Morgunblaðið - 20.07.1980, Page 29

Morgunblaðið - 20.07.1980, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ1980 29 Framtíðarfræðingurinn Alvin Toffler spáir stórfelldum þjóðfélagsbreytingum Þannig getur dagblað varla plum- að sig, og frá mínum bæjardyrum séð er það alger sóun að láta allt þetta á þrykk út ganga. Gn á ekki sú tölvuvæðing sem við höfum vikið að eftir að gera dagblöðunum einnig kleift að sníða sér stakk eftir vexti? Örugglega. Þau munu geta fellt niður matardálkinn og bætt við viðskiptasíðuna fyrir mig, eða séð mér fyrir meira fréttaefni og minna af íþróttum eða öfugt. Sérðu fyrir þér múghjöðnun í menntamálum einnig? Partur af endurskipulagingu sjöunda áratugsins var í þá átt en á áttunda áratugnum varð aftur- kippur því „grundvallarendur- reisnin" svonefnda var í rauninni áras á margbreytni. Ég held að afturhvarf til grundvallaratriða sé glataður málstaður — ekki vegna þess að það sé til óþurftar að fólk kunni að lesa, skrifa og telja, heldur vegna þess að skól- arnir eru ekki sjálfstæðir aðilar. Ef það er nokkur einn þáttur, sem stendur menntun í Bandaríkj- unum fyrir þrifum, er það sú krafa fyrirtækja að starfskraftar þeirra hafi prófskírteini. Þegar sú krafa náði að festa rætur tóku háskólar að miða námsefni sitt við þessa kröfu, menntaskólar fóru að framleiða fyrir háskóla og barna- skólarnir fyrir menntaskólana. Eftir því sem vinnuveitendum verður ljósara að brottfararbleðl- ar skólanna gefa enga raunhæfa mynd af hæfni, verða breytingar á menntakerfinu. En gæti almennum skólum ekki reynzt torvelt að þroska ólíka hæfileika með einstaklingum? Skólunum er einmitt ætlað að sniðganga þá. Þeir stefna að markvissri fjöldaframleiðslu og gera ráð fyrir að allur efniviður, sem inn kemur sé í grundvallar- atriðum jafn og samur. Á tímum heimstyrjaldarinnar síðari var það gott og gilt. Þá var það sókn í lýðræðisátt og tilraun til að veita öllum sömu tækifæri. Nú erum við hins vegar að fara inn á allt aðrar brautir og tel ég að kröfur iðnaðar og efnahagslífs til menntakerfisins eigi eftir að breytast og að mismunandi hæfi- leikar fólks fái að njóta sín frekar. Mitt slagorð fyrir skólana er ekki „aftur til grundvallaratriða" heldur „áfram til grundvallaratr- iða“ — og vera má að þau verði allt annarrar tegundar. Ég álft að við þurfum að endurmeta hvaða hæfileika beri að telja ákjósan- lega. Sjálfur tel ég að e.t.v. þurfi að leggja mesta áherslu á hæfni sem lýtur að mannlegum sam- skiptum — störfum og fjölskyldu- lífi — og kunnáttu, er snertir ákvörðunartöku: hvernig meta skal valkosti og velja úr þeim, aðgæta mismunandi viðhorf og skilja kjarnann frá hisminu. Hver yrðu áhrif múghjöðnunar á dreifingarskipulag? Fyrst og fremst myndi hún hafa áhrif á tilflutning upplýsinga — en í því efni höfum við þegar náð góðum árangri. En okkur hefur enn ekki tekizt að ráða fyllilega fram úr því hvernig færa má áþreifanlega og efnishluta á milli.Ég get augljóslega ekki bent á leiðir til að leysa núverandi flutningakerfi af hólmi. Það, sem ég get á hinn bóginn bent á, er sú staðreynd að ef okkur þokar í átt að efnahagskerfi með afmarkaðri svæðisstjórn og aukinni dreifstýr- ingu framleiðslunnnar, þá munu umsvifin minnka og teinarnir styttast þrátt fyrir að enn verði þörf á lestum og flutningavögnum. Þegar til langtíma lætur munu flutningar einnig víkja fyrir fjar- skiptum í æ ríkari mæli — og hafa í för með sér frekari útbreiðslu fjöldans til strjálbýlisins. Má þá einnig vænta þess að fjarskipti komi í stað leikhúsa? Breytist mannlífið á þann veg að æ minna þurfi fyrir því að hafa? Vel kann svo að fara að stærstu borgir eins og New York þrífist og dafni, en það verður þá á öðru en framleiðslu, á hlutum eins og leikhúsi, óperu, ballett, íþróttum og öðru lifandi efni. í rauninni munu skemmtanalíf, menntun og siðmenning halda áfram að svala aukinni þörf eftir því sem önnur samskipti krefjast frekari miðlun- ar og rafeindatækni. Ástæða þess að þörfin gæti aukist er sú að afleysing flutninga með fjarskiptum hefur í för með sér tilkomu þess sem, ég kalla rafbýlið og þýðir að sífellt fleiri munu starfa í heimahúsum. Ég held að við eigum eftir að sjá milljónir manna með ódýra og einfalda skerma á heimilum sín- um, sem tengdir verða umheimin- um með símþræði eða um gerfi- hnetti. Það er blátt áfram fáránlegt að flytja milljónir starfsmanna lang- ar leiðir til vinnustaða til að tala í sima klukkustundum saman dag hvern. Hverjum heilvita manni hlýtur að vera ljóst að starfsdreif- ing milli fjarlægra staða er þjóð- hagsleg nauðsyn. Á næstu tíu til tuttugu árum reikna ég með að gífurlegri um- breytingu frá skrifstofum til heimila og mun það valda gjör- byltingu á framleiðsluháttum, fasteignaskipun miðborgar, skatt- kerfi, fjölskyldulífi, menntun og úthverfum. „... skermar á heimilum tengdir um gervihnetti...“ „.. .menningar- þörfeykstmé frekari tækni u • • • (g> TOYOTA | Leiðrétting Skrifstofur og aörar deildir veröa opnar aö venju aöeins verkstæðið er lokaö frá 21. 7 — 11. 8. en heldur þó uppi nauösynlegustu þjónustu. 1 ^ Sá) TOYOIA^ I s. / Um m SÍMI 44144 -ertþú bóinnaó endurnýja? Austurstræti 10

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.