Morgunblaðið - 12.10.1979, Síða 19

Morgunblaðið - 12.10.1979, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1979 19 Flóamarkadur FEF um helgina FÉLAG einstæðra foreldra held- ur sinn árlega flóamarkað um helgina laugardag og sunnudag 13. og 14. október og hefst hann kl. 2 báða dagana. Markaðurinn verður nú í húsnæði FEF i Skeljanesi 6, en þar tekur senn til starfa neyðarhúsnæði fyrir ein- stæða foreldra og börn sem eiga i timabundnum erfiðleikum. Á flóamarkaðnum verður fjöl- breytt úrval af öllum mögulegum varningi, fatnaður nýr og notaður, búsáhöld, silfurmunir, vaskar, baðkör, eldavélar og sjónvörp, teppi og húsgögn af öllu tagi, matvara, gler og skrautmunir, lukkupakkar og margt fleira. Einnig má nefna að platti FEF verður seldur á markaðnum. Hinn 29. október heldur svo Félag einstæðra foreldra aðalfund sinn, hinn tíunda í röðinni og verður ýmislegt gert til hátíða- brigða vegna afmælis félagsins, en það var stofnað í nóvember 1969. Auk aðalfundarstarfa verða skemmtiatriði og happdrætti og veglegar hnallþórur bornar fram í tilefni afmælisins. Tekið skal fram fólki til glöggv- unar að strætisvagn nr. 5 stað- næmist rétt við Skeljaneshúsið. (Fréttatilkynning). Skeljanes 6. — Hús FEF. Leika á celló og píanó á Akranesi Akrane.si. 10. okt. GUNNAR Kvaran sellóleikari og Gísli Magnússon píanóleikari halda tónleika í Fjölbrautaskól- anum hér á Akranesi laugardag- inn 13. okt. n.k. kl. 15. Á efnisskrá eru verk eftir Chop- in, Bach, Þorkel Sigurbjörnsson og Sjostakovits. Þeir félagar eru ný- komnir úr tónleikaferð til Norður- landa og hlutu þar mikið lof gagnrýnenda. Þeir munu halda' tónleika í Carnegie Hall í New York í októberlok. — Júlíus. Bílnúmerahappdrætti: Heildarverd- mæti vinninga 30 millj. kr. í ár ÚTSENDING happdrættismiða í hinu árlega bílnúmerahappdrætti Styrktarfélags vangefinna stend- ur yfir þessa dagana. Vinningar eru 10 og heildarverðmæti þeirra rúmar 30 milljónir króna. Fyrsti vinningur er að þessu sinni Mazda 929 L. árgerð 1980, og annar vinningur Honda Accord, árgerð 1980. Aðrir vinningar eru bifreið- ar að eigin vali hver að upphæð 2,4 milljónir. Vinningar happdrættis- ins eru skattfrjálsir. Öllum ágóða happdrættisins verður varið til áframhaldandi framkvæmda við heimili það, sem félagið hefur í smíðum við Stjörnu- gróf í Reykjavík en það mun rúma 25—30 vistmenn. Unnið er nú að frágangi innanhúss og stefnt að því að taka húsið í notkun á næsta ári. Bygging þessi hefur að miklu leyti verið reist fyrir ágóða af happ- drættinu, svo og framlög frá Styrktarsjóði vangefinna og Hjálp- arstofnun kirkjunnar. Þá hefur félagið nýverið fest kaup á húseign í borginni og hyggst koma þar upp öðru sambýli (pensionati) fyrir 10—12 vangefna einstaklinga, sem að nokkru leyti eru færir um að bjarga sér sjálfir með aðstoð sér- þjálfaðs starfsliðs. frískandi iógurtdrykkur hollur Mjólkursamsalan i Luxemboiy Hvort heldur þú kýst ys og þys stórborgarinnar eöa kyrrö og fridsæld sveitahéraöanna - þá finnur þú hvort tveggja í Luxemborg, þessu litla landi sem liggur í hjarta Evrópu. seilingar. 7/7 dæmis er stutt á vfgaslóöir tveggja heimsstyrjalda, Verdun og Ardennafjöll. Efþú feröast til Luxemborgar, þá ferö þú í sumarfrí á eigin spýtur- ræöur feröinni sjálfur-slakar á og sleikir sólskiniö og skoöarþig um á söguslóöum. n Næstu nágrannar eru Frakkland, Þýskaland og Belgía - og fjær Holland, Sviss og Ítalía. Því er þaö aö margir helstu sögustaöir Evrópu eru innan LUXEMBORGARDAGAR Á HÓTEL LOFTLEIÐUM 11.-14. okt. Matur, drykkur og skemmtikraftar frá Luxemborg í Víkingasal. Kvikmyndasýningar í Ráðstefnusal FLUGLEIÐIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.