Morgunblaðið - 16.04.1980, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. APRIL 1980
31
• George Kirby og konu hans PegKy var vel íagnað er þau komu til Akraness á íöstudaginn. Kirby
fylgdist með leik Skagamanna og unglingalandsliðsins á laugardaginn og var þessi mynd tekin að leik
loknum af Kirby í hópi þekktra knattspyrnumanna á Akranesi. Talið frá vinstri: Hörður Helgason
aðstoðarþjálfari, Árni Sveinsson, Jón Gunniaugsson, George og Guðjón Þórðarson. Ljósm. SS.
Skrípadómgæsla er
Þróttur lagði ÍR
— Dómararnir ráku 15 sinnum af leikvelli
STUNDUM hefur maður orðið
vitni að góðri dómgæslu í hand-
boltaleik, stundum slæmri eins
og gengur og gerist. En í gær-
kvöldi, er ÍR og Þróttur léku
fyrri leik sinn um setu í 1. deild
að ári, gekk gersamlega fram af
áhorfendum. Það var ekki slæm
dómgæsla hjá þeim Jóni Frið-
steinssyni og Árna Tómassyni,
heldur væri réttara að kalla hana
hneyksli. Þeir félagar létu sig
hafa það að reka 15 sinnum
leikmenn út af og þó að um
harðan leik hafi verið að ræða, þá
eru 15 brottrekstrar hreinn
brandari. En menn vissu varla
hvort þcir ættu að hlæja eða
Góðir
sigrar
ÍSLENSKA badmintonlandsliðið
hefur unnið góða sigra á Portú-
gölum og ítölum í Evrópukeppni
landsliða sem fram hefur farið í
Groningen i Ilollandi síðustu
dagana. Vann ísland bæði löndin
5—0, en hafði áður tapað naum-
lega, 2—3 fyrir Pólverjum.
ÚRSI.IT loikja í ensku knattspyrnunni urAu
•sem hér segir i jtærkvoidi:
1. deild:
Bolton — Coventry 1:1
2. deild:
Kulham — Cardiff 2:1
3. deild:
Swindon — Rotherham 6:2
Wimbledon — Oxford 1:3
4. deild:
Huddersfield — Scunthorpe 2:1
Hartlepool - Wixan 1:1
Rochdale - Torquay 0:0
ísland í
ÍSLENSKA unglingalansliðið í
handknattleik hafnaði í fimmta
sætinu á Norðurlandamóti ungl-
inga sem fram fór i Finnlandi um
helgina. Fékk islenska liðið þrjú
stig, tvö fyrir stórsigur, 42 — 19
gegn Færeyjum og eitt fyrir
jafntefli gegn Finnum, 27—27.
Fyrsta leiknum -töpuðu íslend-
ingar fyrir Svíum og var greint
frá því í Mbl. á laugardaginn, en
lokatölurnar urðu 13—21. Síðan
kom naumt tap gegn Noregi,
27—30, þá jafntcflið gegn Finn-
landi, 27—27, því næst tap fyrir
Þróttur: 21 = 19
gráta. Vonandi verður ekki boðið
upp á slíka dómgæslu í bráð,
handknattleikurinn líður hrein-
lega fyrir það. Til að kóróna allt
saman, þá hófst leikurinn 12
mínútum síðar en hann hafði
verið auglýstur vegna þess að
það þurfti að bíða eftir þeim Jóni
og Árna.
Hvað um það, Þróttur vann
stórmikiK’ægan sigur, 21—19, eft-
ir að hafa verið 10—8 yfir í
hálfleik. Nægir Þrótti því jafntefli
í síðari leiknum, sem er annað
kvöld, til þess að lyfta sér í 1.
deild. En sigri ÍR, þá gildir ekki
betri markatala þótt ótrúlegt sé.
Verður þá að fara fram þriðji
leikurinn og þykir þó flestum tveir
vera meira en nóg.
Leikurinn bauð ekki upp á
glæsileg tilþrif fyrstu 10 mínút-
urnar eða svo, til þess var tauga-
slappleiki leikmanna of mikill.
Fumið var mikið. En Þróttararnir
róuðust mun fyrr auk þess sem
þeir virtust hafa sterkara liði á að
skipa. Þeir sigu fram úr smátt og
smátt og þegar um 12 mínútur
voru liðnar af síðari hálfleik hafði
liðið náð 7 marka forystu, 18—11.
En þá náði brottrekstraraldan
hámarki og má segja að Þróttarar
hafi ekki verið með fullskipað lið
síðustu 15 mínútur leiksins.
ÍR-ingarnir fengu sinn skerf af
brottrekstrunum, meira að segja 8
á móti 7 hjá Þrótti. En brott-
rekstrar ÍR-inga dreifðust meira
yfir leikinn allan, í stað þess að
koma hver eftir annan á stuttum
tíma. Nú, ÍR minnkaði muninn
5. sæti
erkifjcndunuin Dönum, 19—25
og loks rassskelling Færeyinga,
42-19.
Svíar urðu Norðurlandameist-
arar, þeir hlutu 8 stig. Danir
hlutu einnig 8 stig, en markatala
þeirra var mun Iakari. En loka-
staðan á mótinu varð þessi.
Svíþjóð 5 4 0 1 130 - 91 8
Danmörk 5 4 0 1 122 - 93 8
Finnland 5 3 1 1 129- 94 7
Noregur 5 2 0 3 140-128 4
Island 5 1 1 3 128-122 3
Færeyjar 5 0 0 5 76-181 0
óðfluga, en vantaði herslumuninn
og Þróttur seig fram úr aftur í
lokin.
Mörk Þróttar: Sigurður Sveins-
son 8(6), Páll Ólafsson 5, Svein-
laugur Kristjánsson 3, Einar
Sveinsson 2, Olafur H. 2, Lárus
Lárusson 1.
Mörk ÍR: Bjarni Bessason 6,
Pétur Valdimarsson 5, Hörður
Hákonarson 4(2), Bjarni Bjarna-
son, Guðmundur Þórðarson,
Bjarni Hákonarson og Sigurður
Svavarsson 1 hver. — gg.
UMFL vann
UMFL varð bikarmeistari ís-
lands í blaki, en liðið sigraði
Þrótt 3—1 á Selíossi í gærkvöldi.
Vann UMFL því tvöfalt, varð
einnig íslandsmeistari. í kvenna-
flokki sigraði Víkingur, vann
Þrótt 3—0.
Víkingur
vann í
bráðabana
VÍKINGUR sigraði Fram 3—2
eftir bráðabana í Reykjavíkur-
mótinu í knattspyrnu í gær-
kvöldi. Fór leikurinn fram í
ausandi rigningu og bauð upp á
lítið annað en gusugang. Fram
náði snemma forystu með sjálfs-
marki, en eftir að Pétur Ormslev
hafði verið rekinn af leikvelli
fyrir að slá til mótherja, þyngdist
sókn Víkinga. Þeim tókst loks að
jafna með marki Jóns Björnsson-
ar undir lok leiksins.
Eftir bráðabanann var enn
jafnt, 2—2, en í framlengingunni
á bananum skoraði Heimir Karls-
son fyrir víking en Marteinn lét
verja frá sér. Var saga Fram þar
með öll. Næsti leikur fer fram í
kvöld klukkan 20.00, eigast þá
við Valur og Ármann.
KR-KA
KR OG KA frá Akureyri eigast
við í undanúrslitum bikarkeppni
HSÍ í kvöld. Fer leikurinn fram í
Laugardalshöllinni og hefst hann
klukkan 18.50. Verður vafalaust
hart barist, enda sæti í Evrópu-
keppninni í húfi.
Myndir af sigurvegurum á skíðamóti
Andrésar Andar sem fram fór á Akureyri
Guðrún Jóna frá Akureyri á Kristín Hilmarsdóttir 10 ára
fullri ferð í sviginu. frá Akureyri sigurvegari í svigi
Ljósm. sor. og stórsvigi.
Ásta Ilalldórsdóttir sigurveg- Ragnheiður Ragnarsdóttir frá
ari í stórsvigi 9 ára flokki Siglufirði 12 ára varð þriðja í
stúlkna. svigi í sínum flokki.
Jón M. Ragnarsson 10 ára Guðrún Jóna Magnúsdóttir 12
sigurvegari í svigi og stórsvigi. ára sigurvegari í svigi og stór-
svigi.