Morgunblaðið - 16.10.1979, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979
23
Herslumunin vantaðl!
ÞÆR voru æsispenndandi lokaminúturnar í leik íslands og Tékka í
landsleik þjóðanna í handknattleik í Laugardalshöllinni í gærkvöldi.
Þegar aðeins sex minútur voru eftir af leiknum jafnar Þorbergur
Aðalsteinsson leikinn 15—15 með ofsaföstu skoti efst í markvinkilinn.
Hafði Þorbergur þá skorað þrjú mörk i röð, hvert öðru fallegra. Mikil
spenna hljóp í áhorfendur enda var þetta í fyrsta skiptið sem
Islendingum tókst að jafna metin. Siðustu minúturnar voru hróp
þeirra slik að engu likara var en að þakið ætlaði af höllinni. Þessi
spenna smitaði líka út frá sér. íslensku leikmennirnir léku mjög
óyfirvegað síðustu minútur leiksins og þá var einstaklingsframtakið
látið ráða i stað þess að leika yfirvegað og bíða lengur eftir góðu
marktækifæri. Þetta öðru fremur varð til þess að Tékkum tókst að
skora tvö síðustu mörkin í leiknum og sigra 17—15. Þá höfðu
Þorbergur Aðalsteinsson og Ólafur Jónsson báðir átt ágætis tækifæri
á að skora en mistekist.
Tékkar höfðu frumkvæðið
Tékkneska liðið hafði frum-
kvæðið í fyrri hálfleiknum og var
ávallt fyrra til að skora. Það voru
þó Islendingar sem skoruðu fyrsta
markið í leiknum. Páll Björgvins-
son skoraði úr víti eftir að brotið
hafði verið á Steinari nýliða. Bæði
liðin tóku nokkuð mikla áhættu í
leiknum og léku nokkuð hratt.
Jafnt var á næstu tölum og
sérstaklega var glæsilegt mark
Bjarna Guðmundssonar er hann
jafnaði úr hraðaupphlaupi, 4—4.
Tékkarnir léku mjög fasta vörn
og hrintu mikið, og virtist það
koma íslensku leikmönnunum
nokkuð úr jafnvægi í byrjun
leiksins. Það átti þó eftir að
lagast, er líða tók á. Staðan í
Handknattlelkur
V-.....................V
hálfleik var 10—9 Tékkum í hag.
íslenska liðið lék oft vel í fyrri
hálfleiknum, en leikmenn gerðu
sig þó seka um slæm mistök. Góð
tækifæri voru misnotuð og æði oft
glataðist boltinn vegna mistaka í
sendingum.
Æsispennandi síðari
hálfleikur
Það blés ekki byrlega fyrir
landanum í upphafi síðari hálf-
leiksins. Tékkar skoruðu tvö
fyrstu mörkin og breyttu stöðunni
í 12—9. íslenska liðið barðist þó
mjög vel og'gaf ekkert eftir. Um
miðbik hálfleiksins leiða Tékkar
með aðeins einu marki, 13—12, og
íslenska liðið er með boltann en
Páll Björgvinsson er óheppinn og
þrumuskot hans fer í þverslá og
Tékkar ná boltanum. Um þetta
leyti breytir Jóhann Ingi um
leikaðferð í vörninni og lætur
Bjarna Guðmundsson taka Pap-
iernic úr umferð, en hann hafði
skorað mikið af mörkum og var
lykilmaðurinn í leik Tékkanna. Nú
lentu Tékkarnir í hinum mestu
vandræðum í sókninni og leikur
þeirra var vandræðalegur. A 54.
mínútu jafnar svo Þorbergur
Aðalsteinsson leikinn 15—15. Sex
mínútur eftir og allt gat gerst.
Næstu tvær sóknir Tékka renna út
í sandinn. Jens varði tvívegis
glæsilega. En nú vantaði rósemi
og yfirvegun. Þarna fór bráðlætið
illa með íslenska liðið.
Lofar góðu
Leikur íslenska landsliðsins lof-
ar virkilega góðu fyrir veturinn.
Leikmenn eru greinilega allir í
góðri, líkamlegri æfingu. Kom það
best fram í varnarleiknum sem
var mjög ákveðinn og nokkuð vel
leikinn. Þó hefði gjarnan mátt
reyna að taka Papiernic fyrr úr
umferð. Þá dugar ekki neitt annað
en að leika geysifast og allt að því
gróft á móti liði eins og Tékkum
sem eru geysilega fastir fyrir og
harðir og reyna mikið af hrinding-
um með höndunum. Sóknarleikur-
inn var á köflum góður, en vantar
þógreinilega meiri samæfingu. En
hún kemur þegar líða tekur á. Þá
vantar meiri aga í sóknarleikinn.
Sérstaklega þegar mikið liggur
við, eins og í lok leiksins. Þá
verður einhver að taka af skarið
og róa leik liðsins. Bestu menn
íslenska liðsins voru Páll Björg-
vinsson, Þorbjörn Guðmundsson
og Jens Einarsson markvörður
sem varði sérlega vel í síðari
hálfleiknum. I heildina var
íslenska liðið gott. Og með smá
heppni á sigur að vinnast í síðari
leiknum.
Dómararnir mislukkaðir
Dómararnir í leiknum voru
norskir. Það er víst nokkuð vægt
tekið til orða að segja að þeir hafi
verið slakir. Var lítið samræmi í
dómum þeirra og svo rammt kvað
að í lokin að þeir misstu öll tök á
leiknum og vissu varla hvað snéri
upp eða niður.
I stuttu máli: Laugardalshöll.
Landsleikur í handknattleik
ísland—Tékkóslavkía: 15—17
(9-10)..
Mörk Islands: Páll Björgvinsson
5 (3v), Þorbjörn Guðmundsson 4,
Þorbergur Aðalsteinsson 3, Bjarni
Guðmundsson 2, Ólafur H. Jóns-
son 1.
Mörk Tékka: Papiernic 9 (5v),
Simek 2, Polivka 2, Salivar 1,
Hamolka 1, Gruca 1, Cerny 1.
Brottrekstur af velli: Steinþór
Gunnarsson og Stefán Gunnars-
son báðir í 2 mín. Hamolka í 4
mínútur og Sinek í 2 mínútur.
— þr.
Haukar Reykja-
nesmeistarar?
LIÐ HAUKA var ekki í vandræð-
um með að tryggja sér Reykja-
nesmeistaratitilinn í handknatt-
leik með því að leggja FH örugg-
lega að velli 21 — 16. Haukar
höfðu ávallt yfirhöndina í leikn-
um og mesti munur á liðunum
var sex mörk. Nú hefur lið Hauka
sigrað FH í þremur siðustu leikj-
um liöanna, og má lið FH muna
sinn fífil fegri. Bestu menn i liði
Hauka voru Gunnar Einarsson
markvörður sem varði eins og
berserkur allan tímann og Stefán
Jónsson, sem enn er á fullri ferð.
1 liði FH stóð enginn upp úr,
Geir Hallsteinsson var tekinn úr
umferð og enginn gat haldið
merki hans á lofti og skorað utan
af vellinum, eða ógnað svo að vit
væri í.
Mörk Hauka: Stefán 6, Guð-
mundur 4, Þórir 3, Hörður 3,
Ingimar 2, Árni Hermannsson,
Árni Sverrisson og Þorgeir gerðu
eitt mark hver.
Mörk FH: Valgarður 3, Sæ-
mundur 3, Geir 2, Pétur 2, Sveinn
2, Magnús, Tryggvi, Hans og
Guðmundur eitt mark hver.
• Steindór Gunnarsson svífur inn í vítateig Tékka með einn mótherjann lafandi í sér,
Markvörðurinn Marian Hirner sá við Steindóri að þessu sinni. Ljfcm. mw. Kristján.
„Gátum alveg eins unnið“
“ÉG VERÐ að segja eins og er. að
ég átti jafnvel von á enn verri
skelli en eins og leikurinn spilað-
ist, þá hefðum við átt að ná a.m.k.
öðru stiginu og jafnvel báðum.
Það vantaði yfirvegun og still-
ingu þegar tekist hafði að jafna
15—15,“ sagði Jóhann Ingi
Gunnarsson landsliðsþjálfari
íslands í leikslok.
„Ég var orðinn frekar svarts-
ýnn, samæfing liðsins var lítil og
í æfingaleik vann unglingal-
andsliðið öruggan sigur á lands-
liðinu. En dagsskipunin var bar-
átta og aftur barátta og ég tel að
það hafi verið sterkur punktur
hjá liðinu. Ef sama baráttan og
sama markvarslan næst i síðari
leiknum, er virkileg vinningsvon,
ekki síst ef dálitil yfirvegun
fylgir í sókninni.“
„Tékkneska liðið er mjög sterkt,
bæði sem heild og eins maður á
mann. það er erfitt að leika gegn
slíkum körlum, en þeir eru ekki
ósigrandi," sagði Jóhann Ingi að
lokum.
Síðari leikurinn fer fram í kvöld
klukkan 20.30 og víst er að fyrri
leikurinn lofaði góðu fyrir þann
síðari, langt er síðan íslenskt
landslið hefur verið í jafn góðu
formi að hausti og nú, kannski
aldrei. Þó þarf margt að laga.
Jóhann Ingi segir: „Það eru nokkr-
ir í liðinu sem eru enn ekki í nógu
góðri likamlegri æfingu, liðið get-
ur varla annað en orðið betra
þegar því verður kippt í lag.“
15 mörk í 39
sóknarlotum
EF LITIÐ er á frammistöðu
einstakra leikmanna i
fslenska landsliðinu, kemur
margt athyglisvert i Ijós. En
fyrst skulum við líta á nýt-
ingu sóknarlota islenska
liðsins i fyrri hálfleik. Þá
átti islenska liðið 22 sókn-
arlotur, en aðeins 9 sinnum
hafnaði knötturinn i netinu
hjá Tékkum. frekar slæleg
nýting það. en íslensku leik-
mennirnir voru oft komnir í
dauðafæri, en létu Hirner
markvörð verja frá sér.
Hirner hirti 18 skot i leikn-
um.
í siðari hálfleik komu 6
mörk í 17 sóknarlotum og er
það ekki betri nýting. Þarna
er rótin að tapinu grafin.
Jens stóð í markinu allan
leikinn og varði vel, einkum í
síðari hálfleik, hann varði 14
skot í leiknum.
Páll Björgvinsson skoraði
fimm mörk fyrir Í9lenska
liðið, en lét þrívegis verja frá
sér. Hann átti eitt skot i
þverslá og glataði knettinum
auk þess einu sinni. Þorbjörn
Guðmundsson skoraði 4 mörk
úr 6 skotum. Kemur nú listi
yfir ieikmenn íslands.
Fyrsta talan er fyrir skor-
uð mörk, önnur talan fyrir
skot sem gáfu ekki mörk og
þriðja talan stendur fyrir
hversu oft viðkomandi leik-
menn glötuðu knettinum.
Þorbergur Aðalst.son 3—2—1
Steinar Birgisson 0—2—2
Steindór Gunnarsson 0—0—0
Stefán Gunnarsson 0—0—3
Bjarni Guðmundsson 2—1—2
Erlendur Hermannss.0—2—0
Ólafur H. Jónsson 1—2—3
Ólafur Jónsson 0—2—0
gg