Morgunblaðið - 16.10.1979, Page 37

Morgunblaðið - 16.10.1979, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979 45 .fltl/s. jj VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—11 FRÁ MANUDEGI verðbólguhafsins þar sem hvergi sér til lands. Þegar svo er komið þarf dug- og kjarkmikla forystu ef björgun á að verða möguleg. Vonandi tekst þjóðinni að rata rétta leið í desemberkosningunum, eftir 6—7 vikur, á þessu ári. .þciíar býður þjúðar sðmi þá á ísland cina sál.“ Reykjavík, 15. október 1979. Þorkell Hjaltason. • Slysahætta Eru kaupmenn bótaskyldir ef börn slasast inni í verslunum þeirra? Tilefni þessarar fyrir- spurnar minnar er þetta: Ég versla oft hjá bakara einum í austurborginni. Eins og í mörgum brauðsölum eru brauð til sýnis í glerhillum (til hagræðingar fyrir viðskiptavini). Við þetta fyrir- komulag hef ég ekkert annað að athuga en það, að í viðkomandi brauðsölu er þetta gler brotið á tveim stöðum. Brotið er neðarlega á hillunni og í axlarhæð 5 ára barns. Ég hef tvisvar bent á slysahættuna sem af þessu stafar við afgreiðslufólkið. í fyrra skiptið var afgreiðslustúlkan hjartanlega sammála mér og sagði að það væri „heppni" að enginn hefði skorið sig á þessu. í gær kom ég síðan aftur í sömu brauðgerð (u.þ.b. mánuði seinna), glerið er ennþá brotið og nú á tveim stöðum, einmitt á þeim stað sem krakkar standa venjulega þegar þeir bíða eftir afgreiðslu. Sonur minn sem með mér var studdi sig við skáp- inn og varð þá afgreiðslukonunni að orði. „Ekki koma við skápinn þú getur snert brauðin (í gegnum brotið).“ „Af hverju er þetta ekki lagað," sagði ég þá við hana. „Krakkarnir þurfa ekki endilega að standa svona nálægt," var svarið. „Gerið þið ykkur grein fyrir slysahættunni við að hafa þetta svona?“ „Mér kemur þetta ekkert við,“ sagði hún „og auk þess eru bakarar svo illa launaðir að það er ekki hægt að laga alla skapaða hluti.“ Ef sonur minn hefði skorið sig á umræddu gleri hefði ég orðið að fara upp á slysavarðstofu í leigubíl sem gæti kostað 2000 kr. Síðan borgaði ég 4000 kr. fyrir aðgerðina. Vinnutap mitt gæti verið 3 tímar, það er 6000 kr. og færi ég svo fram á skaðabætur yrði samanlögð upphæð ennþá hærri. Þvi spyr ég: Hvert á fólk að snúa sér ef einhver verður uppvís að þvílíkum trassaskap? Móðir sem vill koma í veg fyrir slys. Velvakandi vill benda bréfritara á að snúa sér til Neytendasamtak- anna eða lögfræðinga sem áreið- anlega geta gefið upplýsingar um hvert hann á að snúa sér og hvaða rétt hann hafi hljóti bréfritari eða barn hans meiðsli af þessu brotna gleri. Þessir hringdu . . . • Gleðileg nýjung að Kjarvals- stöðum Á Kjarvalsstöðum voru fyrir nokkru tvær myndlistarsýningar og boðið uppá leiksýningu að kvöldinu til. Ég dreif mig og sá þessar sýningar og sé ekki eftir því. Norræna sýningin var afar skemmtileg og sérstaka ánægju hafði ég af sýningu Finnans. En það sem vakti mestan áhuga minn var sýning leikmyndateikn- ara. Ég hef aldrei komið í leikhús baksviðs, bara horft á leiksýn- ingar og hef aldrei séð hvernig allir þessir hlutir eru unnir. Það var stórkostlegt að sjá módelin á þessari sýningu, dvergasmíð lista- SKÁK mannanna af heilum leiksviðum, enda voru meðal sýnenda þjóð- kunnir listamenn sem starfað hafa við leikhúsin fjölda ára, og mætti þar nafna Lárus Ingólfsson, Gunnar Bjarnason, Birgi Engil- berts sem allir eru kunnir fyrir störf sín við Þjóðleikhúsið og Steinþór Sigurðsson, sem starfað hefur við Iðnó um árabil. Þóru Kristjánsdóttur þakka ég framtakið og leikmyndateiknur- um skemmtilega sýningu. Herdis Óskarsdóttir, Austurbrún 2, Reykjavík. Umsjón: Margeir Pétursson Á meistaramóti Rússlands í ár kom þessi staða upp í skák þeirra Vorotnikovs, sem hafði hvítt og átti leik, og Mikhails Zeitlin. 51. g6! (Hvítur hótar nú 52. g7 og 51. — fxg6 er ekki mögulegt vegna 52. a7 - Ha2, 53. Hh8! - Hxa7, 54. Hh7+. Svartur reyndi því:) IIc3+. 52. Ke2 - Hc2+, 53. Kd3 - Hc6! (Svartur vonast eftir 54. g7? - Hxh6, 55. g8 — D — Hxa6, 56. Dg5+ — Kf8! og komin er upp fræðileg jafnteflisstaða) 54. a7! — Hd6+, 55. Kc4 og svartur gafst upp. HÖGNI HREKKVÍSI n toerrA pi2 N'*JAt>TA UPPÁHAUO'iÐ- • TÓNFlStó- ^AMWOKA - ’ Væntanleg ferm- ingarbörn 1980 Þessa dagana hafa síðustu fermipgarbörn þessa árs gengið að altarinu og staðfest skírnarheitið. Og nú er verið að kveðja þau börn til fermingarundirbúnings, sem hyggjast gera árið 1980 að ferm- ingarári sínu. Eiga þau börn rétt á fermingu, sem fædd eru árið 1966. En línum þessum fylgja tilkynn- ingar frá prestum Reykjavíkur- prófastsdæmis um það, hvenær þeir biðja börnin um að koma til hins fyrsta viðtals. Fermingarundirbúningurinn hefst með fyrsta tímanum og nota prestar auk kennslubókarinnar nýja testamentið (eða Biblíuna), sálmabók og í sumum tilfellum sérstakar vinnubækur. Þá er lögð á það mikil áherzla að fræðslan sé ekki skilin frá lífæð safnaðarins, þar sem er sunnudagsguðsþjón- ustan. Fermingin verður því að- eins varanleg og grundvallandi fyrir framtíð barnsins, að hún sé tengd söfnuðinum, þar sem náð- armeðul kirkjunnar eru höfð um hönd. Leggur kirkjan því höfuðáh- erzlu á það, að fjölskyldan öll sé virk með fermingarbarninu og stuðli þannig að því, að það fái sem allra mest út úr fermingarár- inu sínu. Tvennt skal tekið fram að lok- um um leið og væntanlegum fermingarbörnum er beðið bless- unar Guðs, en það er í fyrsta lagi, að þau börn, sem eiga að fermast haustið 1980 eiga að koma nú þegar til spurninga, og í öðru lagi, að upplýsingar um sóknarmörk er hægt að fá hjá undirrituðum eða á hagstofunni. . Olafur Skúlason. dómprófastur. Árbæjarprestakall: Væntanleg fermingarbörn í Ár- bæjarprestakalli á árinu 1980 eru beðin að koma í Safnaðarheimili Árbæjarsóknar miðvikudaginn 17. október. Stúlkur komi kl. 18:00 og drengir kl. 18:30 og hafi börnin með sér ritföng. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. Ásprestakall: Fermingarbörn næsta árs, 1980, komi til innritunar og viðtals í Langholtsskóla fimmtudaginn 18. október kl. 4—6 síðd. Sr. Grímur Grímsson. Væntanleg fermingarbörn í Ölduselsskóla mæti til viðtals í skólanum þriðjudaginn 16. októ- ber kl. 5 e.h. og fermingarbörn í Breiðholtsskóla mæti í skólanum föstudaginn 19. október kl. 5 e.h. Sóknarnefnd. Bústaðakirkja: Væntanleg fermingarbörn eru beðin að koma til viðtals í kirkj- unni kl. 6 miðvikudaginn 17. október og hafa með sér ritföng. Sr. Ólafur Skúlason. Digranesprestakall: Þau börn í Digranessöfnuði sem fermast eiga 1980 (vor og haust) eru beðin að koma til innritunar í safnaðarheimilinu Bjarnhólastíg 26 miðvikudaginn 17. október. Börn úr Snælandsskóla komi kl. 4 og börn úr Víghólaskóla kl. 5. Sóknarprestur. Dómkirkjan: Væntanleg fermingarbörn séra Þóris Stephensen eru beðin að koma til viðtals í Dómkirkjunni n.k. fimmtudag 18. október kl. 5 síðd. Börnin hafi með sér ritföng. Væntanleg fermingarbörn sr. Hjalta Guðmundssonar komi föstudaginn 19. október kl. 5 síðd. Fella- og Ilólaprestakall: Væntanleg fermingarbörn komi til skráningar í safnaðarheimilið að Keilufelli 1, föstudaginn 19. október milli kl. 5 og 7 siðd. Sr. Hreinn Hjartarson. Grensáskirkja: Væntanleg fermingarbörn komi til viðtals þriðjudaginn 16. októ- ber milli kl. 5 og 6 í safnaðarheim- ilinu. Sóknarprestur. Ilallgrímskirkja: Væntanleg fermingarbörn í Hallgrímskirkju komi til viðtals í kirkjunni miðvikudaginn 17. okt- óber kl. 6 síðd. Sr. Karl Sigur- björnsson, sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Háteigskirkja: Fermingarbörn í Háteigspresta- kalli vorið 1980 komi til viðtals í Háteigskirkju þriðjudaginn 16. október kl. 6 síðd. og hafi með sér ritföng. Prestarnir. Kársnesprestakall: Væntanleg fermingarbörn sr. Árna Pálssonar komi til viðtals í Kópavogskirkju miðvikudaginn 17. október milli kl. 5 og 6 síðd. Sóknarprestur. Langholtskirkja: Fermingarbörn, vor og haust 1980, sem ætla að sækja undirbún- ingstíma hjá Sig. Hauki Guðjóns- syni, mæti til viðtals í safnaðar- heimilinu við Sólheima föstudag- inn 19. okt. kl. 18:30 (hálf sjö). Sig. Haukur Guðjónsson. Laugarneskirkja: Væntanleg fermingarbörn árs- ins 1980 eru beðin að koma til skráningar í Laugarneskirkju (bakdyr) miðvikudaginn 17. októ- ber kl. 17. Sr. Jón Dalbú Hró- bjartsson. Neskirkja: Vorfermingarbörn Neskirkju árið 1980 eru beðin að mæta í kirkjuna n.k. miðvikudag kl. 3 síðd. Prestarnir. Fríkirkjan í Reykjavík: Þau fermingarbörn, sem ferm- ast eiga næsta vor í Fríkirkjunni, komi til viðtals í kirkjunni fimmtudaginn 18. október kl. 6 síðd. Safnaðarprestur. Óháði Söfnuðurinn: Séra Emil Björnsson biður börn í söfnuðinum, sem ætla að fermast hjá honum, að koma til viðtals í kirkjunni fimmtudaginn 18. októ- ber kl. 17 síðdegis. Islenzk bók um yoga komin út Bókaútgáfan Örn og Öriygur hefur nýlega sent frá sér bók um Hatha Yoga, þá fyrstu, sem skrifuð er fyrir íslenzka lesend- ur. Höfundur hennar er Skúli Magnússon, sem stundað hefur Hatha Yoga um margra ára skeið og hlotið margháttaðar viður- kenningar fyrir hæfni sína á því sviði. Bókin hefur að geyma 12 æf- ingar, rækilega útskýrðar í máli og myndum. Fjölmargar ljós- myndir eru af yogínunni Maríu Einarsdóttur við yoga-æfingar, og ennfremur tugi skýringarteikn- inga, sem Geir Ágústsson hefur gert. Upplag bókarinnar er 1108 tölu- sett og árituð eintök, og er bókin seld á kostnaðarverði. Yogabókin þín er unnin 4 prentstofu G. Benediktssonar og þundiu í Á/.narfelli h:f.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.