Morgunblaðið - 16.04.1980, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 16.04.1980, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. APRIL 1980 Andvígur þessu verkfalli sjómanna „Ég er algjörlega andvígur þessu verkfalli sjómanna," sagði Matthías Vilhjáimsson, bílstjóri hjá Norður- tanganum, í samtali við blaðamann á ísafirði. „Ég myndi með glöðu geði skipta á starfi og fara á sjóinn. Þiggja þau laun fyrir þá vinnu, sem sjómenn leggja fram. Þessir menn hafa verið meðal tekjuhæstu manna á landinu og það er engan veginn tímabært fyrir þá að vera í verkfalli nú. Ef þetta verkfall dregst á langinn, þá er viðbúið að maður missi vinnuna og það er auðvitað afleitt. Ég má illa við því — ég stend í byggingu." Ekki ástæða að fara í verkfall nú Mér finnast sjómenn hafa það miklar tekjur, að ekki sé ástæða fyrir þá að fara í verkfall nú,“ sagði Bryndís Bragadóttir en hún var ein fjölmargra sem hafa látið skrá sig á atvinnuleysisskrá vegna hráefn- isskorts í frystihúsunum á Isafirði. „Það er ákaflega slæmt að vera sagt upp störfum með jafn stuttum fyrirvara og raun var á. Hitt er svo, að eins og málum er háttað, þá finnst mér samstöðuleysi sjómanna ákaflega slæmt — þeir ættu allir sem einn að standa saman, — að öðrum kosti ættu þeir ekki að vera í verkfalli. En ég held að þetta mál sé orðið svo pólitískt, að erfiðara verði að ná samkomulagi fyrir vikið. Anzi hart að missa vinnuna „Ég lét skrá mig á atvinnuleys- isskrá í dag og fæ eitthvað um 4 þúsund krónur á dag og 750 krónur með barni," sagði Sigríður Braga- dóttir en hún er einstæð móðir á Isafirði. Hvernig ferðu að því að lifa af þessu fé? „Ég veit það ekki — hreint út sagt. Það er anzi hart, að missa svona vinnuna. Ég vil ekki leggja mat á hvort rétt sé eða rangt af sjómönnum að fara í verkfall en það er anzi hart af útgerðarmönnum að vilja ekki við þá ræða. Hefðu þeir rætt við sjómenn, þá hefði þessi harka ekki hlaupið í verkfallið. Þá finnst mér samstöðuleysi sjómanna á Vest- fjörðum ákaflega slæmt — annað- hvort áttu þeir allir að fara í verkfali eða enginn. Ef sjómenn hefðu verið samtaka, þá hefði það skapað neiri þrýsting og samkomu- lag sennilega í augsýn." I>egar grannt er skoðað þá eru tekjur sjómanna ekki miklar „Ég heid, að þegar málin séu skoðuð ofan í kjölinn, þá séu tekjur sjómanna hér ekki svo miklar. Það er aldrei stoppað meira en 24 klukkutíma, þrisvar á mánuði. Kristján Ragnarsson sagði að sjó- menn hefðu 19 milljónir króna í tekjur á ári — ef svo er, þá á hann við 12 stunda vinnu, 365 daga á ári. Það gera 4 þúsund krónur á tímann. Ég er anzi hræddur um, að slæg- ingarmönnum í landi þætti það heldur lítið, og þegar allt kemur til alls, þá eru þeir einu mennirnir sem við getum miðað okkur við,“ sagði Ingvar Anton Ingvarsson, háseti á skuttogaranum Guðbjarti í samtali við blaðamann Mbl. á ísafirði. „Mér finnst verkfall okkar sjó- manna réttlætismál og sú gagnrýni, sem fram hefur komið, ekki rétt- mæt. Kristján Ragnarsson sagði, að meðaltekjur sjómanna væru 19 milljónir og skilst mér að hann hafi fengið þá tölu með því að gera ráð fyrir að sjómaður vinni 365 daga ársins — en sá sjómaður færi ekki á sjóinn eftir slíkt úthald. Hann færi beint á Klepp. Ein af meginkröfum okkar er að fá frítt fæði. Þegar ég var á Isafjarðartogurunum Sól- björgu og ísbjörgu fyrir 25 árum, þá var frítt fæði. Eins krefjumst við að fá greiðslu fyrir vinnu á frívökt- um. Þetta er gert á stóru togurun- um,“ sagði Ingvar Anton ennfrem- ur. Höf um há laun — en við vinnum mikið „Ég mótmæli því ekki, að við höfum há laun, en við vinnum líka mikið," sagði Jens Jónsson, mat- sveinn á Guðbjarti, í samtali við blaðamann Mbl. á ísafirði. „Við sjómenn erum langtímum saman fjarri fjölskyldum okkar. Við verð- um að fórna félagslífi vegna at- Amalía Manfreðsdóttir ásamt syni sinum Ásbirni. Ekki ástæða til hörku „Ég er ánægður með samkomu- lagið. Eins og málum var háttað var ekki ástæða til hörku, síður en svo,“ sagði Jón Sigurgeirsson, háseti á Hugrúnu frá Bolungarvík, afla- hæsta línubátnum á Vestfjörðum. „Með þá samninga, sem voru í höfn, þá var ekki ástæða til verkfalla. Á fundum hér var svo til einróma samþykkt að fara ekki í verkfall," sagði Jón ennfremur. Ánægður með kjörin „Ég er ánægður með þau kjör, sem við höfum náð með þessu samkomulagi og því var ekki ástæða til að fara í verkfall, að mínu mati,“ sagði Þórður Bjarna- son, háseti á línubátnum Jakobi Valgeir frá Bolungarvík. „Það er svo rétt, að við höfum haft betri skipahlut en sjómenn á ísafirði, í vetur allavega. Mitt mat er, að landverkafólk hefði haft betri ástæðu til að fara í verkfall en togarasjómennirnir, sem eru há- tekjumenn," sagði Þórður ennfrem- ur. Mér fannst þessi böggull ekki það stór, að hann væri þess virði að semja um „Mér fannst þessi böggull ekki það stór, að hann væri þess virði að ísfirðingar Brvndís (framar á myndinni) og Sigrfður Bragadætur. Jens Jónsson ásamt börnum sinum, Sigurði Smára 6 ára og Þorbjörgu Fanneyju. — Ljósm. Mbl.: Kristján. íngvar Anton Ingvarsson. Matthías Vilhjálmsson. og Bolvíkingar um kjara- og vinnu okkar. Þær kröfur, sem við höfum sett fram, eru sanngirnis- kröfur. Útgerðarmenn hafa með aðstoð Alþingis kroppað í laun okkar með því að taka af skiptaprósentunni í olíusjóð. Þar höfum við mátt þola beina kjaraskerðingu. Við höfum farið fram á frítt fæði og það tel ég mannúðarmál, svo ekki sé fastara að orði kveðið. Það þekkist alls staðar annars staðar en hjá sjó- mönnum. Ég er matsveinn og þegar við komum í land, þá er ég allt að sex tíma að vinna í því að fá nýjan kost fyrir næsta túr. Það er orðið anzi lítill tími eftir af sólarhringnum, þegar maður loks kemst heim til sín. Þó maður gjarna vildi fara til kunningja í heimsókn, þá er klukk- an orðin það margt að allt of áliðið er. Þetta fæ ég ekki greitt. Það sem við krefjumst nú er einungis að fá til baka það sem við höfum misst. Ég er ákaflega óánægður með samstöðuleysi sjómanna. Við ísfirð- ingar höfum komið fram með sanngirniskröfur, sem sjómönnum hefur fundist réttlætismál, en þeg- ar á hólminn er komið vilja menn ekki berjast fyrir þeim. Það veldur miklum vonbrigðum," sagði Jens Jónson að lokum. „Atvinnumissirinn kemur ákaf- lega illa við mig. Ég vann að vísu aðeins hálfan daginn og fæ því rétt um 4000 krónur auk 1500 króna með börnunum. Ég hef verið á bónus og hann er ágætur. Það skakkar anzi miklu hvort maður fær 25 þúsund krónur á viku eða 70 þúsund krónur," sagði Amelía Manfreðs- dóttir í samtali við blaðamann Mbl. á ísafirði en hún er einstæð móðir. „Það verður að ráðast hvernig fer, ef verkfallið dregst á langinn, maður er svo sem vanur að moða úr litlu. En ég vil ekki leggja dóm á hvort það er rétt eða rangt af sjómönnum að standa í þessu verk- falli nú. En það styttir nú vonandi í því eftir þetta samkomulag a Bol- ungarvík. Þeir hljóta að fara að ná saman — það er tími til kominn." Bolungarvíkursam- komulagið skrípa- leikur — segir Pétur Sigurðsson forseti ASV „þAÐ, SEM samið var um í Bolung- arvík, hefðum við alltaf getað fengið fram án uppsagna samninga á alla línuna," sagði Pétur Sigurðs- son, forseti Alþýðusambands Vest- fjarða í samtali við blaðamann Mbl. á ísafirði. „Stjórn ASV hefur ekki tekið afstöðu til samninganna í Bolungarvík, sem samþykkti ein- róma í gærkveldi, að Bolvíkingar frestuðu samningagerð. Ég get því aðeins sagt persónulegt álit mitt á þessum samningum." „Það var ekkert, sem knúði Bolvíkinga til að svíkja sig út úr hópnum og semja við útvegsmenn í Bolungarvík, þar sem engin vinnu- stöðvun var yfirvofandi eða fyrir- huguð af þeirra hálfu. Slík vinnu- brögð í sameiginlegri samnings- gerð hljóta að teljast forkastanleg. Það er greinilegt, að hluti skýr- ingar á samstöðuleysi hjá félögun- um á Vestfjörðum er, að þar sem línubátaútgerð er í einhverjum mæli, eru verulegar yfirborganir. Þær eiga raunar stærstan hlut að rnáli." Pétur Sigurðsson sagði ennfrem- ur: „í sameiginlegri kröfugerð ASV var sett inn tjllaga frá Bolvíking- um um að fá staðfesta í samning- um yfirborgun á línubátum. Þessar yfirborganir hafa verið við lýði um nokkurt skeið á Vestfjörðum, ann- ars staðar en á ísafirði. Þetta er ekki í samningi Bolvíkinga og er raunverulega brot á samstöðu um sameiginlega kröfugerð. Þetta hlýtur að veikja samningsgerð sjó- manna um ókomna tíð. Hafi menn meint eitthvað með þeim kröfum, sem settar voru fram í byrjun, þá er þetta samkomulag skrípaleikur og hlýtur að veikja baráttu sjó- manna um allt land, „sagði Pétur Sigurðsson að lokum. semja um og fórna samfloti — ég taldi það fremur neikvætt en já- kvætt," sagði Hörður Snorrason, varaformaður Verkalýðs- og sjó- mannafélagsins á Bolungarvík, í samtali við blaðamann Mbl. á Bolungarvík. Hörður Snorrason var hinn eini sem greiddi atkvæði á móti samningum við útgerðarmenn á Bolungarvik á fundi stjórnar og trúnaðarmannaráðs félagsins. „En ég vil taka það skýrt fram, að það loga engar deilur milli mín og Karvels Pálmasonar. Ég greiddi atkvæði gegn þessum samningum, þar sem ég taldi það veikja stöðu samninganefndar Alþýðusambands Vestfjarða. Það má að vísu orða það svo, að málin hafi verið í hnút, þar sem deiluaðilar höfðu vart talast við. En samkomulagið gefur það lítið, að ekki var tímabært að ganga til samninga. En ekkert félag eða samtök eru sterkari en meðlimir þeirra og samstaða meðal hinna ýmsu félaga á Vestfjörðum er ekki fyrir hendi. Sjómennirnir á Bolung- arvík tóku sína afstöðu — þeir samþykktu að ganga til samninga og í ljósi þess tók trúnaðarráðið sína afstöðu. Þegar þetta lá fyrir, þá var auðvitað að semja — en mín afstaða var, að böggullinn væri ekki það stór að hann ,væri þess virði að semja. Ég sætti mig alveg við þessa niðurstöðu — þetta var vilji sjó- manna," sagði Hörður ennfremur. Málið var í hnút — á hann varð að höggva — segir Karvel Pálmason: „Það er rétt — stjórn Alþýðu- sambands Vestfjarða bað um frest- un á þessu samkomulagi. Þessi ósk var rædd á fundi stjórnar og trúnaðarmannaráðs Verkalýðs- og sjómannafélagsins á Bolungarvík en niðurstaðan var sú að ósk ASV var hafnað með tilliti til þeirrar stöðu, sem málin voru komin í. Málið var í hnút — á hann varð að höggva," sagði Karvel Pálmason, alþingismaður og formaður Verka-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.