Morgunblaðið - 16.10.1979, Page 42

Morgunblaðið - 16.10.1979, Page 42
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979 Lélegt hjá Oppsal Finnska handknattleiks- iiðið Karjaa sigraði Oppsal írá Noregi 26 - 24 (15-12) i fyrri leik iiðanna í Evrópu- keppni féiagsiiða. Leikurinn fór fram á heimavelli finnska iiðsins og er líklegt að sigur lisins sé ekki nógu stór. Samt sem áður segir það margt um norskan handknattleik, að eitt af toppliðum landsins tapar fyrir finnsku liði. Leikurinn ÞEGAR aðeins tvær umferð- ir eru eftir aí sænsku deild- arkeppninni i knattspyrnu. er allt að komast á suðup- unkt, einkum keppnin mikla milli Haimstad, Gautaborg- ar og Maimö FF, sem heist koma til greina sem væntan- legur sigurvegari. Lítum á úrsiit heigarinnar. Hammarby—Malmo FFÖ—1 Elfsborg—IIK 0-1 Halmstad—öster 0—0 Sundsvall —Atvidaberg 2—0 Kalmar—Gautaborg 2—0 Norrköping—Halmia 1 — 1 Dhurgarden—Landskrona 2-1 Teitur bórðarson og féiag- ar hans hjá öster gerðu Halmstad-liðinu mikinn grikk með þvi að krækja í jafntefli. Á sama tíma si- gruðu bæði Malmö FF og Gautaborbg í leikjum sinum. þannig að forysta Halmstad er nú aðeins eitt stig, en Iiðið hefur hlotið 32 stig. Maimö og Gautaborg hafa bæði hlotið 31 stig. Feyenoord sigraði Holland, bikarkeppnin. Dovo Veenedahl — Pec Zwolle 1 —4 Den Haa* — Fnc Den Haa>f 5—1 Den Bœch — FC litrecht 0—3 Nac Hreda — FC Amsterdam 1—2 Nec Nijmegen — Volendam 4 — 1 SW Sehiedam — AZ67 Alkmaar 0—6 Haarlem — Ajax 2—1 Roda JC — Heerenveen 3—0 Feyenoord — Fortuna Sittard 3—2 Cambuur — PSV Eindhoven 1—4 Excelsior — Sparta 0—1 Kindhoven — DS'79 Dordrecht 1—2 Telatar Velsen — Go Ahead 0—4 De Grafschap — SV Amersvoort 2 — 2 W'illem Tilburit — Tvente 2—4 Vitesse Arnhem — Maaatrirht 3—1 Watson til Southampton? Aliar horfur eru nú á því, að Dave Watson, miðvörður enska landsliðsins, gangi til liðs við Southampton. Wat- son hefur leikið með vestur- þýska 1. deiidar liðinu Wer- der Bremen það sem af er þessu keppnistímabili. Það væri kannski réttara að segja að hann sé meðal félagsmanna Werder, því að ekki hefur hann leikið mik- ið. Hann var nefnilega dæmdur i umfangsmikið leikbann snemma á keppn- istímabilinu og hefur lítið leikið síðan. Kaupverð Wat- son, sem er 32 ára gamall, er um 200.000 sterlingspund, en i vikunni verður endan- lega gengið frá kaupunum. Eru ekki taldar líkur á strandi úr þessu. Dregið í riðla HM í knattspyrnu: Sannkallað heimshornaflakk framundan hjá landsliði Islands BÚIÐ ER að draga i riðla í undankeppni HM í knattspyrnu. ísland skipar fjórða riðil ásamt Sovétmönnum, Tékkum, Tyrkjum og Walesbúum. Hvort landinn hafi verið heppinn með drátt, er best að láta knattspyrnumennina sjálfa segja til um. Hitt er svo annaö mál, að það verða gífurleg ferðalög samhliða þátttöku á IIM að þessu sinni. Eiga íslendingar einhverja möguleika á stigi eða stigum að þessu sinni? Varla gegn austantjaldsrisunum, Sovét og Tékkóslóvakíu. Hins vegar ætti að vera góður möguleiki í leikjunum við Tyrki, einkum á heimavelli. Walesbúar eru spurningarmerki, þeir eiga það til að standa sig best gegn sér sterkari þjóðum, en fá skelli gegn hornsílum eins og íslandi. Drátturinn lítur þannig út: 1. riðill: Vestur-Þýskaland, Austurríki, Búlgaría, Finnland og Albanía. 2. riöill: Holland, Frakkland, Belgía, írska lýðveldið og Kýpur. 3. riðill: Tékkóslóvakía, Sovétríkin, Wales, Tyrkland og ísland. Fjárhagslega erffitt ffyrir stjórn KSÍ segir Helgi Dan — Þetta er vissulega spenn- andi verkefni sagði Helgi Daní- elsson formaður landsliðsnefnd- ar KSÍ er Mbl. spurði hann álits á mótherjum ísiands í riðlum HM-keppninnar. — Þarna lent- um við á móti þremur þjóðum sem við höfum ekki leikið opin- bera landsleiki við áður. En öll þessi lönd eru mjög sterk. Sér- staklega landslið Rússa, Tékka og Sovétmanna. En ég er samt sem áður ekki svartsýnn, við erum méð gott lið í mótun, sem við getum verið stoltir af. Von- andi fáum við bara nógu marga áhorfendur á völlinn hér heima til þess að standa straum af kostnaði við ferðir til þessara landa. 4. riðiil: England, Ungverjaland, Sviss, Rúmenía og Noregur. 5. riðill: Ítalía, Júgóslavía, Grikkland, Danmörk og Luxemburg. 6. riðill: Skotland, Svíþjóð, Portúgal og Norður-írland. 7. riðill: Pólland, Austur-Þýskaland og Malta. Tvö efstu liðin úr riðlum 1—6 komast í lokakeppnina á Spáni 1982 og efsta liðið í 7. riðli. Tvö lið eru sjálfsögð í úrslitin, meistar- arnir sjáfir Argentína og gestgjaf- arnir Spánverjar. Auk þeirra munu 13 lið frá Evrópu leika í úrslitunum, fjögur lið frá Suður- Ameríku með Argentínumönnum. Tvö lið munu síðan taka þátt frá Afríku, önnur tvö úr riðli sem skipa lið frá Asíu og Eyjaálfu og loks verða tvö lið frá Mið- og Norður-Ameríku. ísraelar taka í fyrsta skipti þátt í Evrópuriðlunum, en til þessa, eða þar til Arabar spörkuðu þeim burt, hafa ísraelar leikið í Asíu- riðlunum. Ekki er búið að ákveða hvort ísraelar leiki í 6 eða 7. riðli. Ef rennt er í gegn um Evrópu- riðlana, má ætla, að Vestur- Þjóðverjar og Austurríkismenn muni verða efstu lið 1. riðils. Nokkuð ljóst ætti að vera, að Holland komist áfram úr öðrum riðli, en Frakkland og Belgía berjist um lausa sætið. Tékkar og Sovétmenn eru líklegir sigurvegarar í 3. riðli, Wales gæti sett strik í reikning- inn. Hvað ísland gerir skal ekki rætt um að siruii. Margt gæti gerst í 4. riðli, en líklega vinna Englendingar þann riðil, en Rúmenar og Ungverjar berjast líklega um lausa sætið. ítalir og Júgóslavar eru sigur- stranglegastir í 5. riðli, en bæði Grikkir og Danir geta verið skeinuhættir hvaða liði sem er. 6. riðillinn er líklega í fljótu bragði sá opnasti. Þar getur allt gerst og ekkert liðanna er sigur- stranglegra en hitt. 7. riðillinn er auðvitað ekkert annað en uppgjör Pólverja og Austur-Þjóðverja. Báðar þjóðirn- ar hafa á að skipa geysilega öflugum landsliðum þessa dagana, þannig að engin leið er að spá um úrslitin. Aðeins önnur þjóðin kemst til Spánar. Sem fyrr segir verða fjögur lið frá Suður-Ameríku meðal úrslita- liöanna á Spáni. Argentína er sjálfkjörin, en hin þrjú liðin verða sigurliðin úr þremur Suður- Ameríkuliðum. 1. riðil skipa Bras- ilía, Bólivía og Venezuela, 2. riðil Colombía, Perú og Uruguay og loks skipa 3. riðil Chile, Equador og Paraguay. • Tékkar og Englendingar eigast við á Wembley og er það Miroslav Gajdusek sem reynir markskot úr góðu færi án árangurs. Tékkar eru meðal annarra mótherja íslands í komandi riðlakeppni. Þeir hafa á að skipa einu sterkasta landsliði Evrópu og landinn má þakka fyrir ef tapið verður ekki stórt. Austur-Þjóðverjar rasskelltu Sviss Austur-Þjóðverjar sigruðu Svisslendinga 5—2 í landsleik í knattspyrnu sem fram fór í Aust- ur Berlin á laugardaginn. Leikur- inn var liður í 4. riðli Evrópu- keppni landsliða, sama riðli og Islendingar léku í. Austur Þjóð- verjar lyftu sér upp i annað sæti riðilsins með sigri sinum, en bæði Pólland og ekki síst Holland eru þó enn sigurstranglegri. Þýska liðið fékk sannkallaða óskabyrjun,- þegar Weber skoraði strax á fyrstu mínútu leiksins og Martin Hoffman bætti öðru við á 10. mínútu. Barberis minnkaði muninn fyrir Sviss á 19. mínútu, en Schnupase skoraði þriðja mark Austur Þjóðverja fyrir leikhlé. Pfister skoraði annað mark Sviss á 72. mínútu, en allar vonir Sviss- lendinga um að hreppa stig urðu að engu þegar Hoffman skoraði annað mark sitt og fjórða mark Þjóðverja þremur mínútum síðar. Og hann lét ekki þar við sitja, heldur bætti sínu þriðja marki við á 80. mínútu. Tveir mikilvægustu leikir riðilj- ins eru á næstunni. Á morgun leika Hollendingar og Pólverjar í Hol- landi og 21. nóvember eigast við Austur Þjóðverjar og Hollendingar. Allar eiga þjóðirnar þrjár mikla möguleika á að sigra í riðlinum og því mikil spenna. Staðan í riðlinum er nú þessi. PóJland 7 5 11 12-3 11 A-Þýskaland 7 5 11 16—8 11 Holland 6 5 0 1 16-3 10 Sviss 8 2 0 6 7-18 4 Island 8 0 0 8 2-21 0 • Martin Hoffman var á skotskón- um gegn Sviss á laugardaginn, skoraöi þrívegis er lið hans vann 5—2. Norsku Víkingarn- ir urðu meistarar!! VÍKINGUR frá Stavangri varð undir stjórn Tony Knapp, norskur meistari í knattspyrnu um helgina. Víkingur sigraði Rosenborg með miklum yfirburðum, 3—0, í síðasta leik sinum í deildinni og það nægði til sigurs. Ekki sist þar sem helsti keppinauturinn Moss glopraði stigi á heimavelli sínum. Víkingur hefði sigrað þrátt fyrir að Moss hefði unnið leik sinn. Miðað við hve miklilvægur leikur Víkings og Rosenborg var, sætti furðu hversu vel Víkingur lék, en leikmenn liðsins náðu þegar í stað tökum á taugum sínum og um leið leiknum. Tryggve Johansen skoraði fyrir Víking í fyrri hálfleik og varnarmennirnir Per Henriksen og Tonning Hammer bættu sitt hvoru merkinu við í síðari hálfleik. Úrslit leikja um helgina urðu þessi. Brann—Hamkain 1—2 Lilleström—Start 2—0 Mjöndalen—Bryne 2-4 Mosh—Bodö Glint 2-2 V íkingur—Rosenborg 3-0 Vaalerengen—Skeid 2-3 Vikingur hlaut 32 stig i 22 leikjum, Moss hafnaði í öðru sæti með 30 stig. Start endaði í þriðja sætinu með 27 stig. Brann, Mjödalen og Ilamkam féllu í 2. deild, en Lynn og Fred- rikstad hafa þegar tryggt sér sæti i 1. deildinni í þeirra stað. Um þriðja lausa sætið berjast Molde og Pors. Á sunnudaginn leika Víkingarnir siðan til úrslita um norska bikar- inn og mæta þá 2. deildarliði Haugen. Unglingalið Vikings hefur einnig komist í úrslitaleik bikar- keppni unglingaliða, þvi gæti svo farið að Tony Knapp og strákarnir hans innbyrði þrjá helstu knatt- spyrnutitla Noregs. Bærilegur ár- angur það. V

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.