Morgunblaðið - 16.10.1979, Síða 10

Morgunblaðið - 16.10.1979, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979 Oddur Ólafsson kjörinn forseti Sameinaðs Alþingis Þorvaldur Garðar Kristjánsson ogÁmi Gunnarsson forsetar þingdeilda Oddur ólafsson, 4. þingmaður Reyknesinga, var í gær kjörinn forseti Sameinaðs Alþingis, Þorvaldur Garðar Kristjánsson, 5. þingmaður Vestfirðinga, forseti efri deildar, og Árni Gunnarsson, 11. landskjörinn þingmaður, forseti neðri deildar. Kjörið var í fastanefndir Sameinaðs þings en kjöri nefnda í þingdeildum frestað til dagsins í dag. Gert var ráð fyrir að Alþingi yrði rofið í dag eða á morgun. Forseti Sameinaðs þings Oddur Ólafsson (S) var kjör- inn forseti Sameinaðs Alþingis með 34 atkvæðum en Gils Guð- mundsson (Abl) fékk 25 atkvæði. Fyrri varaforseti var kjörinn Karl Steinar Guðnason (A) með 32 atkvæðum en 27 seðlar voru auðir. Annar varaforseti var kjörinn Friðjón Þórðarson (S) með 31 atkvæði en 27 seðlar voru auðir. Skrifarar Sameinaðs þings voru kjörnir: Friðrik Sophusson (S) og Páll Pétursson (F). Forsetar þingdeilda. Forseti neðri deildar Alþingis var kjörinn Árni Gunnarsson (A) með 22 atkvæðum, Ingvar Gíslason (F) hlaut 14 atkvæði en 2 seðlar voru auðir. Fyrri vara- forseti var kjörinn Sverrir Hermannsson (S) með 22 at- kvæðum en 15 seðlar voru auðir. Annar varaforseti var kjörinn Jóhanna Sigurðardóttir (A) með 20 atkvæðum, Vilmundur Gylfa- son (A) hlaut 1 atkv. en 16 seðlar voru auðir. Skrifarar þingdeild- arinnar voru kjörnir Jósep Þor- geirsson (S) og Eiður Guðnason (A). Forseti efri deildar var kjör- inn Þorvaldur Garðar Krist- jansson (S) með 14 atkvæðum en 5 seðlar voru auðir. Fyrri vara- forseti var kjörinn Bragi Níels- son (A) með 11 atkvæðum en 9 seðlar voru auðir. Annar vara- forseti var kjörinn Eyjólfur Konráð Jónsson (S) með 11 atkvæðum en 7 seðlar voru auðir. Hlutað um sæti Þá var hlutað um sæti í efri deild, þ.e. þingmenn drógu um Þorvaldur Garðar Kristjáns- son, forseti efri deildar Alþing- is. sæti, eins og mælt er fyrir um í þingsköpum. í neðrideild var sætaúthlutun frestað. í báðum þingdeildum komu frá ábend- ingar um, að þingmenn sætu í sömu sætum og á liðnu þingi. Efasemdir voru uppi um, hvort það samræmdist ákvæðum þing- skapa að hluta ekki til um sæti og andmæli á lofti gegn því, að hverfa frá gamalli þinghefð. í neðri deild krafðist Sverrir Hermannsson (S) þess, að farið yrði að þingsköpum og hefð haldin. Ef forseti treysti sér ekki til stjórnar á þeirri athöfn væri staðgengiil til staðar (en Sverrir er 1. varaforseti deildarinnar). Sighvatur Björgvinsson (A) taldi ekki óeðlilegt að þingmenn sætu sem á fyrra þingi, utan þá óhjákvæmilegu breytingu sem ekki yrði um flúin (og mun hafa átt við ráðgerða flutninga úr og í ráðherrastóla). Albert Guð- Árni Gunnarsson. Oddur ólafsson, forseti Sameinaðs þings. Til'vinstri Ellert B. Schram og til hægri Jón Helgason. mundsson (S) Sagðist geta fall- ist á sömu sætaskipan og áður — enda sætu þá allir í fyrri sætum! Lúðvík Jósepsson (Abl) sagði m.a. að forseti gæti komizt út úr mestum vanda með því að fresta dagskrárliðnum til morguns, hvað var gert. Einar Águátsson (F) taldi hér strax upp komið „gat“ í nýjum stjórnarsáttmála en kvaðst þó ekki hafa í hyggju að leggja þar við bót. Þannig slógu þingmenn á hina léttari strengi, þó að ekki væru allir þingmenn (eða ráðherrar) með jafn hýrri há á þessum væntan- lega næst síðasta starfsdegi ný- byrjaðs Alþingis. Fastaneíndir Sameinaðs þings Kjör í fastanefndir fór sem hér segir: Fjárveitinganefnd: Ellert B. Schram (S), Pálmi Jónsson (S), Lárus Jónsson (S), Eiður Guðna- son (A), Finnur Torfi Stefánsson (A), Alexander Stefánsson (F) og Þórarinn Sigurjónsson (F), Geir Gunnarsson (Abl) og Helgi F. Seljan (Abl). Utanrikismálanefnd: Ragn- hildur Helgadóttir (S), Friðjón Þórðarson (S), Árni Gunnarsson (A), Karl Steinar Guðnason (A), Einar Ágústsson (F), Gils Guð- mundsson (Abl) og Jónas Árna- son (Abl). Varamenn: Geir Hall- grímsson (S), Eyjólfur K. Jóns- son (S), Finnur T. Stefánsson (A), Jóhanna Sigurðardóttir (A), Ingvar Gíslason (F) Kjartan Ólafsson (Abl) og Svava Jakobs- dóttir (Abl). Allsherjarnefnd: Lárus Jóns- son (S), Ellert B. Schram (S), Bragi Níelsson (A) Gunnlaugur Stefánsson (A), Páll Pétursson (F), Jónas Árnason (Abl) og Ölafur Ragnar Grímsson (Abl). Atvinnumálanefnd: Friðrik Sóphusson (S), Jón G. Sólnes (S), Björn Jónsson (A), Jóhanna Sig- urðardóttir (A), Þórarinn Sigur- jónsson (F), Stefán Valgeirsson (F), Kjartan ÓLafsson (Abl). Þingfararkaupsnefnd: Sverr- ir Hermannsson (S), Friðjón Þórðarson (S), Árni Gunnarsson (A), Eiður Guðnason (A), Ingvar Gíslason (F), Garðar Sigurðsson (Abl) og Stefán Jónsson (Abl). Vetrarstarf Skál* holtsskóla hafið Sunnudaginn 30. september hófst vetrarstarf Skálholtsskóla með guðsþjónustu í Ska- lholt og skólasetningu í sal. Við guðsþjónustuna predikaði séra Eiríkur J. Eiríksson, prófastur í Árnesprófastsdæmi, en séra Guðmundur Óli ólafsson, so-' knarpre í Skálholti, þjónaði fyrir altari. Organleikari var Glúmur Gylfason, en hann hefur nú um nokkurra ára bil annast tæ nlistarkenns við Skálholtsskóla og jafnframt verið organleikari Skálholtskirkju og stjórnandi Skálholtskórsins. I skólasetningarræðu drap rektor Skálholtsskóla, séra Heimir Steinsson, nokkuð á ny- afstaði sumarnámskeið í Ska: lholt en reifaði að öðru leyti fyrirhugaða starfsemi skólans á vetrinum. Mun skólinn starfa í tveimur deildum líkt og undan- farin ár, og eru innritaðir nemendur nær fimm tugum. Fastir kennarar við skólann eru tveir, auk rektors, en nokkrir stundakennarar koma þar og við sögu. Við skólasetningu flutti frú Astrid Hannesson ávarp og af- henti Skálholtsskóla að gjöf bækur úr safni Jóhannes heitins Hannessonar professors. Er þar um að ræða bækur um sundur- leitustu efni, og auka þær enn það safn, er á sínum tíma mun saman koma í fyrirhugaðri Skal: holts Bókum þessum hefur nú verið komið fyrir í salarkynnum skólans. Ýmsir góðir gestir voru við- staddir skólasetningu í Skálholti, eldri nemendur skólans og aðrir velunnarar hans, þeirra á meðal biskup íslands, herra Sigurbjörn Einarsson. Að lokinni kaffi- drykkju í matsal söfnuðust heima- menn og gestir til aðalfundar Skálholtsskólafélagsins. Fundin- um stýrði Jón Guðmundsson, bóndi að Fjalli á Skeiðum. Á fundinum var þess minnst, að nú eru tíu ár liðin frá því að Ska-' lholtsskóiafélag tók til starfa, en stofnfundur þess var haldinn á Prestastefnu árið 1969. Fundar- menn færðu félaginu árnaðaróskir og hylltu Þórarinn Þórarinsson, fyrrum skólastjóra að Eiðum, en hann hefur verið formaður Ska-' lholtsskólafélagsi frá upphafi. Jafnframt rakti biskup aðdrag- andann að stofnun Skálholtsskóla og ræddi þau grundvallarviðhorf, er borið hafa uppi endurreisn Skálholts frá öndverðu til þessa dags. Síðasti þingfundur ráðherranna I dag, þegar Alþingi fundar, sitja nýir ráðherrar í þeim sætum, sem hér sjást mönnuð ráðherrum fráfarandi vinstri stjórnar. Frá vinstri: M"~nús H. Magnússon félagsmálaráðherra, sem heldur stól sínum í nýrri ríkisstjórn, Ragnar Arnalds menntamálaráðherra raðar skjölum sínum í tösku, Benedikt Gröndal utanríkisráðherra flytur sig yfir í stól viðmælanda síns, Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra, Tómas Árnason fjármálaráðherra, Steingrímur Hermannsson landbúnaðarráðherra, Svavar Gestsson viðskiptaráðherra og Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra. Frá Skálholtsskóla.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.