu, Bretlandi og Vestur-Þýska- landi. Um það bil 500 þessara eldflauga yrðu nýjar stýriflaugar (cruise missiles), en afgangurinn yrði endurbætt og langdrægari gerð af bandarísku Pershing-eldflauginni, sem er í Vestur-Þýskalandi. Með ræðunni í Austur-Berlín sýndi Brezhnev hvernig tónninn í áróðrin- um verður. Hann hefur gefið línuna. Sovétríkin eru friðelskandi og vilja minnka vígbúnað sinn. Bandaríkin og Vesturlönd eru að efna til nýs vígbúnaðarkapphlaups. Mönnum er í fersku minni sú áróðursherferð, sem hófst í Moskvu, þegar tii umræðu kom að efla varnir Vesturlanda gegn skriðdrekaflota Varsjárbandalagsins með svonefndri nifteindarsprengju. Sú ráðagerð varð síðan að engu. Kremlverjar vona nú, að með fagur- gala takist þeim að koma í veg fyrir nauðsynlegar gagnráðstafanir gegn nýjum ógnarvopnum sínum. Flest bendir til þess enn sem komið er, að vestrænir leiðtogar muni standa fastir fyrir — en aróðursstríðið er rétt að byrja. Bj.Bj. ið um varnir Vestur-Evrópu Niels Reumert við vinnu sína. Danskar litógraf- íur í Suðurgötu Á MORGUN, laugardag. verður opnuð i Galleríi Suðurgötu 7 sýning á litógrafíum eftir danska listamanninn Niels Reumert. Reumert er þrítugur að aldri og stundaði nám við listaakademí- urnar í Feneyjum og Kaupmanna- höfn, en hann hefur haldið einka- sýningar heima og erlendis, auk þess sem hann hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum. Framan af málaði Niels Reum- ert mestmegnis olíumyndir, en að undanförnu hefur hann snúið sér að grafík í vaxandi mæli. Hann hefur unnið í tengslum við ýmsa listamenn, þar á meðal Bjorn Wiinblad. Sýningin í Galleríi Suðurgötu 7 verður opin til 21. október, kl. 16—22 virka daga og kl. 14—22 um helgar. Á Snerru-lofti, sýningarsal í bókaversluninni Snerru í Mosfellssveit. stendur nú yfir sýning á verkum Ilrings Jóhannessonar. Sýnir hann 19 teikningar, olíu- og pastelmyndir. Sýningin stendur til 19. október og er opin alla daga á verslunartíma og laugardaga og sunnudaga kl. 14 — 16.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.