Morgunblaðið - 16.10.1979, Page 29

Morgunblaðið - 16.10.1979, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979 37 Garðar Sigurgeirsson Rakarastofu Garðars með „fórnardýr" sín á hárgreiöslusýningunni, en eins og sjá má er það einvala lið. * Landsliðið í klippingu og greiðslu á Sögu SAMBAND hárgreiðslu- og hárskerameistara hélt sýningu á Hótel Sögu á sunnudagskvöldið. Aðal- atriði sýningarinnar var að landslið sambandsins sýndi listir sinar, en s.l. þriðjudag var einnig sýning. Inn á milli sýndu stofur vetrarhártískuna ásamt ýmsum helstu tískuverslunum í Reykjavík, Borgar- nesi og fleirum. Forskólanemar úr háriðnaðardeild Iðnskólans í Reykjavík sýndu tískufatnað frá Stúdíó og nýjustu hártískuna fyrir ungt fólk. Þeir sem lengra eru komnir í námi í skólanum sáu um hársnyrtingu sýningarfólksins. Torfi Geirmundsson sá um atriði varðandi hárlos karlmanna. Húsfyllir var á sýningunni og margir urðu frá að hverfa. Þessi sérkenni- lega kðrfu- greiðsla er unnin af Brósa, en snyrti- stúlka leggur síöustu höndá andlits- verkið. Torfi Geirmundsson setur hártopp á einn af eldri kynslóðinni. Þessar ungu stúlkur skarta nýjustu tízku í hárgreiöslu, en greiðslurnar voru unnar af Björk Hreiðarsdóttur og Láru Davíösdóttur hjá Hárgreiðslustofunni Aþenu. Ráðstefna um blikk- smíði í byggingariðnaði FÉLÖG blikksmiða og blikk- smiðjueigenda efna til sameigin- legs fundar að Hótel Esju á morgun, miðvikudag, kl. 20.30, þar sem Gunnar Sigurðsson bygg- ingarfulltrúi kynnir nýju bygg- ingarreglugerðina, Ásmundur Jóhannsson fulltrúi nýja reglu- gerð um brunavarnir og bruna- mál og Rafn Jensson verkfræðing- ur fjallar um, hvað sé „bruna- Ioka“. I viðtali við Morgunblaðið sagði Kristján Ottósson, form. Félags blikksmiða og undirbúningsnefnd- ar þessa fundar, um tildrög hans: — Ástæðan fyrir því, að þessi ráðstefna er haldin, er sú, að maður verður var við það í starfi sínu og utan starfs, að menn hafa ekki hugmynd um þær reglugerðir, sem hafa verið samdar og sam- þykktar af opinberum aðilum. Þeg- ar þær ber á góma, segja menn: Ég hafði ekki hugmynd um, að þessi reglugerð hefur verið gefin út. I einni reglugerð er ekki hægt að koma fyrir í stuttu máli því efni, sem þar þyrfti að vera, og þess vegna er nauðsynlegt að kynna reglugerðirnar og hvað í þeim felst. Þannig er ekki, svo að ég viti, talað um styrkleika „brunaloku" í bruna- varna- og brunamálareglugerðinni, svo að menn setja hana af handa- hófi í dag. Komið hefur fram í umræðum um fundinn á morgun, að það hefur hreinlega gleymzt að skilgreina „brunaloku". Hvað varðar byggingarreglu- gerðina þá hefur náðst þar stór áfangi, hvað varðar blikksmiða- stéttina. 2. maí sl. var haldinn fjölmennur fundur i stéttinni, þar sem lögð var rík áherzla á, að tekið yrði meira tillit til blikksmíðafags- ins í byggingariðnaðinum en verið hefur hingað til. í megindráttum náðust fram þær sanngirniskröfur, sem settar voru fram. Loftræsti- og hitakerfi eru orðin stór þáttur í byggingarkostnaði, en þrátt fyrir það hafa menn lokað augunum fyrir þeirri miklu þörf, að gengið sé frá kerfunum þannig, að hægt sé að taka við þeim til eðlilegs reksturs. Þarna eiga allir sök: verkfræðingar, iðnaðarmenn og verkkaupar. Við höfum ekki til skamms tíma verið viðbúnir þeirri miklu tækniþróun, sem verið hefur í öllum stýribúnaði. Við höfum hlaðið á loftræsti- og hitakerfi alls konar stjórnkerfum, sem menn hafa vart vitað, hvernig ætti að tengja til að ná þeirri virkni, sem ætlazt var til. Að lokum lagði Kristján Ottós- son áherzlu á, að menn hefðu með sér viðkomandi reglugerðir á fund- inn. Hann vildi hvetja blikksmiði, blikksmíðanema og ekki sízt hönn- uði loftræsti- og hitakerfa til að koma á fundinn. Atle Kittang. Sven-Eric Liedeman. 2 norrænir prófessorar með námskeið og fyrirlestra PRÓFESSORARNIR Sven Eric Liedeman frá Gautaborg og Atle Kittang frá Bergen munu halda námskeið i Háskóla íslands laug- ardaginn 20. október. Auk þess halda þeir hvor sinn fyrirlestur- inn í Norræna húsinu. Liedeman og Kittler koma hingað til lands í boði Háskólans og Norræna hús- sins. Sven-Eric Liedeman er fæddur 1939. Hann lauk doktorsprófi í hugmyndasögu 1966 og varð dós- ent við haskólann í Gautaborg sama ár. í haust tók hann við stöðu prófessors í hugmynda- og lærdómssögu ýþ sama skóla. Hann hefur skrifað nokkrar bæk- ur m.a. „Frán Platon till Mao Zedong." Fyrirlestur sinn hér á landi nefnir Liedeman „Marxism- en i Sverige" og hefst hann miðvikudaginn 17. október kl. 20.30. í Norræna húsinu. Atle Kittang er fæddur 1941. Hann lauk doktorsprófi 1973 og varð prófessor í bókmenntasögu við háskólann í Bergen árið 1974. Hann hefur m.a. skrifað bækur um Rimbaud og Éluard. Fyrirlest- ur Kittang í Norræna húsinu nefnist „Nyare realistiske forfatt- arar i Norge i dag“. Fyrirlesturinn hefst í Norræna húsinu fimmtu- daginn 18. október kl. 20.30.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.