Morgunblaðið - 16.04.1980, Síða 30

Morgunblaðið - 16.04.1980, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. APRlL 1980 Yfirburðir Ballesteros SPÆNSKI Kolfsnillingurinn Sevrino Ballesteros varð ör- UKKur sÍKurveKari á hinni árlegu meistarakeppni í Kolfi sem fram fer jafnan í Augusta í Georgiu-fylki. Eft- ir keppnisdagana fjóra var Ballesteros með fjórum hóggum minna heldur en skaeðustu keppinautarnir Gib Gilbert og Jack New- ton.Sló Ballesteros 275 högg (66-69-68-72). Gilbert og Newton slógu báðir 279 högg. Gilbert 70—74—68— 67 og Newton 68—74—69— 68. Næstur kom svo Nubert Green með 280 högg. Ballest- cros hlaut í verðlaun 55.000 Bandaríkjadali, en þeir Gil- bert og Newton 35.000 dali hvor. „íslensku“ liðin fengu ekki á sig mark TEITUR Þórðarson og fé- lagar hans hjá Öster byrj- uðu nýja keppnistímabilið i Sviþjóð ekki betur en þokka- lega, en liðið varð að sætta sig við jafntefli á heimavclli gegn Elfsborg, ekkert mark var skorað. Fyrsta umferðin i sænsku knattspyrnunni fór fram um helgina og urðu úrslit þessi: Haimst. — Djurgarden 0—1 Ilammarhy — Norrköp. 1 — 1 Landskrona — Sundsv. 4—0 Gautaborg — Brage 0—0 Malmö FF — Atvidab. 1 —0 Mjallby — Kalmar 0—1 öster — Elfsborg 0—0 Ekki verður annað sagt, en að tölur þessar séu mjög „ítalskar“ og sænsku fram- herjarnir hafi verið feimnir við að skora hvað svo sem síðar verður. Þorsteinn Ól- afsson og félagar hans hjá Gautaborg eru vafalaust óánægðir með sinn hlut. að- eins jafntefli heima gegn nýliðunum i deildinni Braga. Það gerðu Árni Stef- ánsson og félagar hans hjá Landskrónu sem vann stærsta sigur dagsins. „Er bjartsýnn á sumarið“ — segir George Kirby, sem þjálfar Skagamenn í fimmta sinn — ÞAÐ ER gott að vera kominn til Akraness aftur ok ekki spillti það fyrir að ísland heilsaði mér eins og þegar ég kom hingað fyrst. með snjókomu. sagði George Kirby knattspyrnuþjálfari AkurnesinKa í samtali við Mbl. um helgina. en hann kom hingað til lands á föstudaginn ásamt konu sinni PegKy og munu þau dvelja hér um vikutíma. Enginn erlendur þjálfari hefur verið jafn sigursæll í íslenzkri knattspyrnu og George Kirby og því þykja það vissulega tíðindi þegar hann kemur hingað til starfa í fimmta sinn. Kirby kom fyrst til Akraness 1974 og urðu Skagamenn Islands- meistarar það ár og einnig árið 1975. Hann dvaldi við þjálfunar- störf í Kuwait árið 1976 en 1977 kom hann aftur og gerði Skaga- menn að íslandsmeisturum það ár og bikarmeisturum í fyrsta skipti árið eftir, 1978. Og nú er það spurningin hvað Kirby gerir í sumar, tekst honum að gera Skagamenn að Islandsmeisturum enn eitt árið? Þeir urðu íslands- meistarar 1960 og 1970 og stefna auðvitað að því að vinna titilinn 1980. Komur meö þjálfarann — Fln hvernig stendur á því að Kirby, framkvæmdastjóri hjá ensku deildarliði hefur tök á því að þjálfa Akurnesinga í sumar? — Það kom þannig til að Gunnar Sigurðsson hringdi í mig þegar ljóst var að þýzki þjálfarinn Hil- pert gæti ekki komið og spurði hvort ég gæti bjargað málunum. Ég sagði honum að það væri mögulegt en auðvitað væru því skorður settar hve lengi ég gæti verið hér á íslandi. Ég sagðist geta sent æfingaprógram sem strák- arnir gætu æft eftir undir stjórn Harðar Helgasonar en sjálfur kvaðst ég geta komið í maíbyrjun og væntanlega verið eitthvað fram í júlí. Ég hef mikinn hug á því að lið mitt Halifax komi hingað í júlí og verði hér í eina 10 daga við æfingar og keppni og ef hægt verður að koma því í kring get ég verið lengur. Þjálfari Halifax, Micky Bullock mun koma með mér hingað og við raunum vinna sam- an með liðið. Ég þarf að skreppa út til Englands aftur í maí og Micky verður með liðið á meðan. Hann er góður þjálfari og var áður framherji m.a. hjá Orient. Það verður svo að koma í ljós hve mikið ég get verið með Akranes- liðinu í haust t.d. í Evrópuleikjun- um. En ég er ekkert svartsýnn, við eigum eftir að vinna vel saman um mitt sumarið og svo mun Hörður taka við og honum treysti ég vel. — Nú hefur þú séð einn leik með liðinu. Ertu bjartsýnn á sumarið? — Ég vil nú aðeins koma að því fyrst, að ég taldi nauðsynlegt að skjótast hingað í vikutíma núna til þess að sjá strákana, vera með þeim á æfingum og hitta Hörð Helgason. Það er auðvitað ekki hægt að dæma mikið eftir leik, sem spilaður er gegn unglingaliði á malarvelli og það í heldur leiðinlegu veðri. En þó sá ég nóg til þess að geta verið bjartsýnn á sumarið. Flesta strákana þekki ég frá fyrri tíð og veit hvað þeir geta og mér leist vel á nýju strákana í liðinu. Þrír þeirra léku allan leikinn, Bjarni markvörður og tengiliðirnir Kristján og Sigurður og gat ég því fylgst vel með þeim. Þeir eru sterkir leikmenn og Bjarni virðist vera öruggur í markinu. Það er mjög mikilvægt að hafa traustan markvörð, sem veitir öllu liðinu öryggi. Sigurður er sterkur og ákveðinn og virðist vera harður fyrir og Kristján er ákaflega leikinn. Hann minnir mig svolítið á Karl Þórðarson. Bikar.sÍKurinn hápunkturinn — Hvernig hefur gengið hjá félagi þínu Halifax í 4. deildinni ensku í vetur? — Þegar ég tók við stjórn Halifax í nóvember 1978 var útlitið allt annað en glæsilegt. Liðið hafði aðeins hlotið 4 stig í 21 leik. Þetta lagaðist heldur og í þeim 25 leikjum sem eftir voru fékk liðið 22 stig og endaði því með 26 stig og þurfti að sækja um I ~— FLIOTT &VEL! Litmyndir á Kodak pappír WÉmSA-- ■ HANS PETERSEN HF BANKASTRÆTI AUSTURVER GLÆSIBÆ S: 20313 S: 36161 S: 82590 Umboðsmenn um land allt endurkjör í deildina. Það lukkað- ist og í fyrrasumar gerði ég róttækar breytingar, seldi helm- inginn af liðinu en hélt aðeins eftir 8 mönnum. Ég keypti svo nýja menn í staðinn fyrir þá sem seldir voru. Við byrjuðum þetta keppnistímabil vel en síðan fór að halla undan fæti vegna meiðsla, sem herjuðu á liðið. Um tíma voru t.d. fjórir framlínumenn meiddir og ég þurfti því að setja varnar- menn í framlínuna og þetta kunni auðvitað ekki góðri lukku að stýra. Ég er þó vongóður um að Halifax hljóti svo mörg stig að félagið þurfi ekki að sækja um endur- kosningu. — I bikarkeppninni gekk okkur miklu betur og hápunkturinn var auðvitað sigurinn yfir Manchester City í janúar. Sá árangur vakti geysilega athygli og leikurinn var sýndur um allt England í sjón- varpi og blöðin spöruðu ekki lýsingarorðin. Ég hafði nóg að gera þennan dag, allir vildu fá viðtal við framkvæmdastjóra 4. deildarliðsins sem hafði öllum á óvart unnið eitt frægasta félag Englands. — Ég kann vel við mig í Halifax og við höfum flutt þangað frá London. Ég gerði samning við Halifax til þriggja ára og hann rennur út haustið 1981. Það er afar hentugt að búa í Halifax því mörg góð knattspyrnulið eru í grenndinni (Halifax er 10—12 km frá Leeds og 30—40 km frá Manchester, svo dæmi séu tekin) og því góðir möguleikar á því að sjá leiki annarra liða og þar með svipast um eftir leikmönnum, sem maður gæti hugsað sér að kaupa. Hefur áhuga á íslenzkum leikmönnum — Hefur þú haft áhuga á íslenzkum leikmönnum? — Vissulega eru ýmsir leik- menn hér á íslandi sem ég vildi gjarna hafa í liðinu hjá mér en þeir sem ég hef spurst fyrir um virðast ekki hafa áhuga. Ég tel það miður því án efa myndu íslenzkir knattspyrnumenn hafa gott af því að leika í Englandi og þegar þeir á annað borð eru komnir í deildarlið í Englandi opnast þeim ýmsir möguleikar. Ýmsir af beztu leikmönnum 1. deildar í dag byrjuðu í 4. deild. Ég tel að knattspyrnan í Englandi hafi upp á miklu meira að bjóða en t.d. Svíþjóð, sem nú virðist vera vinsæl hjá íslenzkum knatt- spyrnumönnum, jafnvel þótt um 4. deildarlið sé að ræða. — Hvernig er 4. deildin í Eng- landi í samanburði við 1. deildina hér á Islandi? — Það er ómögulegt að gera samanburð, þar sem ég hef ekki séð íslenzk 1. deildarlið leika gegn ensku 4. deildarliði. En það má vissulega fá slíkan samanburð og af því verður að Halifax komi hingað í sumar, sem ég vona að verði. — Hvaða lið er bezt í Englandi í dag? — Það er eitt lið sem ber höfuð og herðar yfir önnur lið í dag, Liverpool. Svo miklir eru yfir- burðir Liverpool að ef þú ferð til veðmangara í dag og vilt veðja á það hvaða lið verður Englands- meistari vorið 1981 þarftu að borga 4 pund fyrir hver 6 sem þú fengir ef þú veðjar rétt. — Telur þú að enska landsliðið eigi möguleika á sigri í úrslitum Evrópukeppni landsliða í sumar? England á möguleika — Já auðvitað á England mögu- leika þar. Enska landsliðið hefur verið á uppleið að undanförnu og við eigum í dag marga unga og góða leikmenn. Á síðustu árum hafa komið fram leikmenn sem öll lið vilja kaupa, Keegan, Francis, Cunningham, Woodcock, Wilkins og markverðirnir Shilton og Clem- ence svo ég nefni nokkur nöfn. Það er aðeins einn veikleiki í enska landsliðinu í dag, vörnin. Það er merkilegt því England hefur alltaf átt góða varnarmenn en nú hefur þetta breyzt. — Eitthvað sem þú vilt segja að lokum við stuðningsmenn Skaga- manna? — Ég endurtek að það er gott að vera kominn til Akraness aftur og ég hlakka til sumarsins. Ég vona bara að ég eigi framundan jafn ánægjulegt og árangursríkt samstarf við lið ÍA og stuðn- ingsmenn þess og áður fyrr. - SS. nmjnimi Getrauna- spá M.B.L. s c 3 *; c 3 CT ST C- S»* Sunday Mirror Sunday People Sunday Exprcss News of the World s 3 CL PS H 2- S- 35 *1 90 T3 sr SAMTALS 1 X 2 Bolton — Stoke X X 1 1 1 X 3 3 0 Brighton — Middleshr. X X X X 1 1 2 4 0 Coventry — C. Palacc 2 X 1 X 1 1 3 2 1 Leeds — Aston Villa X 1 1 1 X 1 4 2 0 Livcrpool — Arsenal X 1 1 1 1 1 5 1 0 Man. City — Bristol C. 2 1 X X 1 1 3 2 1 Norwich — Man. Utd. 2 X 2 2 2 2 0 1 5 Nott. Forest — Derby 1 1 1 1 1 1 6 0 0 Southampton — Ipswich 1 X 2 2 X X 1 3 2 Tottenham — Everton X 1 1 1 X X 3 3 0 W.B.A. — Wolves 1 X X X X 2 1 4 1 Birmingham — Luton 1 1 1 1 1 1 6 0 0

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.