Morgunblaðið - 16.04.1980, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 16.04.1980, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. APRIL 1980 GRANI GÖSLARI ___ Já, en þetta var eini stóiinn sem þeir höfðu! Afsakið, en við erum að hreinsa undir málninguna! BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson I trompsamningi er markmið sagnhafa venjulega að bjarga tapslögum sínum. Sé hægt að trompa þá án þess að fækka beinum tökuslögum í tromplitnum þarf ekki að viðhafa sérstakar björgunaraðgerðir. Enda eru hin tilfellin, þegar ekki er hægt að trompa, fremur umhugsunarefni. Spilið í dag er dálítið sérstakt. Norður gaf, austur-vestur á hættu. Norður S. Á1074 H. ÁD76 T. 108652 L. - Vestur Austur S. D92 S. G65 H. 54 H. K1092 T. Á T. 3 L. KDG9874 L. 106532 Skorað á Sturlu í framboð Nú styttist óðum framboðs- frestur til forsetakjörs, og eru þegar fimm í boði. Þykir mörgum það nægur fjöldi út af fyrir sig, en hitt er áberandi í tali manna á meðal, að fáum þykir mikill ljómi stafa af framboðum þessum, þótt öll séu vammlaus. Þau vekja bara ekki almennan áhuga, og eru vafalaust misjafnar ástæður fyrir því. Ég verð þess var, að enn vona margir, að fram komi maður, sem sameini betur en nokkur þeirra, sem fyrir eru, þá kosti er menn krefjast af forsetaefni. Sá maður, sem ég vil leyfa mér að vekja athygli á, er dr. Sturla Friðriksson erfðafræðingur, en hann myndi að mínu áliti og flestra sem til þekkja, sóma sér öðrum betur í þessu virðulega embætti, eins og áður hefur verið bent á í einu dagblaðanna. Sturla er velmetinn og víðþekktur fræði- maður bæði hérlendis og erlendis og alls staðar eftir honum tekið fyrir myndarleik og prúðmann- lega framkomu. Hann er áhuga- maður mikill og vel að sér um allt er lýtur að varðveizlu menningar- legra verðmæta, að ekki sé talað um náttúruvernd, en á því sviði hefur Sturla verið í fremstu röð um langan tíma, enda einn af fáum íslendingum, sem tekið hafa virkan þátt í alþjóðanáttúru- verndarstarfi. Á tímum vaxandi áhuga og aukins skilnings á gild náttúruverndar væri vel við hæfi að kjósa slíkan mann sem Sturlu til Bessastaða. Þegar fólk á förnum vegi var að því spurt fyrr í vetur, hvernig maður forsetinn ætti að vera, svöruðu flestir: Eins og Kristján Eldjárn. Án þess að stofna til samanburðar á þessum tveim ágætu mönnum, hygg ég, að margt yrði líkt með framboði Sturlu nú og Kristjáns fyrir 12 árum. Stuttur tími er nú til stefnu, og skora ég á alla þá, sem umgangast Sturlu að þrýsta á hann til framboðs, því að þess mun þurfa með. Þá verða og einhverjir fram- takssamir menn að hefja þegar Suður S. K83 H. G83 T. KDG974 L. Á Suður var sagnhafi í fimm tíglum og vestur spilaði út lauf- kóngi. Rétt er að benda sérstaklega á stöðuna. Andstæðingarnir eiga vísan slag á trompið og tapslagir eru sennilegir í báðum hálitunum. Reyndar felst í þeim báðum mögu- leiki til að ná aukaslag en hvorn á að velja? Sagnhafi leysti vandann á skemmtilegan hátt. Hann ákvað að láta andstæðing leysa þrautina fyrir sig, trompaði laufið í blind- um og vestur fékk næsta slag á trompásinn. Og hann greyið átti ekki til öruggan mótleik. Ekki þýddi fyrir hann að spila laufi og í reynd valdi hann spaðatvistinn. Austur neyddist til að láta gosann en eftir það gat sagnhafi tekið fjóra slagi á litinn með einfaldri svíningu. Seinna fékk austur á hjartaícónginn — slétt unnið. Vestur virðist hafa átt betri leik með því að spila hjarta í stað spaðáns. En það dugir ekki. Þá er látið lágt frá blindum og austur verður að reyna níuna. Annars verður hægt að láta spaða af hendinni í hjarta. Suður fær því á gosann og þá verður auðvelt að fríspila þrettánda spaðann og parkera í hann hjarta af hendinni. Og við má bæta, að enn fleiri möguleikar leynast í spilinu. „Hús verslunarinnar“ sem er að rísa í nýja miðbænum í Reykjavík. íbúðarblokk. byggð af BSAB í Mjóddinni í Breiðholti, þar sem heitir Þangbakki. Myndirnar tók ljósmyndari Morgunblaðsins, Emilía Björg Björnsdóttir. Stórhýsi rísa í Reykiavík Undanfarna mánuði hafa Reykvíkingar veitt því at- hygli að upp hafa risið tvö stórhýsi við fjölfarnar akst- ursleiðir innan borgarmark- anna, og til að afla upplýs- inga um hvaða hús hér væri verið að reisa hafði Morgun- blaðið samband við skrif- stofu borgarverkfræðings. Þar fengust þær upplýs- ingar, að húsið sem risið er í Mjóddinni í Neðra-Breið- holti, væri íbúðarblokk, reist af BSAB, Byggingarsam- vinnufélagi atvinnubifreiða- stjóra. Auk íbúða í húsinu verða svo einhver þjónustu- fyrirtæki á jarðhæð. Þegar er flutt í nokkrar íbúðanna og flutt verður í fleiri innan skamms. Húsið stendur við götuna Þangbakka og er númer 8 til 10 við þá götu. Hitt húsið er „Hús versl- unarinnar“ sem er að rísa í „nýja miðbænum" í Reykja- vík, á horni Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Þar verða til húsa fjölmargar verslanir samkvæmt upplýs- ingum skrifstofu borgar- verkfræðings, og einnig verða þar skrifstofur fyrir ýmsa aðila í íslenskri versl- un. Má þar til dæmis nefna Lífeyrissjóð verslunar- manna, Verslunarráð, Versl- unarbanka íslands og fleiri aðila.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.