Morgunblaðið - 16.10.1979, Síða 47

Morgunblaðið - 16.10.1979, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979 2 7 J 1 á(3 lami snn 1 haf a; aldrei sl (ili ð gi íldií þrc íti ta fv TÍI ■ lar id oi « gÞ ■ / JO< ð“ Óhætt er að fullyrða að annað stærsta sérsambandið innan ÍSÍ er Handknattleikssamband íslands. Nú er keppnistímabil handknattleiksmanna að hefjast, kapp- leikir eru fjölmargir í hinum ýmsu aldursflokkum, og þátttakendur skipta hundruðum víðsvegar um landið. Þá er landsliðið í handknattleik í sviðsljósinu þessa daga. Það er því vel við hæfi að spjalla við íormann HSI Júlíus Ilafstein og grennslast fyrir um hvað framundan er hjá sambandinu, og forvitnast um leið um það mikla starf sem unnið er. Við fengum því Júlíus til að svara nokkrum spurningum okkar varðandi HSÍ, og fara svör hans hér á eftir. • Júlíus Hafstein formaður HSÍ, með verðlaun þau er sambandið veitir siííurvesurunum i bikarkeppni IISÍ. Hvert er megin starfssvið H.S.f. í dag og hversu umíangs- mikil er starfsemin? Starfssvið H.S.Í. er margþætt en þó má skipta störfum stjórnar- innar í tvo megin þætti, í fyrsta lagi er varðar handknattleiki inn- anlands og í öðru lagi erlend samskipti. Ef við skoðum fyrst starfið við íþróttina innaniands, þ.e.a.s., án þess að taka allt er heyrir til landsliðanna með í myndina þá er þar um mjög umfangsmikið starf að ræða. í því sambandi er helzt að geta undir- búnings og skipulagningu á lands- mótum en störf mótanefndar H.S.I. verða tröllslegri með hverju árinu sem líður. Þá eru störf dómaranefndar í svipuðum farveg, niðurröðun dómara á leiki, boðun dómara í keppni, dómaranámskeið bæði fyrir héraðsdómara og lands- dómara allt störf sem taka mikinn tíma. Þá er í þriðja lagi starfsemi Tækni- og fræðslunefndar H.S.Í. en hún hefur með höndum allt er varðar fræðslumál, svo sem þjálf- aranámskeið, útgáfu á námsefni og annað því skylt en starf þessarar nefndar hefur vaxið mjög mikið síðustu misserin enda þáttur sem er hvað nauðsynlegast- ur í öllu uppbyggingarstarfi. A hinn bóginn eru það erlendu samskiptin, samningar um lands- leiki, keppnisferðir erlendis, verk- efni fyrir dómara erlendis, fundir og þing allt atriði sem krefjast góðs undirbúnings, bréfaskrifta og þess háttar. Mest eru þetta störf er fara í verkefni fyrir landsliðin okkar, en á vegum H.S.Í. verða væntanlega fjögur landsliðí sviðsljósinu, A-landslið karla, A-landslið kvenna, landslið karla skipað leikmönnum 21 árs og yngri en þeir taka þátt í heims- meistarakeppni eftir 2 vikur og í fjórða lagi unglingalandslið karla. Og að lokum mætti nefna fjár- málin en þau eru alltaf mjög umfangsmikil og erfið en ég geri ráð fyrir að við munum ræða um þau síðar. Nú stjórnin sjálf hefur reglu- legan fundartíma í hverri viku allan ársins hring, oftar ef að þörf krefur og satt að segja líður vart sá dagur að ekki sé eitthvað verið að „stússast" fyrir H.S.Í. I rauninni er mjög erfitt að segja til um hve umfangsmikið starfið er, hitt er víst að verkefnin eru næstum óþrjótandi. Hafa umsvif H.S.Í. aukist á undanförnum árum eða hafa fjár- magnsvandræði hamlað eðlilegu starfi? Iðkendafjöldi í handknattleik hefur vaxið jafrit og þétt á s.l. árum og samhliða því hefur starf- ið vaxið ekki aðeins hjá H.S.Í., heldur líka og ekki síður hjá hinum ýmsu handknattleiksráð- um og félögum. Fjárhagsvandræð- in hafa að sönnu sett á okkur bremsu, en menn hafa reynt að leysa þau eftir fremsta megni þó það sé í raun nokkuð erfitt á tímum. Hefur verið gert nægilega stórt átak í fræðslu-. dómara- og þjálfaramálum? Eg gat um það hér áðan að fræðslumál væru grundvallaratr- iði í þessari íþrótt sem öðrum og það er því rétt að það kom hér fram að síðan Jóhann Ingi kom til starfa hjá okkur haustið 1978 hafa verið gerðir góðir hlutir í fræðslu- og þjálfunarmáium sem hann hef- ur haft forgöngu um. Það má segja að í þessum málum hafi verið gert stórátak, og við í stjórn H.S.Í. erum ákveðnir í að fylgja því fast eftir. Það sama má segja um dómaramálin, við erum nú á næstum vikum að fara af stað með dómaranámskeið þar sem leið- beinandi er erlendis frá, m.a. menn sem hafa með höndum alþjóðleg dómaranámskeið á veg- um Alþjóðasambandsins. Þetta er vettvangur sem við höfum ekki haslað okkur nægilegan völl á hingað til en ætlum nú að lagfæra. Er afstaða til handknattleiks- iðkunar nægilega góð að mati stjórnar H.S.Í., hvað um lands- byggðina? Aðstaða til íþróttaiðkunar al- mennt hefur breyst gífurlega mik- ið á síðustu árum, vellir hafa verið lagðir og hús hafa risið og er það í sjálfu sér ágætt mál. En okkur handknattleiksforystumönnunum hefur fundist, að full lítið tillit sé tekið til íþróttar okkar en við þurfum stærri velli en aðrar inniíþróttir. Það er rétt eins og einhvers staðar í kerfinu séu hemlar á þessu, og að við byggingu íþróttahúsa sé reynt að halda sér einhvers staðar utanvið okkar alþjóðlega löglegan keppnisvöll sem er 20x40 metr., íþróttahús með áhorfendasvæðum hafa fram til þessa átt feikilega erfitt upp- dráttar og er það frekar vægilega til orða tekið. í þessu sambandi má benda á að í Reykjavík er aðeins eitt keppnishús og þessu til sönnunar er rétt að fram komi, að um þetta eina hús er nú rifist, jafnvel á síðum dagblaðanna, hverjir og hvenær eigi að keppa í því. Ertu ánægður með árangur A-landsliðs karia á s.l. keppnis- timabili og áttu von á betri árangri á komandi keppnis- tímabili? Já, ég var ánægður með árang- urinn s.l. vetur. Þá unnum við Dani í fyrsta skipti á útivelli, sem var langþráður draumur, og í forkeppni OL. á Spáni lentum við í 4. sæti sem var betri árangur en við áttum von á. Vonandi verður rétt framhald á þessu en eins og þú veist þá eru fyrstu landsleik- irnir 15. og 16. október hér heima við Tékkóslóvakíu. Er ekki tímabært að fara að greiða fyrir æfingar og leiki en ekki aðeins vinnutap? Spurningin er ekki hvort það sé tímabært eða rétt, heldur hvort við höfum bolmagn til þess, sem við höfum ekki. Fjárhagsvandi okkar er miklu stærri en svo að þetta geti raunverulega komist inn í umræðuna. Lítið dæmi þessu til sönnunar er að fyrir 3—4 árum fengum við u.þ.b. 1 millj. kr. í styrk frá ríkissjóði sem var svipað og ein ferð fyrir landsliðið til Kaupmannahafnar og til baka. Núna fáum við 2.6 millj. í styrk en það kostar 5 milljónir fram og til baka sömu leið. Og þegar við þurfum að greiða þetta 5—6 ferðir á ári fyrir utan allt annað þá verður ekki mikið afgangs. Nei, skilningur landsfeðranna er í lág- marki og ef heldur áfram sem horfir þá leggjast erlend sam- skipti íþróttaflokka almennt niður og afreksíþróttir þá um leið. Ráðamenn hafa aldrei skilið gildi íþrótta fyrir land og þjóð, hverjir þeirra sem í hlut hafa átt. Telur þú möguleika á einhvers konar atvinnumennsku i iþrótt- um hérlendis í einhverjum mæli? Það er tómt mál að tala um slíkt. Það í sjálfu sér er ekkert markmið að hafa atvinnumenn hérlendis heldur hitt að það væri ánægjulegt að geta gert eitthvað lítilræði fyrir þá íþróttamenn okk- ar, sem skara fram úr, menn sem hafa eytt miklum og dýrmætum tíma ekki bara af frístundum, heldur líka frá fjölskyldu og vinnu sinni til þess eins að geta borið hróður þjóðar sinnar og fóstur- jarðar um önnur lönd. Mér sýnist að þetta sé alls ekki í neinum forvegi til breytinga. Því miður. Þó það væri ekki í nema litlum mæli. Hver eru stærstu vcrkefni H.S.Í. varðandi A-Iandslið karla á næstu árum? Stærsta verkefnið á þessum vetri verður Balti-cup keppnin, en þetta er einhver sterkasta „turn- ering" sem haldin er ár hvert. Stærsta verkefnið á næsta keppn- istímabili verður forkeppni heims- meistarakeppninnar 1982. Ekki er búið að ákveða hvar hún verður en þar verðum við að vera með sex efstu liða til að komast áfram í lokakeppninni 1982 og að því stefnum við. Ertu bjartsýnn á framtíð hand- knattlciksins hér á landi? Já, ég er bjartsýnn á handbolt- ann okkar. Stór aukning iðkenda, markviss fræðslustarfsemi, betri þjálfarar og síðast en ekki síst leikmenn sem vilja leggja meira á sig, allt þetta leiðir til harðari keppni, sterkari liða og fyrir okkur sem störfum að íþrótt, sem er hátt skrifuð erlendis, hvatning til að halda þessu áfram. Já, það er óhætt að vera bjartsýnn, þetta gengur vel núna. Hafa íslenzk handknattleiks- félög sem misst hafa leikmenn til erlendra liða á einn eða annan hátt verið hlunnfarin þegar um dulbúna atvinnumennsku er að ræða? Nú hafa knattspyrnufélög fengið greitt fyrir leikmenn? Alþjóðahandknattleikssam- bandið viðurkennir ekki atvinnu- handknattleik, sem er að sjálf- sögðu eins og hver önnur fjar- stæða þar sem það er vitað mál að hjá öllum toppþjóðunum og vel það er íþróttin atvinnuíþrótt að meira eða minna leyti. Austan- tjaldslöndin hafa ekki viljað við- urkenna handknattleik sem at- vinnuíþrótt þó svo að þeirra menn geri ekkert eða lítið annað en að æfa og keppa og meðan þessi sjónarmið ráða ferðinni er áhuga- leikmaðurinn frjáls ferða sinna að ganga úr einu áhugamannaliði í annað þó vitað sé að um dulbúna atvinnumennsku sé að ræða. í þessum efnum er lítið hægt að gera. Um leið og þessir hlutir breytast sem hlýtur að verða fyrr en síðar koma önnur sjónarmið inn í myndina en því fylgir að alþjóðasambandið eða réttara sagt alþjóðaþing verður að sam- þykkja reglugerð þar að lútandi. Erum við að keppa á jafnréttis- grundvclli þegar við erum slíkir áhugamenn sem raun ber vitni um? Nei, að sjálfsögðu ekki, en við höfum látið okkur hafa það, þar sem við vitum, að þetta er staða, sem lítið er hægt að gera í, við verðum bara að berjast harðar og bíta á jaxlinn. Hefur handknattleiknum al- mennt farið fram hér á landi að þinu mati? Með komu Janusar Cerwinskys og síðan Botans Kavanzky kom nýtt blóð í þjálfaramálin sem gefist hefur vel. Ég er ekki að segja að við höfum ekki góða þjálfara. Það eigum við, menn eins og Karl Benediktsson, Hilmar í DAG lauk fyrsta opna badmin- tonmótinu á þessu keppnistíma- bili. Keppt var í einliðaleik karla og kvenna. og var mótinu þannig háttað, að sá sem tapaði fyrsta- leik, fór i sérstakan aukaflokk, þar sem áfram var keppt til úrslita. 45 keppendur tóku þátt i mót- inu frá 7 félögum, en leikir urðu samtals um 60. (Jrslit i einstökum flokkum urðu sem hér segir. Karlaflokkur. Jóhann Kjart- ansson TBR sigraði Brodda Krist- jánsson TBR, 15/12 og 15/10. Kvennaflokkur. Kristín Magn- úsdóttir TBR sigraði Sif Friðleifs- dóttur KR, 11/5 og 11/1. Aukaflokkur karla. Helgi Björnsson og Jóhann Inga Gunn- arsson og fl. menn sem fylgjast með, menn sem endurmennta sig, menn sem fyllilega standa við hliðina á starfsbræðrum sínum erlendis. Grundvallaratriðið í þessu máli er að fræðsla og þjálfaramenntunin séu í lagi. Þetta er allt í réttum farvegi hjá okkur núna, toppliðin okkar eru sterkari en áður, það segir meira heldur en nokkuð annað og hefur og mun hafa góð áhrif fyrir íþróttina. Ertu orðinn þreyttur á því mikla starfi sem er að vera formaður H.S.Í.? Nei, nei, þá hefði ég ekki haldið áfram. Hvað er þér eftirminnilegast í starfi þínu sem formanns og hvaða óskir áttu sjálfur til handa íslenzkun handknattleik.? Ég vil nú láta það liggja á milli hluta hvað mér er eftirminni- legast en ef ég nefndi eitthvað sérstakt þá er það í raun eitt atriði, áður en ég varð formaður en það voru dagarnir í september 1978 þegar H.S.Í. sá um þing I.H.F. (alþj. handknattl.samb.) Það var mjög ánægjulegur og lærdómsríkur viðburður sem hef- ur nú þegar og mun í framtíðinni koma okkur til góða. Ef ég á einhverja sérstaka ósk þá er hún fyrst og fremst sú, að þeir sem í baráttunni standa, íþróttafólkið, leiðtogarnir — við í stjórn H.S.Í., í félögunum og öðrum þeim vettvöngum sem starfað er við, berum gæfu til að standa heilshugar og sameinaðir í verkum til framdráttar þessari glæsilegu íþrótt sem geymir á spjöldum sinnar eigin sögu íþróttamenn sem lengzt allra íslenzkra flokkaíþróttamanna hafa náð á erlendri grund. Þ.R. Magnússon ÍA sigraði Þorgeir Jóhannsson TBR 15/8, 11/15 og 15/10. Aukaflokkur kvenna. Sigríður M. Jónsdóttir TBR sigraði Elínborgu Guðmundsdóttur BH, 11/0 og 11/3. • Jóhann Kjartansson. Rætt við Júlíus Hafstein formann HSÍ Jóhann sigraði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.