Morgunblaðið - 20.07.1980, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 20.07.1980, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ1980 35 Linda Martinsson ljósmyndari ásamt tveimur hnokkum, sem hún ok Emilia ljósm. Mbi. hittu fyrir. „Börn hlæja og gráta alls staðar eins“ UNDANFARNAR vikur haía verið hér á landi þrír banda- riskir ljósmyndarar frá sjálf- boðaliðssamtökum sem nefna sig The Human Family og erindið er að vinna að mynd- aflokki sem er kallaður „Uni- versal Image of Children“. Einn ljósmyndaranna, Linda Mart- inson, sagði í stuttu samtali við Mbi. að ætlunin væri að gera myndaflokka frá samtals sjö löndum og yrði því verki vænt- anlega jokið á næsta ári. Auk íslands eru það Kanada, Ekvador, Kamerún, Burma, Tyrkland og Suðurhafseyjar. Hún sagði að þau litu svo á að ótæmandi möguleikar væru á að koma síðan ljósmyndunum á framfæri: þau ætluðu sér að halda sýningu á myndunum og helzt koma þeim til allra land- anna sjö, þau vonuðust til að koma þeim á myndband til notkunar í skólum og hafa þegar hafið samningaviðræður við skólamenn þessa efnis og einnig munu myndirnar gefnar út í bók. Spjall við Lindu Martinsson ljósmyndara sem vinnur að gerð mynda- flokks um börn í sjö löndum „Börn láta hvarvetna í ljós hið sama,“ sagði Linda Martinsson, „þau hafa sömu þörf fyrir um- hyggju og blíðu, hvar sem er í heiminum. Þau brosa alls staðar eins og þau eru hrygg á sama máta. Við völdum bernskuár einstaklingsins vegna þess að á þeim árum sýnir hann mest geðhrif og lætur opinskáast til- finningar sínar í ljósi. Við vilj- um færa fólki viðhorf barna og reyna með því móti að auka skilning þjóða í milli, og trúum því að þetta geti leitt til vaxandi samkenndar milli þjóða. Með því að skilja hvort annað og nálgast hvort annað verður það okkur óbærilegra að horfa á þjáningu náunga okkar, svo að við reynum þá kannski að gera eitthvað í málinu. Fólk verður að búa við tilfinningalegt öryggi, ekki bara að hafa í sig og á, bræðraþel og vinsemd verður að ríkja milli fólks og við erum að leggja fram okkar skerf á þennan hátt ef það gæti gert heiminn betri. Linda Martinsson sagði að hér hefðu þau m.a. heimsótt barna- heimili, og farið um og leitað að börnum við mismunandi aðstæð- ur. Síðan héldu þau norður í land, færu til Akureyrar og þar í grennd til að myndaflokkurinn gæfi sem fjölbreytilegasta mynd af íslenzkum börnum. h.k. Slettist upp á vin- skap hjá Sadat og Begin Tel Aviv 18. júli AP. ANWAR Sadat, forseti Egypta- lands sagði i blaðaviðtali í dag, að hann hefði slegið á frest áformum um fund með Menach- em Begin, forsætisráðherra ís- raels, vegna „persónulegra árása Begins i minn garð, sem hafa sært mig mjög“ eins og Sadat orðaði það. Bendir yfirlýsing Sadat til hríð og snöggversnandi samskipta leiðtoganna tveggja, en á þeim hefur byggzt verulega hvernig framgangur friðarvið- ræðnanna hefur gengið. Ætlunin var að fundurinn snerist um heimastjórnarmál Palestinu- mála og framtiðarskipan þeirra, en Sadat sagði að það væri með öllu þýðingarlaust að svo stöddu. Hann bætti við „Það er mér ekki léttbært að gefa frá mér þá vináttu sem við Begin höfum verið að byggja upp millum okkar. Enn er rými í hjarta mínu fyrir hann og ég virði hann umfram aðra, þrátt fyrir alit.“ í yfirlýsingu sem Begin gaf út á þriðjudag og hefur orðið undirrót þessara sárinda Egyptalandsfor- seta sagði Begin að Sadat væri að hopa aftur á bak frá friðarvið- ræðunum og hann teldi einsýnt að Sadat væri með alls konar yfirlýs- ingum og gjörðum að reyna að reka fleyg tortryggni milli ís- raelsku þjóðarinnar og löglega kjörinnar stjórnar landsins. Þóttu orð Begins sérkennileg nokkuð, og hafa leiðtogarnir tveir verið afar gætnir í orðavali um hvorn annan, jafnvel þótt syrt hafi í álinn og lítið mjakast. Einstákir itioquleíkar Bíltæki meö upptökumöguleika, beint af útvarpi eöa gegnum hljóönema, sem fylgir meö. Þetta er tækið, sem dreymt var um. 1 Útvarp með 2 Segulbandstæki, sem getur spólað í miðbylgju báðar áttir, auk þess, sem er einstakt, þú og FM-Stereo getur tekið upp. bylgju Roadstar bílhljómtæki eru rétta valið. ísetning á staðnum Verð: 157.800 Mikið úrval af hátölurum og loftnetum fyrir flestar gerðir bíla. VERSLIÐ I SÉRVERSLUN MEÐ LITASJÓNVÖRP OG HLJÓMTÆKI SKIPHOLTI 19 SlMI 29800 LAND, BARA HRiNGJA!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.