Morgunblaðið - 16.10.1979, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979
Baldvin Belgíukon-
ungur tekur á móti
forsetahjónunum
FORSETI íslands og forsetaírú
halda i dag í opinbera heimsókn
til Belgiu, en þar munu þau
dvelja fram á fimmtudag. Áætlað
er að Baldvin Belgiukonungur og
Fabiola drottning muni taka á
móti forsetahjónunum á Zavent-
emflugvelli klukkan 11,15 að
staðartima, segir í frétt frá
skrifstofu forseta íslands.
Frá flugvellinum verður ekið til
konungshallarinnar í Brússel, þar
sem forsetahjónin munu búa með-
an á hinni opinberu heimsókn
stendur.
Að loknum hádegisverði í Laek-
enhöll verður móttaka í ráðhúsi
Brusselborgar. Síðan verður
myndlistasýning skoðuð, en að því
loknu ekið aftur til konungshall-
arinnar, í kvöld halda konungs-
hjónin veislu til heiðurs forseta
Islands og konu hans.
Á morgun vérður farið til borg-
arinnar Tournai, sem heitir á
'flæmsku Doornik, í suðurhluta
landsins. Þetta er gömul, sögu-
fræg borg með mörgum minjum,
þar á meðal dómkirkju í gotnesk-
um stíl. Um kvöldið sitja forseta-
hjónin veislu belgísku ríkisstjórn-
arinnar.
Árdegis á fimmtudag heimsæk-
ir forsetinn Joseph Luns aðalrit-
ara Atlantshafsbandalagsins,
NATO, á skrifstofu hans. Þá
verður haldið til borgarinnar
Tongres, eða Tongern á flæmsku,
kirkjan þar skoðuð og minjar frá
dögum Rómverja. Um kvöldið
halda forsetahjónin konungshjón-
unum veislu í St. Anne-höll í
útjáðri Brússel að undangengnum
tónleikum strengjakvartetts undir
stjórn Rutar Ingólfsdóttur og lýk-
ur þar með opinberri heimsókn
forsetahjónanna.
I fylgdarliði forseta verða Hörð-
ur Helgason ráðuneytisstjóri og
Birgir Möller forsetaritari og kon-
ur þeirra.
Guðmundur J. endur-
kjörinn formaður Verka-
mannasambandsins
STJÓRN Verkamannasambands
íslands var einróma kjörin á
þingi sambandsins á Akureyri
s.1. sunnudag, utan þess að kosn-
ing fór fram um varaformann.
Guðmundur J. Guðmundsson
formaður Verkamannasambands-
ins var endurkjörinn og Karl
Steinar Guðnason varaformaður
einnig þar sem hann hlaut 59
atkvæði gegn 47 atkvæðum er
Þórður Ólafsson fékk. 4 sátu hjá.
Ritari var kjörinn Þórunn Valdi-
marsdóttir og gjaldkeri Jón
Kjartansson, en aðrir í stjórn
eru:
5. Meðstjórnendur: Halldór
Björnsson, Vmf. Dagsbrún, Rvík.
Björgvin Sigurðsson, Vlf.sjóm.
Bréf yf irskoð-
unarmanna
MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær-
kvöldi samband við Odd Ólafsson,
forseta Sameinaðs þings, og
spurðist fyrir um það, hvort hann
hefði tekið til athugunar bréf það,
sem yfirskoðunarmenn ríkisreikn-
inga afhentu honum sl. föstudag.
Oddur Ólafsson sagði að sér hefði
ekki enn gefizt tími til þess.
Bjarmi, Stokkseyri. Einar Karls-
son, Vlf. Stykkishólms. Eiríkur
Ágústsson, Vlf. Eining, Dalvík.
Gunnar Már Kristófersson, Vlf.
Afturelding, Helliss. Hallgrímur
Pétursson, Vmf. Hlíf, Hafnarfirði.
Hallsteinn Friðþjófsson, Vmf.
Fram, Seyðisfirði. Herdís Ólafs-
dóttir, Vlf. Akraness. Jón Helga-
son, Vlf. Eining, Akureyri. Kol-
beinn Friðbjarnarson, Vlf. Vaka,
Sigl. Kristján Ásgeirsson, Vlf.
Húsavíkur. Pétur Sigurðsson, Vkf.
Framsókn, Rvík. Sigfinnur
Karlsson, Vlf. Norðfjarðar, Nesk.
Þorsteinn Þorsteinsson, Vlf. Jök-
ull, Höfn.
Varamenn í stjórn: Guðríður
Elíasdóttir, Vkf. Framtíðin, Hafn.
Kristvin Kristinsson, Vmf. Dags-
brún, Rvík. Skúli Þórðarson, Vlf.
Akraness. Guðrún Ólafsdóttir,
Vkf. Keflavíkur og Njarðvíkur.
Jón Karlsson, Vmf. Fram, Sauð-
árkróki. Jóhann G. Möller, Vlf.
Vaka, Siglufirði. Dagný Jónsdótt-
ir, Vlf. Þór, Selfossi.
Endurskoðendur: Benedikt
Franklínsson, Vlf. Þór, Selfossi.
Snjólaug Kristjánsdóttir, Vkf.
Framsókn, Rvík.
Varaendurskoðandi: Sæmundur
Valdimarsson, Vmf. Dagsbrún,
Rvík.
Eldurinn kom upp i eidhúsi i risibúð og urðu mestar skemmdir á
henni, en skcmmdir af vatni og reyk á hæð og kjallara.
„Sjávar-
útvegs- og
viðskipta-
ráðherra
verða nú
sammála”
— sagði Kjartan
Jóhannsson í gær
„ÞAÐ er allavega á hreinu,
að sjávarútvegsráðherra og
viðskiptaráðherra verða
sammála um aðgerðir“
sagði Kjartan Jóhannsson,
er blaðamaður Mbl. spurði
hann í gærkvöldi, hvort
hann hyggði á frekari að-
gerðir í skipakaupamálum
Neskaupstaðarbúa. En eins
og komið hefur fram tók
Kjartan við viðskiptaráð-
herradómi í gær. Fyrrver-
andi viðskiptaráðherra,
Svavar Gestsson, leyfði
lánveitingar til skipakaupa
þessara þrátt fyrir and-
mæli Kjartans. Kvaðst
Kjartan myndu athuga mál
þetta í dag og taka síðan
ákvarðanir að því loknu.
Tvennt fórst í
eldsvoða í Rvík
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var
kl. 18.50 á laugardag kvatt að
Laugavegi nr. 163 í Reykjavík og
þegar að var komið logaði rnikilí
eldur í risíbúð hússins, sem er
timburhús, kjallari, hæð og ris.
Reykkafarar voru þegar sendir
inn og sóttu þeir að eldinum og
bárust þá um leið upplýsingar
um að fólk væri i húsinu.
Var reykköfúrunum gert við-
vart með talstöðvum og náðu þeir
fólkinu út og var það þegar sent á
slysadeild en mun hafa verið látið.
Voru þau gestkomendur í húsinu,
en aðrir voru ekki þar inni við er
eldurinn kom upp. Á íbúðarhæð-
inni bjó ein kona og var hún flutt
á slysdeild, en hana mun ekki hafa
sakað.
Þau sem fórust voru. Halldóra
Bára Halldórsdóttir fertug, búsett
í Garði, ekkja og lætur eftir sig
fimm börn á aldrinum 7—19 ára,
og Erlendur Guðmundsson, 52 ára,
búsettur í Reykjavík, ókvæntur og
barnlaus.
Samkvæmt upplýsingum
Slökkviliðsins gekk greiðlega að
slökkva eldinn og var öllu slökkvi-
starfi lokið eftir tæpa klukku-
stund. Að sögn Rannsóknarlög-
reglunnar kom eldurinn upp í
eldhúsinu og beinist rannsóknin
einkum að eldavélinni, sem talið
er að kviknað hafi í út frá.
Skemmdir urðu mestar í risíbúð-
inni. Eldhúsið er í henni miðri,
stigagangurinn vestan við og her-
bergi austan við. Þá urðu allmikl-
ar skemmdir á íbúð á hæð vegna
reyks og vatns svo og í kjallara
hússins þar sem einnig er ibúð.
Kona sem er húsráðandi í risíbúð-
inni var fjarstödd er eldsins varð
vart, en hún var nýlega flutt í
húsið sem er í eigu Reykjavíkur-
borgar og missti hún þar allt
innbú sitt.
Fjögurraára telpa
lézt af völd-
um brunasára
Atöká Verkamannasambandsþingi:
Alþýðubandalaginu mistókst
atlaga gegn Karli Steinari
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ gerði mjög harða atlögu að Karli
Steinari Guðnasyni varaformanni Vekamannasambands íslands
þegar Alþýðubandalagsmenn reyndu með markvissum ráðum að
fella varaformanninn í kosningu til stjórnar. Guðmundur J.
Guðmundsson formaður sambandsins stóð hins vegar með
varaformanninum og var að því leyti einangraður frá flokksfélög-
um sínum í Alþýðubandalaginu. Úrslit kosninganna urðu þau, að
Karl Steinar hlaut 59 atkvæði en Þórður ólafsson 47 atkvæði og 4
sátu hjá.
Alþýðubandalagsmenn sendu
m.a. starfsmann sinn, Baldur
Óskarsson, um landið til þess að
hvetja þingfulltrúa á móti Karli
Steinari og einnig vann Einar
Karl Haraldsson ritstjóri Þjóð-
viljans að því ásamt þingmönn-
um og ráðherrum Aiþýðubanda-
lagsins og framsóknarmennirnir
Steingrímur Hermannsson og
Halldór E. Sigurðsson tóku einn-
ig þátt í þessum skipulögðu
aðgerðum. Hver einasti þing-
fulltrúi sem var talinn hafa
óákveðna afstöðu til varafor-
mannsins var tekinn fyrir og
þótt allt væri tiltölulega rólegt á
yfirborðinu á Vekamannasam-
bandsþinginu, var ólgusjór undir
með boðaföllum og símalínur
glóandi úr öllum áttum til Akur-
eyrar. Sem fyrr segir var Guð-
mundur J. Guðmundsson á móti
flokksfélögum sínum í þessu
máli og hvatti reyndar til þess
að Karl Steinar yrði endurkjör-
inn. „Jú, það er rétt,“ sagði hann,
„og ég naut ekki svefns sem
skyldi."
Hörðust í atlögunni á þinginu
voru Bjarnfríður Leósdóttir,
Kolbeinn Friðbjarnarson og Jón
Kjartansson. Andstæðingar
varaformannsins reyndu að fá
annan Alþýðuflokksmann á móti
honum, en þeir neituðu allir og
þá var stungið upp á Þórði
Ólafssyni formanni Verkalýðs-
félags Hveragerðis og nágrennis,
en hann mun teljast til vinstri
framsóknarmanna. Alþýðu-
bandalagsmenn munu ekki hafa
gert sér grein fyrir því fyrr en
þeir komu til þings að þeir voru í
minnihluta þar og reyndu því
allt hvað af tók að ná inn í raðir
annarra flokka.
Litla stúlkan er brenndist í
eldsvoða hinn 19. september sl. í
húsi við Veghúsastíg 3 í Reykja-
vík lést á Borgarspítalanum nú
fyrir helgina.
Stúlkan var ásamt móður sinni
flutt á slysadeild eftir að reyk-
kafarar höfðu náð þeim út úr
brennandi íbúðinni. Brenndust
þær báðar og komst stúlkan ekki
til meðvitundar. Stúlkan hét
Brimrún Rögnvaldsdóttir og var
fjögurra ára.
Varðhald vegna
myndatöku
SAKADÓMUR Kópavogs hefur úr-
skurðað mann í varðhald til
mánaðamóta, en hann er talinn
hafa stundað ósiðlegar myndatökur
af dóttur sambýliskonu sinnar.
Að sögn Þóris Oddssonar vara-
rannsóknarlögreglustj óra hefur
maður þessi játað að hafa tekið
ósiðlegar myndir af dóttur sambýl-
iskonu sinnar sem er 12 ára og
jafnframt er , hann grunaður um
frekari afskipti af stúlkunni og
beinist rannsóknin nú að því hvort
um frekari afbrot hans geti verið að
ræða gegn henni.