Morgunblaðið - 16.10.1979, Page 19

Morgunblaðið - 16.10.1979, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979 19 Ráðherrar vinstri stjórnarinnar, sem hverfa nú úr ráðherrastólum. Talið frá vinstri: Ragnar Arnalds, Steingrimur Hermannsson, Tómas Árnason, ólafur Jóhannesson, Svavar Gestsson og Hjörleifur Guttormsson. Lj6sm. Mbl. Kristján. Gervistjórn — höfuó- andstæóingur okkar er Sjálfstæðisflokkurinn — sagði Ragnar Arnalds eftir st jórnarskiptin í gær VINSTRI stjórnin sat sinn siðasta ríkisráðsfund að Bessa- stöðum í gær. Er fundinum lauk yfirgáfu fráfarandi ráðherrar Framsóknarflokksins og Alþýðu- bandalagsins staðinn. Stuttu siðar renndu i hlað nýju ráðherraefni Alþýðuflokksins og minnihlutastjórn Aiþýðuflokks var skipuð á nýjum ríkisráðs- fundi. Ragnar Arnalds lét þau orð falla er hann yfirgaf Bessa- staði, að nýja stórnin vaæri aðeins gervistjórn og Alþýðu- bandalagið myndi einbeita sér i baráttunni gegn höfuðandstæð- ingi sínum, Sjálfstæðisflokknum, i næstu kosningabaráttu. Ólafur Jóhannesson fráfarandi forsætisráðherra stóð stutt við í hlaði Bessastaða eftir fundinn. Hann þakkaði viðstöddum frétta- mönnum samfylgdina og hvarf af vettvangi. Ragnar Arnalds, fráfarandi menntamálaráðherra, sagði í við- tali við blm. Mbl., að hann væri að mörgu leyti ánægður með störf fyrri ríkisstjórnar. Hún hefði komið nokkru áleiðis en við margt hefði orðið að hætta í miðjum klíðum. Hann var spurður að því, hvort Alþýðubandalagið hygðist veita nýju ríkisstjórninni harða stjórnarandstöðu. Það gerum við, en þetta er aðeins gervistjórn og verður því aðgerðalítil, sagði hann. Höfuðandstæðingur okkar er Sjálfstæðisflokkurinn og mun- um við einbeita okkur að barátt- unni gegn því að hann nái meiri- hluta í næstu kosningum, eins og hann hefur í hyggju, sagði hann í lokin. ■: 1 f|« «* ™ i Æm Fráfarandi ríkisstjórn á sinum síðasta rikisráðsfundi i gær. Ljósm. Gunnar G. Vigfússon. Minnihlutastjórn Alþýðuflokksins á sinum fyrsta rikisráðsfundi í gær. Ljósm. Gunnar G. Vigfússon Sighvatur Björgvinsson fjármálaráðherra: „Munum reyna að halda í horfinu” „HLUTVERK okkar í þessari ríkisstjórn er fyrst og fremst að reyna að halda í horfinu og verja þjóðarskútuna frekari áföllum. Sú víglína liggur fyrst og fremst í gegnum tvö ráðu- neyti, þ.e. viðskiptaráðuneytið og fjármálaráðuneytið,“ sagði Sighvatur Björgvinsson í sam- tali við Mbl. í gær. „Ég mun gera mitt bezta til þess að þjóðarskútan verði ekki fyrir frekari áföllum, þótt ég geri mér auðvitað grein fyrir því að um mjög erfitt verk er að ræða, ekki sízt þegar jafnframt þarf að heyja kosningabaráttu," sagði Sighvatur ennfremur. Aðspurður hvernig innheimtu tekju- og eignaskatta á næsta ári yrði háttað þar sem engin lög væru til um það sagði Sighvatur að það yrði eitt af höfuðverkefn- um þeirra í fjármálaráðuneytinu að undirbúa lög eða reglugerðir til þess að hægt væri að fram- kvæma einhvers konar af- „Mun reyna að sveigja dómskerf- ið til opnunar” — sagði Vilmundur Gylfason dóms-, kirkju- og menntamálaráðherra „ÉG MUN reyna á þessum tíma að sveigja dómskerfið nokkuð tii opnunar og hef hugsað mér að láta á þessum tíma undirbúa gerð frumvarpa og flcira, sem getur orðið til bóta,“ sagði Vilmundur Gylfason nýskipaður dóms- og kirkjumálaráðherra í lok ríkis- ráðsfundar í gær. Vilmundur gegnir cinnig embætti mennta- málaráðherra. Vilmundur sagði einnig, að hann teldi helsta hlutverk þessarar stjórnar vera það að rjúfa þing og boða til nýrra kosninga. Ég mun á þessum stutta tíma þó einbeita mér að dómsmálunum, sem ég tel þurfa mestrar lagfæringar við í stjórnkerfinu og þó mér gefist ekki svigrúm til að breyta miklu, þá tel ég að hægt sé að sveigja þetta nokkuð til opnunar. Hann var spurður að því, hvort hann hygðist sækja það fast að fá að gegna dómsmálaráðherraembættinu áfram, ef Alþýðuflokkurinn mynd- aði aftur ríkisstjórn að afloknum kosningum. Hann sagðist ekki „Munum afgreiða þau mál sem til okkar koma” — segir Bragi Sigurjónsson landbúnaðar-, iðnaðar- og orkuráðherra „ÞAÐ ER augljóst mál að erfitt er að svara þessari spurningu,“ sagði Bragi Sigurjónsson land- búnaðar- iðnaðar- og orkuráð- herra er hann var spurður að því hvað hann myndi leggja áherslu á í starfi sínu sem ráðherra. „Þessi ríkisstjórn verður fyrst og fremst starfsstjórn, kosin til að rjúfa þing og boða til nýrra kosninga. Við reiknum þess vegna ekki með að vera í aðstöðu til að framkvæma einhverjar breyt- ingar. Við munum því aðeins afgreiða þau mál sem til okkar koma.“ Aðspurður sagði Bragi, að hið nýja starf legðist mjög vel í sig. hafa hugleitt það og ekki tekið neinar slíkar ákvarðanir, verkefnið væri það að rjúfa þing og boða til nýrra kosninga. Hvað tæki við eftir kosningar færi eftir niður- stöðum þeirra. greiðslu á greiðsluskuldbinding- um ríkissjóðs. Þá sagðist Sig- hvatur ekki eiga von á að ráðist yrði í stórvægilegar breytingar á fjárlagafrumvarpi því sem Tóm- as Árnason fráfarandi fjármála- ráðherra lagði fram.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.