Morgunblaðið - 16.10.1979, Síða 25

Morgunblaðið - 16.10.1979, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979 33 Ferðum íslendinga hefur f ækk- að það sem af er árinu í september komu til landsins 16.663 ferðamenn með skipum og flugvélum og er það tæpum 3 þúsund ferðamönnum færra en i september á síðasta ári þegar komu til landsins 19.512 ferða- menn skv. upplýsingum frá Út- lendingaeftirlitinu. Útlendingum fækkaði úr 6.526 i 6.258, en íslcndingum úr 12.986 í 10.405. Það sem af er árinu þ.e. til septemberloka hefur ferðamönn- um fækkað nokkuð eða úr 130.868 í 128.196 miðað við sama tíma í fyrra. Hefur útlendingum fjölgað úr 65.573 í fyrra í 67.353 í ár, en ferðum íslendinga hefur fækkað úr 65.295 í fyrra í 60.843 það sem af er þessu ári. í september komu flestir ferðamenn frá Bandaríkj- unum 2.232, frá Vestur-Þýska- landi 608, Sviss 440, 414 frá Svíþjóð og 394 frá Danmörku. Einn ferðamaður kom frá hverju eftirtalinna ríkja: Equador, Fil- ippseyjum, Guyana, íran, Jór- daníu, Kuweit, Pakistan, Panama, Portúgal, Rúmeníu, Singapore, Súdan og Úruguay. Þá komu á þessu sumri fleiri ferðamenn en nokkru sinni með skemmtiferðaskipum eða 16.351 í 25 ferðum skipa hingað. í fyrra- sumar komu rúmlega 10 þúsund ferðamenn með 20 skipaferðum, sem er svipuð tala og nokkur síðustu ár. Árin 1972 og 1973 komu hingað skip í 26 ferðum, en þá var fjöldi ferðamanna nokkru minni en í sumar eða milli 11 og 13 þúsund. Fatamóttaka Hjálpræðis- hersins HJÁLPRÆÐISHERINN hefur beðið blaðið að birta eftirfarandi: Hjálpræðisherinn setti fyrr á þessu ári tilkynningu í blöðin um að takmarka yrði fatamóttöku við eina viku vor og haust. Ætlunin var að hafa fatamóttöku í eina viku í október. Af þessu getur því miður ekki orðið þar sem svo mikill fatnaður hefur komið inn í sumar og haust að geymslur eru fullar. Nokkrir hafa hringt að undan- förnu og fengið það svar að við tækjum við fötum í október. Við viljum benda þeim á að hafa samband við okkur aftur og mun- um við taka við fötum frá þeim út þessa viku. Eftir það verður alls ekki tekið við fatnaði fyrr en í vor. Við viljum nota tækifærið og þakka þeim sem styðja starf okkar á þennan hátt. (Fréttatilk.) Ljósm. Sig.SÍKm. Nýja brúin yfir Sandá. BRÚUÐ hefur verið Sandá á Kjalvegi sunnan við Bláfellsháls og lauk brúarsmíðinni nú fyrir nokkru, en verkið tók um það bil þrjár vikur. Brúin er stálbitabrú með timburgólfi á steyptum undirstöðum og er hún 30 metra löng með tveimur höfum. Er hún rétt neðan við gamla vaðið á Sandá og verður með tilkomu hennar öruggara að komast upp á Kjalveg, en Sandá hefur stundum verið farartálmi þrátt fyrir að lítið vatn hafi verið í henni seinustu tvö árin. Samkvæmt upplýsingum vegagerðarinnar átti brúarsmiðin að kosta um 27 milljónir og er búizt við að sú áætlun standist nokkurn veginn. Vegagerðin lætur um þessar mundir smíða nokkrar brýr i nágrenni Reykjavikur, m.a. yfir Seljadalsá við Hafravatn og yfir Ártúnsá og einnig er verið að vinna við brú á Eyrarbakkavegi rétt utan við kauptúnið og senn lýkur brúarsmiði yfir Tungnaá við Hrauneyjarfoss. Tómas Árnason: Athugasemd við ummæli um framlög til iðnaðar Manuela Wiesler á hádegis- tónleikum Söngskókuis AÐRIR hádegistónleikar Söngskólans í Reykjavík verða á morgun miðviku- daginn 17. október kl. 12.10 til 12.50 í Tónleika- sal Söngskólans að Hverfisgötu 45. A tónleikunum mun Manuela Wiesler leika á flautu sónötu í a-moll eftir Carl Philipp Em- manuel Bach, sónötu per Manuela eftir Leif Þórar- insson og Suite eftir Jean Francaix. Hjörleifur Guttormsson o.fl. hafa sagt frá því í fjölmiðlum að framlög til iðnaðar hafi verið skert í fjárlagafrumvarpi, og svo djúpt hefur verið tekið í árinni, að þau hafi verið lækkuð um 2 milljarða. Ef borin eru saman framlög til iðnaðarráðuneytisins í fjárlögum fyrir árið 1979 og í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 1980 kemur í ljós, að þau eru 7.395 milljarðar á fjárlögum 1979 en 12.516 milljarðar í fjárlagafrum- varpi fyrir árið 1980 og nemur hækkunin 69%. Ef framlögum til orkusjóðs er sleppt úr samanburð- inum verða tölurnar 2.300 millj- arðar 1979, en 4.417 milljarðar 1980 en þar er 92% hækkun. Þess ber að geta, að fjármagn til iðnaðarins ákvarðast ekki ein- göngu af framlögum úr ríkissjóði, heldur er fjármagn einnig ætlað til iðnaðarmála á fjárfestingar- og lánsfjáráætlun, en þar er gert ráð fyrir verulegri aukningu fjár- magns til iðnlánasjóðs. Tilefni til blaðaskrifa um þessi mál er ráðstöfun tekna af jöfnun- argjaldi og af sérstöku tíma- bundnu aðlögunargjaldi skal ráð- stafa í fjárlögum ár hvert að hluta til eflingar iðnþróunar". í fjárlög- um fyrir árið 1979 er fyrrnefndur hluti 167 m. kr. og ráðstafað til Iðntæknistofnunar íslands 91 m. kr. og á liðinn til iðnþróunar 76 m. kr. Þess má geta, að í iögum um Iðntæknistofnun íslands segir m.a. í 9. gr. að einn af tekjustofn- um Iðntæknistofnunar skuli vera hluti af jöfnunargjaldi. í fjárlaga- frumvarpi fyrir árið 1980 koma 389 m. kr. til skipta til eftirtaldra verkefna. Iðntæknistofnun íslands 125,0 m.kr. Til iðnþróunar 76,0 m.kr. Efling iðnaðar og tækninýjungar 30,0 m.kr Utflutningsmiðstöð iðnaðarins 67,4 m.kr. Iðnrekstrarsjóður 63,6 m.kr. Athugun á orkufrekum iðnaði 15,0 m.kr. Ullar- og skinnaverkefni 12,0 m.kr. 389,0 m.kr. Á hliðstæðan hátt og á síðasta ári er framlag til iðnþróunar og hluti af framlagi til Iðntækni- stofnunar íslands fjármagnað með jöfnunargjaldi. Þess ber einn- ig að geta, að framlög til Útflutn- ingsmiðstöðvar iðnaðarins og Iðnrekstrarsjóðs hækka í fjár- lagafrumvarpinu um 90 milljónir króna umfram verðlagsbreyt- ingar. Lög um aðlögunargjald nr. 58/ 1979 7. gr. hljóðar þannig. „Tekj- um af aðlögunargjaldi á árinu 1979 skal varið til sérstakra iðn- þróunaraðgerða samkvæmt nán- ari ákvörðun ríkisstjórnar, að fengnum tillögum iðnaðarráð- herra. Á sama hátt skal tekjum af gjaldinu á árinu 1980 varið til eflingar iðnþróunar samkvæmt ákvæðum fjárlaga". Eins og getið er um í greininni skal aðlögun- argjaldinu varið til sérstakra iðnrþóunaraðgerða. Tillögur iðn- aðarráðuneytisins um ákveðnar iðnþróunaraðgerðir hafa ekki leg- ið fyrir við fjárlagagerð vegna ársins 1980. Það var fyrst á ríkisstjórnarfundi 11. október s.l., sama dag og fjárlagafrumvarpið var lagt fram, sem iðnaðarráð- herra lagði fram tillögu um ráð- stöfun aðlögunargjalds fyrir árið 1979. Ákvörðun um ráðstöfunina var ekki tekin á þeim fundi. Þar sem tillögur um ákveðnar iðn- þróunaraðgerðir lágu ekki fyrir við gerð fjárlagafrumvarps fyrir- hugaði ég að taka fram í fjárlaga- ræðu, að það væri algjörlega opið mál af minni hálfu að ráðstafa gjaldinu þegar á næsta ári. Eng- inn ágreiningur er um að gjaldið gangi til iðnþróunar. Til þess að svo geti orðið er nægilegt svigrúm til í fjárlagafrumvarpi að auka lántökur, á næsta ári til þess að greiða gjaldið. Ég hefi verið reiðu- búinn til þess, í fjárlagafrumvarpi er t.d. gert ráð fyrir að greiða Seðlabankanum 9,6 milljarða. Þá kemur einnig til greina niður- skurður að einhverju leyti, en iðnaðarráðherra hefur lagt áherslu á orkumál sem for- gangsmál. Ég vil geta þess, að ég tel óeðlilegt, að iðnaðarráðherra hafi frjálsar hendur um ráðstöfun þessa gjalds, enda hefur slíkt aldrei hvarflað að mér og lögin gera ekki ráð fyrir slíku. Ég vil að lokum vekja athygli á því, að Hjörleifur Guttormsson og flokkur hans hafa viljað leggja stórfellda skatta á fyrirtæki í landinu og þar meö iðnaðinn og aldrei fengist til þess að sam- þykkja rekstrargrundvöll fyrir iðnaðinn, sem tryggi honum eðli- legan vöxt og viðgang. Leiðrétting í frétt MBL. sl. sunnudag af skipverja á ísafold sem tók út en náðist inn aftur varð það rang- hermi að hann var sagður skip- stjóri. Hið rétta er að hann er háseti og er beðist velvirðingar á missögn þessari. | smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáaugiýsingar Hilmar Foss Lögg. skjalaþýö. dómt. Hatnar- strætl 11, sími 14824, Freyju- götu 37, sími 12105. í~tiúsnæöi: tós/casf^j Ensk fjölskylga óskar ettir 4ra- tierb. íbúö á leigu í Reykjavík — Kópavogi. Sími 53669. Seljum lopapeysur hnepptar og öhnepptar i hagstæöu veröi. Getum annast aö senda tll útlanda. Síml 26757 ettlr kl. 7. v^h L---«a4 .A__a-/1—A_.mul I Keflavík Tll sölu góö etri hæö. Allt sér. Bilskúr. Góö lán áhvílandi. Laus strax. Eigna- og veröbrétasalan, Hringbraut 90, Ketlavlk. Sími 92-3222. Almennar samkomur í dag kl. 17 og 20.30. Dr. Tompson talar. □ Hamar 5979 10167 MF K.F.U.K. Fundur í umsjá basarnefndar verður í kvöld kl. 8.30 aö Amtmannsstíg 2b. Allar konur velkomnar. Nefndin. □ EDDA 597910167 = 2 IOOF Rb. 4 = 12910168'^ — IOOF = Ob. 1P- 16110168'/i-F1. RÓSARKROSSREGLAN A M e R C l i•• -~t V ATLANTIS PRONAOS 16103332820 %i\\^ Sálarrannsóknafélag Suöurnesja heldur félagsfund í félagsheimll- inu Vík (kvöld kl. 20:30. Guömundur Einarsson kemur á fundinn og sýnir málverk sem máluö eru í transi. Nýir félagar velkomnir. Stjórnin. * Al (iLVSIN'GA- SIMINN ER: 22480 JUetflunbUiíiib

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.