Morgunblaðið - 16.10.1979, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979
39
Ársfundur Alþ jóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins:
Svartsýni á framtíðina
vegna vaxandi verðbólgu
— sagði Davíð Olafsson
NÝLEGA var haldinn ársfundur
Alþjóðabankans og Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins, en systurstofnanir
þessar halda ársfundi sina saman.
tvö ár af hverjum þremur í
Washington, en þriðja árið í
einhverju meðlimalandanna, nú i
Júgóslavíu. Eru Júgóslavía og
Rúmenía einu Austur-Evrópurík-
in, sem eru meðlimir i báðum
stofnununum.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hef-
ur það hlutverk að vaka yfir þróun
gjaldeyris- og gengismála með-
limaþjóðanna og setja þeim leik-
reglur í viðskiptum þeirra og veita
þeim fjárhagslegan stuðning til
skamms tíma til að auðvelda þeim
að mæta erfiðleikum á sviði
greiðslujafnaðar við útlönd án þess
að gripið sé til ráðstafana sem geta
skaðað eigin hag og annarra. Al-
þjóðabankinn hafði fyrst í stað það
hlutverk að styðja meðlimalöndin í
uppbyggingu eftir styrjöldina en
hefur á seinni árum eftir að þeirri
uppbyggingu var lokið, snúið sér í
sívaxandi mæli að stuðningi við
þróunarlöndin í atvinnuuppbygg-
ingu þeirri, sem er í raun miklu
stærra hlutverk, að því er Davíð
Ólafsson seðlabankastjóri tjáði
Mbl. en þessi þáttur hefur einkum
aukist eftir að Robert McNamara
tók við forstöðu hans fyrir 12
árum.
stjóri fyrir Norðurlöndin og Gísli
Blöndal varaforstjóri fyrir Norður-
löndin, sem sat fund Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins.
Að venju ávarpaði þjóðhöfðingi
þess lands, sem fundirnir eru
haldnir í, fulltrúana á opnunar-
fundinum og nú var það Tító
forseti, sem það gerði. Ræddi hann
mikið um vandamál þróunarríkj-
anna og þá erfiðleika, sem einmitt
nú steðjuðu að þeim, m.a. vegna
minnkandi hagvaxtar í iðnaðarl-
öndunum og ræddi einnig í því
sambandi hversu löndin væru
hvert öðru háð í vaxandi mæli.
Orðrétt sagði hann um þetta:
Enginn getur lengur tryggt sína
eigin velferð nema hún sé hluti af
almennum framförum og velferð
allrar heimsbyggðarinnar.
Mbl. innti Davíð Ólafsson seðla-
bankastjóra eftir því hver hefðu
verið helstu mál fundarins að þessu
— Efnahagsþróunin í heimin-
um, það sem af er þessu ári, setti
mjög mark sitt á ræður manna og
fór ekki hjá því, að nokkurrar
svartsýni gætti á framtíðina. Und-
irrót þeirrar svartsýni var fyrst og
fremst óttinn við vaxandi verð-
bólgu í mörgum ríkjum. Það kom
mjög greinilega fram, að verðbólg-
an er helzta áhyggjuefni manna,
einkum í iðnaðarríkjunum, og sú
skoðun var almenn, að ríkin ættu
nú að einbeita sér að því að ráða
niðurlögum hennar með öllum til-
tækum ráðum. Minnkandi hagvöxt-
ur olli mönnum einnig áhyggjum,
ekki sízt þegar á það er litið, að
víða skortir á, að framleiðslugeta
sé fullnýtt, sem kemur fram í
tiltölulega miklu atvinnuleysi all-
víða.
Davíð sagði ekki hafa farið hjá
því að orkumál hefðu verið ofar-
lega á baugi, enda hefði stefna
olíuútflutningsríkja í verðlagsmál-
um aukið mjög á þann efnahags-
vanda sem nú væri við að stríða í
heiminum. Var í því sambandi lögð
áherzla á að hækkun á orkuverði
sem af þessu leiddi mætti ekki
verða til þess að settar yrðu fram
kröfur um síauknar tekjur til að
mæta slíkri hækkun, þar sem það
gæti aðeins leitt til aukinnar verð-
bólgu, en mæta yrði henni með
niðurskurði útgjalda til annarra
þarfa.
— Óttinn við verndarráðstafan-
ir gekk eins og rauður þráður í
gegnum ræður manna. Eggjuðu
menn mjög hvern annan til að
forðast slíkar ráðstafanir. Því er
ekki að neita að þessi ótti er ekki
Fulltrúar íslands á ársfundunum
voru ráðherrarnir Svavar Gestsson
og Tómas Árnason, sem sátu fund
Alþjóðabankans, og Davíð ólafs-
son, Jón Sigurðsson forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar og Sigurgeir Jóns-
son aðstoðarbankastjóri, sem sátu
fund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, en
auk þeirra sat fund Alþjóðabank-
ans Valgeir Ársælsson varafor-
Davið Ólafsson seðlabankastjóri og Svavar Gestsson viðskiptaráðherra voru meðal þeirra fulltrúa frá
islandi er sátu ársfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans. (Sfmamynd AP)
ástæðulaus, sagði Davíð. — Erfið-
leikar þeir sem spruttu upp úr
olíukreppunni 1973—1974 og afleið-
ingar þeirra voru í ýmsum löndum
notaðir sem átylla til að gera ýmiss
konar ráðstafanir til verndar inn-
lendri framleiðslu og eru sum
iðnaðarríkjanna ekki þar undan-
skilin. Reynslan frá kreppuárunum
fyrir styrjöldina átti þó að hafa
kennt mönnum að slík viðbrögð eru
ekki aðeins tilgangslaus heldur
beinlínis hættuleg þeim sem beita
slíkum verndarráðstöfunum og
velta þar með sínum erfiðleikum
yfir á nágranna sína eða viðskipta-
lönd og neyða þau til gagnráðstaf-
ana og þannig koll af kolli þar til
allt er reyrt í haftakerfi með þeim
afleiðingum, sem við þekkjum svo
mæta vel, sagði Davíð.
Sagði hann að einmitt hér væri
ljós sú mikla þýðing sem starfsemi
stofnunar eins og Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins hefði haft undanfarna
áratugi, með ráðgiöf og fjárhags-
stuðningi hefði stofnunin átt sinn
mikla þátt í að auka og viðhalda
frelsi í milliríkjaviðskiptum, sem
aftur hefði leitt til aukinnar verka-
skiptingar milli þjóða, sem verið
hefði ein meginforsendan fyrir
þeim stórkostlegu efnahagsfram-
förum, sem orðið hefðu á undan-
förnum áratugum í öl|um heims-
hlutum. Sagði Davíð Ólafsson að
menn settu von sína á það alþjóða-
samstarf sjóðsins sem tryggingu
fyrir áframhaldandi frjálsum
milliríkjaviðskiptum og væri það
athyglisvert fyrir okkur íslendinga
með svo tiltölulega einhæfan út-
flutning. Að lokum sagði Davíð
Ólafsson:
Gengis- og gjaldeyrismál voru að
sjálfsögðu mjög ofarlega í hugum
manna á þessum fundi, svo mjög
sem atburðir á gjaldeyrismörkuð-
um heimsins hafa verið í sviðsljós-
inu nú um langt skeið. Innan
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafa þau
mál verið til stöðugrar meðferðar
um árabil og sífellt leitað leiða til
að skapa meiri stöðugleika á mörk-
uðunum. Segja má, að ýmislegt
hafi áunnist í því efni, en mikið er
þar óunnið, enda ekki að búast við
neinum patentlausnum heldur
verður að setja vonir á þrotlaust
starf sérfræðinga og stjórnmála-
manna á vettvangi sjóðsins, á
þessu óhemju flókna sviði.
Bridge
Umsjón« ARNÓR
RAGNARSSON
Sveit Þórarins
Bikarmeistari 1979
Sveit Þórarins Sigþórssonar
sigraði sveit Hjalta Élíassonar í
úrslitaleik um bikarmeistaratit-
ilinn sem fram fór á Hótel
Loftleiðum sl. laugardag. í sveit
Þórarins eru ásamt honum: Óli
Már Guðmundsson, Stefán Guð-
johnsen og Egill Guðjohnsen.
Leikurinn sl. laugardag var
spennandi en ekki að sama skapi
vel spilaður. Sveit Hjalta byrjaði
mjög vel og var komin með yfir
30 punkta forystu eftir 9 spil á
meðan Þórarinn hafði ekki feng-
ið neinn punkt. Eftir 16 spil
hafði Þórarinn náð að rétta sinn
hlut og var staðan þá orðin
38—36 fyrir Þórarin. Sýna þess-
ar tölur vel sviptingarriar í
leiknum. Þegar upp var staðið
hafði Þórarinn 20 punkta yfir og
var þar með sigurvegari.
Leikurinn var sýndur á töflu í
ráðstefnusalnum og voru áhorf-
endur frekar fáir.
Bridgeklúbbur
Akraness
Aðalfundur klúbbsins var
haldinn 27. sept. sl. í Röst. Þar
var kosin ný stjórn og er hún
þannig skipuð:
Einar Gunnarsson formaður,
Guðjón Guðmundsson gjaldkeri
og Ingi Steinar Gunnlaugsson
ritari.
Vetrarstarfið hófst 4. október
með tveggja kvölda einmenn-
ingskeppni sem jafnframt er
firmakeppni félagsins. 36 spilar-
ar komu til leiks og urðu úrslit
þessi:
H.B. og Co.
(Spilari Bjarni Viktorsson) 85
Sjóvá
(Spilari Ólafur G. Ólafsson) 84
S.F.A.
(Spilari Baldur Ólafsson) 83
Heimaskagi
(Spilari Hjalti Hrólfsson) 80
Röst
(Spilari Guðjón Finnbogason)
78
í einmenningskeppninni
urðu úrslit þessi:
Bjarni Guðmundsson 156
Ólafur G. Ólafsson 154
Björn Viktorsson 151
Hörður Jóhannesson 150
Baldur Ólafsson 149
Halldór Sigurbjörnsson 147
Björgvin Bjarnason 142
Hermann Guðmundsson 142
Ingi Steinar Gunnlaugsson 141
Jósef Fransson 140
Meðalárangur 132.
18. október hefst fjögurra
kvölda tvímenningskeppni. Spil-
að verður eins og áður í Röst og
hefst spilamennskan kl. 19.45.
Allir eru velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
Tafl- og bridge-
klúbburinn
Eftir tvær umferðir í tvímenn-
ingskeppninni er staða efstu
para þessi:
Hjörtur — Guðjón 371
Hannes — Páll 363
Þórhallur — Kristján 359
Sigurleifur — Gísli 349
Sigfús — Valur 348
Gunnlaugur — Sigurður 342
Spilað er i tveimur riðlum og
urðu úrslit þessi sl. fimmtudag.
A-riðill:
Rafn Kristjánsson —
Þorsteinn Kristjánsson 206
Þórhallur Þorsteinsson —
Kristján Jónsson 186
Sigurður Ámundason —
Ragnar Óskarsson 179
Sigfús Örn Árnason —
Valur Sigurðsson 178
B-riðill:
Hannes Jónsson —
Páli Valdimarsson 203
Gunnlaugur Óskarsson —
Sigurður Steingrímsson 187
Hjörtur Elíasson —
Guðjón 176
Orwelle Utlay —
Ingvar Hauksson 173
Bridgefélag
Vestmannaeyja
Aðalfundur félagsins var
haldinn nýlega. í stjórn fyrir
næsta starfsár voru kosnir: Sig-
urgeir Jónsson formaður, Gunn-
ar Kristinsson varaformaður,
Leifur Ársælsson ritari, Haukur
Guðjónsson gjaldkeri og Sveinn
Magnússon áhaldavörður.
Þriggja kvölda tvímennings-
keppni hófst s.l. miðvikudag. 14
pör taka þátt í henni og eftir
fyrsta kvöldið er röð þeirra efstu
þannig:
stig
Guðlaugur Gíslason —
Jóhannes Gíslason 210
Anton Bjarnason —
Gunnar Kristinsson 181
Baldur Sigurlásson —
Jónatan Aðalsteinsson 174
Helgi Bergvins —
Oddur Sigurjónsson 167
Magnús Grímsson —
Sigurgeir Jónsson 159
Benedikt Ragnarsson —
Sveinn Magnússon 157
Hilmar Rósmundsson —
Jakobína Guðlaugsdóttir 157
Bridgefélag
Akureyrar
Þegar tveimur umferðum af
þremur er lokið í tvímennings-
keppninni er staða efstu para
þessi:
Magnús Aðalbjörnsson —
Gunnlaugur Guðmundsson 507
Gunnar Sólnes —
Ragnar Steinbergsson Ármann Helgason — 489
Jóhann Helgason Júlíus Thorarensen — 484
Sveinn Sigurgeirsson Jóhann Andersen — 471
Pétur Antonsson 469
Soffía.Guðmundsdóttir —
Ævar Karlsson 467
Páll Jónsson —
Þórarinn B. Jónsson 462
Adam Ingólfsson —
Baldur Árnason 452
Meðalárangur 420.
Hæstu skor í síðustu umferð
fengu Júlíus og Sveinn 287 en
þeir spiluðu í B-riðli.
Síðasta umferðin verður spil-
uð í kvöld en annan þriðjudag
hefst aðalsveitakeppni félagsins.
Undankeppni
Reykjavíkurmóts.
Undankeppni Reykjavíkur-
mótsins í tvímenningi, sem jafn-
framt er undankeppni fyrir
íslandsmótið hófst sl. sunnudag
í Hreyfilshúsinu. 52 pör mættu
til leiks og er spilað í fjórum 14
para riðlum og er ein yfirseta í
öllum riðlum.
Staða efstu para:
Kristján Kristjánsson
— Óskar Friðþjófsson 186
Óli Már Guðmundsson
— Þórarinn Sigþórsson 185
Bragi Hauksson
— Sigríður Kristjánsdóttir 180
Ásgeir Stefánsson
— Hermann Tómasson 180
Ingvar Hauksson
— Orwelle Utlay 176
Hannes Jónsson
— Ágúst Helgason 175
Egill Guðjóhnsen
— Stefán J. Guðjohnesen 175
Guðmundur Pétursson
— Karl Sigurhjartarson 173
Guðmundur Hermannsson —
Sævar Þorbjörnsson 172
Guðlaugur Jóhannsson — Örn
Arnþórsson 172
Georg Sverrisson — Kristján
Blöndal 172
Jón Ásbjörnsson — Ríkarður
Steinbergsson 170
27 efstu pörin keppa ásamt
núverandi Reykjavíkurmeistur-
um Hjalta Elíassyni og Ásmundi
Pálssyni til úrslita um Reykja-
víkurmeistaratitilinn. Um 20 pör
komast áfram í íslandsmótið.
Næst verður spilað á laugar-
daginn í Hreyfilshúsinu og hefst
keppnin stundvíslega kl. 13.