Morgunblaðið - 16.10.1979, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 16.10.1979, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1979 47 Kúrdar rændu sendi- manni íransstjórnar Tókýó, 15. október. AP. KÚRDAR rændu háttsettum embættismanni í bænum Maha- bad í norðvesturhluta írans á föstudag. samkvæmt frásögn kinversku fréttastofunnar Hsin- hua á sunnudag. Embættismanninum, Sadeq Zi- bakalam sendifulltrúa Mehdi Baz- argans forsætisráðherra, var rænt er áhlaup var gert á skrifstofur borgarstjóra. Hsinhua sagði einnig að skæru- liðar Kúrda hefðu samdægurs gert áhlaup á lögreglustöðina í Maha- nad og fellt þar lögreglustjórann og þrjá aðra. Þá sagði fréttastofan að trúar- leiðtoginn Ayatollah Ahmad Abb- assi hefði horfið á síðustu dögum og væri allt á huldu með afdrif hans. Allar skrifstofur, skólar og verzlanir í Mahabad Kúrda í Kermanshahhéraði á laugardags- kvöld. í átökunum féllu fjórir Kúrdar og sex Kúrdar og tíu lögreglumenn særðust. Einnig sló í brýnu milli her- manna og óbreyttra í borginni Fjölmennt á fundi í Bonn Bonn. 15. október. AP. UM hundrað þúsund manns efndu til fundar í Bonn þar sem mót- mælt var áætlunum stjórnvalda um byggingu kjarnorkuvera. Fundurinn, sem fram fór í Hof- garten-garðinum í miðborg Bonn, fór friðsamlega fram, en auk Þjóðverja voru þar saman komnir hópar andstæðinga kjarnorkuvera frá Hollandi, Belgíu, Frakklandi, Sviss, Austurríki og Norðurlönd- Zahedan í Baluchistan-héraði í suðurhluta írans á laugardag. Atökin brutust út er ein samtök múhameðstrúarmanna ákváðu að draga sig út úr borgarstjórnar- kosningum sem fram fóru á föstu- dag. Hjálpargögn til Kambódíu án samþykkis valdhaf a Bangkok. 15. október. AP. FYRSTU flugvélarnar ferjuðu í dag hjálpargögn til sveltandi Kambódíu- manna án þess að valdhaf- ar í Phnom Penh hefðu veitt samþykki sitt fyrir flutningunum. Fulltrúar hjálparstofnana töldu í dag að þrátt fyrir flutninga væri ólíklegt að koma mætti í veg fyrir hungursneyð í Kambódíu, en 55 smálestir af matvælum og lyfjum voru fluttar þangað með flugvél- unum tveimur. Talið er að flytja þyrfti 900 smálestir af hjálpar- gögnum til landsins á degi hverj- um til að forða fólki frá hungur- dauða. Samkvæmt frásögnum thai- lenzkra hermanna gerðu Víetnam- ar árásir á búðir flóttamanna skammt innan landamæra Thai- lands í dag. p;mm fióttamenn hefðu fallið og tólf særst. Um 34.000 flóttamenn hafa komið til búðanna síðustu daga frá Kambó- díu og vegna aðgerða Víetnama, sem styðja stjórn Heng Samrins í Phnom Penh, hafa Thailendingar eflt heri sína við landamærin í dag og gær. Flóttamenn á leið frá Kambódiu til Thailands HM íbridge: Naum for- ysta Banda- ríkjamanna Ríó de Janeró, 15. okl. ÍTALIR unnu Bandaríkja- menn í 11. umferð heimsmeist- aramótsins í bridge með 15 stigum gegn 5, en þessar sveitir eru taldar líklegar til að heyja einvígi um heims- meistaratitilinn að undan- keppni lokinni. Alls verða spilaðar 15 umferðir og að loknum 11 umferðum eru Bandarikin efst með 125 stig, ítalir hafa 123'/2 stig og Ástra- lía fylgir þeim eins og skugg- inn með 117 stig. í elleftu umferð töpuðu Ástralíumenn 9—11 gegn Brazilíu og Mið-Ameríka vann Taiwan 11—9. Mið-Ameríka hefir fengið 89 stig, Brazilía 66 stig og Taiwan hefir 63 V2 stig. Sænskir kommar Anwar Sadat forseti Egyptalands fylgist með hersýningu í Kairó 6. október síðastliðinn. Sýningin var haldin til að minnast Októbers- stríðsins við ísraela 1973. styrktir frá Moskvu MÁLGAGN sænskra maóista birti nýverið grein þar sem sagt var, að sænski kommúnistaflokkurinn, VPK, hefði þegið fjárframlög í ýmsu formi frá Sovétmönnum. Greinin, sem var nákvæm í smáatriðum um það hvernig peningar streyma frá Moskvu til VPK, olli mikilli ringulreið í höfuðstöðvum VPK. í greininni kom fram, að félags- gjöld í VPK eru í heildina fjórum sinnum lægri en þær tekjur sem flokkurinn hefur af prentun fyrir sovézka sendiráðið í Stokkhólmi. Sendiráðið lætur prenta áróðurs- rit, Fréttir frá Sovétríkjunum, sem kemur út 38 sinnum á ári í 13,500 eintaka upplagi hverju sinni, í prentsmiðju flokksins, AB Vástermalm. Prentun fyrir sendi- ráðið nemur fimmtungi tekna prentsmiðjunnar, en þar er prent- að, auk Frétta frá Sovétríkjunum, tímarit á sænsku, sem ritstýrt er af sovézkum embættismanni í Prag og kemur út fjórum sinnum á ári. Áætlað er að tekjur prentsmiðjunnar vegna prentunar þessara tímarita séu jafnvirði 75—80 milljóna íslenzkra króna. Þá er því einnig haldið fram, að Sovétmenn hafi hjálpað VPK og ýmsum einstaklingum úr innsta hring flokksins við að setja á stofn inn- og útflutningsfyrirtæki er Tvö þúsund lögreglu menn gættu Castros sem nú er f arinn frá N ew Y ork New York, 15. okt. — AP, Reuter FIDEL Castro forseti Kúbu hélt flugleiðis frá New York í dögun á sunnudag að lokinni rúm- lega þriggja sólarhringa heimsókn til Bandaríkj- anna, þar sem hann meðal annars ávarpaði Allsherj- arþing Sþ og ræddi við bandaríska þingmenn úr hópi blökkumanna og þrjá menn frá Puerto Rico, sem nýlega voru látnir lausir úr bandarískum fangels- um. Þetta var fyrsta heimsókn Castros til Bandaríkjanna í 19 ár, og sjaldan eða aldrei hefur verið meiru til kostað við að gæta öryggis erlends þjóðhöfðingja, sem heimsækir New York. Tvö þúsund lögreglumenn höfðu það eitt verkefni að gæta öryggis Castros, og einnig tóku starfs- menn öryggisþjónustunnar þátt í gæzlunni. Mikið var um hópfundi í New York meðan Castro dvaldist þar, bæði til að mótmæla og fagna komu hans. Stórt svæði í nánd við bústað kúbönsku sendinefndar- innar í New York var afgirt og lokað umferð, og þangað fengu þeir einir að koma, sem áttu brýnt erindi. í ræðu sinni hjá Sameinuðu þjóðunum hvatti Castro aðild- arríkin eindregið til að verja 25 milljörðum dollara árlega til að draga úr mismuninum á kjörum ríkra þjóða og fátækra, og kvaðst hann vera talsmaður þeirra 95 þjóða, sem stofnað hafa svonefnd samtök óháðra ríkja. verzluðu með sovézkan varning svo að fela mætti fyrir lögum rússneskan fjárstuðning. Bent var á, að fyrrverandi ritari VPK, Urban Karlsson, hefði sett á laggirnar innflutningsfyrirtæki er sérhæfði sig í innflutningi sovezkra leikfanga og annars neytendavarnings. Varningur verzlunarinnar hefði venjulegast verið notaður sem verðlaun í happdrættum flokksins. Ungl- ingadeild VPK, Kommunistisk Ungdom, hefur nú yfirtekið fyrir- tæki Karlssons, og nefnist það nú Kominköp. Samkvæmt skatt- framtölum voru tekjur þess á árinu 1977 jafnvirði 25 milljóna íslenzkra króna. Ennfremur sagði í greininni, að til Moskvu væri stöðugur straum- ur félaga í VPK. Þeir færu þangað ýmist sem gestir sovézkra stjórn- valda eða í hópferðum sem væru niðurgreiddar að verulegu leyti. Annar kommúnistaflokkur, Arbetarepartiet Kommunisterna (APK), var myndaður er margir félaga VPK klufu sig út úr VPK á þeirri forsendu, að leiðtogar flokksins væru harðir stalínistar. Sagði í málgagni maóista, að APK hefði enn meiri tekjur af verzlun við Austur-Evrópu en VPK. Ræki flokkurinn stóra verzlun við Jac- obsgatan í Stokkhólmi er sérhæfði sig í austur-evrópskum varningi. Þá hefur Knut Tell, fulltrúi í framkvæmdastjórn APK, auðgast mjög á fyrirtæki sínu, Tellimpex, semsérhæfir sig í innflutningi pólskra og rúmenskra húsgagna. Börn réðu útvarpi Stokkhólmi. 15. októbcr. AP. ÚTVARPSRÁÐ sænska út- varpsins afhenti 700 barna hópi öll völd á þremur rásum stöðv- arinnar á laugardag í tilefni barnaárs. Allan daginn dundi popptónlist á rásunum þremur og inn á milli voru umræðuþætt- ir þar sem börnin fjölluðu um vandamál barna og unglinga. Honecker reynir að fáfundmeð Schmidt Castro í New York Ncw York, 15. okt. AP LEONID Brezhnev leiðtogi Sovét- ríkjanna hefur farið þess á leit við Erich Honecker leiðtoga Austur-Þýzkalands að sá síðar- nefndi leitist eftir fundi með Helmut Schmidt kanslara Vest- ur-Þýzkalands í þeim tilgangi að fá Schmidt ofan af hugmyndum um aukningu kjarnorkuvopna á v-þýzkri grund í framhaldi af fækkun í herjum Sovétmanna í Austur-Evrópu, að því er tímarit- ið Newsweek skýrir frá i nýjasta tölublaði. Newsweek hefur þessar fregnir eftir diplómötum í Bonn og segir að boð Honeckers muni koma Schmidt í klípu þar sem hann vilji ekki eiga það á hættu að verða sakaður um þjónkun við Austan- tjaldsþjóðir vegna þeirra kosninga sem framundan eru í V-Þýzka- landi. Newsweek segir að tilgangur Brezhnevs og Honeckers sé aug- ljós. Þeir ætli sér að pína Schmidt til að beita sér fyrir því að kjarnorkuvopnum verði ekki fjöl- gað í V-Þýzkalandi. Segir tímarit- ið að mjög ólíklegt sé að Schmidt fallist á málamiðlunarhugmyndir af þessu tagi, ef hann á annað borð hittir Honecker, þar sem Vestur-Þýzkaland mundi þá í raun vera að kljúfa sig frá NATO.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.