Morgunblaðið - 14.05.1980, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ1980
11
Tekjur áætlaðar
990 milljónir króna
Fjárhagsáætlun Sauðárkróks samþykkt:
Sauðárkróki, 10. mái 1980
FJÁRHAGSÁÆTLUN Sauðárkróks var samþykkt eftir síðari
umræðu í bæjarstjórn Sauðárkróks 6. maí sl. Á rekstrarreikn-
ingi bæjarsjóðs eru gjöld áætluð kr. 713 milljónir og tekjur 990
m. kr. Niðurstöðutölur á gjaldfærðri fjárfestingu eru gjalda-
megin 98,9 m. kr. og teknamegin 45 m. kr., en á eignfærðri
fjárfestingu 377,3 m. kr. gjaldamegin og 154,4 m. kr. teknam.
Á rekstrarreikningi hafnarsjóðs eru niðurstöðutölur 46,4 m.
kr. en á eignabreytingareikningi 73,8 m. kr. Hjá Vatnsveitu
Sauðárkróks eru hliðstæðar tölur 53,5 m. kr. og 64,6 m. kr. og
hjá Rafveitu Sauðárkróks 22 m. kr. á rekstursreikningi og 64,3
m. kr á eignabreytingareikningi.
Fjárhagsáætlun Hitaveitu
Sauðárkróks hefur enn ekki verið
afgreidd til síðari umræðu þar
sem lánsfjáráætlun ríkisstjórnar-
innar hafði ekki verið afgreidd á
' Alþingi þegar síðari umræða fór
fram í bæjarstjórn um fjárhags-
áætlunina. í drögum að lánsfjár-
áætlun er gert ráð fyrir nokkru fé
til Hitaveitunnar.
Helztu framkvæmdir á vegum
Sauðárkrókskaupstaðar í sumar
verða eins og á sl. ári áframhald-
andi uppbygging skólamannvirkja
á staðnum. Gert er ráð fyrir að
ljúka frágangi svokallaðrar
C-álmu við Gagnfræðaskólann,
sem tekin verður í notkun á næsta
skólaári. Þá verður nýtt verk-
námshús við Fjölbrautaskólann
gert fokhelt í sumar í samræmi
við verksamning, sem gerður var á
sl. ári við verktaka á staðnum og
síðast en ekki síst má nefna að í
sumar verður hafist handa um
byggingu nýs íþróttahúss sem er
langþráð framkvæmd hjá bæjar-
búum. Samtals verður varið 365
millj. kr. til fræðslumála á Sauð-
árkróki á þessu ári. Er það í
samræmi við fyrirheit bæjar-
stjórnarmeirihlutans fyrr á þessu
kjörtímabili um að aðaláherzla
skuli lögð á fræðslumál og upp-
byggingu skólanna og þá fyrst og
fremst framhaldsskólans.
Fyrirhuguð er bygging nýs
tveggja deilda leikskóla í Hlíðar-
hverfi á þessu ári og standa yfir
samningar við Húseiningar h/f á
Siglufirði um smíði slíks húss,
sem tilbúið yrði frá verksmiðjunni
í júlí n.k.
Þá eru tilbúnar teikningar að
nýju og glæsilegu félagsheimili,
sem ráðgert er að framkvæmdir
geti hafist við á þessu sumri og
rísa á í Áshildarholtshæð.
Á vegum Vatnsveitu Sauðár-
króks eru uppi áform um nýja
virkjun á þessu ári til að leysa
brýna þörf Hlíðarhverfisbúa fyrir
drykkjarhæft vatn. Til greina
koma nokkrir kostir í því efni, en
enn hefur ekki verið endanlega
ráðið hver verður valinn. Ákvörð-
un um það verður tekin innan
skamms.
Á fjárhagsáætlun eru 100 millj.
kr. til gatnagerðarmála. Þótt hér
sé um verulega fjárhæð að ræða
verður ekki lagt varanlegt slitlag
á götur bæjarins í sumar, en á
næsta ári er fyrirhugað að gera
verulegt átak í því efni.
Nú eru að hefjast miklar fram-
kvæmdir við Sauðárkrókshöfn.
Verður hún dýpkuð og efnið sem
upp kemur notað í uppfyllingu á
svæði kringum gömlu bryggjuna,
sem nú verður rifin. Má segja að
við þetta stækki kaupstaðarlóðin
nokkuð og raunar breyta þessar
framkvæmdir mjög svipmóti
gamla bæjarins og möguleikum til
að stækka hann.
Öll þessi mál sem hér hafa verið
nefnd voru til umræðu á fundi
bæjarmálaráðs Sjálfstæðisflokks-
ins á Sauðárkróki, sem haldinn
var daginn eftir samþykkt fjár-
hagsáætlunarinnar í bæjarstjórn.
Þorbjörn Árnason, forseti bæj-
arstjórnar, gerði í ítarlegri ræðu
grein fyrir fjárhagsáætluninni og
helztu málaflokkum og svaraði
fyrirspurnum fundarmanna. Fyrr
í vetur hafði hann kynnt drög að
áætluninni á fundi bæjarmála-
ráðs.
Bæjarmálaráð hefur nú starfað
í 14 ár og starfsemi þess gefið
góða raun. í því eiga sæti bæjar-
fulltrúar flokksins og varamenn
þeirra, fulltrúar flokksins í nefnd-
um og ráðum bæjarins, stjórnir
sjálfstæðisfélaganna o.fl. Öllu
stuðningsfólki Sj álfstæðisflokks-
ins er heimilt að sækja fundi og
taka þátt í störfum bæjarmála-
ráðs. Það heldur fundi fyrsta
miðvikudag hvers mánaðar frá
september til maí. Þar gera bæj-
arfulltrúar og aðrir, sem kosnir
hafa verið af hálfu flokksins til
trúnaðarstarfa fyrir bæjarfélagið,
grein fyrir gangi mála og svara
fyrirspurnum.
Með þessum hætti gefst fólki
ákjósanlegt tækifæri til að fylgj-
ast með málefnum sveitarfélags-
ins, koma áhugamálum sínum á
framfæri og gera athugasemdir
við sitthvað, sem því þykir að
betur mætti fara.
Núverandi formaður bæjar-
málaráðs er Knútur Aadnegard,
byggingameistari, og með honum í
stjórn eru Camilla Jónsdóttir
hjúkrunarfræðingur og Reynir
Kárason skrifstofumaður.
KÁRI.
Sýning á munum unnum á ýmsum námskeiðum, sem haldin
hafa verið í skólanum í vetur, var haldin á sunnudag. Þar
var margt fagurt að sjá, og þangað var látlaus straumur
gesta, meðan sýningin var opin. Sem dæmi um viðfangsefni
má nefna vefnað, kjólasaum, hnýtingar, útsaum og
postulínsmálun, sem vakti sérstaka athygli.
Sv.P.
Vegleg sýning í
Hússtj órnarskól-
anum á Akureyri
k*JAleIkasumar’80
/ ár er Melkasumar í Herrahúsinu
Því flöggum viö geysilegu úrvali af
léttum og þægilegum sumarfatnaði
frá Melka.
M.a. blússum, buxum, stuttbuxum,
skyrtum, stutterma skyrtum j
o.m.fl. Allt sómaklæöi enda frá /
Melka komin. / ,
BANKASTRÆTI 7 & AÐALSTRÆTI4
7.111