Morgunblaðið - 16.10.1979, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 16.10.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979 13 Sigurður Óskarsson á Hellu: Mmni Verðbólgu- stjórnarinnar Allt annað líf Er Jóhannes loks sagði skilið við Vatnajökul, tók hann við stýri- mennsku og skipstjórn á Hofs- jökli, og varð síðar fastur skip- stjóri á Langjökli og Drangajökli. í siglingunum hefur Jóhannes komið víða við, var m.a. í langan tíma í ávaxtaflutningum milli Marseilles í Frakklandi og Casa- blanca í Marokkó fyrir franska fyrirtækið Company Paquet. „Það gáfust flestir upp á þessum flutn- ingum þar sem menn voru lang- tímum saman fjarri heimaland- inu. Eitt sinn liðu níu mánuðir áður en við komumst heim, og þá varð mælirinn fullur. Það er allt annað líf að vera skipstjóri á Magna, og raunar ekki hægt að bera það saman við að vera í siglingum. Þetta er það sem allir sækjast eftir, að komast í starf í landi sem tengt er skipstjóranám- inu. Þau eru fá og umsetin," sagði Jóhannes. Fjölskyldan með Jóhannes sagði að fjölskyldan hefði stundum verið um borð hjá honum í langferðum á sumrin. Þannig var hún um borð í Lang- jökli í þrjá mánuði sumarið 1966, kom um borð í Helsingborg í Svíþjóð um vorið og fór heim frá New York eftir fimm ferðir yfir Atlantshaf. Og hvað erfingjana snertir, þá hefur gamla máltækið að eplið falli sjaldan langt frá eikinni enn einu sinni verið stað- fest, þar sem Ingólfur sonur Jó- hannesar lauk í vor prófi úr Stýrimannaskólanum, og er nú stýrimaður á Skógarfossi. 365 daga í viðbragðsstöðu Við fræddumst einnig um hlut- verk „tímamótaskipsins" meðan staldrað var við í Hvalfirði. Jóhannes sagði að fjórir væru á hvorri vakt á skipinu, og um helgar væri önnur vaktin á svo- kallaðri gæzluvakt, þannig að 365 daga á ári væri Magni til reiðu til að sinna ýmsum þjónustustörfum. „Það er boðið upp á örugga þjón- ustu fyrir skip og báta með svo til engum fyrirvara, eins og málum er háttað. Auk þess að aðstoða skip upp að hafnarbakkanum er talsvert um að við flytjum vatn í skip, og á sumrin höfum við flutt fólk í land af farþegaskipum sem hafa viðdvöl hér. Þannig fluttum við eitt sinn í sumar um 270 manns í ferð. Þá önnumst við viðhald og umsjón allra bauja á hafnarsvæð- inu, en þær eru teknar í land einu sinni á ári hverju til skoðunar. Stærsta skipið sem Magni hefur aðstoðað var 60.000 tonna súrál- skip, er kom til landsins sumarið 1977, en til samanburðar má geta þess að Magni er 184 tonn.“ Símon fer ekki troðnar slóðir Eins og að framan segir eru fjórir á hvorri vakt á Magna, en í áhöfn Jóhannesar eru stundum fimm, ef með er talinn skipshund- urinn Bangsi. Bangsi fór ekki í þessa 16 klukkustunda ferð, senni- lega þótt hún of löng, eða að honum hafi ekkert verið gefið um hermenn og blaðamenn. Elzta kempan um borð var Símon vélstjóri. Honum varð tíð- rætt um landbúnaðinn og í þeim efnum fór hann ekki troðnar slóðir. Var hann þeirrar skoðunar að íslendingar ættu að borða vandamálið, eins og hann orðaði það, en ekki fisk, sem væri út- flutningsvara er gæfi beinharðan gjaldeyri í aðra hönd og þyrfti ekki útflutningsmeðlag. Símon sagði að það væri liðin tíð að bændur, einkum bændasynir, flykktust til verstöðvanna og ynnu fyrir peningum til að létta undir við búreksturinn. Nú þætti bænd- um, sem sumir hverjir væru skussar og þúsundum of margir, það hins vegar sjálfsagt að hið opinbera og landsmenn fram- fleyttu þeim, og að þeim yrði lagt allt upp í hendurnar. Og fastafloti Nato átti einnig hug Símonar. Hann sagði flotann ekki vera nógu stóran. Hernaðar- máttur vesturveldanna þyrfti að vera það mikill að þau gætu sett Rússum st'linn almennilega fyrir dyrnar, ef þeir hygðust vera með einhvern derring. „Þessir smábal- ar eru ekki nóg. Rússar hræðast þá ekkert," sagði Símon, sem lét sitt ekki eftir liggja þegar tími gafst til skrafs, en þá kom hann gjarnan víða við og hélt sinni línu til streitu. Varð honum hvergi haggað. Velmegun við beltisstað Sigurður Pétursson stýrimaður var yngstur og sennilega léttastur á sér í áhöfninni, þótt hann kvartaði undan því að velmegunin væri farin að setja mörk á sig við beltisstað. Sigurður hljóp léttilega um borð í herskipin til að láta yfirmenn þeirra kvitta fyrir að- stoðina í sérstaka bók. Þeir Sigurður og Birgir Olgeirs- son vélstjóri deildu matargerð- inni, sem þeim hefur verið hælt fyrir. Birgir varði miklum hluta ferðarinnar í vélarrúminu við 1.000 hestafla Deutz-vélina, sem knýr Magna áfram með 11 sjó- mílna hraða á klukkustund ef með þarf. Jóhannes sagði að venjulega væri hámarksferð þó aðeins átta' sjómílur, þar sem olíukostnaður vegna 10 sjómílna keyrslu væri tvöfalt meiri en ef siglt væri með átta mílna hraða. Birgir skartaði splunkunýrri ljósmyndavél sem hann prangaði út úr verzlunareiganda á Flórída er hann sólaði sig þar í sumar. Með margar linsur að vopni leit helzt út fyrir að hann væri blaða- ljósmyndari að atvinnu, og var ekki laust við að blaðamaður bliknaði við hlið hans þegar hann mundaði myndavélina eins og þaulvanur ljósmyndari. Flautukonsert á höfninni Á stíminu til Reykjavíkur skömmu eftir kvöldmál var komið svartamyrkur og værð farin að færast yfir mannskapinn, sem annars var eldhress allan túrinn. Nú varð að stýra eftir ljósmerkj- um og radar og gekk ferðin vel. Á útleiðinni sigldi Green Rover fram úr og í mynni fjarðarins mætti Magni sanddæluskipinu Sandey, sem var að sækja byggingarefni á botn fjarðarins. Og þegar nær dró Reykjavík komu mörg skip og bátar fram á radarskerminum. Stórfenglegt var að sjá Reykjavík og Seltjarnarnesið frá sundunum. Ljósahafið mikið og bjarmi yfir byrgðinni. Á ytri höfninni lá einn foss Eimskipafélagsins og beið aðstoð- ar Magna. Festar voru stáltaugar milli skipanna og stjakaði Magni skipinu upp að bryggju. Jóhannes og Sigurður Þorgrímsson hafn- sögumaður er „tók“ fossinn inn, töluðust við með hljóðmerkjum þegar um var að ræða að setja vélarnar í afturábak eða áfram, og af þeim sökum var mikill flautukonsert síðasta spölinn að bryggjunni. Er þessu verki var lokið lá það eitt fyrir að koma Magna fyrir í sínu venjulega læri. Þegar land- festar höfðu verið bundnar var vatnsslanga tengd á stút vatns- tanka Magna, sem taka 50 tonn, þar sem fyrir lá að flytja vatn um borð í einhver skip Nato að morgni. Ánægðir með daginn héldu Magnamenn frá borði, og hröðuðu sér á vit svefndísanna, þar sem þeirra beið ný vakt að morgni. Ánægjulegum degi var %okið, degi þar sem blm. kynntist starfi er lætur lítið yfir sér, en er nauðsynlegur hlekkur í lífkeðju þjóðarinnar og ekki ómerkari en önnur störf. En mest þótti þó blm. koma til sjálfra mannanna um borð, merkilegra karla sem sæmd er að. Með hliðsjón af þeirri hörðu baráttu sem verkalýðshreyfingin og þá einkum og sér í lagi Verkamannasamband íslands hefur háð til þess að halda hlut láglaunahópanna í þessu landi og vernda kaupmátt launa þeirra þá ber að harma, að sú ríkisstjórn sem kallast verður skilgetið af- kvæmi sambandsstjórnar Verka- mannasambandsins skuli ekki hafa reynst þess trausts verð sem henni hefur verið sýnt. Það ber að harma, að fyrir það umburðarlyndi, sem ríkisvaldið hefur notið af hálfu verkalýðs- hreyfingarinnar síðustu misseri og veitt var í trausti þess að kjör verkafólks væru varin , hefur þetta ríkisvald launað með óstjórnaraðgerðum sem valdið hafa kaupmáttarskerðingu launa þeirra sem minnst mega sín í þessu landi í efnahagslegu tilliti. Óðahækkanir hátekjuhópa Á sama tíma hefur það ríkis- vald, sem þóttist vera sverð og skjöldur lágtekjufólksins í land- inu látið viðgangast og jafnvel stuðlað að óðahækkunum há- launahópa og má í því samb. nefna alþ.menn, ýmsa embættis- mannahópa, flugmenn og marga fleiri hálaunahópa. Sigurður Óskarsson. Afkvæmið launaði með óstjórnar- aðgerðum Á meðan skattahækkunum, bú- vöruhækkunum og öllum mögu- legum hækkunum er dembt yfir láglaunafólk án bóta og í beinni andstöðu við verkalýðshreyfing- una myglar innihald félagsmála- pakkans af óhirðu óstjórnar og óðaverðbólgu. Klyf jar og þrælahöld Það hlýtur að verða að gera þá kröfu sem algjöra lágmarkskröfu, að verkafólk á íslandi geti lifað sómasamlegu lífi af dagvinnu- launum sínum og framfleyta megi fjölskyldu af dagvinnulaun- um verkamannsins á hverjum tíma. Hinn almenni launamaður, verkamaðurinn og verkakonan fá því aðeins haldið sjálfsvirðingu sinni og þjóðin fær því aðeins haldið virðingu sinni, að þetta fólk geti lifað eðlilegu lífi sem efnahagslega sjálfstæðir ein- staklingar. Þetta getur hinn almenni verkamaður ekki í dag nema að lifa í þrælaböndum óhófslegs vinnutíma undir klyfjum okur- vaxta eða okurleigu, lokunarhót- unum rafmagns og síma og fógetaaðgerðum vegna skattpín- ingar. Um margt má deila hvað varðar leiðir til að ná þeim markmiðum sem samtök verka- fólks stefna að, en það er ljóst að slíkum markmiðum verður ekki náð undir verðbólgustjórn. NÝ hverfi rísa í Hólminum og hefur byggingarlóðum verið úthlutað í Nes- hverfi og Áshverfi og þegar farið að byggja þar að réði. Þó eru ekki allir byrjaðir að byggja þar því tímarnir gefa ekki lilefni til mikilla étaka eins og er og með vinstri stjórn yfir höfði sér og fjérmélaóreiðu er eðlilegt að margir bíði, þótt það sé ekki svo gott. En hverfi þessi geta orðið bæöi falleg og skemmtileg íbúðarhverfi. Raf- magnsveitur og Póstur og sími eru aö leggja jarðstrengi í hverfin; þeir sem lengst eru komnir bíða eftir síma bæði nýjum og flutningum. — Fréttaritari. Kærar þakkir ['■ færi ég ykkur börnum, tengdabörnum, barna- börnum og barnabarnabörnum, frændfólki, sveitungum og vinum fyrir gjafir, heimsóknir og ógleymanlegan dag á áttræöisafmæli mínu. Guö blessi ykkur öll. Margrét Oddný Hjörleifsdóttir. 10 ára afmodi í 10 daga gefum viö 10—20% afslátt af öllum vörum í verzluninni. fíMtiinwh últið IÐNAÐARHUSINU.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.