Morgunblaðið - 20.07.1980, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 20.07.1980, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ1980 Sumarveðrið hefur svikið okkur hér sunnanlands um hrið, svo ekki veitir af sumar- auka i matargerðinni. Kjúkl- ingar eru léttur og sumar- legur matur, og hér fylgja tvær kjúklingauppskriftir. Ég kýs að nota bringur i þessar uppskriftir, en þið get- ið notað aðra bita, eða t.d. hlutað heilan fugl. Þið getið reiknað með um U/2 bringu á mann, en 1 ef þið eruð með forrétt og eftirrétt. Ef þið notið bringur er e.t.v. ekki úr vegi að úrbeina þær. Þannig fáið þið býsna skemmtilega bita. Það er ekki erfitt verk. Allt sem þið þurfið er lítill og vel beittur hnífur. Síðan skerið þið burt öll bein, með því að renna hnífn- um þétt eftir beinunum. Mér finnst flókið meðlæti óþarfi með þessum réttum. Gott brauð er alltaf vel til fundið. Ef þið kjósið eitthvað annað og meira með, mæli ég með spaghetti. Spaghetti er reyndar nafnið á einni tegund pasta, sem er ítalskt samheiti yfir þessa deigvöru. í sumum búðum er selt pasta undir vörumerkinu Barilla. Það er býsna gott. Ég mæli með bönd- um frá þeim (fettucine eða tagliatelle), gjarnan grænum, þ.e. spínatbönd. Eins og venju- lega gætið þið þess að ofsjóða ekki pastað, hella svo vatninu af og setja smjörklípu í það, svo það festist ekki saman. E.t.v. einnig svolítið af rifnum óðals- osti. Þar hafið þið gott og bragðmikið meðlæti. En þá eru það uppskriftirnar ... . Góða skemmtun! Kjúklinga- bringur með nýju grænmeti (handa fjórum) Nú er nóg til af nýjum tómötum, paprikum, og sjálf- sagt að borða sem mest af þessu ágæta grænmeti. Þetta er ein leiðin. olía eða smjör 2 laukar 2 hvítlauksrif 2 grænar paprikur 6 góðir og rauðir tómatar nýmalaður pipar 3 steinseljukvistir smjör 6 kjúklingabringur 1. hitið svolítið af feiti. 3. Á meðan snúið þið ykkur að kjúklingunum. Hitið smjör og steikið vel þurra bitana þar í. Það er smekksatriði hversu mikið þið kjósið að steikja kjötið. Það er þó alls ekki ráðlegt að steikja það of lengi, því þá þornar það, og það er bæði synd og skömm að fara svo illa með gott hráefni. 6—8 mín. á hvora hlið ætti að vera nægilegt, ef þið eruð með bringur. Ef kjötið þarf að bíða, haldið því þá heitu, en látið það ekki steikjast áfram. Bezt er að steikja ekki kjötið, fyrr en rétt áður en það er þorið fram. Sósan þolir aftur á móti að sjóða heldur lengur en nefnt er hér að ofan. 4. Piprið sósuna og stráið saxaðri steinselju í hana. Bragðið hana og kryddið frekar, ef ykkur sýnist svo. Setjið nú kjötbitana í sósuna, en látið hana ekki hylja þá, eða berið fram sósu og kjöt hvort í sínu hvorn vökvann getið þið not- að í sósuna. Ykkur finnst kannski að þetta sé ekki stór skammtur af sósu. Þetta er heldur ekki sósa, sem flýtur yfir kjötið, heldur er hún bragðmikið meðlæti. smjör 6 kjúklingabringur safi úr 1 sítrónu, eða 1 dl hvítvín 1 msk sinnep 1 dl rjómi nýmalaður pipar 1. Steikið kjötið eins og lýst er hér á undan. Takið það upp úr og haldið því heitu. 2. Hellið sítrónusafanum, eða víninu í pönnuna sem kjúklingarnir voru steiktir í og látið þetta sjóða ásamt sinnep- inu þar til um helmingur er eftir. Skafið vel úr pönnunni, svo ekkert fari til spillis af kjötsafanum. Bætið rjómanum í, látið sósuna sjóða stutta stund, svo hún þykkni aðeins. Rjóminn sér fyrir því. Hafið LÉTT OG LJUFT Afhýðið laukinn og sneiðið hann í þunnar sneiðar. Látið hann mýkjast í feitinni, ásamt söxuðum hvítlauknum. Lauk- urinn á að gyllast, en alls ekki að brúnast. Þá verður rammt bragð af öllu saman og það er ekki ætlunin ... 2. Hreinsið paprikuna, skerið fræin innan úr henni og sneiðið hana í þunnar sneiðar. Látið hana mýkjast með laukn- um. Þvoið tómatana og þerrið þá vel. Skerið þá í litla bita og bætið í grænmetið. Nú á sósan að sjóða í 15—20 mín. eða þar til hún hefur þykknað, þ.e. safinn úr ávöxtunum soðið niður. lagi. Hafið e.t.v. pasta með. Þarna hafið þið dálaglegan sumarmat. Kjúklingabring- ur í sinnepssósu (Handa fjórum) Gott sinnep á einkar vel við kjúklinga. Notið endilega ljóst, franskt sinnep, því annað sinn- ep, t.d. sænskt er svo sætt, og það stendur ekki til að búa til einhverja sætsósu. Sítrónusafi og hvítvín er hvort tveggja gott með kjúklingum, og annan hana þó ekki mjög þykka. Bragðið á og kryddið frekar, ef ykkur sýnist svo, annað- hvort með sinnepi, pipar, eða kryddjurtum, ef eitthvað vant- ar á bragðið að ykkar mati. Setjið nú kjötið í sósuna, eða hellið henni í heitt kjötið. Berið fram, með brauði og eða e.t.v. með pasta, sbr. hér að ofan. Það þarf kannski ekki að taka það fram, að það tekur ekki langan tíma að hrista þennan rétt fram úr erminni. í öllum lengdum Þakjárniö fæst í öllum lengdum upp að 10 metrum. Einnig í „standard" lengdum frá 6-13 fet. Höfum einnig fyrirliggjandi: KJÖLJÁRN ÞAKPAPPA RENNUBÖND ÞAKSAUM B.B. fyrir þá sem byggja RB. BYGGINGAVÖRUR HE Suðurlandsbraut 4. Sími 33331. (H. Ben-húsið). Tilboð, sem ekki veröur endurtekið Við bjoðum Husqvarna MAXI uppþvottavélina á krónur 547.000.- Ætti að vera á krónur 904.000- Maxi uppþvottavélin rúmar diska og annan boröbúnaö af venjulegu 10—11 manna boröi. — Fæst í litunum: „Lion — Avocato — Hvítum". Takmarkaöar birgðir. — Látiö ekki Husqvarna úr hendi sleppa. 'mnai (SfyzeiiMan k.f. SUÐURLANDSBRAUT16 SÍMI 35200

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.