Morgunblaðið - 16.04.1980, Side 18

Morgunblaðið - 16.04.1980, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1980 Reyðarfjörður: Efiðleikar hjá Sauma- stofunni Hörpu Reyðarfirði 15. apríl Ilér á Reyðarfirði hefur verið lítill snjór í vetur og muna gamlir Reyðfirðingar ekki eftir jafnsnjólettum vetri. Af afla- brögðum er það að segja að Gunnar byrjaði netaveiðar 30. janúar og afli hans er 493 tonn til páska. Fylkir hóf netaveiðar 17. febr. en aflinn er 230 tn fram að páskum. Á sunnudag kom Gunnar með 71,7 tonn og Fylkir kom í gær með 51 tonn. Fylkir bilaði er hann var kom- inn á miðin og varð að koma heim til viðgerða og missti 3 daga frá veiðum í þessum fyrsta túr. Frystihús K.H.B. hefur tekið á móti 513 tonnum af fiski frá áramótum og af því er farið 4.167 kassar til útflutnings til Ameríku og Rússlands. Hjá frystihúsinu vinna 44. Heldur illa gengur hjá Sauma- stofunni Hörpu hf. eins og hjá öðrum í þessum iðnaði, en vonandi rætist úr þeim erfiðleikum á næstunni. Verkalýðsfélagið hér er steindautt og óvirkt. Ekki hafa verið haldnir fundir í mörg ár, né innheimt verkalýðsgjöld og ríkir mikil óánægja út af þessu hér. Gréta. INNLENT Teygði sig eftir veskinu og missti stjórn á bílnum SIÐDEGIS í gær varð það óhapp að Wagooner-jeppi ók á staur við Suðurgötu, vestan Melavallar. Bifreiðin er stórskemmd og nemur tjónið vafalaust hundruðum þúsunda króna. Óhappið vildi þannig til, að bifreiðin beygði af Melatorgi og suður Suðurgötu. Við það rann veski af stað sem var ofan á mælaborðinu. Bifreiðastjór- inn teygði sig eftir veskinu en missti um leið stjórn á bílnum með fyrrgreindum afleiðingum. Bifreiðastjórinn var fluttur á slysadeild. Ljósm. Gunnlaugur. Níræð: Guðrún Magnús- dóttir Brekku, Ytri-Niarðvík í dag, þann 16. apríl, er 90 ára afmæli Guðrúnar Magnúsdóttur á Brekku í Ytri-Njarðvíkurhverfi. Guðrún er elst þeirra nær 2000 íbúa sem búsettir eru í Njarðvíkurbyggð- um. En í dag, þrátt fyrir sinn háa aldur brosir Guðrún sínu gamla og góða sumarmálabrosi og nú ætlar hún að taka tíunda tuginn til meðferðar. Guðrún Magnúsdóttir er fædd í Akurhúsum (Ekruhúsum) í Grinda- vík 10 árum fyrir aldamótin síðustu. Þar bjuggu þá foreldrar hennar, Magnús Magnússon og Snjáfríður Ólafsdóttir. Þau giftust 1889 og bjuggu þar í röskan áratug. Magnús, faðir Guðrúnar, var Grindvíkingur að ætt, fæddur þar á býli er Langi hét. Þar bjuggu foreldrar hans, Magnús Magnússon og Gunnhildur Pálsdóttir. Sá Magnús var sonur Magnúsar Guðmundssonar er kom ungur til Grindavíkur vestan frá Bíldudal. Hans kona var Katrín Þórðardóttir frá Járngerðisstöðum, systir Sveinbjarnar Þórðarsonar, stórbónda í Sandgerði, og þeirra systkina. Gunnhildur, móðir Magn- úsar, amma Guðrúnar var fædd að Húsatóftum í Grindavík. Foreldrar hennar voru Páll Brandsson frá Fíflholtum í Landeyjum og Guðrún Þorláksdóttir Björnssonar og Kristrúnar Einarsdóttur hjóna á Húsatóftum í Grindavík. Eru þetta rótgrónar Grindavíkurættir. Snjá- fríður Ólafsdóttir móðir Guðrúnar, var fædd að Skrauthólum í Kjalar- nesi. Foreldrar hennar voru Ólafur Jónsson, ættaður frá Varmadal í Mosfellssveit, og Gróa Jónsdóttir frá Norðurkoti í Saurbæjarsókn á Kjal- arnesi. Ólafur og Gróa, foreldrar Snjáfríðar, bjuggu 1870 í Saltvík á Kjalarnesi. Þar var Snjáfríður ung telpa, næstyngst af systkinum sín- um, Kristbjörgu, Einari og Guðnýju, er var yngst þeirra. Þegar Snjáfríð- ur var 23 ára gömul, kom hún frá Brautarholti á Kjalarnesi að Akur- húsum (Ekruhúsum) í Grindavík. Guðrún var elzta barn þeirra Magnúsar og Snjáfríðar, alls áttu þau hjón 5 dætur og 2 syni. Vorið 1901 flytjast þau Magnús og Snjá- fríður frá Grindavík að Stapakoti í Innri-Njarðvíkurhverfi. Þá var Guð- rún 11 ára gömul. Þrjú systkini hennar, Gróa Magnúsína, Júlíus Magnús og Guðfinna, fæddust einnig í Grindavík. Þrjú yngstu börn þeirra, Þórlaug, Einar og Dagbjört Unnur, fæddust öll í Stapakoti. I Stapakoti átti Guðrún sín bernsku- og unglingsár hjá foreldr- um og systkinum fram undir tví- tugsaldur. Fyrstu búskaparár þeirra Magnúar og Snjáfríðar í Stapakoti var Gróa Jónsdóttir, móðir Snjáfríð- ar, þar hjá þeim. Var hún ekkja og öldruð að árum og var hún þar það Sextugur: Séra Sigurður Guð- mundsson prófastur á Grenjaðarstað Séra Sigurður Guðmundsson prófastur á Grenjaðarstað er sex- tugur í dag. Hann er fæddur 16. apríl 1920 í Naustum við Akureyri. Foreldrar séra Sigurðar voru hjónin Guðmundur bóndi og verkamaður Guðmundsson Hall- dórssonar bóna á Syðra-Hóli í Kaupangssveit og Steinunn Sig- ríður Sigurðardóttir bónda í Geirhildargörðum í Öxnadal Jóns- sonar. Séra Sigurður ólst upp í inn- bænum. Þaðan gekk hann í Menntaskólann á Akureyri. Þar lágu leiðir okkar saman, en við urðum bekkjarbræður í 3. bekk gamla, kæra skólans, sem nú er að fylla öldina. Síðan má svo heita, að við yrðum samferða á náms- brautinni allt til embættisprófs í guðfræði — og þaðan áfram út í þjónustu kirkjunnar. Kynni mín af hinum sextuga bekkjar- og starfsbróður eru löng og góð. Þegar séra Sigurður lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 16. júní 1940 var hann þegar ráðinn í því að hefja nám í guðfræði við Háskóla íslands og gerast prestur. Það haust innrit- uðust 6 stúdentar frá Akureyri í guðfræðideildina og 2 frá Mennta- skólanum í Reykjavík, svo að aðeins einu sinni áður höfðu fleiri nýstúdentar innritast samtímis í guðfræðideildina. Séra Sigurður varð kandidat í guðfræði 26. maí 1944 og settur sóknarprestur í Grenjaðar- staðarprestakalli 1. júní. Hann var vígður prestur 18. júní 1944 í dómkirkjunni í Reykjavík. Mér er sú vígsla skólabræðra minna sér- staklega minnisstæð, því að þá hlutu 9 prestar vígslu, og var séra Sigurður einn þeirra. Þetta var annan hátíðisdag lýðveldisins 1944, og voru hátíðahöldin í Reykjavík eftir sjálfa lýðveldis- tökuna á Þingvelli daginn áður. Veður var fagurt í Reykjavík þennan dag og allmargir prestar hempuklæddir voru viðstaddir í kirkjunni, sem var yfirfull af fólki. Ég hefi oft hugsað um það síðan, hve mikil gjöf vígsla þess- arra 9 þjóna kirkjunnar var hinu nýstofnaða lýðveldi íslenzku þjóð- arinnar. — Séra Sigurði var veitt- ur Grenjaðarstaður 16. nóv. frá fardögum 1945. Þar hefur hann síðan setið óslitið og unnið að kirkjunnar málum með sæmd og prýði. Séra Sigurður er kvæntur Aðal- björgu Halldórsdóttur bónda á Öngulstöðum í Eyjafirði og eiga þau hjónin fagurt og indælt heim- ili á hinu forna og nýja höfuðbóli, Grenjaðarstað. Frú Aðalbjörg er manni sínum mikil stoð í starfi hans. Mikill er hennar þáttur í víðum verkahring þeirra prófasts- hjóna. Börn þeirra eru: Steinunn Sig- ríður gift Ingólfi S. Ingólfssyni rafvélavirkja á Akureyri, Þorgerð- ur kennari gift séra Gylfa Jóns- syni í Bjarnarnesi, Halldór íþróttakennari kvæntur Ástu Finnbogadóttur Þelamerkurskóla í Eyjafirði, Guðmundur búfræði- kandidat kvæntur Sigrúnu Krist- jánsdóttur Hvanneyri og Ragn- heiður bókasafnsfræðingur gift Braga Guðmundssyni háskóla- nema Reykjavík. Séra Sigurður tók við próf- astsstörfum í Suður-Þingeyjar- prófastsdæmi af séra Friðriki A. Friðrikssyni prófasti á Húsavík, og 1971 varð Sigurður prófastur í Þingeyjarprófastsdæmi samein- uðu skv. lögum 1970. Prests- og prófastsstörf sín rækir séra Sigurður af samvizku- semi, trúmennsku og árvekni. Hann er ósérhlífinn og áhuga- samur og oft er vinnudagurinn langur. Oft verður hann að fara í löng ferðalög til embættisverka, og kemur sér það vel, að hann er duglegur ferðamaður og skarpur til átaka. Séra Sigurður prófastur hefur á liðnum árum gegnt aukaþjónustu í nágrannaprestaköllum um tímabil vegna fjarveru nágrannapresta. Ætíð er hann reiðubúinn til þess að bæta störfum á sig þótt ærin séu fyrir, og það sýnir hve starfs- fús hann er og hjálpsamur. Kennslustörf hafa ætíð verið honum hugleikin. Árum saman hélt hann unglingaskóla heima á Grenjaðarstað eða flest árin 1944—’66 og kenndi unglingum undir aðra skóla. Hann hefur verið stundakennari við skólana á Laugum, Hafralækjarskóla og formaður fræðsluráðs frá 1951. Veturinn 1962—’63 var hann skólastjóri Héraðsskólans á Laug- um (í forföllum). Séra Sigurður hefur ætíð látið skólamál til sín taka og hefur hann víðtæka þekk- íngu á því sviði. Hann er ágætur fræðari, og er óhætt að segja „að öllum kom hann til nokkurs þroska." Séra Sigurður sat á kirkjuþingi sem varamaður 1958—’64, en síð- an aðalmaður og kosinn af prest- um í Norðurlandskjördæmi eystra, en kirkjuþing starfar hálf- an mánuð annað hvort ár. Séra Sigurður er jafnan tillögugóður og málafylgjumaður. Þegar prófastar landsins mynduðu með sér samtök kusu þeir hann formann sinn. Minnisstæðast verður mér ætíð samstarf við séra Sigu^ð að æsku- lýðsmálum. Hann átti mikinn þátt í stofnun Æskulýðssambands kirkjunnar í Hólastifti 1959 og var formaður þeirra samtaka á árun- um 1969— 75. — Mesta átak sem unnið hefur verið á vegum ÆSK í Hólastifti er stofnun og starf- rækzla sumarbúðanna við Vest- mannsvatn í Aðaldal. ÆSK í Hólastifti var m.a. stofnað í þeim tilgangi að taka saman höndum um byggingu sum- arbúða á félagssvæðinu. Við höfð- um svipast um eftir hentugum stað fyrir búðirnar. Það var sunnudag einn í apríl 1959 og ég átti leið um Aðaldalinn hjá Vest- mannsvatni þar sem er mjög fagurt yfir að líta, og kom mér þá í hug, að þar væri tilvalið sumar- búðasvæði. Þegar heim kom, hringdi ég strax í séra Sigurð til þess að heyra hans álit. Alltaf man ég hverju hann svaraði: „Ég hefi lengi hugsað um þetta sama.“ Fagranes og svæðið umhverfis vatnið þar seem sumarbúðirnar eru, heyra til Grenjaðarstaðar- sóknar. Þar rísa nú hinar fögru byggingar sumarbúðanna. Séra Sigurður hefur allt frá fyrstu tíð verið forgöngumaður fram- kvæmdanna við Vestmannsvatn, og eiga þau hjónin, hann og frú Aðalbjörg miklar þakkir skyldar fyrir allt sem þau hafa unnið sumarstarfi ÆSK til heilla og blessunar. Séra Sigurður leggur mikið lið söngmálum í prestakaíIF sínu og prófastsdæmi. Hann á sæti í stjórn Kirkjukórasambands Þing- eyjarprófastsdæmis frá stofnun þess og hefur átt drjúgan þátt í kirkjukóramótum undanfarna áratugi. Hann tekur jafnan virkan þátt í kirkjukórssöng sinnar heimabyggðar. Að lokum færi ég séra Sigurði beztu þakkir fyrir samstarf hans í stjórn Prestafélags hins forna Hólastiftis, en þar hefur hann verið í stjórn með öðrum próföst- um á Norðurlandi síðan 1963, og er varaformaður félagsins. Prestasamtök þessi, sem eru hin elztu í landinu, voru stofnuð 1898. Þau eru ekki stéttarfélag í venju- legum skilningi heldur áhuga- mannafélag um eflingu kirkju og kristindóms á Norðurlandi. Það er fróðlegt, að kynnast hinum brenn- andi áhuga norðlenzkra presta sem stofnuðu þessi samtök um síðustu aldamót. Og smekkurinn ef kemst í ker, keiminn lengi eftir ber. Séra Sigurður prófastur er einn þeirra manna, sem á þennan brennandi áhuga, og það sýnir hann glöggt í prestsþjónustu sinni og prófastsstörfum. Hann er mik- ill bókamaður, eins og bókasafn hans heima á Grenjaðarstað sýnir best. En það er ekki aðeins, að hann safni bókum, heldur er honum fræðimennskan í blóð bor- in. Hann hefur næman smekk fyrir fegurð íslenzkrar tungu og má eflaust rekja það til íslenzku- kennslu Sigurðar heitins Guð- mundssonar skólameistara, Menntaskólans á Akureyri. Þeir sem nutu handleiðslu hins mikil- hæfa kennara í móðurmálsfræð- um munu seint geta fullþakkað þau sterku áhrif til málvöndunar, sem þeir urðu fyrir hjá honum. Um séra Sigurð leikur ætíð hressandi blær glaðlyndis og góð- vilja. Einkennandi er hin jákvæða afstaða hans til manna og mál- efna, að bera ávallt gott fram úr góðum sjóði hjartans. Slíkir menn koma ávallt góðu til leiðar og með þeim er gott að starfa. Á 60 ára afmælisdegi séra Sigurðar færi ég honum beztu heilla — og hamingjuóskir frá okkur hjónunum, við þökkum hon- um og frú Aðalbjörgu liðnar samverustundir, ánægjuríkt sam- starf og vináttu. Fjölskyldunni allri óskum við blessunar Guðs. Séra Sigurður verður að heiman í dag. Pétur Sigurgeirsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.