Morgunblaðið - 16.10.1979, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 16.10.1979, Blaðsíða 30
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979 Sigurðurl. Guðmunds son —Minningarorð Fæddur 4. júlí 1899 Dáinn 7. október 1979 í dag er kvaddur Sigurður Ingimar Guðmundsson verslunar- maður, en hann lést á Landspítal- anum 7. október s.l., áttræður að aldri. Sigurður var fæddur á Flateyri í Önundarfirði 4. júlí 1899, sonur Guðmundar Snorra Björnssonar trésmiðs og konu hans Ingunnar Sigríðar Jónsdóttur. Guðmundur Snorri var sonur Björns Guð- mundssonar bónda á Refsteins- stöðum í Víðidal og konu hans Rannveigar Snorradóttur frá Klömbrum í Vesturhópi. Ingunn var dóttir Jóns Jónssonar prests, síðast á Stað á Reykjanesi, og konu hans Sigríðar Snorradóttur, systur áðurnefndrar Rannveigar. Sr. Jón var sonur sr. Jóns Jónsson- ar á Barði í Fljótum, hann aftur sonur sr. Jóns Jónssonar á Auð- kúlu. Móðir sr. Jóns á Stað var Guðrún Björnsdóttir Ólsen um- boðsmanns á Þingeyrum. Var Sig- urður samkvæmt þessu nánast hreinræktaður Húnvetningur í báðar ættir, þótt leiðir hans lægju aðeins um þær sveitir sem að- komumanns. Systkini Sigurðar voru Jón sjómaður, sem fórst með Leifi heppna í Halaveðrinu 1925, Björn Ágúst yfirvélstjóri hjá Rafmagns- veitu Reykjavíkur og Sigríður kaupkona, en þau eru bæði einnig löngu látin. Ungur fluttist Sigurður með foreldrum sínum til Isafjarðar og átti þar sín bernskuár, en 1913 fluttust þau öll saman til Reykja- víkur. Ári síðar lést Ingunn, móðir Sigurðar, og var hann eftir það um árabil við loðandi heimili Ágústs bróður síns og ágætrar konu hans, Sigríðar Pálsdóttur. Hefur vinátta þeirra Sigríðar enst báðum til hárrar elli og mikill samgangur ætiíð verið milli heim- ila þeirra. Ungur settist Sigurður í Menntaskólann í Reykjavík og lauk þaðan gagnfræðaprófi 1916. Hóf hann síðan nám í Verslun- Móöir okkar lést 14. október s.l. + BRYNDÍS E. BIRNIR Guðrún, Björn og Einar Birnir. + Maöurinn minn og faðir okkar BRYNJÓLFUR BRYNJÓLFSSON Minna Knarrarneai Vatnsleysuströnd lést í St. Jósefsspítala Hafnarfiröi aö morgni sunnudagsins 14. október. Margrét Þórarinsdóttir og börn. + Móöir okkar SIGRÍDUR SIGGEIRSDÓTTIR Hverfisgötu 28 Reykjavík lést í Landspftalanum aö kvöldi 13. október. Börnin. t INGVELDUR JÓNSDÓTTIR, frá Fossi á Síöu, Vestur-Skaftafellssýslu andaöist hinn 13. október 1979 að Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, Reykjavík. Ólafía Árnadóttir, Brynjólfur H. Þorsteinsson. + Fósturmóöir okkar, GUDBJORG GUNNARSDÓTTIR, andaöist 14. október í Landspítalanum. Freyja Helgadóttir, Óskar Steindórs. + Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma KRISTÍN EINARSDÓTTIR Frakkastíg 24 er lést 10. október s.l., veröur jarösungin frá Hallgrímskirkju miövikudaginn 17. október kl. 13.30. Ósk Guómundsdóttir Einar Guömundsson Gunnþórunn Erlingsdóttir Gunnar Guómundsson Ólöf Gísladóttir Hilmar Guömundsson Sigrún Ólafsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. arskóla íslands 1917 og lauk þaðan burtfararprófi 1. maí 1920. Sam- dægurs hóf hann störf hjá Nathan & Olsen, fyrst á skrifstofu í Reykjavík en síðan sem útibús- stjóri á Seyðisfirði 1925—1932. Eftir nokkur ár við skyld störf á Seyðisfirði lá leiðin enn til Reykjavíkur 1935, þar sem hann síðan var heimilisfastur til ævi- loka. Starfaði hann, meðan heilsa entist, við verslunar- og skrif- stofustörf, lengst hjá Heildversl- uninni Eddu, síðar sem verslunar- stjóri í M.R. búðinni og síðast til 75 ára aldurs hjá Skrifstofu ríkisspítalanna. Á Seyðisfirði festi Sigurður ráð sitt og kvæntist Guðleifu Stefaníu Guðmundsdóttur 16. september 1933. Er hún fædd á Vopnafirði árið 1900 en ættuð af Héraði og uppalin að mestu á Seyðisfirði. Er Guðleif gerðar- og myndar- kona, rösk til verka og hress í fasi, þótt aldurinn sé orðinn all-hár. Ekki hefur þeim orðið barna auðið, en systkinabörn beggja og síðar börn þeirra hafa átt hjá þeim skjól á ýmsu skeiði. Sigurður var meðalmaður á hæð, frekar feitlaginn, en fram á elliár kvikur á fæti og hress í bragði. Ljúfmennska og alúðlegt viðmót einkenndu framkomu hans öðru fremur, notaleg kímni og glaðværð voru einnig minnisverð einkenni í fari hans. í öllum störfum hans kom fram óbilandi trúmennska og ósérplægni og hef ég ummæli húsbænda hans og vinnufélaga fyrir því. Sjálfur vil ég að leiðarlokum þakka þessum heiðursmanni lang- ar og ánægjulegar samvistir, allt frá því að hann gerðist sjálfsagður svaramaður konu minnar, að föð- ur hennar nýlátnum, vegna barna okkar, sem hafa átt í honum sinn eina „afa“ og til síðustu ára, en þau hjónin hafa ætíð verið sjálfskrifaðir gestir á hátíðum á heimili okkar. Fjölskylda okkar sendir Guð- leifu hugheilar samúðarkveðjur og þakkar henni farsæla sambúð og umhyggju við „Sigga frænda", sem hélst gegnum þykkt og þunnt, erfiðleika og velgengni og síðast sjúkdóma og ellihrörnun. Blessuð sé minning þess ágæta, ljúfa manns, Sigurðar Guð- mundssonar. Björn Árnason Áslaug Kristinsdótt- — Minningarorð ir Fædd 19. ágúst 1896. Dáin 9. október 1979. Hin mæta kona Áslaug Krist- insdóttir var til moldar borin í gær, mánudaginn 15. október. Frú Áslaug var gift Elíasi Dagfinnssyni, miklum dugnaðar- og ágætismanni. Hann andaðist 25. mars 1968. Þau giftust 8. des. 1917. Oft hef ég heyrt þess minnst að hér hafi þá verið vandfundin glæsilegri hjón. Þau Áslaug og Elías eignuðust tvö börn, Halldóru, sem gift er Halldóri Sigurjónssyni flugvirkja og Alfreð forstjóra, sem er kvænt- ur Kistjönu Millu Thorsteinsson. Frú Áslaug var flestum góð- kunn undir nafninu „Áslaug í Perlu" og var hún þannig kennd við hárgreiðslustofu sína. Munu margar konur nú minnast hennar þaðan fyrir frábærlega vel unnin störf. Áslaug var mjög dugleg kona og vann mestan hluta ævi sinnar jafnt á heimili sínu sem utan þess. Fór henni hvort tveggja jafn vel úr hendi í hartnær hálfa öld. Er hennar því eigi síður minnst sem frábærrar húsmóður á fallegu heimili en góðs stjórn- anda á vinnustofu. Frú Áslaug var skapmikil kona, hreinskilin, vinaföst og glaðlynd. Hún var afar gjöful og greiðvikin. Hún var svo gæfusöm að eignast stóran vinahóp og góð börn og ástrík, sem auðsýndu henni jafnan mikla ástúð og einkum þó síðustu árin þegar henni lá mest við að fá að njóta hlýju og nærfærni. Frú Áslaug var ein af stofnend- um Meistarafélags hárgreiðslu- kvenna eins og það var þá nefnt. Hún var í stjórn félagsins meðan hún starfaði að iðn sinni og var svo gerð að heiðursfélaga þess. Hinir mörgu nemendur hennar minnast eigi síður hjartahlýjunn- ar en góðrar stjórnar og öruggrar handleiðslu. Þegar ég kom í stétt- arfélag okkar fann ég strax þá hjartahlýju Áslaugar sem olli því að ég tengdist henni fljótlega vináttuböndum, sem rofnuðu aldrei meðan hún lifði. Ég er þakklát henni fyrir þær mörgu unaðsstundir sem ég naut með henni bæði á hinu fagra heimili hennar og í sumarbústaðnum, sem henni þótti svo vænt um. Alltaf og alls staðar var hún óbrigðul í rauns sinni, ástúð og hjartahlýju og verður þess vegna mér og mörgum öðrum vinum hennar, ógleymanleg. Eitt af því marga sem var eftirtektarvert í fari þessarar góðu konu var hin einlæga og örugga trú hennar. Aldrei lagðist hún til svefns án þess að hafa fyrst lesið kafla í Biblíunni og alla tíð lét hún sig málefni kirkjunnar miklu varða og lagði þeim lið. Ekki má gleyma að minnast þess hve athafnasöm hún var í Dýra- verndunarfélaginu. Hún var góð öllum málleysingjum og átti þar áreiðanlega stóran vinahóp, sem hún hlúði að meðan þrek entist. Undanfarin 5 ár átti Áslaug við mikinn heilsubrest að stríða og síðast liðin 2 ár dvaldist hún í sjúkrahúsi. Þegar af henni bráði þar var hún glettin og gamansöm, rifjaði upp gamla góða daga og var þá aftur orðin sú indæla Áslaug í Perlu, sem okkur þótti öllum svo gott að eiga að vini, trausta, ljúfa og hjartahlýja. „Far þú í frirti. frirtur Guðs þig blessi. Ilafdu þökk fyrir allt og allt.44 Árdís Pálsdóttir. KRISTIANA GRIM- SON — MINNING Hinn 31. ágúst 1979 andaðist í Vancouverborg B.C., Kanada, frú Kirstiana Grimson, 85 ára að aldri. Hún var snæfellsk að ætterni. Faðir hennar var Stefán Daníel- son frá Borg í Miklaholtshreppi en móðir hennar var Daníelía Krist- jana Daníelsdóttir frá Hólmlátri á Skógarströnd. 3ja ára gömul flutt- ist hún ásamt fjölskyldu sinni til Vesturheims. Kristiana eða Jana eins og hún var kölluð var gift Sigmundi + Eiginkona mín, móöir og systir, VILBORG JÓNASDOTTIR, Hagamol 53 lézt í Landspítalanum sunnudaginn 14. október. Guðmundur P. Guðmundsson, Guðrún Gestsdóttir, Sigfús Jónasson. + MARÍA ÞORSTEINSDÓTTIR Hæöargaröi 8. veröur jarösungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 17. október kl. 3. Þorbjörg Ottósdóttir Gyða Tómasdóttir Hafdfs Þórólfsdóttir. Grímssyni gullsmið, ættuðum úr Dalasýslu. Hann andaðist 1973. Þau eignuðust 2 syni, sem báðir lærðu gullsmíði. Ráku þeir í sam- einingu stórt gullsmíðaverkstæði. Þau hjónin ferðuðust víða, enda höfðu þau bæði yndi af ferðalög- um. Til íslands komu þau 4 sinnum. Hittu þau hér fjölda ættingja, eignuðust nýja vini, enda með afbrigðum ljúf og kát í viðmóti. Jana talaði og skrifaði mjög góða íslenzku. Bréfin frá henni voru alltaf kærkomin, enda full lífsgleði og góðvildar til hins siðasta. Blessuð sé minning mætrar konu. Aldís Daviðsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.