Morgunblaðið - 16.10.1979, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 16.10.1979, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979 Brunaö um é spegilsléttum Hvalfiröinum. Dölaö undir Þyrli, sem rís tignarlega til móts viö Magna. Texti og myndir: Agiíst Ásgeirsson Þegar minnst er á Magna, kviknar samstundis á perunni hjá hálfri þjóðinni og ríflega það. Það vita flestir að verið er að tala um dráttarbát Reykjavíkurhafnar, en segja má að Magni sé tákn alls þess lífs og þeirra umsvifa sem daglega eru við höfnina, auk þess sem hann er táknrænn fyrir hag- leik íslenzkra handverksmanna þar sem hann er fyrsta stálskipið sem smíðað var á Islandi. Blm. Mbl. brá sér í ferð með Magna og kynnti sér störf áhafnar „tíma- mótaskipsins", eins og Jóhannes Ingólfsson skipstjóri réttilega kallaði fleyið, er Magni aðstoðaði skip úr fastaflota Nato á fyrsta degi kurteisisheimsóknar flotans á dögunum. I þessari ferð aflaði Magni gjaldeyris fyrir þjóðarbúið. „Þetta er allt á kostnað Nato. Þeir borga fyrir daginn í grænu," sagði Jó- hannes er við lögðum upp í ferðina frá bryggjunni, sem búin var til handa ríkisskip en komið hefur að litlum notum ennþá. „Ætli það kosti ekki bandalagið um eina milljón að leigja Magna í þetta sinn. Við verðum skipunum sem taka olíu í Hvalfirði til aðstoðar er þau leggjast að bryggju, ef á þarf að halda, og dagurinn fer allur á reikning bandalagsins, eða þar til við bindum festar í Reykjavík í kvöld.“ Er Magni stefndi út Engeyjar- sund mátti sjá fastaflotann bera við sjóndeildarhringinn í norð- vestri. Á radarnum virtust skipin sigla í beinni línu og með jöfnu millibiii milli skipa. En þarna var og skip sem á radarskerminum virtist í skipalestinni, en var það þó ekki þegar til kom. Þetta var rússneskur „togari" og á daginn átti eftir að koma að Rússar fylgjast vandlega með ferðum fastaflotans. Þegar skipin færðust nær hófst mikil lota í talstöðinni þar sem rússneski togarinn og Nato-skipin spurðust fyrir um siglinguna inn sundin, viðlegupláss o.fl. Sá loft- skeytamaður sem byrjaði talaði með áberandi skozkum hreim, eins og innfæddum skotum einum er lagið, en Jóhannes sagði að þetta væri loftskeytamaður Rússa. Eftir því sem nær dró virtist skipulag heimsóknar Nato-skipanna breyt- ast, því stöðugt var verið að breyta hvar hvert skipanna legðist við bólfestar, hvaða skip legðust að bryggju, hvert þeirra fengi lóðs, o.s.frv. Eftir um það bil klukkustund mátti heyra að yfir- mönnum skipanna var farið að leiðast þófið þar sem þeir voru engu nær. „Þetta er nú meiri kjaftavaðall- inn,“ sagði Jóhannes er talstöðin hafði ekki þagnað í um klukku- stund. „Já, það kjaftar á þeim hver tuska,“ sagði Símon Guðjóns- son vélstjóri og tók undir orð Jóhannesar um leið og hann sneri stýrinu í stjór og sveigði fyrir ljósbaujuna við Brekkuboða, en Símon stóð stýrisvaktina á sigl- ingunni upp í Hvalfjörð. Á stíminu að Brekkuboðabauju sagði Jóhannes að oft væri streng- ur út Hvalfjörðinn sem gerði það að verkum að sjó ýfði talsvert, og væri siglingin þá ekki sérstaklega skemmtileg þar sem Magni léti ekki vel í öldugangi. En að þessu sinni var sléttur sjór að kalla, örlítill strengur þó í mynni Hval- fjarðar og þar slettist sjórinn upp á stýrishúsið er öidupusið barði kinnunga Magna. Er við höfðum beygt hjá Brekkuboðabauju og tekið stefnu á Hnausaskersbauju opnaði Sig- urður Petersen stýrimaður lúgu á gólfinu í kortaklefanum og kallaði upp í stýrishús að rjúkandi kjöt- súpa hefði verið framreidd í mat- sal, létu Jóhannes og Símon ekki segja sér það tvisvar og ruku niður en Sigurður tók við stjórninni. í matsal var mættur Birgir Olgeirs- son vélstjóri og meðan skipshöfn- in gæddi sér á ljúffengri súpunni JóhannM Ingólfason skipatjóri á Magna. var hlaupið á helzta sem ljóst var að framundan var þann daginn. Meistarar í matargerð Súpan var sælgæti, en auk hennar báru saltkjötsrétturinn í hádeginu og smásteikin um kvöld- ið þess merki, að Magnamenn eru snillingar í matargerð. Á milli máltíða var séð til þess að nóg væri jafnan á könnunni. Blm. var boðið upp á kaffi í einu herskip- anna við bryggju í Hvalfirði, en það fyrsta sem hann gerði er hann fór frá borði var að fá sér kaffi um borð í Magna til að bæta upp glundrið í Nato-skipinu. Og Herði Þórhallssyni hafsögumanni líkaði ekki sopinn um borð í birgðaskip- inu, svo að hann skellti sér yfir í Magna við Hvalfjarðarbryggjuna og fékk sér bolla af betri gerðinni. „Annars er þetta ekkert að marka með hann Hörð,“ sagði Símon í spjalli úti við lunninguna. „Hann vill kaffið svo sterkt að helzt þurfi að klippa á það þegar því er hellt úr könnunni." Hátíð í olíustöð Það var líf og fjör við olíu- bryggju Nato í Hvalfirði þennan þriðjudagsmorgun, hálfgerður hátíðisdagur þeirra þrettán manna er starfa í olíustöð varnar- liðsins þar. Kanadíska freigátan Nipigon og hollenzka freigátan Isaac Sweers voru tiltölulega fljótar að taka olíu, en öðru máli gegndi með brezka birgðaskipið Green Rover sem tók nokkur þúsund tonn og var því við bryggju í margar klukkustundir. Þar sem veðurblíða var svo innar- lega í firðinum þurftu freigáturn- ar ekki aðstoðar Magna við, enda lipur skip, en hins vegar þurfti að stjaka Green Rover að bryggju og allt þar til að skipið hafði verið bundið kyrfilega með rammgerð- um og digrum landfestum. Og meðan eitt skipið sigldi frá og annað að dólaði Magni yfir að Hvítanesi þar sem var mikil her- stöð á stríðsárunum. Glöggt mátti sjá rústir margra bygginga þar og útveggir tveggja stóðu enn uppi. En bryggjan, sem eitt sinn var rammgerð og þjónaði sínu hlut- verki, er nú hrörleg og lúin, og ekki lengur til stórræða. Á bryggjusporði stóðu leifar gamals flutningavagns, en hann og mikil víradræsa, sem Jóhannes sagði að verið hefði kafbátagirðing og var hálfdregin úr sjó, báru þess merki að lífið hefði stoppað mjög skyndi- lega á þessum stað. Messinn endaði sem skipstjóri Meðan staldrað var við í Hval- firði gafst tóm til að ræða við Jóhannes skipstjóra. Jóhannes hefur verið á sjónum í tæpa þrjá áratugi, þar af verið skipstjóri á Magna frá 1. janúar 1972. Fyrstu 11 ár sjómennskunnar var Jó- hannes á Vatnajökli, byrjaði þar sem messi, var þá viðvaningur, síðar kokkur, bátsmaður, 2. stýri- maður, 1. stýrimaður og loks skipstjóri. Merkilegur og langur ferill á einu og sama skipinu, og minnir helzt á sögur af sendlum sem enduðu sem forstjórar stór- fyrirtækja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.