Morgunblaðið - 16.10.1979, Page 14

Morgunblaðið - 16.10.1979, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979 i Morgunblaðið á Verkamannasambandsþingi LIÐLEGA hundrað fulltrúar verkaljðsfélaga landsins sátu 9. þinK Verkamannasambands Islands á Akureyri um helgina. Mestar umræður urðu um kjaramálin, en einnig komu ýmis önnur hagsmunamál verkamanna til umræðu. Fram kom hjá öllum ræðumönnum að illa hefði til tekizt varðandi kjaramálin hjá hinni fráfarandi verðbólgustjórn. eins og einn þingfulltrúinn kallaði vinstri stjórnina. Fjölmargir ræðumenn úr öllum stjórnmálaflokkum fjölluðu um verndun láglauna, en afgerandi ályktun um það mál kom fram fyrir skömmu hjá Verkalýðsráði Sjálfstæðisflokksins. Undirtónn þing- haldsins markaðist mjög af óánægjuöldum vegna stjórnarslitanna og klofnuðu fylkingar alþýðuflokks- manna og Alþýðubandalagsins um kjör varaformanns, en alþýðubandalagsmenn höfðu unnið markvisst að því að fella Karl Steinar Guðnason sem varaformann Verkamannasambandsins. Var þeirri atlögu hrundið. Formaður Verkamannasambandsins, Guðmundur J. Guðmundsson, var endurkjörinn. Morgunblaðið sat þing Verkamannasambandsins og segir hér frá almenn- um umræðum um kjaramál og fleira: aö aðeins vantaði orgelið til þess að heildarsvipur væri á meðferð máls- ins. „Við eigum ekkert að vera ánægð hér, ekki hrópa halleljúja um að allt sé í lagi þegar því fer fjarri að svo sé,“ sagði hann, „ég harma hvernig fór hjá hinu skil- getna afkvæmi verkalýðsins. Þetta ríkisvald ætlaði að vera sverð og skjöldur okkar verkamanna, en það hefur hins vegar staðið að launa- hækkunum hálaunahópa. Það er lágmarkskrafa að verka- maður geti framfleytt fjölskyldu sinni án þrælahalds, við eigum ekki að senda neitt klapp héðan um að allt sé í lagi, það er ekkert í lagi. Skattar, okurlán og allt í vitleysu og við erum alltaf undir við hverja hækkun.“ „Svo margt mistekist hjá vinstri stjórninni“ Eðvarð Sigurðsson, formaður Dagsbrúnar, Reykjavík, kvað marga velta því fyrir sér hver væri Harðari stefnu- mörkun í kjara- baráttunni Hilmar Jónasson frá Hellu for- maður Verkalýðsfélagsins Rang- æings tók fyrstur til máls í al- mennu umræðunum um kjaramál og taldi að það kæmi ekki nógu skýrt fram hjá verkamönnum hvað þeir vildu leggja mesta áherzlu á í kjaramálabaráttunni. Hann kvað nauðsynlegt fyrir Verkamannasam- bandið að setja fram harðari stefnumörkun í kjaramálabarátt- unni og þá hvað hann brýna nauðsyn til að mótmæla kjara- skerðingunni á tímabili fráfarandi vinstri stjórnar þar sem kaup- gjaldsmál hefðu legið undir hamri húsbóndaréttarins með sífelldum skömmtunum úr hnefa. Þá lagði Hilmar fram tillögu um skipan 5 manna vinnumálanefndar því hann kvað það brýnt viðfangsefni fyrir verkamannasamtökin að hafa Jón Karlsson Eðvarð Sigurðsson Gaðaundur Hallvarðaaon Slgurður Oskarsson Scmundur Valdimarsaon Gunnar Mór Kristófersson Jóhann G. Mðller Bragi Haraldsson Kolbeinn Friðbjarnarson Þorlákur Kristinsson frumkvæði að könnun og þróun þeirra mála. Hilmar minnti einnig á að forysta verkamanna ætti að gæta hagsmuna umbjóðenda sinna gagnvart iðnaðarmönnum, sem sífellt tryggðu stöðu sína í kjara- málum oft á kostnað verkamanna. ,Samt myndi halla á bykkjunni ef hengt yrði upp” „Frekar rýr í roðinu“ Guðmundur Hallvarðsson frá Reykjavík kvað þingfulltrúa smjúga lævíslega í umræðum fram hjá þeirri pólitísku stöðu sem upp væri komin. „Það fer ekki vel á því, á barnaári," sagði Guðmundur, „að aðalfeður ríkisstjórnarinnar skuli þegja um þetta þunnu hljóði eins og nú væri ástatt fyrir króganum." Þá gagnrýndi Guðmundur að kjaramálaályktunin væri lögð fram á öðrum degi þingsins og „þá frekar rýr í roðinu." Kvað hann ályktunina fremur hafa sögulegt gildi en að hún setti fram markmið. „Ef við ætlum að taka okkur alvarlega," sagði Guðmundur, „verðum við að marka stefnu sem á að vera leið- andi fyrir kjaramálaráðstefnu ASI“ og taldi hann að stefna bæri að því að endurheimta þann kaupmátt sem sólstöðusamningarnir hefðu hljóðað upp á. Gagnrýndi hann almennt orðalag kjaramálaályktun- arinnar sem aðeins gæfi tækifæri til undanbragða og bellibragða. „Það liggur hins vegar fyrir," sagði Guðmundur, „að það verður ekki aðeins heilt helvíti að ná þessum kaupmætti, það verður eitt og hálft helvíti." „Sverðið og skjöldurinn stóðu að launahækkun hálaunahópanna“ Sigurður Óskarsson, formaður verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins, frá Hellu kvaðst telja umræðu um kjaramál á ráðstefnunni á því stigi vígstaða verkamanna. Kvað hann ekki raunhæft að leggja fram óska- lista, því inn í dæmið kæmu ytri skilyrði, efnahagsleg og pólitísk staða og út frá því yrðu menn að meta það hvernig stakk þeir vildu sníða sér. „Staða okkar verður varnarbarátta," sagði Eðvarð, „eins og hún hefur verið frá 1977. Við þurfum að endurheimta þá samn- inga auk félagslegra þátta. Við þurfum að samfylkja öllu Alþýðu- sambandinu til baráttu." Eðvarð brýndi menn til þess að gera sér grein fyrir því hver stjórnmálaþróunin væri og kvaðst óttast mjög að hægri öflin fengju byr undir báða vængi þar sem svo margt hefði mistekist hjá vinstri stjórninni á einu ári. „Tiltrúin er því ekki mikil í landinu," sagði þingmaðurinn. Þá kvað hann það ljóst að allt s.l. ár hefðu verið sterk öfl í fráfarandi ríkisstjórn sem hefðu unnið að skerðingu á kjörum launafólks til þess að ná tökum á verðbólgunni í landinu. „Við höfum reynslu af því,“ sagði Eðvarð, „að það sem Vinnuveit- endasambandið segir í vísitölumál- um hefur verið stefna Sjalfstæðis- flokksins. Við getum ekki sett traust okkar á forystu stjórnmála- manna eins og fram hefur komið. Sameinuð verkalýðshreyfing er það eina sem getur komið í veg fyrir meiri kjararýrnun. Til varnar verð- ur að snúast án tillits til stjórnmálaskoðana, aðalatriðið er að sameinast um kjarabaráttu okk- ar.“ Má ekki gleyma höfuðóvininum Bjarnfríður Leósdóttir varafor- maður Verkaðlýsfélags Akraness veittist að Karii Steinari Guðna- syni og kvaðst heimta svör við því hvort hann hefði slitið stjórnar- samstarfinu í samráði við verka- lýðshreyfinguna. Bjarnfríður spurði hvort ekki væri um neina stefnu að ræða í launamálunum, hvort aðeins væri um varnarstöðu að ræða. Þá fjallaði hún um verðtryggingu lífeyrissjóða og gagnrýndi harðlega að launafólk sæti ekki við sama borð í vöxtum af lífeyrissjóðslánum eins og opinber- ir starfsmenn sem greiddu 18—19% vexti. Þá vék Bjarnfríður að starfi Vinnuveitendasambandsins og kvað þá búa yfir öllum kúnstum sem til þyrfti, allt frá auglýsingakúnstum upp í reikningskúnstir. Þá minnti hún á að verkafólk mætti aldrei gleyma því hver væri þeirra höfuð- óvinur, „embættismenn í góðu stöð- unum hafa með kjaradómi afhent yfirmönnum margföld laun miðað við verkafólk". Þá spáði Bjarnfríður í stjórn landsins og sagði. „Ég held að það verði fljótgert að íhalds- stjórn lækkar mjög fljótt laun þegar hún tekur við völdum, við þurfum að átta okkur á því, jafnvel meira en nú hefur verið gert.“ „Láglaunafólkið situr ávallt eftir“ Kolbeinn Friðbjarnarson formað- ur Vöku á Siglufirði kvaðst telja tvö viðfangsefni mikilvægust. í fyrsta lagi kvaðst hann vænta nýrra heildarkjarasamninga um áramót- in og í öðru lagi kvað hann brýnt að tryggja launajöfnunarstefnu og í því sambandi nefndi hann það sem skilyrði að verðbætur yrðu í jafnri krónutölu á öll laun í stað prósenta. Kolbeinn fjallaði um það að lág- launafólkið sæti ávallt eftir í því launakerfi sem byggt væri á í landinu. Kolbeinn taldi að þar sem vinstri stjórnin væri nú fallin yrði glíman við ríkisstjórn þar sem hægri öflin í landinu réðu ferðinni og hann kvað það blekkingu að ræða ekki á þinginu hvers væri að vænta af slíkri stjórn. Taldi hann að slík stjórn myndi ganga allharkalega á kaupmátt launa ekki síðar en í maí 1980, og að dregið yrði úr þeirri miklu atvinnu sem nú hefur verið og þar með skapað hæfilégt atvinnuleysi í land- inu. Taldi hann að það yrði notað sem vörn gegn verðbólgu að færa niður launin. „Ef við eigum að geta varist þessum stjórnvöldum verð- um við að standa saman," sagði hann. Sótt á hina lægst launuðu Jóhann G. Möller frá Siglufirði fjallaði nokkuð um það að þing Verkamannasambandsins væri haldið á tímamótum þar sem sótt væri á hina lægst launuðu. Þá fjallaði hann nokkuð um mismun- inn á launum milli iðnaðarmanna í ASI og verkamanna. Ákveðin stefna í vinnuverndarmálum Sæmundur Valdimarsson frá Reykjavík ræddi um tillögu sem hann flutti um vinnuverndarmál. Taldi hann brýnt að Verkamanna- sambandið og verkalýðshreyfingin mótaði ákveðna stefnu í vinnu- verndarmálum og framfylgdi henni, svo þeirri óhæfu linijti að verkafólk yrði að vinna lengstan vinnudag allra þegna þjóðfélagsins. „Glíma við draug“ Jón Karlsson formaður verka- mannafélagsins, Fram á Sauðár- króki fjallaði um fall fráfarandi vinstri stjórnar og sagði að menn hefðu gert sér vonir en þær hefðu ekki rætzt. Kvað hann því brýnt að samstaðan yrði treyst, kannski meira en oft áður. Kvaðst Jón telja að launajöfnun ætti að framkvæma á þann hátt að fá inn í samninga ýmis atriði sem aðrir hafa náð fram auk margvíslegra félagsbóta. Þá fjallaði hann um það að erfitt væri fyrir kjarabaráttu þar sem litlir hópar sigldu einskipa og þannig væri þessi barátta oft eins og glíma við draug. Kvað hann Ijóst að verðbólguþjóðfélagið skapaði verri lífskjör fyrir launafólk. „Þið klappið, en ekki meir“ Þorlákur Kristinsson fulltrúi farandverkafólks taldi aðkomufólk í bæjum gleymda stétt verkafólks. Þarna væri um að ræða 2000—3000 manns. „Þið klappið fyrir fulltrúa farandverkafólks,“ saðgi hann, „en ekki meir. Að því loknu er þetta útkljáð mál, þið gætuð eins hafa látið blómaræktarmann flytja ykk- ur ávarp.“ Þá fjallaði Þorlákur um það að í frumvarpi til laga um aðbúnað á vinnustöðum væri ekki stafkrókur um verbúðir. „Hvað er orðið um samhyggjuhugsjón verkamanna og samstöðu? Hvers vegna fáum við engan hljómgrunn? Er það vegna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.