Morgunblaðið - 16.10.1979, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979
17
Vel lítur út með
haustvertíð vestra
haldist tíðin góð
Geir Hallgrímsson, for-
maður Sjálfstæðisflokks-
ins, flytur ræðu á flokks-
ráðsfundinum sl. sunnu-
dag.
stjórninni meðan hún situr.
Sjálfstæðisflokkurinn ábyrgist
á engan hátt dagleg störf
stjórnarinnar. Stuðningur
flokksins miðast við það eitt að
ná fram þingrofi og nýjum
kosningum sem allra fyrst.
Litið er á stjórnina sem leifar
vinstri stjórnarinnar, illa
nauðsyn, og Alþýðuflokknum
verði ekki veitt nein grið í
kosningabaráttunni. Hann
verði kallaður til ábyrgðar á
verkum síðustu stjórnar eins
og hinir flokkarnir.
5) Stjórnin kalli þing saman í
síðasta lagi 10 dögum eftir
kosningar og segi þá af sér.
Þetta skilyrði undirstrikar, að
hér er í raun um stjórn að
ræða, sem aðeins er til í því
skyni að hrinda einu megin-
verkefni í framkvæmd.
Geir Hallgrímsson sagði, að af
hálfu Alþýðuflokksins hefði verið
fallist á öll þessi skilyrði. Þar með
hefði legið næst fyrir að kalla
flokksráð saman til að fjalla um
málið, en það hefði samkvæmt
skipulagsreglum síðasta orðið í
afstöðunni til annarra flokka.
Breytingar
á kosninga-
lögum
Undir lok máls síns vék Geir
Hallgrímsson að því, að rætt hefði
verið um að taka til meðferðar
breytingar á kosningalögum og
e.t.v. kjördæmamálið fyrir kosn-
ingarnar. Hann minnti á, að
starfandi stjórnarskrárnefnd
hefði tímann fram í desember
1980 til að gera tillögur sínar,
samkvæmt ákvörðun Alþingis.
Engu að síður hefðu farið fram
óformlegar viðræður milli manna
úr ólíkum flokkum til að kanna
hvort samstaða gæti t.d. tekist um
það að breyta úthlutun uppbótar-
þingsæta á þann veg, að þeim yrði
öllum úthlutað á grundvelli
atkvæðamagns. Það leiddi til þess,
að hlutur þéttbýlisins batnaði.
Ekki væri unnt að ná samstöðu
um slíka breytingu og næði hún
því ekki fram fyrir kosningar. Þá
hefði verið rætt um að fjölga
þingmönnum Reykjavíkur og
Reykjaness, en um það hefði ekki
heldur náðst samstaða. Því væri
einsýnt, að ekki yrði breyting á
kosningalögum fyrir kosningarnar
nú.
Geir Hallgrímsson sagði, að
Sjálfstæðisflokkurinn hefði á
liðnu ári frá síðustu kosningum
unnið að endurskoðun og endur-
nýjun á stefnu sinni. Málefnalega
væri hann vel til kosninga búinn.
Flokkurinn hefði nú einstakt
tækifæri til að éfla fylgi sitt og
möguleikinn á því, að hann kæm-
ist einn í meirihluta á Alþingi
hefði aldrei verið eins nálægur.
XXX
Þegar tillaga þingflokksins
hafði verið samþykkt og ákvörðun
hans staðfest með samhljóða
atkvæðum tók Þorvaldur Garðar
Kristjánsson alþingismaður, rit-
ari þingflokks sjálfstæðismanna
til máls og rakti tæknileg atriði
varðandi fyrirhugaðar kosningar.
En af tæknilegum ástæðum er
ekki útlit fyrir að þær verði fyrr
en 2.-3. desember.
GÆFTIR voru fremur góðar í
september, sérstaklega síðari
hluta mánaðarins. Byrjuðu stærri
línubátarnir margir róðra um það
leyti og fengu ágætan afla. Nokkr-
ir minni bátar fóru þá einnig á
togveiðar og notuðu sér hcimildir.
sem þeim haía verið veittar, til
veiða innan 12 sjómilnanna, og
öfluðu þeir einnig vel. Litur að
mörgu leyti vel út með af labrögð á
haustvertiðinni, ef tíð verður hag-
stæð til sjósóknar. Færabátarnir
hættu aftur á móti flestir veiðum
um og eftir mánaðamótin og togar-
arnir voru margir frá veiðum
vegna viðgerða og viðhalds, en afii
þeirra, sem voru að veiðum, var
lengst af mjög tregur.
í september stunduðu 100 (100)
bátar botnfiskveiðar frá Vestfjörð-
um, 69 (65) með handfæri, 10 (14)
reru með línu, 16 (12) með botn-
vörpu, 3 (5) með dragnót og 2 (2)
með þorskanet. Smokkur fór að
Djúpavogi, 15. október.
PÉTUR Jónsson R.E. kom með
fyrstu loðnuna um 700 lestir á
þessu hausti til Djúpavogs í gær.
Búið er að salta hér i um 3000
tunnur.
Veður hefur verið gott hér
siðustu viku og göngur og haust-
smölun gengið vel. Um ma-
naðam rigndi mikið í heila viku
og töfðust göngur nokkuð af
þeim sökum.
dragast á Arnarfirði og Dýrafirði
um miðjan mánuðinn og í Isafjarð-
ardjúpi í lok mánaðarins, en
smokkur hefir ekki veiðst hér síðan
haustið 1966. Frystar voru um 200
lestir af smokk til beitu í mánuðin-
um.
Heildaraflinn í september var
2.716 lestir, en var 4.134 lestir í
september í fyrra. Er heildaraflinn
á sumarvertíðinni þá orðinn 28.818
lestir, sem er nálega sami afli og á
síðustu sumarvertíð (28.885 lestir).
Á sumarvertíðinni er öllum fiski
landað slægðum og miðast þessar
aflatölur því við slægðan fisk.
Af skuttogurunum kom Guðbjörg
með mestan afla á land eða 381.9
lestir í 3 sjóferðum, en Júlíus
Geirmundsson kom með 351.4 lestir
í jafn mörgum túrum.
(Úr yfirliti yfir sjósókn og afla-
brögð í Vestfirðingafjórðungi í
september.)
í fréttatíma sjónvarpsins hinn
5. þessa mánaðar heyrðum við
aðallega rússneskan söng og tal en
náðum ekki íslensku fréttunum.
Engin mynd kom þó inn á skjáinn
en íslenska myndin hvarf að
mestu. Það kemur fyrir öðru
hvoru að útlenskar sjo-
nvarps trufla íslenska sjónvarpið
en það er ekki hægt að segja að
það sé algengt.
Ingimar.
Fyrsta loðnan á þessu
hausti til Djúpavogs
Sinfóníutónleikar
Á fimmtudaginn var hægt að velja
um þrenna tónleika, þ.e. sinfóníu-
tónleika, söngtónleika í Norræna
húsinu og gítartónleika. Margoft
hefur verið talað um að skipuleggja
þurfi af einum aðila niðurröðun
tónleika í höfuðborginni, til að koma
í veg fyrir skörun á þessu sviði, en
það mun bráðlega verða óþarft því ef
svo heldur fram sem horfir, verður
eftif nokurn tíma ómögulegt að
Tónllst
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
komast hjá slíkri skörun. Sakir
ófullkomleika undirritaðs er ómögu-
legt að gera öllu þessu efni skil, svo
að nægja verður umfjöllun um
sinfóníutónleikana. Það verður að
segjast eins og er, að varla er hægt
að hugsa sér öllu glæsilegra upphaf
á vetrarstarfsemi Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar en tónleika s.l. fimmtu-
dag.
Tónleikarnir hófust á forleiknum
að Brúðkaupi Figarós og var leikur
sveitarinnar með því besta sem
heyrst hefur til hennar. Jean-Pierre
Jacquillat lætur vel að móta kvikar
og nettar tónfléttur Mozarts. Stóra
stundin var söngur Hermann Prey
og þrátt fyrir að hljómsveitin væri
ekki vel undir það búin, að fylgja
söngvaranum, var stórkostlegt að
heyra Prey syngja bæði aríu Figarós
og greifans úr „Brúðkaupinu".
Hljómsveitin lék síðan forleikinn að
Rakaranum eftir Rossini og þá kvað
svolítið við annan tón. Það er
spurning hvort ekki sé nauðsynlegt
að hafa námskeið fyrir hljóðfæra-
leikarana í sveitinni t.d. blásarana í
mismunandi stíltegundum. Leikur
þeirra er nær alltaf eins, sama hvers
konar tónlist þeir spila. Mannaskipti
hafa komið illa niður á hornunum,
sem eru mun óvissari í tóntaki en oft
áður. Sem framhald af forleiknum
söng Prey Kavatínu rakarans og þar
hefði mátt vera meiri samstiiling af
hálfu hljómsveitarinnar.
Eftir hlé voru flutt Haydn til-
brigðin eftir Brahms og þar vantaði
nokkuð á stíltilfinningu eða getu til
að framfylgja henni.
Tónleikunum lauk með Söngvum
förusveins eftir Mahler og þar, eins
og í fyrri viðfangsefnunum söng
Hermann Prey meistaralega, sér-
staklega niðurlagið, sem er ein
fegursta tónsmíð sem rituð hefur
verið. Ógetið er eins verks, sem flutt
var á þessum tónleikum, en það er
Litla næturljóðið eftir Mozart. Þrátt
fyrir ýmislegt gott í verkinu var
heildarmynd þess of þung, en t.d. í
Rómönsunni, vantaði allt sem gerir
þann kafla yndislegan.
Hermann Prey.
Jean-Pierre Jacquilliat.
Auglýst
eftir framboóum
til prófkjörs
í Reykjavík
Prófkjör um val frambjóöenda við næstu Alþingiskosníngar hefur verið
ákveðið. Val frambjóðenda fer fram meö tvennum hætti:
1) Gerö skal tillaga til kjörnefndar innan ákveöins framboðsfrests sem kjörnefnd
setur. Tillagan er því aöeins gild, aö hún sé bundin viö einn mann og getur enginn
flokksmaöur staöiö aö fleiri en tveim slíkum tillögum. Tillagan skal borin fram af 20
flokksmönnum búsettum í kjördæminu.
2) Kjörnefnd er heimilt aö tilnefna prófkjörsframbjóöendur til viöbótar frambjóöend-
um skv. a-liö eftir því sem þurfa þykir, enda sé þrisvar sinnum fleiri samanlagöur
í prófkjörinu sé þrisvar sinnum fleiri samanlagöur en fjöldi kjörinna þingmanna
Sjalfstæöisflokksins og uppbótarþingmanna, sem síöast hlutu kosningu fyrir
kjördæmiö.
Hér meö er auglýst eftir framboöum til prófkjörs sbr. 1. liö hér aö ofan. Skal
framboö vera bundiö viö flokksbundinn einstakling, sem kjörgengur verður í
næstu Alþingiskosningum og skulu 20 flokksbundnir Sjálfstæöismenn standa
aö hverju framboði. Enginn flokksmaöur getur staöiö aö fleiri en 2
framboöum.
Framboöum þessum ber aö skila, ásamt mynd af viðkomandi, til
yfirkjörstjórnar á skrifstofu Fulltrúaráös Sjálfstæöisfélaganna í Reykjavík í
Valhöll, Háaleitisbraut 1 eigi seinna en kl. 17:00 fimmtudaginn 18. október
1979.
Yfirkjörstjórn Sjálfstæöisflokksins í Reykjavík.