Morgunblaðið - 12.10.1979, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1979
13
N óbelsverdlaun
fyrir undratæki
Stokkhólmi. 11. október. Reuter. AP. Bretlandi og AUan Cormack sem náðst á rannsóknum á höfuðkúp-
Nóbelsverðlaununum i læknis-
fræði var i dag skipt milli Breta og
Bandaríkjamanns, sem hvorugur
er menntaður í fræðunum, fyrir
brautryðjendastörf að smíði tölvu-
væddra röntgen-leitartækja.
Slík geislaleitartæki hafa valdið
byltingu í sjúkdómsgreiningum og
með þessari tækni hafa læknar
fengið þrividdarsýn inn i
mannslikamann án þess að þurfa
að notast við skurðhnif.
Verðlaunin sem eru 800.000
sænskar krónur skiptast milli dr.
Godfrey Hounsfield. sem er verk-
fræðingur i EMI-fyrirtækinu i
er prófessor í eðlisfræði við Tufts-
háskóla i Medford, Massachusetts.
Um veitinguna sagði sænska
Karolinska-stofnunin að engin önn-
ur aðferð á sviði sjúkdómsgreininga
með röntgengeislum hefði á eins
stuttum tíma leitt til eins athyglis-
verðra framfara í læknisfræðir-
annsóknum og á sviðum aðferða til
að beita þeim. Tæknin sem verðlau-
nahafarnir eru sérfræðingar í heitir
tomografi, sem er dregið af gríska
orðinu „tom“(skera) og „grafo"
(skrifa).
Róttækasti árangurinn hefur
unni þar sem hægt er með leitara að
sýna hárfínan mun á heilasjúkdóm-
um sem sýna svipuð einkenni en
kalla á ólíka læknismeðferð.
Líka er hægt að finna æxli sem
áður fundust aðeins með háskalegri
heilaskurðaðgerð. Læknar geta
fundið æxli nánast upp á milli-
metra, geislameðferð verður ná-
kvæmari og nálægum vefjum er
hlíft.
Prófessor Cormack fluttist til
Bandaríkjanna frá Suður-Afríku
1956 og varð bandarískur ríkisborg-
ari 1956. Hann birti ritgerðir þar
sem hann lýsti aðferðinni og
áhrifum hennar 1963—1964.
Talsmaður sænsku akademíunn-
ar segir að hann hafi ekki getað
fundið upp hagnýta aðferð ef til vill
vegna þess að tölvutækni var ekki
nógu langt komin þá.
Dr. Hounsfield fann upp slíkt
kerfi fyrir tíu árum, að því er
virðist án þess að vita um starf
prófessorsins, og hefur nú einka-
leyfi á því.
Leitararnir eru dýrir, kosta milli
480.000 og eina milljón dollara og
hafa aðeins verið á markaðnum í
um sex ár. Þeir eru þó orðnir
algengir í stórum sjúkrahúsum til
að sjúkdómsgreina krabbamein og
heilasjúkdóma.
Þeir hafa líka orðið undirstaða
alþjóðlegs stórgróða iðnaðar og
valdið deilum um hvort þeir séu
viturleg fjárfesting fyrir lítil eða
meðalstór sjúkrahús. Talsmaður
Nóbelsnefndarinnar sagði: „Við
veitum ekki verðlaunin fyrir vélar
heldur fyrir rannsóknaraðferðir,
sem gerðu þær að veruleika."
Spenna hlaup-
in í skákmótið
Ríó de Janeiró, 11. okt. AP. Reuter.
SPENNA er hlaupin i baráttuna um
fyrstu sætin á millisvæðamótinu i
Ríó. þar sem aðeins hálfur vinning-
ur skilur efstu þrjá menn að, og þrir
til viðbótar eru skammt undan.
Portisch sat hjá i 13. umferðinni en
er enn i efsta sæti með átta vinninga.
Hiibner varðist mjög vel þungri og
kraftmikilii sókn Timmans og
tryggði sér jafntefli, og þar með
sama stigafjölda og Portisch hefur.
Brazilíumaðurinn Jaime Sunye
kemur skammt á eftir Portisch og
Húbner með 7,5 vinninga, en hann
gerði jafntefli við Shamkovic í 13.
umferðinni. í fjórða sæti er Vaganiafi
með sjö vinninga og biðskák. Þá koma
Petrosian og Sax með sjö vinninga.
Alls verða leiknar 17 umferðir á
mótinu og komast efstu þrír menn
áfram.
Verðhrun í
New York
New York, 11. október. Reuter.
ALLS skiptu 823 milljónir hluta-
bréfa um eigendur í viðskiptum í
kauphöllinni 1 New York í gær, og er
þar um met að ræða. Helzt var hægt
að bera þessi viðskipti, sem ein-
kenndust af taugaveiklun og æsingi,
saman við hlutabréfasöluna i hrun-
inu mikla 1929.
Hlutabréfasalan í gær var afleiðing
tilkynninga yfirvalda um nýjar að-
gerðir um viðnám við verðbólgu og til
styrktar dollarnum. Þeir sem gagn-
rýnt hafa aðgerðirnar hafa látið í ljós
ótta um að þær kynnu að valda
fyrirtækjum erfiðleikum í rekstri og
þar með auka efnahagsvanda Banda-
ríkjanna enn meir.
Paul Volcker bankastjóri banda-
ríska Seðlabankans varði aðgerðir
stjórnarinnar í gær og sagði að þegar
fram í sækti myndu hlutabréf á ný
hækka í verði.
Þetta gerðist
12. október
1976 — Hua Kuo-feng skipaður
formaður kínverska kommúnista-
flokksins.
1969 — Þremur sovézkum geimför-
um skotið með Soyuzi VII til móts við
tvo í Soyuzi VI.
1964 — Herinn tekur völdin í
Suður-Víetnam eftir byltingu gegn
Khanh hershöfðingja.
1960 — Nikita Krúsjeff ber í borðið
með skó sínum á Allsherjarþinginu.
1955 — Brezki froskmaðurinn
Crabbe sjóliðsforingi hverfur í
Portsmouth þar sem rússnesk her-
skip eru í heimsókn.
1942 — Bandaríkjamenn sigra Jap-
ani í orrustunni um Esperance-höfða
á Guadalcanal.
1934 — Pétur II konungur í
Júgóslavíu eftir morðið á Alexander
konungi.
1914 — Þjóðverjar taka Ghent og
Lille.
1908 — Stjórnlagaráðstefna Suður-
Afríku hefst.
1822 — Brazilía fær sjálfstæði frá
Portúgölum.
1492 — Kristófer Kólumbus finnur
Ameríku. *
Afmæli — Játvarður VI Englands-
konungur (1537—1553) = Ramsay
Macdonald, brezkur stjórnmálaleið-
togi (1865—1937) = Ralph Vaughan
Williams, brezkt tónskáld (1872—
1958).
Andlát — Maximilian keisari II1576
= Elizabeth Fry, umbótafrömuður,
1845 = Robert Stephenson, verkfræð-
ingur, 1859 = Robert E. Lee, her-
maður, 1878 = Anatole France, rit-
höfundur, 1924.
Innlent — Kötlugos hefst 1918 =
Vopnadómur 1581 = f. Hannes Step-
hensen 1799 = d. dr. Jón Finsen 1885 =
Konungur velur fulltrúa íslands á
stjórnlagaþing 1848 = Þjóðfrelsisfél-
agið stofnað 1884 = Landsyfirréttur
dæmir Fensmark bæjarfógeta á ísa-
firði í átta mánaða betrunarhús-
vinnu 1885 = „Herópið" hefur göngu
sína 1895 = Kvikmyndin „79 af
stöðinni" frumsýnd 1962 = f. Guð-
mundur Björnsson 1864 = dr. Páll
ísólfsson 1893 = Sverrir Júlíusson
1912.
Orð dagsins — Velgengni margra
bóka stafar af skyldleika meðal-
mennsku hugmynda höfundarins og
almennings, franskur rithöfundur =
Nicholas Chamfort (1741—1794).
Það er staðreynd
að sjónvarpstækin eru
hagstæðustu kaup sem gerð eru
í dag á sjónvörpum.
Hvers vegna?
Því:
1. Skýr og góð mynd sem hin frábæri
og þróaöi „LINYTRON PLUS“ W-
lampi sér um.
2. Mjög næmur „ELEKTRÓNÍSKUR"
tónstillir meö LED stöövarteljara.
3. Sjáandi myndstillir. Skýrleiki, litur
og skarpleiki aölaga sig aö birtu
herbergisins sjálfvirkt.
4. 10 cm breiður hljómmikill hátal-
ari. Hin nýja hönnun SHARP á
hátalarakerfi á engan sinn líkan,
hvaö varðar skýran tón.
5. Mynd og tal birtast á fjórum
sekúndum og þar meö sparast
dýrmæt orka.
6. 3ja ára ábyrgö á myndlampa.
7. Síðast en ekki síst. — Vegna mjög
■ hagstæöra innkaupa, eitt allra
besta verö á markaönum 14“
364.500.-, 18“ 457.000.-, 20“
532.000.-. Greiðsluskilmálar.
Takið
eftir!
HVER BÝÐUR BETUR?
Ný sending
flö PIOIMŒER
hljómtækja.
__