Morgunblaðið - 16.04.1980, Page 22

Morgunblaðið - 16.04.1980, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1980 Eiginkona mín + INGIBJÖRG HELGADÓTTIR, Bauganesi 17, Reykjavík, lést 14. apríl. Fyrir hönd barna, tengdabarna og systur hinnar látnu. Einar Þorsteinsson. t Móöir mín HELGA STEFÁNSDÓTTIR Búöavegi 12, Fáskrúðsfirði, lézt í Landspítalanum 14. apríl. Jaröarförin auglýst síöar. Fyrir hönd vandamanna, Kristín Sigbjörnsdóttir t Faöir okkar og tengdafaöir ÓLAFUR SIGURÐSSON, frá Götu, lézt í Landspítalanum mánudaglnn 14. þ.m. Börn og tengdabörn. t Eiginmaöur minn og faöir okkar, GUOMUNDUR BREIOFJÖRO PÉTURSSON stýrimaöur, Stangarholti 32, andaöist í Landakotsspftala 13. apríl. Lydía Guðmundsdóttir og börn t Elskulegur eiginmaöur minn og faöir okkar, HELGI INGVARSSON, fyrrverandi yfirlæknir á Vífilsstööum, lést í Borgarspítalanum 14. apríl. Guörún Lárusdóttir, Guörún P. Helgadóttir, Ingvar Helgason, Lárus Helgason, Sigurður Helgason. + Föðursystir mín. I GUÐRÚN EYJÓLFSDÓTTIR frá Hvammi í Landssveit, Skeggjagötu 8, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 17. apríl kl. 3 siödegis. Árni Einarsson t Móöir mín og tegndamóðir BRYNHILDUR PÁLSDÓTTIR, frá Fornhaga Hörgárdal, verður jarösungin í dag miövikudag 16. apríl kl. 10.30 frá Fossvogskirkju. Gunnar Egonsson, Lóa Björg Jóhannsdóttir. t KATRÍN GAMALÍELSDÓTTIR lést á Vífilsstaöaspítala 11. apríl. Minningarathöfn fer fram í Kópavogskirkju, föstudaginn 18. apríl kl. 10.30. Jarösett veröur aö Kotströnd í Ölfusi aö lokinni athöfn. Gamalíel Sigurjónsson, Gísli Ól. Pétursson, Eyjólfur Hjörleifsson, Leifur Sigurösson, Ingigeröur Torfadóttir, Karl Sæmundarson, Ragna Freyja Karlsdóttir, Fanney Magna Karlsdóttir, Særún Æsa Karlsdóttir, María Valgeröur Karlsdóttir, Sigursveinn Óli Karlsson, Jón Óttarr Karlsson, barnabörn og aörir aöstandendur. Minning: Ingibjörg Guðrún Kristjánsdóttir Fædd 12. nóvemher 1914. Dáin 6. apríl 1980. Aðfaranótt páskadagsins s.l. lést á Landspítalanum Ingibjörg Kristjánsdóttir húsfreyja Vallar- gerði 2 í Kópavogi. Hún var eiginkona Sveins A. Sæmundsson- ar forstjóra í Blikksmiðjunni Vogi. Við, félagar og nánustu sam- starfsmenn Sveins í Vogi, kynnt- umst þessari mætu konu eigi alllítið, einkum meðan fyrirtækið var að slíta barnsskónum og raunar alla tíð síðan. Haustið 1949 tók sig saman þrír ungir menn og stofnuðu vísi að blikksmiðju. Auðvitað af litlum efnum við aðstöðu, sem ýmsum mynd. nú þykja harla bágborin. Einn þessara þremenninga var Sveinn A. Sæmundsson. Þau hjón- in voru einmitt um þessar mundir að koma sér upp íbúðarhúsi að Vallargerði 2, og flutt inn í kjallarann, hæð og ris tilheyrðu þá enn framtíðinni. Þótt þau hjónin ættu þá tvær ungar dætur, var kjallaranum skipt niður í tvo hluta milli smiðju og íbúðar. Ekki þarf að fara í grafgötur með, að þótt aðstaða blikksmiðanna væri í naumara lagi, var hún þó hálfu lakari fyrir húsmóðurina með tvö ung börn. En Ingibjörg var ekki af þeirri manngerð, sem lætur tímabundna erfiðleika beygja sig, heldur tókst hún á við þá af fullum kjarki og heilum huga, og verður seint ofmetinn þáttur hennar í upp- byggingu þessa fyrirtækis. Þegar okkur starfsfélögunum fjölgaði og vorum tíðum allt inn á gafli heimilisins, getur hver sagt sér sjálfur, að ekki hefur alltaf verið næðissamt hjá húsfreyju. En þótt oft hljóti hávaði og annað ónæði að hafa keyrt langt fram úr hófi í þessu sambýli heimilis og blikk- smiðju, skyldi aldrei heyrast æðruorð frá Ingibjörgu, þvert á móti uppörvun og glatt viðmót. Ingibjörg var glæsileg og ham- ingjusöm húsmóðir enda bar heimilið ljósan vott listfengi hennar og smekkvísi, jafnt utan húss sem innan. Hún var snilling- ur í höndum og meistari í kven- fatasaumi. Gestum sínum tók Ingibjörg með glaðri alúð og hlýju svo öllum þótti gott til þeirra hjóna að koma. Ingibjörg Kristjánsdóttir verð- ur jarðsungin í dag frá Kópa- vogskirkju. Á þessari kveðjustund verður okkur félögunum efst í huga þakklæti fyrir langt og gott samstarf og margar ánægjulegar samverustundir. Slíkri konu er gott að hafa kynnst. Sveini, dætrum og öðrum ást- vinum vottum við djúpa samúð. Ingimar Sigurtryggvason. Aðfaranótt páskadags andaðist í Landspítalanum Ingibjörg Guð- rún Kristjánsdóttir húsfreyja Vallargerði 2, Kópavogi. Ingibjörg var fædd að Kirkju- bóli í Korpudal í Önundarfirði. Foreldrar hennar voru Kristján Guðleifsson bóndi þar og Ólína Ólafsdóttir kona hans. Ingibjörg var næst elst af sjö börnum þeirra hjóna og tvær fóstursystur átti hún. Þegar Ingibjörg var ellefu ára fluttist fjölskyldan að Brekku á Álftanesi og þrettán ára gömul var hún fermd í Bessastaðakirkju. Árið 1928 fluttist fjölskyldan austur að Efraseli í Hrunamanna- hreppi í Árnessýslu. Þar var Ingibjörg sín æskuár, utan þess að hún stundaði nám við héraðsskól- ann að Núpi í Dýrafirði. Til Reykjavíkur fór hún ung, stúlka og lærði kápu- og kjóla- saum og hlaut meistararéttindi í báðum. Saumastofu rak hún um árabil. Hún starfaði í félagi kjóla- meistara hin síðari ár. Hinn 22. júlí árið 1944 giftist hún eftirlifandi eiginmanni sínum Sveini A. Sæmundssyni blikk- smíðameistara frá Eiríksbakka í’ Biskupstungum. Tvær dætur eign- uðust þau, Öldu, sem gift er Jóni Inga Ragnarssyni málarameistara og Ólínu, maður hennar er Burkni Dómaldsson húsasmíðameistari. Ingibjörg átti sex yndisleg barna- börn, sem veittu henni mikla gleði. Ingibjörg mótaðist af því um- hverfi sem hún ólst upp í; stór- brotin eins og Vestfjarðafjöllin og yfir henni var óvenju mikil-.reisn. En blómabrekkur Árnessýslu settu einnig sitt mark á hana, fegurðarþráin og viðkvæmnin voru sterkir þættir í skapgerð hennar. Ungmennafélagshugsjón- in gagntók hana unga og þeirri hugsjón var hún trú æfilangt. Ingibjörg og Sveinn fluttust í Kópavog 1. september 1948. Þá voru íbúar hér aðeins 500 og lítið um atvinnufyrirtæki. Þau reistu húsið Vallargerði 2 og þar hóf Sveinn atvinnurekstur sinn. Hann stofnaði blikksmiðj- una Vog, sem nú hefur vaxið í öflugt og traust fyrirtæki. Þá var Ingibjörg hans styrka stoð. Frumbyggjar Kópavogs lágu ekki á liði sínu enda orti skáldið Þorsteinn Valdimarsson sautján árum síðar ljóðið „Kópavogsbær“, en þar segir: MVaKKa börnum og blómum. borífin hjá vogunum tveimur. risin einn árdag úr eyði. — heill undrunarheimur!M Ingibjörg var félagslynd og starfaði mikið í Kvenfélagi Kópa- vogs. Hún var formaður félagsins 1971—73 og einnig átti hún sæti í stjórn Líknarsjóðs Áslaugar Maack. Við konurnar í Kvenfélagi Kópavogs söknum vinar í stað við fráfall hennar. Hún hafði margt til brunns að bera. Allt lék í höndum hennar, heimilisstörfin, saumaskapurinn, blóma- og trjáræktin. Hún var svo sannarlega ein af þeim sem hafa græna fingur. Ingibjörg var óvenjuvel gift. Þau hjónin voru einstaklega sam- hent, heima og heiman. Þau ferð- uðust mikið bæði innan lands og utan. Eiginlega var sambúð þeirra eins og tilhugalíf fram á síðasta dag. Við'sendum Sveini, dætrunum og fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur. Ingibjörgu þökkum við sam- fylgdina og kveðjum hana með ljóði Sigurðar frá Arnarvatni: Yndislega ættarjörð, ástarkveðju heyr þú mína, þakkarklökkva kveðju^jörð. kveð és: líf þitt, móðir jörð. Móðir bæði mild o>f hörð, mi>f þú tak í arma þína. YndisleKa ættarjörð. ástarkveðju heyr þú mína. Konur í Kvenfélagi Kópavogs. í dag, miðvikudaginn 16. apríl, , verður jarðsungin frá Kópavogs- kirkju góð frænka mín Ingibjörg Guðrún Kristjánsdóttir, fædd 12. nóvember 1914. Hún lézt á Land- spítalanum aðfaranótt páskadags sl. Ingibjörg fæddist að Kirkjubóli í Korpudal í Önundarfirði, dóttir hjónanna Ólínu Guðrúnar Ólafs- dóttur og Kristjáns Björns Guð- leifssonar bónda þar. Þau voru bæði ættuð úr Dýrafirði. Varð þeim sjö barna auðið og var Ingibjörg næst elst þeirra. Hin eru Sveinbjörn f. 1913 kvæntur Guðrúnu Sigurðardóttur, Magnús f. 1916, lézt af slysförum árið 1939 ókvæntur, Rannveig f. 1918 ógift, Haraldur f. 1919 kvæntur Mar- gréti Guðmundsdóttur, Svava f. 1920 gift Auðunni Þorsteinssyni og Ólafur Lúther f. 1927 tvíkvænt- ur f.k. Sesselja Karlsdóttir, s.k. Guðlaug Karlsdóttir. Árið 1926 fluttist Ingibjörg suð- ur um heiðar með foreldrum sínum og systkinum að leita nýrra heimkynna, því ekki reyndist mögulegt að fá stærra jarðnæði vestra. Dveljast þaufyrst um sinn að Brekku á Álftanesi, eða fram til árs 1928. Þá er haldið enn á nú af stað og nú er ferðinni heitið að Efra-Seli í Hrunamannahreppi, en þá jörð hafði Kristján keypt til búsetu. Ekki er að efa að mikil gleði hefur verið ríkjandi að kom- ast nú loks „heim“ eftir búsetu- flutningana að vestan. Árið 1932 lézt Kristján og fljótlega bregður Ólína búi og flyzt til Reykjavíkur ásamt þeim börnum sem enn voru í móðurgarði. Þessi ár voru þeim miklir umbrotatímar og lífsbar- áttan hörð. Ingibjörg lagði fyrir sig saumaskap og er ein af fyrstu kvenklæðskerameisturum lands- ins. Stundaði hún iðn sína í fullu starfi, í fyrstu samfleytt í 6—7 ár, og æ síðan að meira eða minna leyti. Árið 1943, þann 22. júlí, giftist hún eftirlifandi eiginmanni sínum Sveini A. Sæmundssyni, f. 24. 11. 1916, frá Eiríksbakka í Biskups- tungum. Sveinn er sonur hjón- anna Arnleifar Lýðsdóttur og Sæmundar Jónssonar, er þar bjó. Sveinn lauk búfræðinámi frá Hvanneyri árið 1936, flyzt til Reykjavíkur árið 1942 og hefur blikksmíðanám ári síðar. Þau reistu sér íbúðarhús og myndar- legt heimili að Vallargerði 2 í Kópavogi, þar sem síðar var og starfrækt blikksmiðjan Vogur lengi vel. Sveinn setti hana á stofn ásamt félögum sínum og veitir henni nú forstöðu. Ingibjörg og Sveinn eignuðust tvær dætur, Öldu f. 12 marz 1945 gifta Jóni Inga Ragnarssyni og Olínu Margréti gifta Burkna Dómaldssyni. Alls eru barnabörn- in orðin 6 að tölu. Svo lengi sem ég man hefur verið gott að sækja í „Kópavog- inn“ en það orð hafði aðeins eina merkingu fyrir mig lengi fram eftir aldri. Otaldir eru þeir sunnu- dagar er hoppað var í garðinum og hlaupið inn í mjólkursopa til Boggu frænku. Stutt var þá í hláturinn, þegar spaugsyrði hraut af munni. Bogga mín, haf þú þökk fyrir ljúfar endurminningar. Oft vill gleymast í erli dagsins, að skammt er milli lífs og dauða. Og þó að við vitum að brátt geti ástvinamissi borið að höndum, er þó aldrei svo, að ekki snerti okkur djúpt, þegar kallið kemur, hversu vel sem okkur finnst við hafa búið okkur undir. Mannlegt hjarta er nú einu sinni svo, að það rúmar sorg jafnt og gleði. Sorgina að skiljast við lífsförunaut, sem um áratugi hefur verið hluti af sjálf- um okkur, skilið tilfinningarnar og deilt velgengni og mótbyr. Það rúmar sorgina sem verður, þegar mamman og amman er horfin á braut. Það rúmar sorgina, sem tómið skapar, þegar maðurinn stendur einn eftir og deilir ei lengur með öðrum. En hjartað rúmar einnig gleðina. Gleðina að kærum ástvini líður vel og baráttu við erfiðan sjúkdóm er lokið. Gleðina að vita að hamingjuríku æviskeiði er lokið, æviskeiði sem kenndi okkur svo ótal margt. Við skulum ekki láta sorgina ryðja burt minningum um unaðsstundir. Ég votta Sveini, dætrum og öllum aðstandendum innilega samúð og treysti því að guð muni styrkja þau um ókomin ár. Kristján Auðunsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.