Morgunblaðið - 20.07.1980, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 20.07.1980, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ1980 45 íÉS VELVAKANDi SVARAR í SÍMA 0100 KL. 10—11 FRÁ MÁNUDEG! MtuAinx-aa'iJU eða forystugreinarnar yrðu lesnar í heild. Síðari kosturinn er hinn sanngjarni bæði gagnvart hlust- endum og þeim, sem þessar grein- ar semja. K. • ótrúlegt ofsóknaræði Ég held að fáir Reykvíkingar hefðu trúað því að óreyndu að ríkisstjórnin notaði fyrsta tæki- færi til að bregða fæti, svo hraust- lega fyrir Hitaveitu Reykjavíkur að hún er nú tilneydd að nema staðar á sinni stórglæstu fram- sóknarbraut, sem allt frá upphafi hefur sparað þjóðinni ótalda milljarðatugi baeði í gjaldeyris- sparnaði og stórsparnaði hitak- ostnaðar þeirra, um eitthundrað- þúsund Islendinga sem eru þeirrar gæfu aðnjótandi að vera búsettir á veitusvæðinu. Hitaveitan og stjórnendur hennar eru löngu orð- in fræg, langt út fyrir okkar land, fyrir alveg óvenjulega framsýni og ágæta stjórnun. • Hvað hefur komið yfir manninn? Áreiðanlega hefði engum dottið í hug að hinn fyrrverandi og að mörgu leyti ágæti orkuráð- herra ætti það eftir að hafa forustu í því óþrifaverki að stöðva Hitaveituna á stórmerkri fram- farabraut og neyða hana til að rifa seglin. Forráðamönnum veitunnar er borið á brýn að þeir falsi reikninga og heimtuð er rannsókn. Líklega verður stórfyrirtækja- þjófaleitarameistara Ríkisstjórn- arinnar bráðum falið málið. • Kippt í tjóðurbandið Yfirlýsing Guðmundar G. Þórarinssonar um hitaveitumálið hefur vakið mikla athygli. Ég vil treysta því að hann standi við orð sín, því hann hefur sýnt mikinn áhuga á stóraukinni beizlun inn- lendra orkugjafa í stað hinnar rándýru erlendu orku, sem nú er að færa þjóðina á kaf í erlendri stórskuldasöfnun. Nýlega er búið að ganga frá lántöku að verðmæti einnar Kröfluvirkjunar. Megnið af þessu láni (og áreiðanlega fleirum SKAK Umsjón: Margeir Pétursson í undankeppninni fyrir skák- þing Sovétríkjanna í fyrra kom þessi staða upp í viðureign alþjóð- legu meistaranna Razuvajev og Lputjan. Razuvajev, sem hafði hvítt og átti leik, gat hér þvingað fram vinning á einstaklega skemmtileg- an hátt með 26. Rg4!!. Svartur er greinilega nauðbeygður til þess að leika 26.... hxg4, og eftir 27. Hd5! á hann enga fullnægjandi vörn gegn hótuninni 28. Dh4+ — Kg8, 29. Hg5 mát. Razuvajev, sem var í tímahraki lék aftur á móti 26. Df5+. • '&v sem á eftir koma) fer ekki í virkjanir eins og haldið er fram. Það fer beint í gin hins tröllaukna ríkisbákns, sem stjórnin hefir þanið út og slegið þar öll fyrri met. Þau tíðindi gerðust þegar stjórnin skammtaði Hitaveitunni 10% að núverandi orkuráðherra vildi fara milliveg og leyfa 20% sem hafði auðveldað viðunandi lausn. Og ég vil ekki trúa því að Albert Guðmundsson styðji þá ríkisstjórn sem torveldur starf- semi Hitaveitunnar og veldur með því stórtjóni bæði Reykvíkingum og landsmönnum öllum. Forsetakosningarnar eru liðnar og ekki lengur hægt fyrir stjórn- ina að skýla sér bakvið þær, sem eitthvað verður nú að finna til að fela nektina. Bæði Framsóknar- menn og Kommúnistar reka nú upp mikinn öskursöng í öllum blöðum sínum, um yfirvofandi klofning Sjálfstæðisflokksins. Þessi kórsöngur hefir ómað einna hæst frá Framsóknarflokknum, því bæði hann og frávillingarnir úr Sjálfstæðisflokknum vita að enginn trúir lengur niðurtaln- ingarlygum þeirra né treystir þeim til að leysa nokkurt þeirra vandamála sem nú hrannast upp og þola enga bið. Sannleikurinn er sá að stjórnarliðar óttast nú mjög stóreflingu Sjálfstæðisflokksins, því flestir hljóta nú að sjá að enginn flokkur annar er líklegur til að leiða þjóðina útúr því miðaldamyrkri andlegu og efna- hagslegu, sem hún situr nú í. Flestir viðurkenna nú viðureisn- artímabilið. Og staðreynd er að stjórn Geirs Hallgrímssonar kom verðbólgunni í 27% án þess að atvinnuleysi yrði, en þó ærðist verkalýðsforustan og hleypti öllu í bál með hinum stórskaðlegu og óraunhæfu sólstöðusamningum, og einhver svívirðilegasta ofsókn- arherferð er um getur var hafin gegn hinum ágætasta stjórnmála- foringja þjóðarinnar og núverandi forínaður Sjálfstæðisflokksins. Ég vona að þjóðhollir og framsýnir menn sameinist um að koma vitinu fyrir stjórnina að hún hætti aðförinni gegn Hitaveitunni, svo hún geti óáreitt sinnt sínu þjóðar- nauðsynlega starfi áfram. Annars ætti stjórn sem gerir sig seka um svona stór afglöp að segja af sér sem fyrst, en allt bendir þó til þess að hún stefni nú aðeins að því að sitja meðan sætt er í stjórnarstól- 03^ SIG6A V/öGA í itLVtVAU unum, og njóta sætleika hins sósíaliska valds á meðan hægt er. Ingjaldur Tómasson. HÖGNI HREKKVISI Teppadcild JL-hússins er í sumarskapi og býður glæsilegt teppaúrval á góðu verði og einstökum greiðslukjörum Níösterk stigaefni - verð frá kr. 10.400 Ódýr teppi - verð frá kr. 5.400 Þéttofin rýjateppi - einstakt verð, aðeins kr. 18.800 og við gerum enn betur og bjóðum 10% afslátt í viðbót! Greiðslukjör í sérflokki: Útborgun 1/4 - eftirstöövar á 6-9 mán. Þjónustan ofar öllu: Viö mæium gólfflötinn og gerum tilboð án skuldbindinga Teppadeitd Jón Loftsson hf. Hringbraut121 sími10600 vú vs\wod w V/6 V* VÚ Ytöfttö /IVRAví AQ \ v46Ms\(ri^\ 06 im Wi q£Ki?4 \/\9 V/6 f I , VlV£RN/ó ' x 'VENóW V4 V/.060 \ aq & A05/NS AX

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.