Morgunblaðið - 16.04.1980, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1980
23
Aðfaranótt 6. apríl s.l. andaðist
á Landspítalanum í Reykjavík ein
úr hópi okkar í saumaklúbbnum,
Ingibjörg G. Kristjánsdóttir, og
verður útför hennar gerð í dag frá
Kópavogskirkju.
Það var fyrir allmörgum árum
að okkur nokkrum vinkonum datt
í hug að stofna saumaklúbb og var
hún aðalhvatamaður að stofnun
hans. Þá starfaði hann aðeins í
1—2 ár og lagðist síðan niður
einhverra hluta vegna. En fyrir 3
árum var hann endurvakinn og
einnig þá var það hún sem átti
mestan þátt í því. En s.l. vetur gat
hún ekki tekið þátt í störfum hans
sökum veikinda. Við vonuðum að
henni auðnaðist að vinna bug á
þeim en sú von brást, og í dag
fylgjum við henni til grafar. Við
höfum átt margar ánægjulegar
samverustundir með henni bæði í
saumaklúbbnum, og einnig við
mörg önnur tækifæri og erum við
innilega þakklátar fyrir þær.
Ingibjörg var fædd hinn 12.
nóvember 1914. í einkalífi sínu var
hún mjög hamingjusöm. Árið 1944
giftist hún eftirlifandi eiginmanni
sínum Sveini A. Sæmundssyni
blikksmíðameistara og var hjóna-
band þeirra mjög farsælt, svo
aldrei bar skugga á. Þau bjuggu
fyrst í Reykjavík en fluttust síðan
í Kópavog og reistu sér fallegt
heimili að Vallargerði 2. Hún var
mikil húsmóðir og voru þau hjónin
samhent í öllu eins og heimili
þeirra ber vott um. Þar var gott að
koma. Hannyrðakona var hún
mikil og prýða heimili þeirra
margir fallegir hlutir sem hún
hefur gert. Þau eignuðust 2 dætur,
Öldu og Ólínu, sem báðar eru
giftar og hafa stofnað sín eigin
heimili. Mikið ástríki var milli
allra þessara heimila og bar hún
hag dætra sinna og fjölskyldna
þeirra mjög fyrir brjósti. Við
vitum að söknuðurinn er mikill
hjá öllum ástvinum hennar, en við
vitum einnig að minningin um
góða eiginkonu, móður, tengda-
móður og ömmu mun milda hann
Við vottum öllum aðstandendum
hennar okkar innilegustu samúð
og henni þökkum við samveruna
og biðjum henni allrar blessunar á
nýjum tiverustigum.
Saumaklúbburinn
í dag 16. apríl fer fram útför
Ingibjargar Guðrúnar Kristjáns-
dóttur sem lést í Landspítalanum
aðfaranótt páskadags.
Ingibjörg var fædd að Kirkju-
bóli í Korpudal í Önundarfirði
hinn 12. 11. 1914, en fluttist suður
ung að árum.
Hugur Ingibjargar hneigðist að
iðnaðarstörfum og nam hún ung
fatasaum, og öðlaðist snemma
meistararéttindi í tveimur grein-
um fatasaums eða í kjólasaum og
kápusaum, og rak um skeið
saumastofu með sytur sinni. Ingi-
björg hafði alla tíð mikinn áhuga
á félags- og réttindamálum starfs-
greinar sinnar og var virkur
þátttakandi í störfum Kjólameist-
arafélags íslands síðari árin.
Árið 1944 urðu straumhvörf í
lífi Ingibjargar, þegar hún gekk að
eiga Svein A. Sæmundsson blikk-
smið, sem þá starfaði hjá Nýju
blikksmiðjunni. Árið 1949 stofnaði
maður hennar ásamt félögum sín-
um blikksmiðju í Kópavogi, eða
nánar tiltekið í kjallara og bílskúr
nýbyggðs íbúðarhúss þeirra hjóna
að Vallargerði.
Ingibjörg valdi fyrirtækinu
nafnið Vogur, með hliðsjón af legu
fyrirtækisins, og með það í huga
að hér var um að ræða fyrsta
iðnfyrirtæki Kópavogs.
I húsakynnum þeirra hjóna var
fyrirtækið í áratug, eða þar til það
flutti í núverandi húsakynni.
Þau voru ófá handtökin, sem
Ingibjörg átti í uppbyggingu og
þjónustu við þetta fyrirtæki, sem í
dag er stærsta blikksmiðja lands-
ins.
Sumarið 1975 stofnuðu eigin-
konur blikksmiðjueigenda félag,
til að efla félags- og menningar-
tengsl þeirra sem að iðngreininni
störfuðu. Skipulagði félagið leik-
húsferðir og sumarferðir sem
efldu félagsleg tengsl. Ingibjörg
valdist til formennsku í félaginu
og vann að málum þess af þeim
áhuga og ósérhlífni sem henni var
einlæg. Á árunum 77—79 gengdi
maður hennar formennsku í sam-
tökum blikksmiðjueigenda á norð-
urlöndum. Fylgdi því starfi að
veita forystu á mörgum fundum
og mótum. Var Ingibjörg verðugur
fulltrúi íslensks iðnaðar, en hún
tók virkan þátt í þessu starfi. Á sl.
sumri héldu samtök norrænna
blikksmiðjueigenda fund hér á
landi og voru íslenskir blikk-
smiðjueigendur gestgjafar. Á
þeim fundi sýndi Ingibjörg þá sem
ávallt hæfileika og reisn og var
öllum ljóst að hún átti mikinn
þátt í því hve vel heppnað það mót
varð.
Sveinn hefur átt sæti í stjórn
Sambands málm- og skipasmiðja
allt frá því það var stofnað og sl. 3
ár hefur hann verið formaður
þess. Á þessum vettvangi sýndi
Ingibjörg einnig mikinn áhuga og
fylgdist vel með öllum þeim mál-
um, sem þar var unnið að. Þessu
starfi fylgdu margháttuð sam-
skipti við innlenda og erlenda
aðila á fundum og mótum. Var
ákaflega ánægjulegt að taka þátt í
því starfi með þeim hjónum. Var
Ingibjörg ávallt virkur þátttak-
andi, létt og skemmtileg og einnig
vakandi fyrir heiðri íslensks iðn-
aðar og hélt merki hans hátt.
Við samstarfsmenn Sveins A.
Sæmundssonar að félagsmálum
málmiðnaðarins minnumst Ingi-
bjargar sem hinnar glaðværu
styrku stoðar, sem ætíð var til-
búin til að leggja framgangi iðn-
aðar lið með hvatningu og eflingu
félagslegra samskipta í starfi og
leik.
Um leið og við þökkum Ingi-
björgu hin góðu kynni sendum við
og eiginkonur okkar Sveini og
börnum þeirra hjóna samúðar-
kveðjur.
Starfsmenn innan Sam-
bands málm- og skipasmiðja
Baldur Baldurs-
son Minningarorð
var ætíð svo góður, senda honum
hinztu kveðju.
Fæddur 2. janúar 1957
Dáinn 21. desember 1979
Allt. hvað minn tfóði Guð
Kaf mór í heimi
einn taki aftur við
annist ok geymi.
Hve fátækleg hljóta ekki
kveðjuorð okkar systkina Baldurs
bróður okkar að vera, er hann
yngstur okkar er horfinn okkur úr
þessu jarðlífi.
Svo allt of fljótt rann hann sitt
æviskeið á enda. Við skiljum ekki
tilganginn enda eigum við ekki að
gera það. Sárt er að horfa á bak
ástkærum bróður, en minningin
um góðan dreng, sem ætíð var
reiðubúinn að rétta fram hjálp-
arhönd, er geýmd í hugum okkar
og sefar sáran trega. — Og
systkinabörn Baldurs, sem hann
Guð veiti foreldrum okkar styrk
í þungbærri sorg. Megi algóður
Guð vaka yfir sálu Baldurs bróður
okkar og gefa honum frið.
Kveðja frá systkinum
í dag hinn 16. apríl kveðjum við
í hinsta sinn vin okkar Baldur
Baldursson.
Baddi var sonur hjónanna Bald-
urs Guðmundssonar útgerðar-
manns og Magneu Jónsdóttur.
Hann var yngstur 6 systkina,
fæddur 2. jan. 1957. Allir þekktum
við Badda mjög vel og kynntumst
honum náið á okkar uppvaxtarár-
um. Nú á þessari stundu rifjast
upp svo ótal margar góðar minn-
ingar um samverustundir okkar
með Badda, hvort sem var við leik
eða störf. Betri félaga var ekki
hægt að hugsa sér, hann var hvers
manns hugljúfi, rólegur og skap-
góður. Alltaf gátum við leitað til
Bádda þegar eitthvað þungt lá á
hjarta okkar. Hann var sem bróð-
ir, veitti okkur stuðning og gaf góð
ráð þegar á þurfti að halda. Badda
þótti mjög gaman að spila og voru
þær margar ánægjulegu stundirn-
ar sem við áttum við spilamennsk-
una. Bridge átti hug hans og
hjarta og var hann mjög efnilegur
á því sviði.
Baddi lagði stund á nám í
rafvirkjun og var ætlun hans að
ljúka því námi. Ávalls var gott að
sækja Badda heim, var tekið á
móti okkur opnum örmum af
foreldrum hans með slíkum inni-
leika sem við værum einir af
fjölskyldunni.
Núna er höggvið stórt skarð í
okkar vinahóp, skarð sem aldrei
verður fyllt. Minning hans mun
alltaf lifa í hugum okkar sem
minning um góðan og traustan
félaga. Við biðjum Guð um að
hjálpa og styðja foreldra og systk-
ini hans í þeirri miklu sorg sem
þau eiga í, um leið og við vottum
þeim okkar dýpstu samúð.
Gunnar Bragi, Beggó,
Mansi, Gilli.
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og
minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrir vara. Þannig verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi
á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga.
Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal
einnig getið af marggefnu tilefni að frumort ljóð um
hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum
Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
Skrifstofur vorar
verða lokaðar
í dag 16. apríl frá hádegi vegja jaröarfarar,
INGIBJARGAR GUÐRÚNAR KRISTJÁNSDÓTTUR.
Samband málm- og skipasmiöa,
Meistarafélag járniðnaöarmanna.
+
Faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi
ÁRNI GRÍMSSON, MÚRARI
Lönguhlíö 3
andaöist á Landakotsspítala 15 þ.m. Jarðarförin auglýst síðar.
Andrea Bachmann Árnadóttir
Siguröur Bachmann Arnason
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
ÓSKAR CLAUSEN
rithöfundur
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni, miðvikudagínn 16. apríl kl.
1.30.
F.h. vandamanna,
örn og Haukur Clausen.
+
Jaröarför móðursystur minnar,
GUÐRÍÐAR JÓSEPSDÓTTUR,
Noröurbrún 1,
fer fram frá Fossvogskirkju, föstudaginn 18. apríl kl. 10.30 f.h.
Fyrir hönd ættingja,
Lóra Hjaltested.
+
Þökkum af alhug auösýnda samúö og hlýhug viö andlát móður og
tengdamóður okkar
INGIBJARGAR HARALDSDÓTTUR,
frá Hvalgröfum.
Haraldur Björnsson, Sigríöur Guömundsdóttir,
Ingvar Björnsson, Þóra H. Magnúsdóttir,
Ragnar Björnsson, Auöur Jónsdóttir,
____ ______ ______________ Ólafía Olafsdóttir. ___
+
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúö vegna andláts
KNUT OTTERSTEDT
fyrrverandí rafveitustjóra.
Lena Otterstedt,
Knútur Otterstedt, Harriet Otterstedt,
Haukur Otterstedt, Þórdís Guönadóttir,
og barnabörn.
+
Hjartans þakklæti sendi ég öllum nær og fjær sem sýndu mér
hlýhug og hjálpsemi viö andlát og jarðarför systur minnar,
JAKOBÍNU S. GUÐMUNDSDÓTTUR,
frá Engihlíö.
Einnig sendi ég starfsfólki Héraðshælisins Blönduósi bestu þakkir
fyrir góöa umönnun í veikindum hennar.
Guö blessi ykkur öll og minningu hennar.
Elísabet G. Guðmundsdóttir.
+
Maðurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi
ÞORGRÍMUR FRIORIKSSON,
kaupmaöur,
veröur jarösunginn fimmtudaginn 17. apríl í Fossvogskirkju kl.
1.30. Blóm vinsamlegast afþökkuö, en þeim sem vildu rriinnast
hins látna er bent á líknarstofnanir.
Guðrún Þóröardóttir,
Katrín Þorgrímsdóttir, Kristján Kristiánsson,
Sigurrós Þorgrimsdóttir, Guömundur Olafsson,
Þóröur Þorgrímsson,
og barnabörn.
+
Þökkum samúö og hlýhug viö andlát og útför
DÓMHILDAR SVEINSDÓTTUR.
Olga Óladóttir, Gunnar Guöbrandsson,
Svanhildur Óladóttir, Pótur Gunnarsson,
Kristín Óladóttir, Björn Jónsson,
ÓLafía Óladóttir, Soffía Sveinsdóttir,
og barnabörn.