Morgunblaðið - 16.10.1979, Side 4

Morgunblaðið - 16.10.1979, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979 Hópferðabílar 8—50 farþega Kjartan Ingimarsson sími 86155, 32716. vandaðaðar vörur Verkfæra- kassar Eins, þriggja og fimm holfa Afar hagstætt verð. Shell Heildsölubirqðir: Smavorudeild Simi: 81722 Myndkynning Olíumálverk eftir: Guömund Karl Ásbjörnsson Grafik eftir: Erró Braga Ásgeirsson Kristinn Pétursson Ingunni Eydal Jón Reykdal Vasarely Raysse Dossi Lauser Hausner Böttner o.fl. Lágmyndir úr gifsi eftir: Helga Gíslason Opið 11—18 virka daga. MYNDKYNNING Ármúli 1 Pósthólf 1151 121 Reykjavík Simi 82420 Þokkaleg síldveiði ÞOKKALEG veiði hefur ver- ið hjá sildarbátunum á Höfn á Hornafirði að sögn Einars Gunnlaugssonar fréttaritara Mbl. og sagði hann að söltun- arstöðvarnar tvær hefðu tek- ið á móti milli 1.000 og 1.300 tunnum hvor. Unnið var því við söltun í gær, en helgarfrí framundan og því ekki unnið í dag. Sagði Einar að afli bátanna hefði verið mjög misjafn eða allt upp í 450 tunnur, en síldin stór og falleg og blíðuveður hefur verið, sem búist er við að haldist fram yfir helgi. Búið er að flaka í 200 tunnur af kryddsíld, en mikill mark- aður mun nú vera fyrir hana og hefur Sölumiðstöð hraö- frystihúsanna þegar samið um sölu á 1.000 tunnum. Sjónvarp í kvöld klukkan 21.45: málanna: Stjórnmálaástandið í landinu Stjórnmálaástandið í landinu verður til umræði í sjónvarpi í kvöld, þar sem kosningar til Alþingis mun meðal annars bera á góma. en þessi mynd var tekin við þingsetningu í siðustu viku. Jón Baldvin Hannibalsson. Stjórnmálaástandið í land- inu og kosningar í desem- ber eru nú á hvers manns vörum, og um þetta efni verður f jallað í sjónvarpi í kvöld í umræðuþætti í beinni útsendingu. Um- ræðunum stýrir Ómar Ragnarsson fréttamaður, en stjórn útsendingar ann- ast Þrándur Thoroddsen! Er blaðamaður Morgun- blaðsins ræddi við ómar í gær sagði hann að ætlunin væri að skipta þættinum í tvennt. í fyrsta lagi yrði Einar Karl Haraldsson. rætt við þá Guðmund J. Guðmundsson formann V er kamannasam bands íslands og Þorstein Páls- son framkvæmdastjóra Vinnuveitendasambands íslands um þann þátt stjórnmálaástandsins sem lýtur að vinnumarkaðn- um. í síðari hluta ræðast þeir síðan við, fulltrúar fjögurra dagblaða, þeir Einar Karl Haraldsson frá Þjóðviljanum, Halldór Blöndal frá Morgunblað- Ómar Ragnarsson. inu, Jón Baldvin Hanni- balsson frá Alþýðublaðinu og Jón Sigurðsson frá Tímanum. Ekki er að efa að þessir aðilar muni hafa ýmislegt til málanna að leggja, f jör- ugt hefur verið á vettvangi stjórnmálanna síðustu daga, og kosningabarátt- an verður senn í algleymi. Umræðuþátturinn verð- ur sem fyrr segir í beinni útsendingu, og hefst hann klukkan 21.45 í sjónvarpi í kvöld, þriðjudagskvöld. ðtvarp Reykjavlk ÞRIÐJUDKGUR 16. október MORGUNNINN 7.00 Veðuríregnir. Fréttir. Tónleikar. 7.10 Leikíimi. 7.20 Bæn 7.25 Morgunpósturinn. (8.00 Fréttir). 8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). Dagskrá. Tónleikar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: Þröstur Karlsson les frum- samda smásögu: „Litla apa- köttinn“. $.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn- ingar. Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. 10.25 Tónleikar. 11.00 Sjávarútvegur og sigling- ar Guðmundur Hallvarðsson talar við Guðmund Einars- son forstjóra Skipaútgerðar ríkisins. I 11.15 Morguntónleikar IHljómlistarflokkurinn „The Music Party“ Jeikur á gömul hljóðfæri K larínett ukvartett nr. 2 í c-moll op. 4 eftir Crusell / Felicja Blumental og Mozarteum-hljómsveitin í Salzburg leika Píanókonsert í B-dúr eftir Manfredini; Inou stj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. SÍÐDEGIÐ 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Á frivaktinni Sigrún Sigurðardóttir kynn- ir óskalög sjómanna. 14.30 Miðdegissagan: „Fiski- menn“ eftir Martin Joensen Hjálmar Árnason les þýð- ingu sina (7). 15.00 Miðdegistónleikar Fílharmoníusveit Berlínar leikur ballettmúsik eftir Verdi og Ponchielli; Herbert von Karajan stj. / Montserr- at Caballé og Shirley Verrett syngja dúetta úr óperum eftir Rossini, Donizetti og Bellini. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popp 17.05 Atriði úr morgunpósti endurtekin 17.20 Sagan: „Grösin í glugg- húsinu“ eftir Hreiðar Stef- ánsson Höfundurinn heldur áfram lestri sögu sinnar (3). 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. KVÖLDIÐ 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Alþjóðleg viðhorf í orku- málum Magnús Torfi ólafsson blaðafulltrúi flytur erindi. 20.00 Píanókonsert nr. 3 eftir Béla Bartók Pascal Devoyen og Sinfóníu- hljómsveit útvarpsins í Stuttgart leika. Stjórnandi: Hans Drewanz. (Hljóðritun frá Stuttgart). 20.30 Útvarpssagan: Ævi Elen- óru Marx eftir Chushichi Tsuzuki, Sveinn Ásgeirsson hagfræð- ingur les valda kafla bókar- innar (2). 21.00 Þættir úr „Meistara- söngvurunum“ eftir Richard Wagner Söngvarar: Helge Roswánge, Paula Yoder, Lydia Kind- ermann, Max Kuttner og Heinz Reimar. Eugen Joch- um, Franz Alfred Schmitt og Selmar Meyerovitsj stjórna Fílharmoníusveitinni og Ríkishljómsveitinni í Berlín. 21.20 Sumarvaka a. í Kennaraskóla íslands fyrir 30 árum. Auðunn Bragi Sveinsson kennari segir frá; — þriðji og síðasti hluti. b. Þáttur af Erlendi klóka. Rósa Gísladóttir les úr þjóð- sagnasafni Sigfúsar Sigfús- sonar. c. Þrjú kvæði eftir Matthías Jochumsson. Úlfar Þor- steinsson les. d. Kórsöngur: Karlakórinn Geysir á Akureyri syngur íslenzk lög. Söngstjóri: Ing- imundur Árnason. 22.30 Fréttir. Veðurfregnir. Dagskrá morgundagsins. 22.50 Harmonikulög John Molinari leikur. 23.10 Á hljóðbergi. Umsjónar- maður: Björn Th. Björnsson listfræðingur. Peter Ustinov endursegir dagsannar sögur eftir Munchauscn barón. 23.35 Fréttir. Dagskrárlok. ÞRIÐJUDAGUR 16. október 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Orka. Fjailað verður um aðferðir til að bæta einangrun húsa og draga þannig úr upphitunar- kostnaði. úmsjónarmaðui' Magnús Bjarnfreðsson. 20.55 Dýrlingurinn. Vitni eða vinagull? Þýðandi Krist- mann Eiðsson. 21.45 Stjórnmálaástandið í landinu. Umræðuþáttur í beinni útsendingu. Umræð- um stýrir Ómar Ragnars- son fréttamaður. Stjórn út- sendingar Þrándur Thor- oddsen. 22.45 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.