Morgunblaðið - 20.07.1980, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 20.07.1980, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ1980 27 Pálmi Rögnvaldsson kennari á Hofsósi: Fólk sem fluttist héðan ungt snýr nú heim aftur Frá árinu 1973 hefur útibú Búnaðarbankans á Sauðár- króki starfrækt afgreiðslu á Hufsósi. sem opin er eftir há- degi. Pálmi Rögnvaldsson hefur veitt henni forstöðu frá byrjun, en auk þess kennir hann i Grunnskóla Hofsóss á veturna. Aflanum er ekið frá Sauðárkróki Alla mína tíð hef ég verið í nábýli við Hofsós, fyrst á æsku- stöðvum mínum Marbæli í Óslandshlíð og síðan hér á Hofs- ósi sl. 10 ár, og á þeim tíma hefur orðið mikil breyting á kauptún- inu. Ibúar Hofsóss eru rúmlega 300 og fer fjölgandi, en vöxturinn sést best á miklum byggingar- framkvæmdum hér á síðustu ár- um. Eru fiskveiðarnar megin uppi- staðan í atvinnulífinu? Jú, það er rétt, við höfum mikla atvinnu af nábýlinu við sjóinn, og þar er Hraðfrystihúsið stærsti aðilinn, en það vinnur aðallega úr afla sem kemur úr togurum Útgerðarfélags Skagfirðinga. Þannig háttar til hér, að útgerð- arfélag staðarins var sameinað _____________________________________________________________ Útgerðarfélagi Skagfirðinga, eni ^ ferö um Skagafjörð / Texti: Friörik Friöriksson staðinn faum við þriðjunginn af ____________________ _______________________________________ Pálmi Rögnvaldsson afgreiðslumaður og kennari. afla togara félagsins. Aflanum er ekið hér á milli, og hefur það gefið ágæta raun, sérstaklega eftir að vegurinn var bættur. Auk aflans af togurunum eru hér smábátar, saltfiskverkun og beinaverksmiðja, þannig að fisk- veiðar og 'fiskvinnsla eru óum- deilanlega mikilvægustu liðirnir í atvinnulífinu. Þetta eru þó ekki einu atvinnu- fyrirtækin, við höfum hér hljóð- kútaverksmiðju, bílaverkstæði, kaupfélag, saumastofu, hellu- steypu og byggingafyrirtæki svo eitthvað sé nefnt. Þrátt fyrir nokkra fjölbreytni í atvinnulífi, þá þurfum við að leita fleiri leiða, segja má að sauma- stofan sé upphafið að smáiðnaði hér og ég álít að við verðum að beina kröfum okkar í auknum mæli í þær áttir. Læknirinn kemur einu sinni í viku Hvernig er félagslífi og skóla- málum háttað hér? Við höfum hér á Hofsósi grunnskóla, en við hann kenna 9 manns, en æðri menntun þurfa menn að sækja annarsstaðar. Félagslífið er hér með miklum blóma, á staðnum er Ungmenna- félagið Höfðstrendingur sem stendur fyrir íþróttaiðkunum, skemmtunum á 17. júní o.fl. Auk þess eru hér kvenfélög, leikfélag, Lionsklúbbur og nú nýverið var stofnað hér Félag eldri borgara og er ætlunin að það félag hafi samstarf við samskonar félög í öðrum bæjum hér í Skagafirði. Hér á staðnum er nýtt félags- heimili og þegar byggingu nýs knattspyrnuvallar er lokið má segja að vel sé búið að félagsmái- um hér. I tilefni af ári trésins, má ég til með að nefna, að öll félög hér á staðnum, þ.m.t. Skógræktarfélag Hofsóss, hafi í sameiningu staðið að stækkun á svæði skógræktar- innar, og nú er verið að girða svæðið af, í sjálfboðaliðavinnu. Auk þessara félaga er hér blandaður kór, Söngfélagið Harp- an og að sjálfsögðu eiga hesta- menn með sér félagsskap, því hestamennska er vinsæl hér eins og annars staðar í Skagafirði. Er heilbrigðisþjónusta góð á Hofsósi? Hér er yfirhjúkrunarkona með fasta búsetu, en læknir kemur hingað einu sinni í viku, þannig að menn verða vinsamlegast að haga veikindum sinum eftir komu læknisins. Er Hofsós framtíðarbyggðar- lag? Ef litið er til þeirrar þróunar sem hér hefur átt sér stað í byggingamálum hin síðari ár, hlýtur maður að vera bjartsýnn á framtíðina. Einnig er það já- kvætt að nú flytur ungt fólk ekki héðan, eins og áður og þess eru jafnvel mörg dæmi, að fólk sem fluttist héðan ungt, snýr nú heim aftur til að vera. Fyrirlestur um ljósfræði á yegum Háskóla íslands PRÓFESSOR Thomas K. Gaylord frá Georgia Institute of Techno- logy, heldur fyrirlestur mánu- daginn 21. júlí nk., sem hann nefnir „Fiber and Intergrated Optics“. Fjallar hann meðal annars um framtíðarmöguleika á sviði fjar- skipta og gagnavinnslu með ljós- leiðum og krystalhólógrafíu. Fyrirlesturinn verður haldinn í húsi Verkfræði- og Raunvísinda- deildar Háskólans að Hjarðar- haga 2—6 í stofu 158 og hefst kl. 16.00. „Farfugl- inn“ er kominn út Fyrsta tbl. af Farfuglinum er komið út. Útgefandi blaðsins er Bandalag íslenskra farfugla. Ritið er 16 blaðsíður og í því er m.a. grein um gistinætur á Farfuglaheimilium, um ræktun trjáa á íslandi, sagt frá Norð- urlandamóti Farfugla o.m.fl. Blaðið kemur út tvisvar á ári. DROTTNINGAR ROKK Loksins, loksins, er nýja QUEEN platan komin út. Óhætt er aö fullyröa aö þeim félögum hafi aldrei tekist jafnvel upp en einmitt nú. Nokkur lög af þessari frá- bæru plötu hafa nú þegar náö miklum vinsældum og má þar nefna Play The Game, Save Me og Crazy Little Thing Called Love sem án efa er eitt vinsæl- asta rokklag allra tíma. Ef þú vilt fá þér virkilega vandaða og skemmti- lega rokkplötu ætti val- iö ekki aö vera erfitt. s» The Game, kvínandi góö plata með QUEEN. Fæst í hljómplötuverslun- um um land allt. FALKINN Suðurlandsbraut 8 — Sími 84670. Laugavegi 24 — Sími 18670. Austurveri — Sími 33360. ivtK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.