Morgunblaðið - 23.03.1980, Side 3

Morgunblaðið - 23.03.1980, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. MARZ 1980 35 og sýna þeim umburðarlyndi, jafnvel þótt þeim verði stundum á einhver mistök. Við vitum að börn hegða sér oft hugsunarlaust því gerðir þeirra vilja stjórnast af skyndilegum utanaðkomandi áhrifum. Þegar þau eru að leik gera þau sér ekki grein fyrir þeirri hættu sem þau stofna sér í með því að hlaupa skyndilega út á akbraut eða veg. Þekking þeirra á umferðarreglum er af skornum skammti. Aðrir verða því að hafa vit fyrir þeim og vernda þau fyrir hættum sem þau skynja ekki. Á sama hátt lendir eldra fólk stundum í erfiðleikum í umferð- inni, og stafar það oft af því að sjón þess, heyrn og viðbragðsflýti hefur hrakað. Því finnst það hjálparvana og bjargarlaust. Um- hyggja og varkárni ökumanns er fólgin í því að sýna þeim þolin- mæði sem bregðast rangt við, og að notfæra sér ekki að vera sterkari aðilinn í umferðinni. Ég held því hiklaust fram að aukin gagnkvæm tillitssemi í um- ferðinni geti komið í veg fyrir slys. Reynslan sýnir okkur að þau gera ekki boð á undan sér og geta hent hvern sem er. Meira að segja þig sem ert talsmaður aukinnar til- litssemi í umferðinni. Það verður því að teljast eðlileg tillitssemi af þinni hálfu gagnvart ástvinum þínum að þú gerir allt sem í þínu valdi stendur til þess að forða þér og þeim frá slysum, og sýnir jafnframt öðrum vegfarendum slíkt viðmót. Gangi þér allt í haginn í þessari nýju stöðu þinni. óli H. Þórðarson framkvstj. Umferðarráðs. Óli H. Þórðarson: Laus staða Vilt þú gerast talsmaður aukinn- ar tillitssemi í umferðinni? öryggiskennd innan bifreiðar sinnar, sem hlífir honum. Einmitt þess vegna verður hann að taka fullt tillit til óvarinna vegfarenda starf núna vegna þess að nýbyrjuð vika er einmitt umferðarvika þjóðþrifasamtakanna Slysavarna- félags íslands. Út af fyrir sig felst heilmikil tillitssemi í því að samtök eins og Slysavarnafélagið skuli bjóða fram krafta sina um allt land í þágu aukins umferðaröryggis. Það er þakkarvert framtak. En ég ætla nú að benda þér á örfá atriði sem gætu reynst þér vel í málflutningi þínum sem talsmaður aukinnar tillitssemi í umferðinni. Á sama hátt og í leikjum og íþróttum verða að gilda ákveðnar reglur m.a. til þess að vernda keppendur í hita leiksins, höfum við sett okkur reglur í umferðinni sem í daglegu tali nefnast umferð- arlög. Markmið þeirra er fyrst og fermst að fyrirbyggja slys. Ennfremur að auðvelda vegfar- endum að komast óhappalaust leiðar sinnar. í orðinu „tillitssemi" er innifal- in grundvallarreglan fyrir allri framkomu eins vegfaranda í ann- ars garð. Umferðin er í eðli sínu samspil fjölmargra aðila. Það má að vissu leyti líkja henni við félagsvist. Slíkt spil getur ekki gengið vel fyrir sig nema allir þátttakendur leggi sitt af mörkum til heildarinnar. Nákvæmlega á sama hátt ber ökumanni að halda sér í takt við umferðina. Honum ber að hleypa fram hjá sér þeim sem hraðar fara, og vera ávallt reiðubúinn til hjálpar við lausn þess vanda sem jafnan kemur upp í umferðinni. Oft reynir á umburðarlyndi hans, því öðrum vegfarendum verða einnig stundum á mistök. Þá V/ŒZLUNfiRBflNKINN Spyrjið um Safnlánið og fáið bækling í afgreiðslum bankans: BANKASTRÆTI 5, LAUGAVEGI172, ARNARBAKKA 2, UMFERÐARMIÐSTÖÐ, GRENSÁSVEGI13 og VATNSNESVEGI 14, KEFL. (AÁUÐ/ Ef svar þitt er jákvætt þykist ég vita að þig mun ekki skorta áheyrendur. Fólk hefur nefnilega talsverðan áhuga á umferðarmál- um og ræðir oft um þau á svipaðan hátt og um veðurfarið. Én hvernig væri umferðin ef allir höguðu sér í henni eins og þú? Hefur þú lesandi góður nokk- urn tíma hugleitt þessa spurningu og hvert svar þitt við henni er? Þessi svokallaða umferð, sem okkur hættir til að hallmæla og finna allt til foráttu, er nú þegar grannt er skoðað ekkert annað en við sjálf á ferðinni. Við — það er ég, þú og þau hin. Ég leyfi mér að snúa mér beint til þín í trausti þess að þú sért maðurinn sem getur haft áhrif á fjölskyldu þína og vinnufélaga. Mig langar nefnilega til þess að biðja þig að taka að þér ákveðið embætti í þágu íslensku þjóðar- innar: Að verða talsmaður auk- innar tillitssemi í umferðinni hér á landi. Samþykkt? Já, auðvitað. Þetta mátti ég vita. E.t.v. hefur þú þegar starfað í anda þessa „nýja“ starfs í áraraðir og þarft engu að breyta í fari þínu né framkomu. Kannski ætlarðu fyrir áeggjan mína að hefja starfið frá og með þessari stundu. Hvort sem er býð ég þig velkominn til starfa. Heill og hamingja fylgi þér í því. Það er þægilegt að hefja þetta ofmetur reyndur ökumaður ekki aksturshæfni sína, og tekur aldrei áhættu að óþörfu. Umhyggja og varkárni ætti að einkenna allt viðmót sérhvers vegfaranda, og sérstaklega fram- komu bifreiðarstjóra gagnvart óvörðum vegfarendum. Fótgang- endur, börn, aldrað fólk og bækl- að, hjólreiðamenn og ökumenn vélhjóla og bifhjóla eru í sérstak- lega mikilli hættu í umferðinni. Ökumaður bifreiðar hefur vissa gerir ráð fyrir 100 þúsund kr. hámarkssparnaði á mánuði. Þú ræður sparnaðarupphæðinni upp að því marki. Sparnaðartíminn er frá 3 mán. upp í 48 mán. í þriggja mánaða tímabilum. Þú velur þann tíma og upphæð sem þú ræður við. Þannig öðlast þú lánsrétt á upphæð sem er jafn há þeirri sem þú hefur safnað. Einfaldara getur það ekki verið. SAFMAR -VIÐ LANUM AUGLYSINGASTOFA KfllSTlNAR 4324

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.