Morgunblaðið - 16.10.1979, Side 22
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979
Norðmenn með allt
að 20 skip á miðum
Kólombíuíll ár
SAMTÖK útgerðarmanna í Ála-
sundi í Noregi hafa gert
samkomulag við fyrirtæki í eigu
ríkis og einstaklinga í Kolomhiu
og samkvæmt þvi hafa allt að 20
norsk skip rétt til að veiða á
kólombísku hafsvæði næstu 11
árin og selja afla sinn i Kól-
ombíu.
Samningar þessir taka gildi um
miðjan þennan mánuð og til
reynslu verður rækjutogari frá
Tromsö á miðum Kólombíumanna
næstu 6 árin. Síðar bætast fleiri
skip við, en þau mega flest vera 20
talsins næstu 11 árin. Skipin verða
mönnuð Norðmönnum og undir
norskum fána, en á tímabilinu er
einnig reiknað með að Norðmenn
sinni þjálfun Kólombíumanna að
einhverju leyti. Fyrir þetta sam-
komulag þurftu Norðmenn ekkert
að greiða til stjórnvalda í Kól-
ombíu að undanskildum leyfis-
gjöldum, sem námu ekki háum
upphæðum.
Hugmyndasamkeppni
ÁLAFOSS hf. hefur efnt til verð-
launasamkeppni um gerð hluta
sem að uppistöðu til eru gerðir úr
þeim bandtegundum sem fyrir-
tækið framleiðir.
Að því er segir í frétt frá
fyrirtækinu, er aðaltilgangurinn
með þessari samkeppni að ná
fram nýjum hugmyndum þar sem
notagildi bandsins kemur fram.
Hlutirnir mega vera prjónaðir,
heklaðir eða gerðir á hvern þann
hátt er fólki kann að detta í hug.
I boði eru fimm verðlaun.
Fyrstu verðlaun eru 200 þúsund
krónur, önnur verðlaun 100 þús-
und krónur, þriðju verðlaun 70
þúsund krónur, fjórðu verðlaun 60
þúsund krónur og fimmtu verð-
laun 50 þúsund krónur.
Hugmyndirnar eiga að hafa
borist Álafoss hf. fyrir 1. desem-
ber 1979.
Ur Medallandi
Hnausum 10. okt.
NÚ ER slátrun meira en hálfnuð
á Kirkjubæjarklaustri. Munu
dilkar vera rýrari hjá flestum en
venjulega. Voru hér sem annars
staðar óvenjuleg harðindi í vor
og hlutu að hafa áhrif á fall
þunga fjár.
Sláttur gekk víða heldur stirð-
lega vegna lélegra þurrka og gras
var seinsprottið. Mun nýtt hey
víða vera minna en í fyrra og
fyrningar óvíða.
I vor ætluðu a.m.k. fjórir bænd-
ur hér eystra að sá korni, en
farmannaverkfall og harðindi
komu í veg fyrir það. Var það illa
farið því kornræktun á Þorvalds-
eyri er eitt af því merkilegasta,
sem gerzt hefur í íslenzkum land-
búnaði. Þyrfti víðar að gera slíkar
tilraunir.
í fyrra lauk 10 ára leigu á
Eldvatni í Meðallandi, en Tungu-
lax h.f. hafði ána það tímabil.
Höfðu bændur ána sjálfir í sumar.
Var ekki veitt að vori og aðeins
þrjá daga í viku yfir sumarið.
Rúmlega 50 laxar veiddust Nokk-
uð veiddist einnig af sjóbirtingi og
allvel um miðjan ágúst. Af sjó-
bleikju veiddist lítið. Laxaseiði,
sem sleppt hefur verið, hafa skilað
nokkrum árangri, sem hefur
dreifst alljafnt um allt Skaftár-
svæðið. Hefur lax veiðst í Kúða-
fljóti í líkum mæli og Eldvatni og
Skaftá.
Tvö íbúðarhús eru í byggingu í
Meðallandi, á Langholti og Lyng-
um, en þar er nú tvíbýli. Ný brú á
Eldvatn var fullgerð í fyrra og
vegagerðin í sumar.
Orn var hér við Eldvatnið frá
1967 til 1977, mjög stór og spakur
fugl. Á þessu tímabili var hann
stundum allan veturinn. En
síðustu árin styttist alltaf vera
hans hér og mun hann ekki hafa
verið nema um viku síðasta vetur-
inn.
Vilhjálmur
Aflinn meiri en
í fyrra þó seinna
væri byr jad nú
VEÐRÁTTAN á haustvertíðinni
hefur verið einstök og sárasjald-
an sem nokkrar frátafir hafa
verið á veiðum á loðnumiðum
norður af iandinu frá þvi að
vertið hófst. Aflinn var siðdegis í
gær orðinn um 310 þúsund tonn
og er það heldur meira en á sama
tíma i fyrra, en þá hófust veið-
arnar þó mánuði fyrr en í ár.
Mokveiði var um helgina og
bátarnir svo fljótir að fylla sig að
á stundum voru engir á miðun-
um. Sigurður RE 4 er aflahæsta
skipið sem fyrr. en skipstjórar
eru þeir Haraldur Ágústsson og
Kristbjörn Árnason. Mestu hefur
verið landað í Siglufirði, en
verksmiðjur allt í kringum íand-
ið hafa tekið á móti afia á
vertíðinni.
Frá því á hádegi á laugardag
þar til síðdegis í gær tilkynntu
eftirtalin skip um afla til loðn-
unefndar.
Laugardagur. Húnaröst 600,
Pétur Jónsson 690, Ársæll 430,
Börkur 1050, Gísli Árni 620, Sæ-
berg 650, Arnarnes 600, Skarðsvík
630, Hrafn 650, Loftur Baldvins-
son 800, Súlan 770. Samtals á
laugardag 19 skip með 13900
lestir.
Sunnudagur. Jón Kjartansson
1100, Hilmir 540, Þórshamar 580,
Sigurfari 870, Þórður Jónasson
470, Seley 420, Bergur 510, Örn
580, Dagfari 530. Samtals á sunnu-
dag 9 skip með 5600 lestir.
Mánudagur. Sigurður 1400,
Svanur 680, Huginn 560, Hákon
820, Ljósfari 570, Óskar Hall-
dórsson 440, Náttfari 520, Helga
Guðmundsdóttir740, ísleifur 430.
INNLENT
Stykkishólmur:
Bygging heilsugæslustöovar
strönduð í ríkiskerfinu?
St. Fransiskusystur i Stykk-
ishólmi hafa eins og alþjóð veit
rekið hér sjúkrahús í 40 ár með
miklum myndarbrag. Þær hafa
nú undirbúið endurbætur á
sjúkrahúsinu en gamla húsið
stenst ekki lengur þær kröfur
sem i dag eru settar um slíkt
húsnæði og skortir þar aðallega
rannsóknaraðstöðu.
Skv. lögum um heilbrigðis-
þjónustu á að rísa heilsugæslu-
stöð í tengslum við sjúkrahúsið
og hafa systurnar samþykkt þá
tilhögun, sem að tilhögun heil-
brigðisráðuneytisins. Öllum
undirbúningi og hönnun þessara
fyrirhuguðu framkvæmda er nú
lokið og var það von systranna
að framkvæmdin gæti hafist á
þessu ári og höfðu í því skyni
aflað nauðsynlegra fjármuna.
Engu að síður strandar málið
einhvers staðar í ríkiskerfinu,
þrátt fyrir það að tveir heil-
brigðisráðherrar hafa samþykkt
áætlun um endurbætur sjúkra-
hússins og nú síðast kom Magn-
ús H. Magnússon og skoðaði
starfsaðstöðu systranna og hét
stuðningi sínum í málinu. Nú
fyrir stuttu var haldinn fundur
heimaðila um þetta mál.
Til þess fundar mættu þeir
Haraldur Hannesson hagfræð-
ingur fulltrúi systranna og Frið-
jón Þórðarson alþm., en þeir
hafa unnið hvað mest að undir-
búningi málsins. Á fundi þessum
kom fram mikil óánægja manna
með afgreiðslu þessa máls sem
allir segjast vera sammála um
að eigi að afgreiða en kerfið
kemur ekki frá sér.
Þess má geta að sjúkrahúsið
sinnir heilbrigðisþjónustu í
Snæfells- og Hnappadalssýslu og
öðrum Breiðafjarðarbyggðum.
Fréttaritari.
Húsmæðrafélag
Reykjavíkur:
Stjórnvöld
endurskoði
verðlagning-
arkerfi land-
búnaðarvara
BLAÐINU hefur borist eftir-
farandi fréttatilkynning frá
Húsmæðrafélagi Reykja-
víkur:
„Fundur haldinn í Hús-
mæðrafélagi Reykjavíkur 3.
október, skorar á húsmæður
að vera vel á verði gegn
verðhækkunum neysluvara og
hvetur til samstöðu í þá átt að
sporna við sífelldum hækkun-
um á nauðsynjavörum. Óeðli-
lega hátt verðlag einstakra
nauðsynjavara er bæði fram-
leiðendum og neytendum í
óhag, þar sem neysla hlýtur að
dragast saman.
Jafnframt hvetur fundurinn
stjórnvöld til að taka til end-
urskoðunar nú þegar það verð-
lagningarkerfi sem ríkt hefur
varðandi innlendar landbún-
aðarafurðir
Fundurinn styður þær yfir-
lýsingar sem fram hafa komið
frá ýmsum hagsmunasamtök-
um varðandi síðustu verð-
hækkanir."
Hreinn Lindal.
Hreinivel
fagnað á kveðju-
tónleikum
LAUGARDAGINN 6. október
hélt Hreinn Líndal söngtónleika í
Félagsbiói í Keflavík. Undirleik-
ari á píanó var Ólafur Vignir
Albertsson.
Hreinn Líndal er sem kunnugt
er á förum til Austurríkis til að
syngja þar við Vínaróperuna og
voru tónleikar þessir kveðjutón-
leikar hans hér á landi. Hreinn er
Suðurnesjabúum vel kunnur þar
sem hann hefur kennt söng bæði
við Tónlistarskólann og Barna-
skólann í Keflavík undanfarin ár.
Fjölmenni var á tónleikunum og
var Hreini vel fagnað og er óhætt
að segja að hann hafi unnið hugi
og hjörtu áheyrenda. Ég vil óska
honum til hamingju með tónleik-
ana og þennan glæsilega árangur,
við vonum að honum gangi sem
allra best við það stóra viðfangs-
efni sem hann tekst nú á hendur.
Örn óskarsson.
Verðbætur launa
1. desember:
Frumvarp
gegn skerðing-
arákvæðum
LÚÐVÍK Jósepsson og 8 aðrir
þingmenn Alþýðubandalagsins
hafa lagt fram i neðri deild
Alþingis frumvarp til laga um
breytingu á lögum nr. 13/1979
(Ólafslögum) um stjórn efna-
hagsmála, sem þingmenn Al-
þýðubandalagsins samþykktu á
siðasta þingi.
Frumvarpið gerir ráð fyrir því
að þrátt fyrir ákvæði til bráða-
birgða II við VIII. kafla laganna
skuli 1. desember nk. greiða
óskertar verðbætur á laun, sem
voru 210.000 krónur og lægri 1.
marz 1979. Samkvæmt lögunum
óbreyttum, eins og stjórnarflokk-
arnir samþykktu þau á sl. voru,
skerðast verðbætur á lægri laun
um 2% frá 1. desember nk. vegna
skerðingar viðskiptakjara.
Eldur í bíl
og eldavél
ÞRJÚ útköll voru hjá Slökkvilið-
inu í Reykjavík sl. laugardag. Auk
brunans við Laugaveg, sem sagt er
frá annars staðar í blaðinu, var
slökkviliðið kallað að Bragagötu
30 um kl. 18.54 á laugardag og var
þar eldur í eldavél, en ekki urðu
mjög miklar skemmdir. Þá var
slökkviliðið á laugardag kallað að
bíl þar sem hann var staddur í
Ártúnsbrekkunni og logaði þar
eldur undir vélarhlíf bílsins og
urðu nokkuð miklar skemmdir á
bílnum.