Morgunblaðið - 16.10.1979, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 16.10.1979, Blaðsíða 38
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979 Samar aflýsa hungurverkfalli Ósló, 15. október, írá Jan Erik Laure, íréttaritara Mbl. SJÖ Samar, sem verið haía í hungurverkfalli fyrir utan norska þingið frá því á þriðjudag, til að mótmæla framkvæmdum við vatnsorkuveri við Alta-ána í byggð- um þeirra í Finnmörk, aflýstu í dag verkfalli sínu. Ákvörðun sína tóku Samarnir er Odvar Nordli forsætisráðherra tilkynnti að vegagerðarfram- kvæmdum á virkjunarsvæðinu skyldi frestað um sex vikur til að gefa þinginu frest til að kanna stöðu málsins. Nordli sagði, að skýrsla stjórn- arinnar um fyrirhugaða virkjun yrði lögð fyrir þingið innan fárra daga. Lagði Nordli ríka áherslu á að ekki yrði hætt við framkvæmd- irnar, en þingið samþykkti vifkj- unarframkvæmdirnar 30. nóvem- ber í fyrra. Þá var reiknað með að kostnaðurinn við virkjunina yrði um 120 milljónir Banda- ríkjadollarar. Einnig sagði Nordli, að stjórnin hefði fallist á að kanna sérstak- lega rök Sama um eignarétt þeirra á virkjunarlandinu. Spánn: Hr y ð j u ver ka- menn GRAPO handteknir Valencia, Spáni, 15. okt. AP. Lögregluyfirvöld á Spáni skýrðu frá því um helgina að foringi og 19 félagar í GRAPO, skæruiiðasamtökum róttækra vinstrimanna, hefðu verið hand- teknir á Spáni undanfarna daga, en fyrr í sumar höfðu átta eftir- lýstir félagar samtakanna verið handteknir. Foringi samtakanna er Jose Maria Sanchez Casas, og hafði innanríkisráðuneytið heitið tveggja milljóna peseta (11,6 millj. kr.) verðlaunum fyrir upp- lýsingar, er gætu leitt til hand- töku hans. Var Casas handtekinn ásamt eiginkonu sinni i ibúð i borginni Valencia á Miðjarðar- hafsströnd Spánar á laugardag. Að sögn lögreglunnar var Sanchez Casas forsprakki GRAPO og tók sjálfur þátt í sprengjuárás á kaffihús i Madrid í maí í vor, en í þeirri árás lefust átta manns. Hann tók að sögn lögreglunnar einnig þátt í 20 öðrum árásum hryðjuverkamanna, sem urðu um 30 lögreglumönnum að bana. í íbúð Sanchez Casas fundust skotvopn, skotfæri og sprengiefni. Cornfeld sýknaður Gcnf, Sviss. 15. okt. — AP. Reuter. SVISSNESKUR dómstóll sýknaði í dag bandariska fjármálamann- inn Bernard Cornfeld af ákæru um fjársvik. Cornfeld var ásakaður fyrir að hafa selt starfsmönnum sínum hlutabréf í fjárfestingafyrirtæk- inu IOS (Investors Overseas Serv- ices) árið 1969, eftir að ljóst var orðið að gjaldþrot var framundan. Sex karla og sex kvenna kvið- dómur kvað upp úrskurð í málinu. Einnig fannst mikið af vopnum, áróðursbæklingum og sprengiefni hjá felögunum 19, sem handteknir voru, en af þessum 19 voru tíu konur. Öll 19 hafa að sögn lög- reglunnar tekið þátt í morðum, sprengjuárásum og bankaránum. Veður víða um heim Akureyri 1 skýjaö Ameterdam 15 rigning Aþena 29 heióskírt Barcelona 18 skýjaó Berlín 18 heiöskírt Brussel 18 rígning Chicago 15 skýjaó Feneyjar 22 léttskýjaó Frankfurt 15 skýjaó Genf 15 skýjaó Heisínki 12 skýjaö Jerúsalem 26 heióskirt Jóhannesarb. 28 heiöskírt Kaupmannah. 15 skýjaö Las Palmas 25 léttskýjaó Lissabon 20 rigning London 17 heiðskírt Loa Angeies 24 heiðskírt Madrid 14 rigning Malaga 21 skýjað Mallorca 22 skýjaö Míami 28 rigning Moskva 17 heióskírt New York 13 heiöskírt Ósló 9 skýjað París 17 skýjaó Reykjavík 3 léttskýjaó Rio De Janeiro 30 skýjaö Rómaborg 24 heiöskírt Stokkhólmur 10 skýjaó Tel Aviv 27 heiðsklrt Tókýó 24 heiöskírt Vancouver 13 heióskírt Vínarborg 20 skýjaó Frá mótmælaaðgerðum Sama fyrir utan norska þingið. Demirel skorar á Ece vit að far a fr á Ankara. 15. október. AP—Reuter. SULEYMAN Demirei, helzti leið- togi stjórnarandstöðunnar, krafðist þess enn í dag að Bulent Ecevit forsætisráðherra segði af sér í ljósi úrslitanna í aukakosn- ingunum um helgina. í kosning- unum hlaut flokkur Demirels öll sæti neðrideildar sem kosið var um, alls fimm að tölu, og hefur stjórnarandstaðan því fjögurra sæta meirihluta í deildinni, eða 227 sæti á móti 223 sætum stjórnarinnar, en þrjú sæti eru auð vegna þess að þrír þingmenn hafa fallið frá nýlega. Af sætum stjórnarflokkanna hefur vinstri flokkur Ecevits 208 sæti. Leiðtogar annarra stjórnar- andstöðuflokka skoruðu einnig á Ecevit að segja af sér. í sjónvarps- ræðu, er úrslitin voru kunn, sagði Ecevit að stjórnarflokkarnir hefðu beðið hnekki. Hann sagði að stjórnin hefði fengið í arf vanda- mál á við aukin hryðjuverk og meiri háttar efnahagsöngþveiti, er hún kom til valda fyrir 21 mánuði, og hefði goldið þess í kosningun- um. I kosningum til efrideildar þingsins, sem fóru fram samhliða aukakosningum til neðrideildar, hlaut miðflokkur Demirels 33 sæti af 50. Hlaut flokkur hans 47 af hundraði atkvæða við kosningarn- ar til efrideildar, en hefðu al- mennar þingkosningar farið fram hefði sú atkvæðatala nægt flokk hans til að mynda stjórn án þátttöku annarra flokka. Sagði Demirel, sem verið hefur forsætis- ráðherra sex sinnum, að líta mætti á úrslit aukakosninganna sem yfirlýsingu þjóðarinnar um að stjórnin ætti að fara frá. Nóbelsverðlaun í eðlis- og efnafræði Stokkholmi, 15. okt. AP. Reuter. TILKYNNT var í Stokk- hólmi í dag hverjir hlytu Nóbelsverðlaunin í ár fyrir eðlisfræði og efna- fræði. Eðlisfræðiverðlaun- unum skipta með sér tveir Bandaríkjamenn og Pak- istani, en efnafræðiverð- Herkostnaóurinn í heiminum 1977: Kr. 166.000.000.000.000,- Sovétríkin hæst með þridjung upphæðarmnar Washington. 15. okt. — AP. Á árinu 1977 vörðu þjóðir heims alls sem svarar 434 millj- örðum dollara (rúmlega 166 þúsund milljörðum króna) til hernaðar- og varnarmála. Hæst voru útgjöldin hjá Sovétríkjun- um, 140 milljarðar dollara, en Bandaríkin voru í öðru sæti með 101 milljarð dollara. Lætur nærri að Sovétríkin ein hafi notað þriðjung þeirrar upphæð- ar, sem notuð var í heiminum til hernaðarþarfa það árið. Kemur þetta fram i skýrslu bandariskra stjórnvalda, sem birt var i Washington á laugar- dag. I skýrslunni kemur einnig fram, að hernaðarútgjöld Bandaríkjanna minnkuðu lítill- ega miðað við kaupgetu dollars á árunum 1973 til 1977, en útgjöld Sovétríkjanna jukust hins vegar á sama tíma um 3% á ári. Á árinu 1977 var Kína með þriðju hæstu hernaðarútgjöldin, eða 35 milljarða dollara, þá kom Vestur-Þýzkaland með 16,3 milljarða og í fimmta sæti Frakkland með 14,8 milljarða dollara. í heild er niðurstaðan sú að heildarútgjöld NATO-ríkja og ríkja Varsjárbandalagsins voru nokkurn veginn jöfn. NATO- ríkin vörðu 154,7 milljörðum dollara til þessara mála, eða 4,5% af þjóðarframleiðslu aðild- arríkjanna, en Varsjárbanda- lagsríkin 163 milljörðum, sem eru 11,7% af þjóðarframleiðsl- unni. launin hljóta Bandaríkja- maður og Vestur-Þjóð- verji. Eðlisfræðiverðlaunin hljóta prófessorarnir Sheldon L. Glash- ow og Steven Weinberg, sem báðir eru 46 ára og starfa við Harvard- háskóla, og Abuds Salam frá Pakistan, en hann er starfandi eðlisfræðingur í London og Trieste á Ítalíu. Hljóta þeir verðlaunin fyrir rannsóknir á eðli frumeind- anna og þeirri orku, sem heldur þeim saman. Efnafræðiverðlaunin hljóta Herbert C. Brown prófessor við Purdueháskóla í Indiana og Georg Wittig við háskólann í Heidelberg í Vestur-Þýzkalandi fyrir þróun á aðferðum til framleiðslu á lífræn- um efnasamböndum. í fyrri viku var skýrt frá úthlutun Nóbelsverðlauna í lækn- isfræði, og hlutu þau Bandaríkja- maðurinn og eðlisfræðingurinn Alan McLeod Cormack og brezki verkfræðingurinn Godfrey New- bold Hounsfield fyrir þróun tölvu- vædds röntgen-leitartækis. Af þeim sjö vísindamönnum, sem hljóta Nóbelsverðlaun í ár, eru því fjórir bandarískir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.