Morgunblaðið - 20.07.1980, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ1980
Nýkomið:
Litur: Hvítt og rautt.
Veró: 24.500,-
Litur: Hvítt og blátt.
Verö: 24.500-
Litur: Ljós.
Verð: 29.200.-
Póstsendum,
Litur: Hvrtt.
Verö: 25.100.-
Skósel
Laugavegi 60,
sími 21270.
Þetta gerðist
20. júlí
1976 — Víkingur I lendir á Mars og
hefur myndasendingar.
1974 — Tyrkir gera innrás í Kýpur.
1973 — Japanskri farþegaflugvél
með 135 manns snúið til Dubai.
1969 — Neil A. Armstrong stigur
fyrstur manna fæti á tunglio.
1962 — Hlutleysi Laos ábyrgzt á
ráðstefnu í Genf.
1954 — Vopnahlé í Indókína undir-
ritað í Genf; Frakkar fara frá
Norður-Víetnam og kommúnistar frá
Suður-Víetnam, Kambódíu og Laos.
1953 — Sovétríkin og ísrael taka upp
stjórnmálasamband.
1951 — Abdullah konungur Jórdaníu
ráðinn af dögum.
1946 — Friðarráðstefnan í París
hefst.
1944 — Banatilræði Stauffenbergs
við Adolf Hitler.
1936 — Montreaux-sáttmálinn um
yfirráð Tyrkja yfir tyrknesku sund-
unum.
1932 — Stjórnarbylting Franz von
Papen í Prússlandi.
1913 — Tyrkir taka Adríanópel.
1895 — Bandaríkjamenn grípa inn í
deilu Breta og Venezúela.
1877 — Fyrri orrustan um Plevna;
fyrsta áfall Rússa í ófriðnum við
Tyrki.
1871 — Brezka Kólumbía gengur í
kanadiska sambandsríkið.
1866 — Sjóorrustan við Lissa; Aust-
urrikismenn gersigra flota ítala.
1858 — Viðræður Napoleons III og
Cavour um sameiningu Ítalíu.
1810 — Kólombía lýsir yfir sjálf-
stæði.
Afmæli. Francesco Petrarch, ítalskt
skáld (1304-1374) - Sir Edmund
Hillary, nýsjálenzkur fjallgöngumað-
ur (1919-).
Andlát. 1903 Leo páfi XIII — Gugli-
emlo Marconi, uppfinningamaður.
Innlent. 1375 Skálholtssamþykkt —
Árnesingaskrá — 1627 d. Guðbrand-
ur biskup — 1198 Bein Þorláks tekin
upp og skrínlögð — 1237 Þorláks-
messa hin fyrri lögleidd — 1433 Jóni
Gerrekssyni biskupi drekkt í Brúará
— 1689 d. síra Torfi Jónsson í
Gaulverjabæ — 1745 Sýslumenn
kæra Prese landfógeta fyrir drykkju-
skap & óreiðu — 1783 Eldmessa Jóns
Steingrímssonar — 1798 Síðasti Al-
þingisfundur á Þingvöllum — 1930 d.
Klemens Jónsson — 1947 Ólafur
krónprins afhendir Snorrastyttuna
— 1968 Skrúfað frá vatnsleiðslunni
til Eyja — 1973 Stofnun Flugleiða —
1894 f. Stefán Jóh. Stefánsson — 1907
f. dr. Jakob Benediktsson.
Orð dagsins. Peningaleysi er undir-
rót alls ills — George Bernard Shaw
írskur rithöfundur (1856—1950).
21. júlí
1978 — Hugo Banzer forseti í
Bólivíu segir af sér eftir uppreisn.
1977 — Landamærastríð milli
Egypta og Líbýumanna hefst.
1976 — Jarðsprengja verður
sendiherra Breta á Irlandi að
bana.
1974 — Grikkland og Tyrkland
samþykkja vopnahlé á Kýpur.
1969 — Apollo II fer frá tunglinu
með Armstrong og Aldrin.
1962 — Landamæraátök milli
Indverja og Kínverja í Kasmír.
1960 — Fyrsta konan, frú Siri-
mavo Bandaranaike á Ceylon,
verður forsætisráðherra.
1944 — Bandaríkjamenn taka
Guam herskildi.
1918 — Bandamenn taka Chat-
eau-Thierry, Frakklandi.
1877 — Bretar ákveða að fara í
stríð við Rússa ef þeir taka
Konstantínópel.
1873 — Fyrsta bankaránið í
„Villta vestrinu", James & Young-
er í Adair, Iowa.
1831 — Sunnanmenn sigra í
orrustunni um Bull Run, Virginíu.
1831 — Leopold I verður konung-
ur í Belgíu.
1798 — Sigur Napoleons í orrust-
unni við Níl og hann nær yfirráð-
um yfir Egyptalandi.
1774 — Rússar fá Krím og mynni
Dniepr með friðnum í Kutchuk-
Kainardji.
1773 — Clement páfi XIV leysir
upp Jesúítaregluna.
1718 — Ófriði Austurríkis og
Tyrkjaveldis lýkur með friðnum í
Passarowitz.
1683 — Willliam Russel lávarður
hálshöggvinn fyrir samsæri gegn
Englandskonungi.
1588 — Floti Sir Francis Drake
ræðst á spænska ógnarflotann á
Ermarsundi.
1542 — Páll páfi II stofnar
Rannsóknarréttinn í Róm.
Afmæli. Alexander mikli, kon-
ungur Makedóníu (356—323 f.
Kr.) — Matthew Prior, enskt
skáld (1664-1721) - Ernest
Hemingway, bandarískur rithöf-
undur (1898—1961) — Isaac
Stern, bandarískur fiðluleikari
(1920 -).
Andlaf. 1796 Robert Burns, skáld.
Innlent. 1725 Oddur Sigurðsson
lögmaður dæmdur frá embætti —
1808 Úrskurður konungs um
tómthúsmenn — 1828 Morðingjar
Natans Ketilssonar dæmdir til
dauða — 1846 d. Sigurður Breið-
fjörð — 1851 Stöðulagafrumvarp
á Þjóðfundi — 1873 Stjórnar-
skrárfrumvarp á Alþingi — 1896
Franskur sjóliðsforingi hjólar til
Þingvalla — 1914 Sig. Eggerz
verður ráðherra — 1918 Vélskip
fer frá Akureyri til Jan Mayen að
sækja rekavið — 1956 Hermanni
Jónassyni falin stjórnarmyndun
— 1959 Anderson hótar að skjóta
á „Þór“ — 1963 Ný dómkirkja vígð
í Skálholti — 1923 f. Tómas
Árnason.
Orð dagsins. Meðan litlu börnin í
heiminum eru látin þjást, er
engin sönn ást til í þessum heimi
— Isadora Duncan, bandarisk
dansmær (1878 — 1927).
Kabulstjórnin lætur
handtaka skólastúlkur
Nýju Delhi. 18. júli. AP.
STJÓRNIN í Afganistan hefur að
sögn látið handtaka á þriðja
hundrað ungra stúlkna á aldrin-
um 15—19 ára, sem voru í
fyrirsvari mótmælaaðgerðanna
frægu i Kabul á dögunum. Þær
hinar sömu stúlkur héldu mót-
mælum áfram með þvi að mæta
ekki í próf dagana 10.—15. júlí
sl. og greip þá stjórnin til þess
ráðs að stinga stúlkunum i svart-
holið.
Þá segja fregnir frá Kabul, að
auk þeirra sitji inni fjölmargar
stúlkur og piltar og einnig hafi
hundruð ungmenna verið rekin úr
skólum fyrir að vilja ekki lúta
vilja Kabulstjórnarinnar.
Bæklingum og flugritum hefur
verið dreift um höfuðborgina síð-
ustu daga þar sem ungmenni eru
hvött óspart til að halda áfram að
sýna í verki andstöðu sína við
leppstjórnina í Kabul.
w **.VV
Enn morð í
Guatemala
GuatemalaborK. 18. júli. AP.
LÆKNANEMI, blaðamaður og
lögfræðingur voru skotnir til bana
í þremur aðskildum atlögum í
Guatemalaborg í dag. Heimildir
AP sögðu að svo virtist sem
morðin nú væru framin að undir-
lagi öfgasinnaðra hægri manna,
en þeir hafa hótað að beita sér í
ríkara mæli og segjast hafa sett á
laggirnar sérstakar aftökusveitir
til að berjast gegn öfgamönnum
til vinstri, sem hafa staðið að
fjölda hryðjuverka í Guatemala
upp á síðkastið.
Olíufram-
leiðslan
stóreykst
Osló. 18. júli AP.
NORÐMENN framleiddu 26.4
milljónir tonna af olíu og gasi
fyrstu sex mánuði þessa árs,
eða um átta milljónum tonna
meira en á sama tíma á fyrra
ári, að því er stjórnvöld hafa
greint frá.
ERLENT
Bíræfinn
bófi skar
málverk
úr römmum
Mexikóborg, 18. júli. AP.
BÍRÆFINN, listelskur þjófur
skar fimm verðmæt málverk úr
römmunum og gekk með þau i
rólegheitum út úr San Carios-
listasafninu i Mexikóborg i dag
og hefur ekki síðan tií hans
spurzt.
Verkin voru eftir Rubens, van
Dyke, van Kissel, og Tintoretto.
Listfræðingar segja, að nánast sé
ógerningur að meta þessi stolnu
listaverk til fjár, svo ómetanlegir
dýrgripir hafi þarna verið hrifnir
á braut. I þessu sama safni var
framinn svipaður þjófnaður í sl.
mánuði og þá stolið frægu mál-
verki eftir Picasso.