Morgunblaðið - 16.10.1979, Side 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
227. tbl. 66. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Við komuna til Parisar — Giscard d’Estaing, Frakklandsforseti, og Hua Kuo Feng,
forsætisráðherra Kína, skoða hciðursvörð. AP-simamynd.
Carrington ætlar að
semja við Muzorewa
Tilræði
viðMintoff
Valetta, 15. okt. — AP, Reuter
MAÐUR reyndi í dag að komast
inn á skrifstofu Dom Mintoffs,
forsætisráðherra Möltu, í Val-
etta. Hann var stöðvaður af
ritara forsætisráðherrans sem
var á fundi á skrifstofu sinni.
Þegar honum var meinuð inn-
ganga i skrifstofu Mintoffs hóf
maðurinn skothríð að ritaranum
en hitti ekki. Öryggisverðir
komu þegar í stað inn og skutu
að skotmanninum og særðu
hann. Hann var fluttur á sjúkra-
hús.
Að sögn lögreglunnar í Valetta
skaut maðurinn, Carmelo Grima,
fimm skotum. Litið er á atburðinn
af hálfu lögreglunnar í Valetta
sem tilræði við Mintoff. Mann-
fjöldi safnaðist saman fyrir utan
skrifstofu Mintoffs þegar
skothríðin heyrðist um nágrennið.
Dom Mintoff kom skömmu síðar
út og ók til heimilis síns. Mann-
fjöldinn fagnaði honum þegar
hann birtist.
Lundúnum. 15. október. — AP. Reuter.
CARRINGTON lávarður, utanríkisráðherra Breta, sagði í Lundúnum
í dag, að hann væri reiðubúinn að semja einungis við stjórn Abels
Muzorewa í Zimbabwe-Ródesiu án þátttöku skæruliðafylkinga Joshua
Nkomo og Roberts Mugabe. Fyrir troðfullum sal fréttamanna í
Lundúnum viðurkenndi Carrington lávarður. að mun erfiðara yrði að
ná friði í landinu án þátttöku skæruliða en „við vonumst til að ná
fram alþjóðlegum stuðningi og stuðningi ríkja brczka samve'disins,“
sagði hann.
og ná réttlátu samkomulagi," eins
og hann orðaði það.
„Carrington hefur engan rétt til
að kasta okkur út úr ráðstefnu-
salnum. Þegar hefur náðst mikill
árangur hér í Lundúnum," sagði
Joshua Nkomo, annar helsti leið-
togi skæruliða, í Lundúnum í
kvöld. Talsmaður Roberts Mugab-
es kallaði Carrington fífl. „Án
þátttöku okkar í friðarsamningum
verður enginn friður," sagði hann.
Muzorewa féllst á stjórnlaga-
tillögur Breta fyrir tíu dögum.
Fækkun í her Sovét-
ríkjanna breytir engu
Sú von Carringtons virðist
dæmd til að fara út um þúfur.
Framkvæmdastjóri brezka sam-
veldisins, Shridath Raphal, lýsti
því yfir að samveldisríkin ætluð-
ust til þess að samningar um
Rhódesíudeiluna yrðu gerðir af
öllum deiluaðilum.„Það væru
mistök að ætlast til stuðnings frá
ríkjum samveldisins við annað en
samkomulag allra deiluaðila,"
sagði hann.
Carrington lávarður tók ákvörð-
un um að semja aðeins við Muzor-
ewa eftir að stormasömum fundi
með leiðtogum skæruliða lauk í
Lundúnum í morgun. Þegar eftir
þann fund lýsti Carrington því
yfir, að hann ætlaði að hefja
viðræður við stjórn Abel Muzor-
ewa þegar á morgun.
Carrington fékk stuðning við
ákvörðun sína frá Washington
þegar talsmaður bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins lýsti yfir stuðn-
ingi við ákvörðun Breta, jafnframt
því sem hann hvatti alla deilu-
aðila til að „setjast að sáttaborði
Joseph Luns
Ncw York. 15. október. — Reuter. AP.
JOSEPII Luns, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, sagði í dag í
viðtali við bandaríska tímaritið Newsweek. að fækkun sovéskra hermanna
í A-Þýzkalandi hefði engin áhrif í valdajafnvægi í Evrópu. „Sovétmenn
munu alltaf hafa yfirburði i hefðbundnum vopnabúnaði,“ sagði Luns.
Aðspurður úm þá ákvörðun Sovét-
manna að fækka hermönnum um 20
þúsund sagði Luns það vera, „fremur
vinsamlegt og við metum það. En það
breytir raunverulega engu. Sovét-
menn halda yfirburðum sínum í hefð-
bundnum vopnabúnaði í Evrópu".
Luns sagði helsta ókost ræðu Brezh-
nevs í A-Berlín hafa verið, að hann
ræddi aldrei um SS-20 eldflaugarnar.
„Það eru vopn sem verulega ógna
öryggi V-Evrópu, og Brezhnev ætti að
viðurkenna að SS-20 eldflaugarnar
hafa verulega breytt valdajafnvæginu
í Evrópu," sagði Luns.
I viðtali við v-þýzka útvarpsstöð í
dag sagði Helmut Schmidt, kanslari
V-Þýzkalands, að tilboð Sovétmanna
um fækkun í herliði sínu hefði bæði
vakið vonir og tortryggni í V-Evrópu.
Hann sagði, að NATO þyrfti að vinna
að uppbyggingu kjarnorkubúnaðar
síns, jafnframt því að samið væri um
takmörkun vopnabúnaðar. Varnar-
málaráðherrar Breta, Frakklands og
V-Þýzkalands komu í dag saman til
fundar í Hamborg til viðræðna um
öryggismál NATO-ríkjanna og áfram-
haldandi samvinnu ríkjanna í vopna-
framleiðslu.
A-Þýzkaland:
Havemann hindrað-
ur í að hitta Bahro
Berlín, 15. október. AP.
A-ÞÝZKIR lögreglumenn tóku
sér stöðu í kringum hús a-þýzka
andófsmannsins Roberts Ha-
vemann og hindruðu hann
þannig i þvi að fara til fundar
við Rudolf Bahro um helgina.
Bahro var einnig hindraður i að
fara til fundar við Havemann.
Rudolf Bahro var sleppt úr
fangelsi síðastliðinn fimmtudag
i tilefni 30 ára afmælis alþýðu-
lýðveldisins. Hann var dæmdur
í átta ára fangelsi i júní 1978
fyrir að gefa út bók á Vestur-
löndum þar sem hann gagn-
rýndi a-þýzka efnahagskerfið.
Robert Havemann hefur
síðustu tvö árin verið í stofu-
fangelsi á heimili sínu í
Grunheilde. Honum var meinað
að hafa samband við vini og
ættingja. A-þýzk yfirvöld
slepptu Havemann úr stofufang-
elsi í maí eftir að blöð á
Vesturlöndum skýrðu frá hrak-
andi heilsu hans. Þykir nú sýnt
að a-þýzk yfirvöld hyggist
hneppa Havemann á ný í stofu-
fangelsi.
Ecevit
fer frá
Ankara, 15. áKÚst. AP. Reuter.
BULENT Ecevit, forsætisráð-
herra Tyrklands, tilkynnti í
Ankara i kvöld, að hann myndi
segja af sér í kjölfar ósigurs
flokks hans í þingkosningunum
um helgina. Hann fer á fund
Fahri Koruturk. forseta Tyrk-
lands, í fyrramálið og tilkynnir
formlega afsögn sína.
Sjá frétt um kosningarnar í Tyrk-
landi bls. 46.
Hua Kuo
gagnrýnir
Sovétmenn
óspart
París, 15. október. AP. Reuter.
HUA Kuo Feng, forsætis-
ráðherra Kína, kom í dag í
opinbera heimsókn til
Frakklands. Valery Gisc-
ard d’Estaing, forseti
Frakklands, tók á móti
Hua á flugvellinum með
mikilli viðhöfn. Giscard
d’Estaing hélt Hua veizlu í
Elyseehöll í kvöld. í ræðu,
sem Hua hélt, gagnrýndi
hann Sovétríkin óspart.
Hann sakaði Sovétríkin
um útþenslustefnu og að
skapa óróa víðs vegar um
heiminn til framdráttar
útþenslustefnu sinni.
Hann hvatti allar þjóðir
heims til að berjast gegn
útþenslustefnu Sovétríkj-
anna.
„Kjarninn í utanríkisstefnu
Kína er að koma í veg fyrir
útþenslustefnu og varðveita frið í
heiminum. Hins vegar blasa blá-
kaldar staðreyndir við. Hugsan-
leg átök í Evrópu eru möguleiki.
Sovétríkin hafa skapað sér að-
stöðu í Mið-Austurlöndum, Indó-
kína, Afríku og S-Asíu,“ sagði
hann.
„Við munum ávallt líta á
sterka og sameinaða Evrópu sem
mikilvægan hlekk til að viðhalda
heimsfriði. Við vonumst til þess
að sameining og máttur Evrópu
eigi eftir að vaxa,“ sagði Hua
ennfremur.
Hua Kuo Feng var klæddur í
hefðbundin grá Maóföt við kom-
una til Parísar. Óvenjulangur
rauður dregill var lagður við
landganginn á flugvél forsætis-
ráðherrans. Hua brosti og virtist
afslappaður þegar hann faðmaði
Giscard d’Estaing að sér á flug-
vellinum. Frakkland er fyrsta
landið í V-Evrópu, sem Hua
heimsækir. Hann mun dvelja sex
daga í Frakklandi og síðan halda
til V-Þýzkalands, Bretlands og
Ítalíu.