Morgunblaðið - 20.07.1980, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 1980
Sumartónleikar hef jast um næstu helgi:
Frumflutt ný íslenzk
tónverk í Skálholti
SUMARTÓNLEIKAR í Skál-
holtskirkju hefjast um næstu
helgi, en undanfarin fimm
sumur hafa tónlistarmenn
staðið fyrir tónleikahaldi þar
nokkrar helgar yfír hásumar-
ið. í sumar verða tónleikar á
iaugardögum og sunnudög-
um kl. 15, fyrst um helgina
26.-27. júlí og síðustu tón-
leikarnir verða helgina 16. og
17. ágúst.
Flytjendur sumartónleikanna í
sumar eru Helga Ingólfsdóttir
semballeikari, Ingvar Jónasson
lágfiðluleikari, Manuela Wiesler
flautuleikari og Ragnar Björnsson
organleikari. Helgina 26. og 27.
júlí leika Ingvar Jónasson og
Helga Ingólfsdóttir og eru á efn-
isskrá þeirra verk eftir Corretté,
Reger, Bach, Jón Ásgeirsson og
Jónas Tómasson. Frumflytja þau
nýtt verk Jónasar, „Notturno 111“
og verk Jóns Ásgeirssonar er
sembalsónata. Um verzlunar-
mannahelgina flytja Manuela
Wiesler og Helga Ingólfsdóttir
verk frá barokktímabilinu. Þá
frumflytur Manuela helgina 9.—
10. ágúst verk Atla Heimis
Sveinssonar, „20 músíkmínútur"
og auk þess verk eftir Carl Philip
Emanuel Bach og Debussy. Síð-
ustu sumartónleikarnir verða síð-
an 16,—17. ágúst og leikur þá
Ragnar Björnsson íslenzk orgel-
verk. Leikur hann gamla og nýja
sálmaforleiki, m.a. nokkra, sem
m.a. Jón Nordal, Þorkell Sigur-
björnsson og Jón Ásgeirsson hafa
samið sérstaklega fyrir þessa
tónleika.
Allir tónleikarnir hefjast kl. 15
og er aðgangur ókeypis. Messað er
í Skálholtskirkju hvern sunnudag
kl. 17.
Einstök ferð tii Hamborgar
á vegum Germaníu
dagana 29. ágúst til 2. september 1980
Fimm daga ferö — Ótrúlega hagstætt fargjald —
Heimsókn til vina og kunningja í Þýskalandi —
Stórhelgarferö (föstudag til þriðjudags ) —
Innkaup — Skemmtanir — Sannkölluö drauma-
ferö.
Allar upplýsingar hjá Feröaskrifstofunni Úrval.
Germania.
Hestamanna-
félagið Fákur
efnir til hópferðar á hestum um Verslunarmanna-
helgina aö Ragnheiðarstöðum. Lagt veröur af staö
frá Hafravatnsrétt föstudaginn 1. ágúst kl. 18 og
tjaldaö aö Kolviðarhóli yfir nóttina. Tekið veröur á
móti farangri í Félagsheimilinu eftir kl. 14 sama
dag. Fararstjóri er Guðmundur Ólafsson.
Ferðanefndin
Afhenti trúnaðarbréf
Haraldur Kröyer, sendi-
herra, afhenti í gær Vasilii
Vasilievitch Kuznetsov,
fyrsta varaforseta forsaetis-
ráðs æðstaráðs Sovétríkj-
anna, trúnaðarbréf sitt sem
sendiherra íslands í Sovét-
ríkjunum.
Haraldur Kröyer
sendiherra
i Moskvu
Vinningar i kosningahappdrætti
DREGIÐ hefur verið í kosn-
ingahappdrætti vegna fram-
boðs Guðlaugs Þorvaidsson-
4 sölur
FJÖGUR íslenzk fiskiskip seldu
afla sinn í erlendum höfnum i
fyrradag. þrjú í Bretlandi og eitt
i Þýzkalandi.
Gissur hvíti SF seldi 37 tonn i
Hull fyrir 22,9 milljónir, meðal-
verð 622 krónur fyrir kílóið. Al-
bert GK seldi 80,4 tonn í Grimsby
fyrir 45,9 milljónir, meðalverð 572
krónur. Bylgja VE seldi 65,2 tonn í
Fleetwood fyrir 27,6 milljónir,
meðalverð 423 krónur. Loks seldi
Karlsefni RE 214 tonn í Cuxhaven
fyrir 90,2 milljónir, meðalverð 423
krónur.
ar, og upp komu eftirtalin
númer:
Sólarlandaferðir á nr.: 05258,
16131, 26178, 22142, 15197, 21173,
20063, 18557, 27830, 22071, 09283,
13454, 29492, 05248.
Ferðabók Stanleys á nr.: 07417,
18582, 09508, 06040, 02516, 07586,
34856, 11601, 32090, 07384, 27364,
30103, 20084, 27279, 26172, 03503,
02827, 13004, 26165, 33264, 12937,
04074, 01614.
Grafík-mynd eftir Baltasar á
nr.: 25394, 04123, 05995, 16047,
10608, 02085, 32774, 09457, 07260,
06722.
Vinningshafar vinsamiega
hringið í síma 27379 eða 10669
eftir kl. 19.00.
Reykjavík, 14. júlí, 1980
Útför
JÓHÖNNU MARÍU JÓHANNESDÓTTUR
Oddagötu 5,
Akurayri
veröur gerö frá Akureyrarkirkju þriöjudaginn 22. júlí kl. 13.30.
Þelm sem vilja minnast hinnar látnu er - vinsamlegast bent á
ZONTA-klúbb Akureyrar.
Jóhannes Vföir Haraldsson,
Júlíus B. Jóhannesson.
' V '
•
;:Í?rSSPí'-.»
. Nr
- ••
BHÍIHRRMmMRÍÍ
AEG
ELDAVELAR
s
i?
<>
AEG heimilistæki eru þekktfyrirgæði oggóðaendingu. Eldavélarnar frá AEG eru
búnar ýmsum þægindum, svo sem rofaklukku sem getur kveikt og slökkt á ofni
og hellum, innbyggðu grilli, hitaskúffu og ýmsu fleira.
BRÆÐURNIR ORMSSON %
LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820