Morgunblaðið - 16.10.1979, Síða 5

Morgunblaðið - 16.10.1979, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979 5 Guðný Guðmundsdótt- Einar Jóhannesson Philip Jenkins píanól- ir fiðluleikari. klarinettleikari. eikari. Tónleikar Hljóðfæraleikararnir Guðný Guðmundsdóttir, Einar Jó- hannesson og Philip Jenkins halda tónleika í Reykjavík og úti á landi á næstu dögum. A efnisskrá verða þrjú tríó fyrir fiðlu, klarinett og píanó eftir Vanhall, Ives og Kachaturjan og tvær sónötur, a-moll sónata Schumanns fyrir fiðlu og píanó og f-moll sónata Brahms fyrir klari- nett og píanó. Fyrstu tónleikarnir verða í Safnhúsinu á Sauðárkróki, fimmtudaginn 18. október kl. 21. Laugardaginn 20. október leika þau í Borgarbíói á Akureyri og hefjast tónleikarnir kl. 17. Fyrir Reykvíkinga leika þau þriðjudaginn 23. október kl. 20.30 að Kjarvalsstöðum en það er á vegum Kammermúsikklúbbs Reykjavíkur. Síðustu tónleikarnir verða á Isafirði, föstudaginn 26. október í Alþýðuhúsinu og hefjast þeir kl. 21.00. Gísli Amason skrifstofu- st jóri forsætisráðuneytis Á FUNDI ríkisráðs í gær féllst forseti íslands á að veita Gísla Árnasyni embætti skrifstofu- stjóra forsætisráðuneytisins. Á fundinum féllst hann einnig á tillögur um veitingu eftirtalinna embætta: Guðrún Sigurðardóttir verði skipuð deildarstjóri í forsætis- ráðuneytinu, Ingibjörg Björns- dóttir, Gunnlaugur M. Sigmunds- son og Einar Sverrisson verði skipuð deildarstjórar í fjármála- ráðuneytinu, Skafti Benediktsson verði skipaður deildarstjóri í land- búnaðarráðuneytinu, Sveinn Aðal- steinsson verði skipaður deildar- stjóri í viðskiptaráðuneytinu og Jafet S. Ólafsson verði skipaður deildarstjóri í iðnaðarráðuneyt- inu. Þá féllst forseti íslands á að eftirtalin frumvörp til laga yrðu lögð fyrir Alþingi: Frumvarp til laga um lagningu sjálfvirks síma, frumvarp til laga um breytingu á Gísli Árnason. lögum nr. 101/’66 um Framleiðslu- ráð landbúnaðarins, verðskrán- ingu, verðmiðlun og sölu á land- búnaðarafurðum o.fl. Stærsta sjávanítvegssýningin í Bandaríkjunum: Átta íslenzk fyrirtæki kynna framleiðslu sma ÁTTA íslenzk fyrirtæki taka þátt í mikilli sjávarútvegssýningu i Seattle í Bandaríkjunum dagana 24. — 27. október næstkomandi. íslenzku fyrirtækin verða í 5 básum á sýningunni, en mynda þó eina heild. Stolið raf- geymum, sætum og hjólbörðum BROTIST var inn í port skipafélags- ins Bifrastar við Óseyrarbraut í Hafnarfirði og stolið þar ýmsum hílhlutum svo sem hjólbörðum, raf- geymum og sætum. Að sögn Högna Einarssonar hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins eru nú í portinu á þriðja hundrað bílar og var seinni part föstudags tilkynnt um að stolið hefði verið úr nokkrum þeirra. Voru tekin framsæti úr tveimur nýjum Mustang-bílum, fjórir jeppa- hjólbarðar, þ.e. einum undan jeppa og þremur varahjólbörðum, framsæti úr Fordsendibíl og rafgeymar voru tekn- ir úr þremur bílum. Ekki hafa enn komið í ljós stuldir úr fleiri bílum og er mál þetta nú í rannsókn. Gunnar Kjartansson hjá Ut- flutningsmiðstöð tðnaðarins hefur annast undirbúning sýningarinn- ar af hálfu íslenzku sýnendanna og sagði hann í gær, að kostnaður samfara þátttökunni næmi 2,6 milljónum króna, þ.e. þátttakan og aðstaðan á sýningarsvæðinu, en að auki er kostnaður vegna flutnings á tækjum, kynningar- starfsemi o.fl. Útflutningsmiðstöð iðnaðarins hefur látið gera sérstakan bækling til að kynna þessi íslenzku fyrir- tæki, en einnig önnur fyrirtæki, sem eru með framleiðslu fyrir sjávarútveg og fiskvinnslu. Þessi sýning í Seattle er stærsta sýning þessarar tegundar, sem sett hefur verið upp í Bandaríkjunum. Fyrirtækin, sem kynna fram- leiðslu sína á sýningunni eru eftirtalin. Electra hf. í Garðabæ sýnir handfæravindur o.fl. J. Hinriks- son sýnir toghlera, blakkir o.fl. Plasteinangrun á Akureyri verður með netahringi og trollkúlur. Stálvinnslan í Reykjavík sýnir síldarflokkunarvél. Véltak í Hafn- arfirði kynnir tunnuvaltara og reknetahristara. Vélsmiðjan Oddi á Akureyri sýnir bobbinga. Vél- smiðjan Völundur sýnir rafeinda- stýrða fiskflokkunarvél, vigtar og nýtingarvakt. Loks sýnir Traust hf. í Reykjavík loðnuskiljara, hausunarvél og fleira. ^tyrsso^ J.Hinriksson hf Véhverkstœbi SÍMI 84677 Súðarvogi 4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.