Morgunblaðið - 20.07.1980, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ1980
MARYLYN Fronch gat sér mikinn orðstír, vítt um
veröld. þegar b<')k hennar „The Women’s Roorn” kom
út fyrir rúmum tveimur árum. Sejíja má, að sú bók hafi
orðið eins konar kvennahiblía margra þeirra sem hafa
áhuga á stöðu konunnar í nútímaþjóðfélagi, eins ok
það er kallað á frasamáli, og þá ekki síður þeirra, sem
hafa haldið á lofti kynferðisle^ri kúgun konunnar.
Ilvað sjálfa mij? snertir þurfti ég að hafa töluvert
fyrir því að komast í KeKnum „Women’s Room”, en hún
hélt þó áhuga nægilega til að ekki var gclizt upp og var
bókin þó löng ok umfram allt sérstaklena langdregin,
svo að skipti tuKum eða hundruðum hlaðsíðna, því að
Marylyn F'rench er ákaflcga orðmarsur höfundur ok
hneijíist KreiniIeKa ekki að símskeytastíl IleminKways.
Bókin „The Bleeding Heart" er
fyrir stuttu komin út og þegar
hafnar um hana umræður, þó að
ég geti ekki ímyndað mér, að þær
verði jafn fjálgar og um „Women’s
Room“. Þessi bók er ekki máluð í
jafnafgerandi litum, og út af fyrir
sig er það bæði kostur og galli
hennar. Meira kostur, að mínum
dómi.
Hér setur höfundur frám skoð-
un, sem er í stuttu máli sú að
karlmenn eru alltaf að misbjóða
konum... Það stafar ekki endilega
af því, að karlmenn séu svona
miklar ótuktir, heldur ekki síður
vegna þess, að konur láta viðgang-
ast að þeim sé misboðið. Fjallað er
um samband karls og konu — og
þau ólíku viðhorf sem ráða í
sambandi, sem má þó um flest
teljast skuldbindingarlaust, utan
þess að konan er tilfinningavera
umfram að vera kynvera. Þetta
viðhorf á karlmaðurinn afar örð-
ugt með að skilja og því er
karlmaður stöðugt að misbjóða
konunni og veit sjaldnast af.
Þarna er sem sagt boðað að það sé
karlmaður sem ekki skilji konu, en
ekki á hinn veginn eins og jafnan
segir í skrítlum og raunar oft í
alvörunni.
Aðalsöguhetjan er Dolores og
þetta samband verður henni
meira mál vegna þess að hún
hefur lifað svona sjálfskipuðu
skírlífi um langa hríð. Það er
spurning um hvort hún treystir
sér til að breyta því. Hún hefur
ekki stigið á stokk og strengt nein
heit, það hefur bara æxlast svona
til og eiginlega er hún farin að una
þessu ágætlega. Vegna þess að
tilfinningaveran — konan — verð-
ur alltaf að sæta öðrum lögmálum
í ástarsamböndum en maðurinn
— hún gefur meira en karlmaður-
inn og hún verður jafnan að gæta
sín að hrinda ekki karlmanni frá
sér með ótímabærum yfirlýsing-
um, vegna þess að ótti karlmanns-
ins við bindingu í slíkum sam-
böndum er mikill. Hún verður að
gæta sín, ekki þó vegna þess að
hún elski þennan viðkomandi
mann, heldur af því að hvort sem
það er Dolores sem á í hlut eða
flestar náttúrlegar konur, geta
þær ekki vafstrað í slíku nema
tilfinningar séu með og þær geta
truflað karlmanninn eins og áður
sagði, honum finnst í skilnings-
leysi sínu og stórmennsku, að til
sín séu gerðar kröfur, sem hann er
ekki reiðubúinn að uppfylla.
Dolores segir: „Allt var langtum
hreinna og skírara eftir hún hætti
að sofa hjá. Allt var auðveldara.
Hún þurfti ekki lengur að hafa
gætur á sjálfri sér í hvert skipti,
sem hún átti tal við karlmann, né
velta fyrir sér, hvaða boð hún væri
að senda honum, eða hvaða boð
hann væri að senda. Á þessum bæ
voru engin boð send né móttekin.
Svona var það einfalt. Móttöku- og
sendistöðinni lokað."
En svo liggja leiðir þeirra Vict-
ors saman, í lestrarklefa á leið til
Oxford, hvar Dolores hefur fengið
árs styrk til vísindastarfa og
Victor er með aðsetur í London
þetta ár að koma á fót meiriháttar
útibúi fyrirtækis síns. Án þess
hún geti skilgreint hvers vegna og
hvað, hefjast sendingar af offorsi
milli þeirra þarna í klefanum. Þau
enda vitaskuld í ástarleik í íbúð-
inni hennar.
Það gengur allt Ijómandi en svo
kemur að því þegar karlmaður
ætlar að fara á brott eftir slíkt.
En það er ekki öldungis sama
hvernig hann fer, þegar hann ber
sig að því að tína á sig spjarirnar,
er hann kominn í mynstrið, úr
huga hans er horfin sú stund sem
þau hafa átt saman. Nú er ekki
svo að skilja að Dolores hafi fyllzt
ofurást á Victor, en tilfinninga-
lega séð finnst henni það lítil-
lækkun, að hann getur farið, þegar
honum hentar, hún er skilin eftir
upptætt, og vitanlega hlýtur að
vera undir honum komið hvort
þau hittast aftur.
„Hann bærði á sér, teygði úr sér
og hallaði sér yfir á hina hliðina í
áttina að fötunum sínum.
Hún fékk þungan hjartslátt.
Var hann þá einn af þeim. Hann
gat ekki verið svo vondur að
standa á fætur núna og fara að
klæða sig. Hann gat það ekki ...“
Victor var í þessu tilviki aðeins
að teygja sig eftir sígarettum en
þegar hann fer nokkru síðar án
þess fundur hafi verið ákveðinn
milli þeirra, verður hún viti sínu
MARYLYN
FRENCH
finnst þér misboðið. Mér var hlýtt.
Mér leið vel. Mig langaði ekki að
fara. En ég vissi að ég varð að fá
svefn... Eg vissi að ég varð að
vera í standi. Ég veit að ég verð að
vera í standi og vinna þegar það
kallar að. Svoleiðis er það bara.
Mér hefur aldrei dottið í hug að
neinn ...
— væri yfirleitt til?
— Nei, stundi hann, — að það
gæti haft áhrif á einhvern. Að það
gæti sært. Ég skil ekki enn hvers
vegna. Hvers vegna þér fannst þér
misboðið.
— Konur eru öðruvísi. Konur
vilja alltaf meira en bara kynmök
— si svona. Þú getur bókað að þær
vilja meira. En ég get ekki treyst á
það hvað viðkemur karlmönnum.
Ég get ekki einu sinni treyst því
sem þeir segja. Jill, vinkona mín,
átti sér einu sinni elskhuga. Hann
sagði henni í síbylju, hvað hún
væri dásamleg. Þau höfðu verið
saman í nokkrar vikur, kannski
mánuði og einn góðan veðurdag,
þegar Jill var í sérlega ljúfu skapi,
tautaði hún „ég elska þig“. Hún sá
hann aldrei framar. Hann hvítn-
aði upp og varpaði henni fyrir
róða með einni sveiflu.
— Hann hefur verið giftur.
— Náttúrlega. Hver er ekki
giftur?
AF HVERJU SKYLDU KARLMEf
Af því að konur
það viðgangast
og kynin skilja
aldrei hvort
annað?
láta
Hugleiðingar
um nýja bók
Marylyn
French „The
Bleeding
Heart“
Eftir
Jóhönnu
Kristjónsdóttur
fjær. Henni finnst sér hafa verið
sýnd auðmýking, meiri en hún fái
afborið. Eftir það sem hún er þó
búin að gefa af sjálfri sér þessa
stund. Konu getur nefnilega sárn-
að...
Það er býsna athyglisvert að
lesa um það, þegar Dolores reynir
síðan að útskýra hvað innra með
henni bærist. Hann skilur vita-
skuld ekki baun í bala um hvað
hún er að tala. Hann segir: „Ég er
að íhuga þetta. Ég er að reyna að
muna hvernig mér var innan-
brjósts í gærkvöldi, hvers vegna
ég gæti hafa komið svona fram,
eins og þú segir að ég hafi gert...
og ég skil ekki enn af hverju þér
— Þú ert ekki gift.
— Margar konur eru ekki gift-
ar. En karlmenn sem eru orðnir 27
ára og þeir sem ekki eru hommar
eru yfirleitt giftir. Eða mér sýnist
það.
— Skrítinn heimur. Hann
brosti.
Hún leit á hann, hallaði undir
flatt.
— Þú ert býsna sniðugur. Þér
tekst að snúa vörn í sókn gegn
mér. Hann hló. — Ég ætlaði ekki
að gera það. Ég sver það.“
En síðan upphefjast samskipti
þeirra og það gengur á ýmsu, enda
viðhorf þeirra til nánast allra
mála ákaflega ólík, áhugasvið
þeirra sömuleiðis. Það slær þar af
leiðandi oft í brýnu milli þeirra.
En að sumu leyti myndast hlý
væntumþykja sem hvorugt ruglar
í neinni alvöru saman við hina
svokölluðu ást.
En togstreitan er aldrei langt
undan. Dolores er öldungis ekki
dús við sjálfa sig heldur: að hafa
látið kynhvötina ná á sér slíkum
tökum, að raskar bæði ró sálar og
líkama. Það þarf ekki alltaf mikið
út af að bera að hún komist úr
jafnvægi og hún sýnir á stundum
verulega ósanngirni í samskiptum
við Victor, ekki sízt þar sem hún
hefur áttað sig á því, að það sem
er einfalt til skilnings fyrir hana,
er honum eins og lokuð bók.