Morgunblaðið - 20.07.1980, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ1980
41
Erlendur viöskipta-
fræðinemi á íslandi
UM ÞESSAR mundir starfar í tölvu-
daild Eimskipafélagsina ungur
Austurríkismaöur, Johan Doppel-
bauer aó nafni. Johan er hér é
vegum A.I.E.S.E.C., sem eru alþjóó-
leg samtök vióskipta- og hagfrmói-
nema.
Megin verkefnl samtakanna er að
skiptast á stúdentum á milli landa og
í ár starfa yfir 4000 stúdentar í
nálægt 50 löndum á vegum A.I.E.S.
E.C. Yfirleitt er aðeins um sumar-
vinnu að raeða, en það er þó ekki
algilt. Á íslandi veröa í sumar 7
erlendir stúdentar á vegum A.I.E.S.
E.C. og 11 íslenzkir stúdentar eru
erlendis á vegum samtakanna. ís-
lenzk fyrirtæki hafa í vaxandi mæli
fengiö áhuga á aö nota sér þennan
möguleika sökum þess aö í flestum
tilfellum er haBgt aö fá sérhæft fólk til
aö vinna einstök verkefni á mun
lægra kaupi, en greiöa þyrfti fyrir
sams kona vinnu á almennum vlnnu-
markaöl.
De danske drenge
erobrer N ewYork
Allt vilja Dan-
ir eigna sér . . .
+ Þaö er ekki nóg meö aö þeir vilji eiga Snorra Sturluson, og Leif
heppna, heldur vilja þeir líka eiga Helga Tómasson, sem hér er
kynntur sem DANSKUR DRENGUR
Hljóö-
færa-
smiður
+ Hans Jóhannsson er ungur
Reykvíkingur, sem undanfarin
þrjú ár hefur dvalist í Newark í
Englandi og lagt stund á hljóö-
færasmíóar. Hann er núna aó
leita sér aó staö, þar sem hann
getur sett upp verkstæói og
stundaó viógeróir og smíöi á
•trokhljóófærum. Ennfremur
er hann aó undirbúa sýningu (
haust á hljóófærum, sem hann
hefur smíðaó.
+ Sigrún Sævarsdóttir, snyrtisérfræóingur starfar nú um tíma í London.
Franska snyrtivörufyrirtækið Jean d’Avéze réó hana til að kynna vörur
fyrirtækisins í Harrods, en þeir eru aö byrja aó selja þessar vörur.
+ Nýlega var Heióar Jónsson, snyrtir og sölumaóur, á ferð í París hjá
snyrtivörufyrirtækinu Charles of the Ritz þar sem hann kynnti sér nýjustu
línuna í snyrtingu. Á meófylgjandi mynd er hann ásamt José-Luis, sem
þjálfaói hann.
fclk í
fréttum
+ Hópur ungra áhugamanna um utanríkismál var nýlega á ferð í Kína. Meðal annars áttu þau viöræóur við
aðstoðarutanríkisráóherra Kína, Han Ke-Hua, og var meðfylgjandi mynd tekin við þaö tækifæri. Frá vinstri
Huang, forstööumaöur Evrópudeildar utanríkismálastofnunar Kína, Kjartan Gunnarsson, Einar K. Guófinns-
son, Geir H. Haarde, Han Ke-Kua, Jón Steinar Gunnlaugsson, Baldur Guðlaugsson, Karitas Kvaran, Kristín
Pálsdóttir og Inga Jóna Þóröardóttir.
Allir
óbreyttir
+ i fréttabréfi jórdanska flug-
félagsins, Alia, rákumst viö á
þessar myndir, sem sýna áhöfn
Arnarflugs þrífa og gljáfægja
mjallhvítan skrokk vélarinnar.
Á heitum sumardegi birtist öll
áhöfnin léttklædd úti á vængjum
vélarinnar. Allir, jafnt háir sem
lágir unnu þar saman. Þetta
fannst Jórdönum vera merki
um hina fullkomnu samvinnu og
fluttu kveóju til þeirra, sem
starfaó geta saman án tillits til
stöóu eða stéttar.