Morgunblaðið - 16.10.1979, Page 40
Síminn á afgreiöslunm er
83033
Jdvroitnblnbib
á ritstjórn og skrifstofu:
10100
JMvrgunbUtbib
ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTOBER 1979
Minnihlutast jórn Alþýðuflokks skipuð í gær:
Þíngrof og kosningar
2. og 3. desember
Á RÍKISRÁÐSFUNDI í gær var skipuö ný ríkisstjórn,
minnihlutastjórn Alþýðuflokksins. Á þeim sama fundi var
jafnframt gefið út forsetabréf um þingrof ok forsetabréf um
umboð til forsætisráðherra til þess að rjúfa Álþingi og annað
um almennar þingkosningar 1979.
Benedikt Gröndal, sem skipaður var forsætisráðherra nýju
ríkisstjórnarinnar. sagði í lok fundarins, að hann reiknaði
með að rikisstjórnin yrði heldur aðgerðalítil. enda tilgangur-
inn mcð myndun hennar aðallega sá að þing yrði rofið og efnt
til nýrra kosninga. Ilann sagði einnig. að þingrof færi að
öllum líkindum fram í dag og að kosningar væru ákveðnar 2.
og 3. des. n.k.
Benedikt Gröndal var einnig
skipaður utanríkisráðherra.
Að öðru leyti er ríkisstjórnin
þannig skipuð: Kjartan Jó-
hannsson sjávarútvegs- og
viðskiptaráðherra, Magnús H.
Magnússon félagsmála-, heil-
brigðis-, trygginga- og sam-
gönguráðherra, Bragi Sigur-
jónsson landbúnaðarráðherra,
Sighvatur Björgvinsson fjár-
málaráðherra og Vilmundur
Gylfason dóms-, kirkju- og
menntamálaráðherra.
Nýju ráðherrarnir voru
yfirleitt á einu máli um það í
lok ríkisráðsfundarins að
Benedikt var að því spurður
hvernig ríkisstjórnin myndi
standa að afgreiðslu þeirra
bráðabirgðalaga, sem nú bíða
afgreiðslu Alþingis. Hann
sagði að hún myndi væntan-
lega endurnýja þau. í launa-
og kjaramálum sagði Benedikt
að hin nýja stjórn hefði fullan
hug á að leiðrétta hag hinna
lægst launuðu, hvernig það
yrði gert yrði að koma í ljós
síðar.
Leiöuhflar
helstu afgreiðslumál hinnar
nýju ríkisstjórnar yrðu mál-
efni, sem fást þyrfti við frá
degi til dags. Hún myndi ekki
taka neinar veigamiklar
ákvarðanir.
Líkamsárás í
Pósthússtræti:
Saumuð 20 spor
eftir barsmíðar
TVEIR menn voru í gær úrskurð-
aðir í gæzluvarðhald fyrir
likamsárás og rán. Um klukkan
15 á laugardag var ráðist á mann
í Pósthússtræti i Reykjavík, hann
rændur veski sínu og honum
veittir áverkar. Við aðgerð á
hofði hans varð að sauma 20 spor.
Um kvöldið náðust tveir menn og
voru þeir í gær úrskurðaðir í
gæzluvarðhald til 24. október og
er nú að sögn Þóris Oddssonar
unnið að rannsókn máls þessa.
Leigubflar
hækka um
17,3%ídag
GJALDSKRÁR leigubifreiða
hækka frá og með deginum í
dag um 17,3% að sögn Georgs
Olafssonar verðlagsstjóra.
Við þessa hækkun breytist
svokallað „startgjald“ úr eitt
þúsund krónum í 1173 krón-
ur.
Gjaldið fyrir hverja klukku-
stund án „startgjaldsins"
hækkar úr 3751 krónu í 4400
krónur sé ekið að degi til og
gjaldið á ekinn kílómetra
hækkar úr 121,18 krónum í
142,14 krónur.
Sé hins vegar ekið að nætur-
lagi hækkar gjaldið fyrir ekinn
kílómetra úr 181,77 krónum í
213,22 krónur, en gjaldið fyrir
hverja klukkustund er það
sama og ef ekið er að degi til,
þ.e. hækkar úr 3751 krónu í
4400 krónur.
Dæmdur í 16
ára fangelsi
KVEÐINN hefur verið upp í Sakadómi Reykjavikur dómur í máli
ákæruvaldsins gegn Þráni Hleinari Kristjánssyni, sem gefið er að sök
að hafa orðið Svavari Guðmundssyni að bana hinn 1. apríl sl. í húsinu
nr. 34 við Hverfisgötu i Reykjavík.
Viðurkenndi Þráinn við yfir-
heyrslur að hafa orðið Svavari að
bana með hnífi, en miklir áverkar
voru á líkinu, stungur á kviði, síðu
og hálsi og var hann talinn hafa
látist mjög fljótlega.
greiða málskostnað. Dóminn kvað
upp Halldór Þorbjörnsson saka-
dómari. Verjandi ákærða var Örn
Clausen og sækjandi fyrir hönd
ákæruvaldsins Bragi Steinarsson
vararíkissaksóknari. Gæsluvarð-
haldsvist hins ákærða frá 1. apríl
Þráinn Hleinar Kristjánsson
var dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir
að hafa orðið Svavari að bana og
var hann jafnframt dæmdur til að
sl. kemur til frádráttar. Dóminum
hefur þegar verið áfrýjað svo sem
skylda er til um dóma sern lengri
eru en 5 ára fangelsun.
Minnihlutastjórn Alþýðuflokks, sem skipuð var í gær. Talið frá vinstri: Bragi Sigurjónsson, Kjartan
Jóhannesson, Vilmundur Gylfason, Benedikt Gröndal. Magnús H. Magnússon og Sighvatur Björgvinsson.
Ljósm. Kristján
Geir Hallgrímsson um kjör þeirra lægst launuðu:
„Sjálfstæðismenn krefjast
leiðréttingar áyerðbótum,,
SAMKVÆMT efnahagslögum
fráfarandi vinstri stjórnar
áttu hinir lægst launuðu að fá
„Mun ekki
afhenda
Vilmundi
lyklana”
— sagði Steingrímur
„ÉG MUN ekki afhenda Vil-
mundi lyklana að dómsmála-
ráðuneytinu — það verða aðr-
ir að sjá um,“ sagði Steingrím-
ur Hermannsson á tröppum
forsetasetursins að Bessa-
stöðum í gær.
Fráfarandi ráðherrar voru
að því spurðir, er þeir komu af
síðasta ríkisráðsfundi ríkis-
stjórnar sinnar, hvenær þeir
myndu afhenda nýju ráðherr-
unum lyklana að ráðuneytun-
um. Þeir svöruðu því til að það
yrði gert árla dags í dag og
Steingrímur bætti þessu við.
9% verðbætur á laun 1. des.
n.k. á sama tíma og hærra
launaðir áttu að fá 11%. í
hádegisverðarboði Magnúsar
H. Magnússonar félagsmála-
ráðherra fyrir fulltrúa á
Verkamannasambandsþingi á
Akureyri s.l. sunnudag til-
kynnti Magnús að samkomu-
lag væri um að breyta lögun-
um þannig að hinir lægra
launuðu fengju jafnháa pró-
sentutölu og aðrir. Fulltrúar
á Verkamannasambandsþingi
höfðu þá á orði að Sjálfstæðis-
flokkinn hefði þurft inn í
myndina til þess að fá þessa
leiðréttingu, en þetta atriði
mun hafa verið rætt manna á
milli þegar fjallað var um
brýnustu atriði í stjórn lands-
ins á næstu vikum. Morgun-
Ilornafjöröur. 15. október.
MJÖG lítil síldveiði hefur verið
hér í dag og í gær, síldin hefur
legið alveg við botninn vegna
þess hversu mikið tunglskin hef-
ur verið. Það er þó ljóst að mikil
síld er i sjónum.
Tungufoss hefur verið að lesta
hér 6 þúsund tunnur af síld fyrir
Finnlandsmarkað og er það fyrsta
síldin sem fer í útflutning á
þessari vertíð. í því sambandi má
blaðið innti Geir Hall-
grímsson formann Sjálfstæð-
isflokksins eftir þessu atriði.
„Ekkert samkomulag var
gert um eitt eða neitt málefni
við Alþýðuflokkinn, en varð-
andi þetta atriði var um slíkan
galla að ræða í efnahagslögum
vinstri stjórnarinnar, eins og
við sjálfstæðismenn bentum á
í vor, að það hlaut að þurfa að
lagfæra þetta. Við sjálfstæð-
ismenn erum sjálfum okkur
samkvæmir og teljum engan
veginn verjandi að þeir lægra
launuðu fái lægri verðbætur 1.
des. en hinir hærra launuðu.
Þeim sem bera ábyrgð á
þvílíkum mistökum ber skylda
til að leiðrétta mistökin. Sjálf-
stæðismenn gera kröfu til
þess.“
geta þess, að væntanlegt er tunnu-
skip að utan innan skamms með
30 þúsund tunnur.
Ný tölvuvog var tekin hér í
notkun í fyrradag og væntum við
þess sérstaklega að hún muni
koma að góðum notum í sambandi
við vigtun á síldinni, því með
tilkomu hennar verður síldin vigt-
uð strax, en ekki löngu eftir að
hún hefur verið söltuð.
— Einar.
Hornafjördur:
Lítil síldveidi
vegna tunglskins