Morgunblaðið - 20.07.1980, Page 1
161. tbl. 67. árg.
SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sautján teknir
höndum í Kóreu
Scoul. 19. júlí. AP.
HERLAGASTJÓRNIN í Suður-Kórcu tilkynnti á laugardag að
sautján þingmenn og fyrrverandi ráðherrar hefðu verið
teknir hondum sakaðir um spillingu. valdníðslu og truflun á
pólitísku og félagslegu velsæmi.
Handtökurnar voru liður í
áframhaldandi hreinsunum þjóð-
aröryggisnefndar hersins, sem
sett var á stofn til að fást við
meint skaðaöfl í landinu. Alls
hefur 4992 embættismönnum
stjórnarinnar verið sagt upp
störfum á síðustu tveimur vikum.
í tilkynningu herlagastjórnar-
innar kom fram að sex þingmann-
anna væru úr Lýðræðislega lýð-
veldisflokknum, sem hlynntur er
ríkisstjórninni, átta þeirra úr
Nýja lýðræðisflokknum og þrír
fanganna væru fyrrverandi ráð-
herrar úr stjórn Park Chung-Hee,
forseta sem myrtur var.
Herlagastjórnin sagði að menn-
irnir hefðu verið teknir höndum
eftir að þeir létu sem vind um eyru
þjóta endurtekin tilmæli stjórnar-
innar um að þeir létu „ólöglega
fenginn auð“ af hendi.
Fyrrv. leiðtogi
Tyrkja veginn
Istanhul. 19. júli. AP.
HRYÐJUVERKAMENN skutu Nihat Erim, íyrrverandi
forsætisráðherra Tyrklands, til bana í dag í sumarhúsi
hans í Dragos, 60 km austur af Istanbul.
Erim var 68 ára að aldri og gegndi embætti
forsætisráðherra með stuðningi hersins á árunum
1971—73 þegar lýst var yfir herlögum vegna starfsemi
vinstrisinna. Hann var úr Lýðveldisflokki Búlent Ecevit
fyrrum forsætisráðherra.
„Þetta er ungt og leikur sér.‘
Austurvelli eftir ÓI K.M.
Sólskinsmynd frá
Moskvuleikar settir í
mótmælaandrúmslofti
Einn lífvarða Erims var einn-
ig myrtur í árásinni. Tilræðið
við Erim fylgir í kjölfar morðs-
ins á þingmanni Lýðveldis-
flokksins, Abdurrahman Koksa-
löglú, í Istanbul á fimmtudag.
Utför hans var gerð á kostnað
ríkisins í gær.
Vitni segja að Kamile kona
Erims og lífvörður hans hafi
Sovézk
herstöð í
Víetnam
Manila, 19. júlí - AP.
YFIRMAÐUR Bandarikjahers á
Kyrrahaíi. Herbert Eric Wolff
hershöfðingi, sagði í dag i viðtali að
Rússar væru að koma sér upp
geysistórri herstöð við Cam Ranh-
flóa. sem Bandarikjamenn yfirgáfu
1975, „í árásarskyni.“
Hann kvað þetta hernám Rússa
ekki aðeins ógnun við lönd Suð-
austur-Asíu heldur flugleiðir og sigl-
ingarleiðir um þennan heimshluta.
Hann líkti nærveru Rússa í Cam
Ranh-flóa við rýting sem væri beint
að Filippseyjum, þar sem Banda-
ríkjamenn hafa tvær herstöðvar.
Árekstur við
skriðdreka
Berlln, 19. júli. AP.
ELLEFU manns særðust á laugar-
dag er hópferðabill rakst á sovézkan
skriðdreka á hraðbraut frá Lauen-
burg í Vestur-Þýzkalandi til Vestur-
Berlínar, að sögn lögreglu.
Samkvæmt frásögn lögreglunnar
ók skriðdrekinn ljóslaus þvert yfir
hina fjölförnu umferðarbraut í þann
mund er bifreiðin nálgaðist. Ekki er
vitað um meiðsli á áhöfn skriðdrek-
ans.
lent í kúlnaregni þegar þau stigu
úr bíl Erims til að ganga í
fjörunni. Erim var skotinn
nokkrum sinnum í kviðinn og
lífvörðurinn, Ali Kartal, beið
bana á leið í sjúkrahús. Konu
Erims sakaði ekki í árásinni.
Fjórir menn, allir um tvítugt,
tóku þátt í árásinni að sögn
sjónarvotta og flýðu í bíl sem
beið þeirra. Samkvæmt orðsend-
ingu, sem var skilin eftir nálægt
líki Erims, var tilræðið verk
„Dev-Sol“ (Vinstribyltingarinn-
ar), einna þeirra vinstriöfga-
samtaka sem taka þátt í blóðugu
hugsjónastríði sem geisar í
Tyrklandi.
Samkvæmt orðsendingunni
var morðið „refsing". Einnig var
minnzt á Gun Sazak, fyrrum
ráðherra hægriöfgaflokks, er var
skotinn til bana í Ankara 28.
maí.
Mowkvu. 19. júlí AP.
TUTTUGUSTU og aðrir sumaról-
ympiuleikarnir voru settir í
Moskvu á laugardag og voru um
sex þúsund iþróttamenn frá átta-
tíu og einu landi viðstaddir
setningarathöfn leikanna. sem
standa munu yfir í tvær vikur.
Setningarathöfnin, sem að jafn-
aði endurspeglar fjölbreytni og
ólíkar siðvenjur keppnisþjóða var
þrungin pólitísku táknmáli og mót-
mælum. Alls þrjátíu og sex þjóðir,
þ.á.m. Kanada, Vestur-Þýzkaland
og Japan, fóru að dæmi Bandaríkj-
anna og ákváðu að koma hvergi
nærri. Aðrar vestrænar þjóðir,
Belgía, Frakkland, Bretland, ír-
land, Ítalía, Luxemborg, Holland,
San Marino og Sviss létu mótmæli
í ljós með því að taka ekki þátt í
skrúðgöngu við setningarathöfnina.
Ólympíueldurinn kom til Moskvu
á föstudag og fögnuðu honum tugir
þúsunda á götum úti í Moskvu.
Keppnin sjálf mun hefjast í dag,
sunnudag, með körfubolta, hnefa-
Parls. 19. júlí. AP.
TVEIR menn til viðbótar voru
handteknir i dag. grunaðir um
þátttöku i tilræðinu við Shahpour
Bakhtiar. fyrrverandi forsætisráð-
herra trans. i ibúð hans í útborg
Parísar.
Þrír menn voru handteknir fljót-
lega eftir hið misheppnaða banatil-
ræði, allir Palestínumenn. Eftir
handtöku þeirra var sagt að ekkert
benti til að fleiri menn væru viðriðn-
ir tilræðið. En vitni að tilræðinu sá
fimm menn.
Fréttir herma að yfirmaður árás-
arsveitarinnar sé Abou Mazem, öðru
nafni Anis Naccache, 29 ára leiðtogi
úr palestínsku samtökunum A1 Fat-
ah, en þær hafa ekki fengizt staðfest-
ar. Hann er sagður eiga sæti í
miðstjórn samtakanna og búsettur í
Damaskus.
Bakhtiar sagði í sjónvarpsviðtali
að hann mundi halda áfram baráttu
gegn stjórn Khomeini trúarleiðtoga
og ekki hafa í hyggju að fara frá
Frakklandi á næstunni.
Hann sagðist ekki í nokkrum vafa
um að tilræðismennirnir hefðu verið
launaðir útsendarar Khomeini og
Andstaða
áfram í
Bólivíu
I^a Paz, 19. júlí. AP.
ANDSTAÐA hélt áíram í
daj; gegn heríorin>íjunum.
sem haía tekið völdin í
Bolivíu og skipað „við-
reisnarstjórn“ til að koma
á víðtækum umbótum í
efnahags- og félagsmálum.
„Kosningaævintýri eru á
enda,“ sagði yfirmaður land-
hersins, Luis Garcia Merza,
þegar hann skipaði ríkis-
stjórn 15 hermanna og
teggja óbreyttra borgara.
„Það er kominn tími til að
gera Bolivíu að nútíma iðn-
aðrríki."
Hann bannaði starfsemi
verkalýðsfélaga þar til ný
vinnulöggjöf hefði veri sam-
þykkt og hét „langtíma"
umbótum til að binda endi á
spillingu, atvinnuleysi,
spákaupmennsku og seina-
gang í dómskerfinu í þessu
fátækasta landi Suður-
Ameríku.
leikum, knattspyrnu, sundi og fim-
leikum, meðal annars.
Það var forseti Sovétríkjanna,
Leonid Brezhnev, sem setti
Ólympíuleikana með einni setn-
ingu: „Ég lýsi hér með Moskvuleik-
ana setta, sem er tuttugasta og
önnur Ólympíuhátíð nútímans",
sagði forsetinn.
klíku hans. En hann sagði að árásin í
gær væri áhætta, sem fylgdi starfi
sínu, og mundi aðeins auka óbeit
manna á núverandi stjórn írans.
Bakhtiar kvaðst eiga von á fleiri
árásum. „En það mun ekki breyta
hugsunargangi mínum, því að ég
mun halda áfram baráttu minni,
þeirri lýðræðislegu baráttu, sem ég
hefi háð til þessa.“
26 Rússar
biðu bana
Islamabad. 19. júli. AP.
AFGANSKIR skæruliðar felldu 26
sovézka hermenn. en 13 féllu úr iiði
þeirra sjálfra. í bardögum í Surk-
hab í Logar-fylki rétt sunnan við
Kabul að sögn sjónarvotta i dag.
Skæruliðar tóku einnig fjóra
stjórnarhermenn til fanga í bardög-
unum. þeir hafa verið yfirheyrðir
um áform Rússa og Kabul-stjórnar-
innar um aðgerðir gegn skæruliðum.
Bændur neituðu að
yfirgefa sendiráð
San Salvador, 19. júlí. AP.
HÓPUR 217 vinstrisinnaðra
smábænda og landbúnaðar-
verkamanna. sem nýlega tók
sér bólfestu í sendiráði Costa
Rica i San Salvador, hefur
neitað að þyggja boð um póli-
tískt hæli í Costa Rica ,.af ótta
við að það sé gildra*. að sögn
talsmanna þeirra i dag.
Utanríkisráðherra Costa Rica,
Rafael Angel Calderon Fournier,
brást við með því að segja að
tilboð þetta væri síðasta tilraun
lands síns til að leiða vandamál-
ið til lykta friðsamlega, og gaf
þannig í skyn að hann kynni að
leyfa salvadorískum öryggis-
sveitum að rýma sendiráðið.
Það voru vopnaðir félagar
róttæklingahóps er kallar sig
Alþýðusamtökin 28. febrúar, er
gerð'u áhlaup á sendiráðið þann
11. júlí og felldu þar einn
lögreglumann. Þeir hleyptu síð-
an fjölda smábænda gegnum
hlið sendiráðsins samdægurs og
aftur á fimmtudagskvöld. Smá-
bændurnir segjast hafa gripið til
þessa örþrifaráðs til að komast
hjá átroðningi stjórnarliða sem
ieita vinstrisinnaðra skæruliða
um sveitir dyrum og dyngjum
Tveir teknir fyrir
árásina á Bakhtiar