Morgunblaðið - 16.04.1980, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1980
29
TXTwTw.
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 13-14
FRÁ MÁNUDEGI
undirskriftasöfnun til stuðnings
framboðinu, en það verður létt
verk og skemmtilegt, því að ekki
mun skorta meðmælendur. Vilji er
allt sem þarf, þá er sigurinn vís.
30. marz, 1980,
Bjarni Jónsson.
• Forsetaembættið
óþarft
Eg þakka kærlega „stuðnings-
manni" mínum sem ritar í Velvak-
anda h. 29. marz og einnig Eiríki
hinn 9. apríl það traust sem þeir
sýna mér með því að skora á mig,
að gefa kost á mér til forsetakjörs.
Eins og ég lofaði í Velvakanda þ.
2. apríl hef ég kynnt mér og
hugsað málið.
Það eru uppi skiptar skoðanir
um hvort ég á að gefa kost á mér.
Sumir segja að það væri það
versta fyrir okkur í hugsjónar-
hreyfinguni Valfrelsi og baráttu-
mál okkar. Aðrir segja að framboð
yrði það besta, því það myndi
vekja athygli á Valfrelsi og bar-
áttumálum okkar en þau eru
algjör hugsjón hjá mér. Frá mínu
sjónarhóli væri það frekar öfugt
að farið, að ég gæfi kost á mér, því
síðan ég kom heim, hef ég bent á
að forsetaembættið í þeirri mynd
sem það er nú í væri óþarfi og ætti
að sameina forsætisráðherraemb-
ættinu, og nota peningana, 100
millj. kr. á ári, til þarfari mála.
Hitt er annað, ef þjóðin sam-
þykkir að forsetinn notaði vald
sitt, þá legg ég til að við finnum
þann mann, sem mundi nota vald
embættisins. Því miður hafa allir
frambjóðendur lýst því yfir að
þeir vilji enga breytingu á emb-
ættinu.
25. gr. stjórnarskrárinnar segir:
„Forseti lýðveldisins getur látið
leggja fyrir alþingi frumvörp til
laga og annarra samþykkta."
Einnig getur hann neitað að skrifa
undir lög, t.d. þegar vísitalan er
reiknuð á prósentum í staðinn
fyrir krónutölu. Þegar forsetinn
neitar að skrifa undir verða málin
lögð fyrir dóm allra kosninga-
bærra manna í landinu. Það eitt
væri í áttina að bættu lýðræði.
Eitt brýnasta mál þjóðarinnar,
að mínu áliti, er endurskoðun
stjórnarskrárinnar og bið ég þess
vegna „stuðningsmann" minn og
Eirík að fá sem flesta í lið við
Valfrelsi og vekja stjórnarskrár-
nefnd til að flýta endurskoðun-
inni. Stjórnarskráin hefur verið í
nefndum (á kaupi?) í nær 40 ár.
Að mínu áliti er kominn tími til að
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á skákmóti í Bandaríkjunum í
fyrra kom þessi staða upp í skák
þeirra Spraggetts, Kanada, og
Walters Browne, sem hafði svart
og átti leik.
27.... Rf3+!, 28. gxí3 (Ef 28. Dxf3
þá 28. ... d2, 29. Hdl - Db6+)
He2. Hér leysti klukkan hvít
undan frekari þjáningum, en
framhaldið hefði orðið annaðhvort
29. Dfl Dd4+, 30. Khl - Dxf4
o.s.frv. eða 29. Dg3 — d2 30. Hdl
— Db6+ og vinnur.
stjórnvöld efni nú endurtekin lof-
orð sín í sambandi við stjórnar-
'skrána og hætti að draga almenn-
ig á asnaeyrunum. Eitt mundi ég
þiggja og er það stuðningur til að
komast í stjórnarskrárnefnd, en
þó kauplaust.
Sverrir Runólfsson.
Dýraspítali er
hendi
fyrir
Vegna skrifa Elísabetar L.
Sigurðsson í Velvakanda sl.
sunnudag vill stjórn Sambands
dýraverndunarfélaga íslands taka
fram eftirfarandi:
Síðastliðin tvö ár hefir verið rekin
í húsakynnum spítalans, Hjálpar-
stöð fyrir dýr, í samræmi við
skipulagsskrá sjálfseignarfélags-
ins. Á þessum tveimur árum hafa
a.m.k. 3—4 þús. manns leitað
þangað vegna ýmissa vandamála
varðandi dýr, og líklega helmingi
fleirum hefir verið vísað til dýra-
lækna. Hefir starfsemi þessi gefist
mjög vel. Samdar voru reglur
fyrir hjálparstöðina að amerískri
fyrirmynd (Animal Care Center)
og eru þær eftirfarandi:
a) skyndihjálp við særð og sjúk
HÖGNI HREKKVlSI
4-/4 © »*»
McNaught Synd.. Inc.
„60TT RJÁ þre A0 LUiv\6gA ÓVOLITIÐ 'A HÖ6MA !
i"
Nýlegar rannsóknir í Júgóslavíu:
Þeir sem drekka
minnst lifa lengst
DAUÐSFÖLL meðal drykkju-
manna eru mun tíðari en meðal
þeirra sem lítið sem ekkert
drekka samkvæmt nýlegum
rannsóknum sem gerðar voru í
Júgóslavíu.
Hingað til hafa margar rann-
sóknir sýnt fram á það að þeir sem
drekka eitt til tvö glös af víni
hvern dag fá blóðtappa mun síður
en þeir sem eru algjörir bindind-
ismenn. Þetta kom einnig fram í
rannsóknum sem fram fóru í
Júgóslavíu og tóku alls sjö ár, en í
henni tóku þátt menn á aldrinúm
35—62 ára og var enginn þeirra
algjör bindindismaður. Hins vegar
kom það í ljós þegar niðurstöður
lágu fyrir að dauðsföll meðal
þátttakendanna voru fæst meðal
þeirra sem minnst drukku. Tala
þeirra drykkjumanna sem létust
af völdum hjartasjúkdóma var
hærri en þeirra sem létust af
völdum slysa eða slags. Ekkert
samhengi fannst milli áfengis-
neyslu og krabbameins.
Miklir drykkjmenn virðast fá
slag vegna hækkandi blóðþrýst-
ings sem getur stafað af neyslu
áfengisins.
dýr, þar til þau komast undir
læknishendi.
b) þjónusta við hesta, þ.á m. afnot
af röntgentækjum spítalans og
öðrum tækjum, sem þörf er
fyrir hverju sinni.
c) móttaka og umönnun dýra, sem
hafa villst frá heimilum sínum
eða eigendur hafa yfirgefið eða
óska ekki eftir að hafa hjá sér.
Einnig umönnun dýra eftir ósk
eigenda þeirra.
d) leit að heimilum fyrir heimil-
islaus dýr.
e) rannsókn á kvörtunum yfir illri
meðferð á dýrum.
f) vinna í nánu sambandi við
lögreglu og dýraverndarfélög,
vegna slysa, sem dýr valda, svo
og um öll ofangreind atriði.
g) vinna að ábendingum um end-
urbætur á löggjöf um dýra-
vernd.
h) hverskonar upplýsingastarf-
semi um dýravernd s.s. útgáfa
bæklinga og fleira í samvinnu
við dýraverndarfélög.
Stöðin er opin alla virka daga
kl. 10—12 og 1—6 og auk þess er
svarað í síma 76620 (Dýraspítali
Watsons) 26221 (dýrahjúkrunar-
kona) og 16597 (Samband dýra-
verndunarfélaga Islands).
Bandalag kvenna í Rvík:
Skattaáþján hindri
ekki aldraða í
að búa í eigin húsi
ELLI- og heilbrigðismálanefnd
Bandalags kvenna i Reykjavík
bar á aðalfundi samtakanna
fram eftirfarandi tillögur:
1. Aðalfundurinn treystir því, að
framfylgt verði þeim lögum,
sem svo kveða á um, að allir
þegnar landsins skuli jafnan
eiga aðgang að bestu heilbrigð-
isþjónustu, sem völ er á. Aldr-
aðir verði þar á engan hátt
afskiptir.
Jafnframt bendir fundurinn á,
að öldrunardeildir og langlegu-
deildir þurfa að vera við helstu
sjúkrastofnanir landsins, svo
að aldraðir sjúklingar megi
njóta þar þeirrar hjúkrunar og
hjálpar, sem þeir eiga rétt á
eins og aðrir.
2. Aðalfundurinn bein'r þeirri ósk
til borgar og ríkis, að stuðlað
verði að betri upplýsingaþjón-
ustu fyrir aldrað fólk. Einnig
að aukin verði hjúkrunarþjón-
usta fyrir aldraða, 3—4 vikur á
ári, sem hjálp fyrir þá, sem
annast aldraða í heimahúsum.
Jafnframt telur fundurinn það
mikilsvert sem gert hefur verið
fyrir aldraða og hefur þar
sérstaklega í huga hina auknu
aðstoð til sjalfsbjargar í heima-
húsum og smíði ibúða handa
öldruðum.
3. Aðalfundurinn beinir því til
ríkis- og borgaryfirvalda að sjá
til þess að ellilífeyrisþegum,
sem hafa engar eða mjög tak-
markaðar tekjur, verði ekki
íþyngt svo með sköttum, að
þeim sé ókleift að búa í eigin
húsnæði.
Á aðalfundi Bandalags kvenna í Reykjavík sátu fundarkonur kaffiboð
borgarstjórans í Reykjavik á Kjarvalsstöðum.
53? SIGCA V/öGA £ Á/LVE^
Íú U Yltf LfelQ í LÓ\(UN()YÍ,<b06úl?
ftWMmWN M 49 HLtíHWh VCOV/O
<5\V4 06 KlLNH 49 5KofcKA \\tW
0M AuX 0G 949 ÆR AL\IE& \Mo$A-y
LtúOtí 0%.G0$ \ Wó
■^dA 9AGANA
EF ÞAÐ ER FRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐI
MORGUNBLAÐINU
9ó Aff m 49
yQK 'xiNmr £kk/
'ósmULIGTW 949