Morgunblaðið - 16.10.1979, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979
21
Evrópumót
á Grafarholt
Það var ákveðið á alþjóða golfþinginu á Spáni um
helgina. að Evrópumeistaramót unglinga í golfi skuli
haldið á Grafarholtsvelli. Er þetta í fyrsta skiptið
sem svo mikið mót fer fram hérlendis.
Hér voru á ferðinni í sumar forráðamenn alþjo^
ðagolfsambands og skoðuðu þeir aðbúnað allan á
Grafarholti. Líkaði þeim vel og þegar golfsamband
ísiands bar fram ósk um að halda mótið var ekkert
því til fyrirstöðu og það samþykkt. Konráð Bjarna-
son, forseti golfsambands íslands sat þingið fyrir
íslands hönd.
Dregið í riðla í HM í knattspyrnu
Island með
sterkum þjóðum
EINS og íram kemur á blaðsíðu
22, drógust íslendingar í riðil
með Tékkum, Sovétmönnum,
Tyrkjum og Wales í undan-
keppni fyrir HM sem fram fer á
Spáni 1982.
Varla er ástæða til að kætast
mikið yfir mótherjunum, mikil
og erfið ferðalög bíða landsliðs-
mannanna. Sigtryggur Sig-
tryggsson blaðamaður Mbl. í
Belgíu tjáði Mbl. að viðbrögð
þeirra leikmanna íslenska lands-
liðsins sem leika í Niðurlöndum
hefðu verið á þá leið, að menn
hefðu verið allt annað en ánægð-
ir með dráttinn.
Tékkar eru sigurstranglegast-
ir í riðlinum, en þeir hafa nú á
að skipa einu sterkasta liði í
heiminum. Þjálfari liðsins, dr.
Jozef Venglos, var eftir atvikum
ánægður með dráttinn. Hann
sagði: „Við vitum hvar við stönd-
um gegn Rússum og Wales. En
Tyrkir og íslendingar eru óút-
reiknanlegir og hafa oftar en
einu sinni komið á óvart. Ég er
samt bjartsýnn á að lið mitt
sigri í riðlinum".
• „Ég pant næst“. Biðröð undir körfunni og að sjá
komast færri að en vilja, hvort heldur er Framari eða
Valsari. Heil umferð fór fram í úrslitadeildinni um
helgina og nánar má lesa um leikina á blaðsíðum 24
og 25. Ljósm. Emilía.
Hart barist i leik íslendinga og Tékka í Laugardalshöllinni i
gærkvöldi. borbergur Aðalsteinsson á miðri myndini með boltann
skoraði þrjú síðustu mörk íslands í leiknum. Þorbjörn Guðmunds-
son sést í baráttu á linunni. Siðari leikurin fer fram í kvöld kl.
20.30. Sjá bls. 23. Ljósmynd Kristján Einarsson.
Tvær breytingar
TVÆR breytingar hefur Jóhann Ingi Gunnarsson gert á
landsliðshópnum sem mætir Tékkum í Laugardalshöllinni í kvöld
klukkan 20.30. Þeir Hörður Harðarson, Haukum, og Sigurður
Gunnarsson, Vikingi, koma inn, en út fara Steinar Birgisson og
einhver annar, sem Jóhann hefur enn ekki gefið upp hver verður.
Tékkar sigruðu íslendinga i landsleiknum i gærkvöldi með 17
mörkum gegn 15 í leik sem var æsispennandi undir lokin og oft
mjög bærilega leikinn af hálfu islenska liðsins. Nánar er sagt frá
landsleiknum á blaðsíðu 22.
3 með 11 rétta
í 8. leikviku getrauna komu fram 3 seðlar með 11 réttum og var
vinningur á hvern kr. 528.000.- Með 10 rétta voru 52 raðir og
vinningshlutinn kr. 13.000.-
Þátttaka i getraunum hefur vaxið jafnt og þétt í haust og á
laugardaginn var metþátttaka í krónutölu frá upphafi. Alls seldu
iþróttafélögin 90 þúsund raðir og sölulaun þeirra námu samtals
um 1,1 millj. kr. Alls mun þetta vera sem svarar V3 úr röð á íbúa, en
í Noregi er þátttakan 25 sinnum meiri að meðaltali yfir árið,
rúmlega 8 raðir á ibúa á viku hverri.
Fjárhagsskellur ÍBK mikill:
Kunna bara
eitt orð:
„VIÐ töpuðum 3 miiljónum á
leikjum okkar gegn Kalmar,
það er dýrt að vera góður,"
sagði Hafsteinn Guðmundsson
formaður knattspyrnuráðs ÍBK
í samtali við Mbl. i gær. „Og við
sjáum ekki fram á annað en
annan skell samhliða þátttöku
okkar i 2. umferðinni gegn
tékkneska liðinu Zbrojovka
Brno.“
Sem kunnugt er. sló ÍBK
sænska liðið Kalmar út úr 1.
umferð UEFA-keppninnar og
dróst gegn tékkneska liðinu frá
Brno í 2. umferð.
„Við erum orðnir æði þreyttir
á að reyna að semja við Tékkana.
Fyrst vildum við fá að skipta við
þá, að fá að leika heimaleik
okkar á undan, vegna hrakandi
birtu á íslandi á þessum árs-
tíma. Þá vildum við semja um
leikdag hér heima um helgi til
þess að geta leikið fyrr um
daginn. Loks buðum við þeim að
leika báða leikina ytra, en þeir
virðast aðeins kunna eitt orð,
„impossible" — ómögulegt.
Það er ekki einu sinni hægt að
gera þeim skiljanlegt að þeir
græða á því að fá báða leikina á
eigin heimavöll, bætti Hafsteinn
við.
ÍBK sendi UEFA skeyti með
umsókn um að leika báða leikina
ytra en allt kom fyrir ekki,
Tékkarnir hirða ekki um aðra en
sjálfa sig þannig að ÍBK fær
óhjákvæmilega annan fjárhags-
legan rassskell."
Fyrirfram ákveðnir leikdagar
standa því óhreyfðir, leikið verð-
ur undir flóðljósum á Melavell-
inum í nóvember, gaman, gam-
an. Þrátt fyrir það er ljóst, að
flóðljósin á Melavellinum eru
ekki eins sterk og reglur UEFA
segja til um.
gg.
Pétur
skorar
PÉTUR Pétursson skoraði
tvlvegis, er lið hans Feye-
noord sló áhugamannaliðið
Fortuna Sittard út úr holl-
ensku bikarkeppninni um
helgina.
Feyenoord lenti í hinu
mesta basli með áhuga-
mennina. sem jöfnuðu
tvívegis. Pétur skoraði ann-
að og þriðja mark Feye-
noord. fyrra markið úr
vítaspyrnu. Nánar er greint
frá úrslitum í hollensku
knattspyrnunni á blaðsiðu
22. ________
Finnar
heppnir
ÍSLENSKA unglingalandsl-
iðið í knattspyrnu sigraði
það finnska i siðari leik
liðanna sem fram fór í
Finnlandi um helgina. Skor-
uðu íslensku piltarnir
tvívegis. en Finnar ekkert.
Þrátt fyrir þennan góða
sigur. lauk þar með þáttöku
íslands í Evrópukeppni
unglingalandsliða, þar sem
Finnarnir sigruðu í
Reykjavík 3—1 og komust
þvi áfram á útimarkinu,
markatalan annars jöfn,
3-3.
Benedikt Guðmundsson
skoraði fyrsta mark íslands
um miðjan fyrri hálfleik og
þegar sá síðari var hálfnaður
bætti Ásbjörn Björnsson
öðru marki við. Fleiri færi
buðust, en markið sem hefði
fleytt landsliðinu i loka-
keppnina lét á sér standa.
----» ■»---
Öruggt hjá
Fram
KVENNALIÐ Fram i hand-
knattleik lék um helgina
báða leiki sina við færeyska
liðið Neistan í Evrópu-
keppni meistaraliða i hand-
knattleik. Báðir leikirnir
fóru fram í Færeyjum og
sigruðu islensku dömurnar
af miklu öryggi eins og
vænta mátti, 13—6 og 18—9,
eða samanlagt 31—15.
Sigurður í
UEFA-
bann
ÞAÐ ER jafnan nóg að gera
hjá aganefnd UEFA eftir
hverja umíerð í Evrópu-
keppnum félagsliða og
landsliða. Fjöldi leikmanna
er dæmdur í lengra eða
skemmra bann. heilu leik-
vellirnir eru settir á svartan
lista. Fjársektum er dreift
eins og dagbiöðum.
Oftast fara islcnzk félðg
og leikmenn þeirra varhluta
af hamförum þessum. enda
Frónbúar einstaklega prúð-
ir mótherjar. Undantekn-
ingar eru þó frá þessu eins
og öðru. Þannig hefur Sig-
urður Lárusson, leikmaður
með ÍA Akranesee Akranes
eins og fréttaskeyti titlaði
A) verið dæmdur í eins
leiks bann i Evrópukeppni
fyrir „itrekuð brot og
áminningar“. Bann þetta
verður Sigurður að taka út í
næstu UEFA-keppni.
1 W,
Æ